Morgunblaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 32
lESIO DDCIECII RUGLVSincnR <§^»22480 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBB^R 1972 Skipstjórinn á Miröndu: Óðinn hótaði að skera á togvírana SAMKVÆMT upplýsingum Land- hHgisgæzIunnar kom til harðra orðaskipta í fyrrakvöld milli brezkra togara og- varðskipsins Óðins. Gerðist þetta um klukkan 22, er varðskiptið kom að 6 eða 7 brezkum tog-urum innan 50 mílna markanna við Kópsnes á Vestfjörðum. Að öðru leyti var allt með kyrrum kjörum á mið- unum umhverfis landið í gær. Skipstjórinn á Miröndu, commander Charles Adamis sagði í viðtali við Mbl. í gærkvöldi, að Óðinn hefði komið að togurun- um um klukkan 22 og hefði hann skipað þeim að hífa trollin og hverfa síðan á brott af svæðinu. Syðsti togarinn í hópnum, Kennedy FD 139 frá Fleetwood sininiti ekki skipun varðskipsins og hótaði það þá að klippa á víra togarans. Skipstjóri Kennedys lét hótanir varðskipsins engin áhrif hafa á sig og varðskipið framikvæmdi ekki hótun sína, að því er Adams sagði. Adaims sagði, að varðskipið hefði lónað í kringum togarann í nokfkrar klukkustuindir og ekki yfirgefið hann fyrr en klukkan var orðin 01.30 um nóttina. Adams sagði að þannig skýrslu hefði hann fengið af aitburðin- um en Miranda var nærstödd. Heimaey; 50 þúsund króna sekt - afli og veiðarfæri gerð upptæk MÁL vélbátsins Heimaey VE 1, sem staðinn var að ólöglegitm togveiðum 1,7 sjómilur frá landi við Dyrhólaey sl. þriðjudag, var í grær tekið fyrir hjá bæjarfóget- anum i Vestmannaeyjum. Var skipstjórinn dæmdur í 50 þúsund króna sekt, og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Við réttarhöldin neitaði skip- stjóri að hafa verið við veiðar innan fiskveiðitakmarkanna, og kvaðst hafa verið rétt nýbúinn að setja veiðarfæri í sjó, er varð- skipið kom að bátnum 3,2 sjómíl- ur frá landi. Fyrsta mæling varð- skipsins sýndi að hann hefði ver- ið 1,7 sjómíllur frá landi, en síð- an stefndi hann út, og var kom- inn rétt út fyrir takmörkin, þeg- ar varðskipið bar að. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu, að vegna strauma, dýp- is, togstefnu og annarra þátta, hefði hann verið búinn að toga Boeing kynnir Loft- leióurn 747 II Í',R á landi eru nú staddir menn frá Boeing fliigvélaverksmiðjun- mn bandarísku, i þeim tilgangi að kynna stjórnendum Loftleiða, .liimbó-þotuna Boeing 747. Að sögn Charles Weaver, full- trúa Boeing verksmiðjanna, hafa átt sér s-tað viðræður við Loft- ieiðir um hugsanleg kaup á 747, en um aJlvarlegar samningavið- ræður hefur þó ekki verið að ræða, enn sem komið er. Að- spurður um hvort hann teldi miklar líkur á að Loftleiðir festu kaup á 747 sagði hann það mjög jiklegt að félaigið festi kaup á -þotu með vítt farþegarými í ná- inni framtíð, en hvort það yrði Boeimg-747 eða einhver önnur þota, þorði hann ekki að segja um. Boeinig ætti nú í mjög harðri samkeppni, bæði við McDonnel Douglas og Lockheed, sem kynnti Sina TriStar þotu hér um dag- Framh. á bls. 31 dágóða stund áður en varðskipið bar að. Skipstj óri kvaðst áfrýja dómnum. mundu iií li.HU! >ii. ||111i i 1111 ijjliiiliii! iiiiiilll ** * ~ M Horna- f j arðarbátar; Á síld- veiðar með reknet TVEIB Hornaf jarðarbátar eru nú að halda á síldveiðar nieð reknet á heimamiðum, en slíkar veiðar hafa ekki verið stundaðar hér við land í mörg ár. Eru þetta bátamir Skinney SF 20 og Akur- ey SF 52, og er gert ráð fyrir að Skinney haldi á miðin fljótlega eftir helgi, en Akurey nokkru seinna, þar sem bátnrinn er nú í slipp. Ásgnímuir Halldónsisoin, kaup- félagsstjóri á Höfn, sagði í við- taili við Mbl. í gær, að nokkrir trollibátar frá Homafirði hefðu orðið varir við sáítd á svæðinu frá Homafjarðardýpi að Hrol'lau gs- Framh. á bls. 3 Maurice Schumann í heimsókn í sundlauginni i Eatigardal í gær. (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.) Vinstri stjórnin: Vill fella niður til atvinnuleys- istrygginga FJABMÁLABAðHEBBA hefur farið þess á leit við stjórn At- vinnuleysistryggingasjóðs að hún samþykki, að ríkissjóður felli nið ur greiðsluframlag sitt til sjóðs- ins að hluta. Ef stjórnin fellst á þetta verður að breyta lögum um sjóðinn, en sainkvæmt þeim er gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði jafnt til Atvinnuleysis- tryggingasjóðs og atvinnurek- endur og viðkomandi sveitarfé- lög til sanians. Hér er um að ræða niðurfellingti á greiðslu fjárhæðar, sem nemur allt að 100 milljónum króna, en sam- kvæmt fjárlögtim var áætlað að ríkissjóður greiddi 147,7 millj. kr. til sjóðsins á þessu ári. Hjálmar Vilhjálmsson, formað- ur sjóðsstjórnar, sagði I viðtali við Mbl. í gær, að enn hefði ekki borizt nein fonmleg beiðni um þetta frá ráðherra. Hins vegar hefði þetta mál borið á góma á fundi stjórnarinnar, sem haldinn var s.l. miðvikudag, en ekki hefðu verið gerðar neinar bókan- ir varðandi það. Því væri ekkert hægt um málið að segja að svo framlag stöddu, en hann bjóst við að það yrði e.t.v. tekið fyrir á næsta fundi stjórnarinnar, sem hald- inm verður 4. október n.k. Jón Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri I f j ármálar áðuney tinu, sagði, að samkvæmt bráðabirgða lögum frá því i sumar hefði ver ið gert ráð fyrir að mæta þeim hækkunum, sem lögin fælu í sér, með því að skera niður önnur útgjöld fjárlaga. Hefði þá m.a. verið gert ráð fyrir að fella jafn- vel niður hluta framlags ríkis- sjóðs til Atvinnuleysistrygginga- sjóðs. Um það hefði þó engin ákvörðun verið tekin enn. Land- helgis- peningur til ágóða fyrir land- helgissjóð ÚTFLUTNIN GSSAMTÖK gul'Lsmiða hafa ákveðið að láta gera landhelgispening til ágóða fyrir landhelgissjóð. Verður peningurmiin gerður úr gulli, silfri og bronsi. Gull- peningurinn verður fram- leiddur í mjög takmörkuðu upplagi og verður hvert ein- tak númerað. Undirbúningsvinna er þegar hafiin bæði hér og erlendis, en 5 aðilar hér á lamdi vinna nú að frumdrögum að hönnun peningsins. Borgarleikhúsið verður í „nýja miðbænum“ Landaði í Cuxhaven TOGARINN Jón Þorláksson seldi afla sinn, 160 lestir, í Cuxhaven i gær fyrir 130 þús und mörk. Er þetta þriðji is- lenzki togarinn, sem landar i Þýzkalandi frá því 1. septem ber, en eins og skýrt var frá lönduðu Neptúnus og Karls- efni afla sínum þar fyrir nokkrum dögum síðan. Jón Þorláksson er nú á heímleið. — niilli Kringlumýrar- brautar og Háaleitis NEFND sú, sem fjallað hefur um staðsetningu borgarleikhúss í Beykjavík, hefur nýlega skilað áliti sínu, og hefur Leikfélag Beykjavíkur lýst sig samþykkt þeirri greinargerð. Niðurstöður nefndarinnar em þær, að leik- húsinu skuli valinn staður á 'svæðinu milli Kringlumýrar- brautar og Háaleitisbrautar, þar sem nefnt hefur verið „nýja mið- bæjarsvæðið". Þar með er horfið frá þ\4 að b.vggja borgarleik- húsið í gamla miðbænum, en leikfélagio hefnr lengi horft lóðir á Tjarnarsvæðinu gú-ndaraiigiim. Þær miinu liins vegar ekki falar að svo stöddu. „Við gerum okkur vonir uim að undirbúiningsframikvæimdir geti brátt farið að hefjast," sagði Guðmuindur Pálsson, fonmaður leikfélagsins i viðtali við Mbl. í gær. „Nú þegar búið er að ákveða staðsetriiinguina nokikurn veginn, ætti að vera hægt að hugsa um útlitið, enda er gert ráð fyriir að hægt verði að hefja framkvæmdir við bygginguma vorið 1974. Eins og fram hefur komið, lýsti félagsfundur í leik- félagimu sig samiþykikan því að ráða tvo eða þrjá ankitekta tii þess að sjá um teiikningu húss- íns í stað þess að efna til huig- myndasamkeppni, og má því bú- ast við að þeir verði ráðnir innan tiðar." Guðmundur sagði, að í bygg- imgasjóði ieikfélagsins væru nú um 10 milljónir kr„ borgarsjóður hefði þegar lagt fyrir yfir 20 milljónir á undanfömum árum, þannig að ekki ættu peningamál- inað standa í vegi fyrir því að hafiat yiði handa á næstunni. Nefnd þessi, sem sikipuð er þremur mönnuim tilnefndum af leikfélaginiu og tveimur tillnefind- um aif borgarstjóra, heifur undan- fama mámuði unnið að þvi að Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.