Morgunblaðið - 14.02.1973, Síða 4
.4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1973
Fa
ItÍL lI.I'If, IA
T.rrnr
22*0*22-
RAUOARÁRSTÍG 31
BILAUIGA
CAR REIMTAL
21190 21188
14444-S125555
ÍVm
^ BILALEIGA-HVtl
mifiw
LALEIGA-HVEFISGOIU IQ3 J
14444 *£? 25555
SKODA EYÐIR MINNA.
Shbdh
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46. ,>
SÍMI 42600.
Skuldnbiéi
Seljum ríkistryggð skuldabréf.
Seljum fasteignatryggð skulda-
bréf.
Hjá okkur er miðstöð verðbréfa-
viðsfóptanna.
FYRIRSREfÐSLUSKRIFSTOFAN
fasteigna- og verðbréfasala
Austurstraeti 14, sími 16223.
Þorferfur Guðmundssorr
heímasfmi 12469.
BILAR
VÖRUBÍLAR:
Arg. '68 Mercedes Benz 1413
— '69 MAN 13230, nýinnfl.
— '66 Volvo N88 með
tandem.
— '67 M-Benz 1618
— '66 M-Benz 1418
— '62 MAN 770 m/framdrifr
— '65 MAN 635
— '62 M-Ben* 327 í sérflokkr
— '62 M-Benz 322 í sérflokk:
— '67 Bedford
— '59 Voivo 375
— '68 Volvo N88 með Bogie
— '64 Scama Vabis 76
FÖLKSBfLAR:
Arg. '72 Mazda 1600 De íuxe
ekínn 6 þús. km
— '71 Peugeo* 404 station
— '71 Toyota Mark II
— '72 Sonbeam 1250
— '71 V.W. 1300 sjálfskiptur
með bensínmiðstöð.
— '72 Volkswagen 1300
ekínn 5 þús. km
— '71 Vofkswagen 1300
— '71 Datsur 1200 Coupé
— '67 Voh;3wagen 1300 í sér-
flokki.
— '66 og '69 Ford Bronco
Höfum úrval bifreiða, góð bíla-
stæðí. Kappkostum vandaðan
frágang allra lánsviðskipta sem
víð önnumst.
BfLASA r.A N
m m—m—mmmm SÍMAfí
íOS/OÐ 5
18065
Borqartúni 1.
STAKSTEINAR
Yfirritstjórinn
Ekki er ofsogum sagt af því,
að Kristinn Fin nbogason,
framkvæmdastjóri Tímans, er
mikill afreksmaður. Auk þess
að sinna fjármálum og fast-
eignaumsvifum Framsóknar-
flokksins, annast fram-
kvæmdastjórn Tímans og
berjast fyrir því að verða for-
maður bankaráðs Landsbank-
ans, hefur hann tekið að sér
eins konar yfírritstjórn Tím-
ans og gerzt aðsópsmikill á
þeim vettvangi, ekki síður en
annars staðar, þar sem hann
kemur við sögu. í Tímanirm í
gær birtíst t. d. svonefnd SUF-
síða, þar sem hinír vínstri
sinnuðu, ungu framwíknar-
menn fá að koma skoðtmum
stnum á framfæri. Á síðu
þessari er frá því skýrt, að í
Þjóðólfi, málgagni Framsókn-
armanna á Suðiirlandi, hafi
birzt f jórblöðnngur með
byggðastefmi SUF og síðan
segir: „Það er vissulega hvatn
ing ti! frekari baráttu gegn
hyggðaróskuninní að eitt
helztn blaða landsbyggðarinn-
ar sknií þannig koma til Iiðs
við SUF, sérstaklega þegar
það er haft í huga, að forráða-
menn Tímans töldu. að síður
Tímans væru of dýrmætar
þrátt fyrtr hina miklu ‘ækk-
un til að verja f jórblöðungi til
birtingar á byggðastefnu."
Tilefni þessara rauna ungra
framsóknarmanna er það, að
þeir óskuðu eftir því við Jón
Helgason, sem annast daglega
ritstjórn Tímans, að blaðið
birti fjórblöðung með byggða-
stefnu SUF. Jón Helgason
kvaðst ekki hafa leyfi til þess
að samþykkja siíka útgáfu.
Þá gengu þeir á fund elzta
ritstjóra Tímans (að starfs-
aldri), Þórarins Þórarinsson-
ar, sem jafnframt er formað-
ur þingflokks Framsóknar-
flokksins, og báru fram þessa
sömu ósk. Hann skýrði þeim
frá því, að Kristinn Finnboga-
son hefði bannað birtingu
slíks fjórblöðungs og enn-
fremur hefði hann bannað
birtingu SUF-síðu á laugar-
dögum og simnudögnm, þá
daga ætti engin pélitík að vera
í Tímanum nema leiðarar og
þátturinn „Menn og málefni“.
Er tveir ritstjórar Tímans
höfðu þar með staðfest, að
þeir réðu ekki lengur rit-
stjórnarefni blaðsins, heldur
væri það framkvæmdastjór-
inn, leituðu þeir fimdar við
Kristin Finnbogason. Ekki
var auðblaupið að því, þar
sem framkvæmdastjórinn var
í viðtali „austnr í FIóa“. Þeg-
ar þeir loks náðu fundi hans
staðfesti hann allt sem Þór-
arinn hafði sagt. Af þessu er
Ijóst, að á Tímanum hefur tek-
ið til starfa eins konar yfir-
ritstjóri í persónu Kristins
Finnbogasonar. Hann sýslar
ekki einungis með fram-
kvæmdastjóm blaðsins, heid-
ur einnig ritstjóm þess og
ritstjórar blaðsins sitja og
standa eins og honum þókn-
ast. Mun mörgum sýnast það
verðugt hlutskipti fyrir suma
ritstjóra Tímans a. m. k., að
gerast skósveinar Kristins
Finnbogasonar.
Hugsjóna-
skekkja
Mönnum er tíðrætt um hin
sefasjúku skrif Þjóðviljans
um hjálparstarf varnarliðsins
á Keflavíkurfliigvelli vegna
náttúruhamfaranna í Eyjum.
Leiðari Alþýðublaðsins í gær
fjallar um þessi furðuskrif og
þar segir m. a.:
„Þannig hefur t.d. það furðu
lega ástand skapazt þessa síð-
ustu daga, að í skrifum Þjóð-
viljans er það orðið algert
sáluhjálparatriði í sambandi
við björgunarstörfin í Vest-
mannaeyjum og endurreisn
staðarins, að Bandaríkjamenn
komi þar hvergi nálægt. í leið-
ara eftir leiðara og forsíðu-
fregn eftir forsíðufregn er end
urtekið: Bandaríkjamenn hafa
ekkert gert og Bandaríkja-
menn mega ekkert gera. Sl.
laugardag var það aðal-for-
síðuuppsláttur Þjóðviljans að
hlakka yfir því, að fregnir
Morgunbiaðsins um, að Banda
ríkjamenn hefðu sent af stað
hjálparlið tii þess að bjarga
eignum Eyjamanna hefðu
reynzt stórlega ýktar. Til allr-
ar hamingju væri slíkt ennþá
bara á umræðustigi! Til alirar
hamingju fyrir hverja? Vest-
mannaeyinga? Eða málstað
alheimskommúnismans, svo
skringilegt sem það nú kann
að vera, að það sé „málstaðn-
um“ til framdráttar að baxida-
rískum hermönnum sé mein-
að að moka vikri af húsþök-
um úti í Vestmannaeyjum eða
að útvega pramma til þess að
flytja á sófasett og flökunar-
vélar?
Þjóðviljinn er orðinn svo
heltekinn af haráttu sinnl
gegn bandarískum hjálpar-
sveitum og bandarískum hjáip
arviija, að annað kemst ekki
iengur að og rás viðburða í
Vestmannaeyjum snýst ekki
lengur um annað. Blaðið og
ritstjórar þess hafa sett allt
sitt stolt í að koma í veg fyrir
að bandarísk aðstoð berist ís-
lendingum og hlaðið siær því
upp sem signrfregnum, ef
fregnir um bandarískan stuðn
ing reynast ekki á rökum
reistar."
spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hringið i síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unbiaðsins.
UM VARHABFERH
Artlmr Aanes, Efstasundi
12 spyr:
„Landsmálafélagið Vörður
hefur nú auglýst skemmti-
ferð til Miami-stranda fyrir
120 rnanns, sem kosta mun
milljónír í beinum ferðakostn
aði, fýrir utan allan eyðslu-
eyri. Mér sámar að sjá þetta,
og það frá því stjórnmálafé-
Iagi, sem á að hafa mest vit.
Ég hef alltaf kosið Sjáifstæð-
isflokkinn, en nú sámar mér
að sjá þessar ráðagerðír, ein-
mitt á þeim tíma. þegar svo
mikíLs fjár er þörf til stuðn-
ings Vestmannaeyingum. Því
vii ég spyrja, hvemíg standi
á því, að til þessarar ferðar
er efnt.“
Valgarð Briem. formaður
Landsmálaféiagsins Varðar,
svarar:
„Ferðaskrifstofan Úrval
skýrði Verði frá þvi, að Flug-
félag íslands þyrfti að senda
eina af þotum sínum til Mi-
ami á Florida til eftirlits og
viðhalds, og yrði sú ferð far-
in í marzmánuði. Flugfélagið
má ekki auglýsa eftir farþeg-
um eða keppa á þessari flug-
leið við önnur flugfélög, þvi
að það hefur ekki leyfi til
sliks. Hins vegar er ekkert
því til fyrirstöðu, ef félagið
vill, að þessi ferð verði notuð
fyrir einhverja aðila, sem þess
óska. Og það er einvörðungu
vegna þess, að vélin þarf að
fara til Miami hvort eð er,
að ferðaskrifstofan Úrval
kannaði fyrir hönd félagsins
hvort viiji væri fyrir hendi
hjá Verði að notfæra sér þessa
ferð. Við i stjórn Varðar gerð
um okkur það ljóst, að miklu
færri myndu vilja notfæra sér
þessa ferð eh ella, vegna ríkj-
andi aðstæðna nú, en við viss
um einnig, að ferðaskrifstof-
ur og flugfélög auglýsa nú
ferðir til sólarlanda, þrátt fyr-
ir náttúruhamfarimar í Vest-
mannaeyjum og það virðist
vera vilji fyrir hendi hjá
fólki til að fara í þær ferðir.
Fyrst svo er, þá fannst okk-
ur rétt að kanna vilja félags-
manna til að notfæra sér
þessa ferð, sem við mynd-
um þá fá á hagkvæmara verði
en við ella gætum fengið. —-
Og að sjálfsögðu vonum við,
að fólki yfirgefi ekki Sjálf-
stæðisflokkinn í hrönnum
vegna þessa, og okkur þykir
það leitt, ef ákvörðun okkar
um að auglýsa þessa ferð hef
ur valdið misskilningi.“
TAKA
LANDHELGISBRJÓTA
Jóhann Fr. Hannesson,
Freyjugötu 26, spyr:
„Hefur ekki varðskipum
gefizt tækifæri til að taka
brezka eða þýzka lögbrjóta
siðan landhelgin var færð út
í 50 mílur. Ef tækifæri hefur
gefizt og gefast því er þá ekki
togarataka framkvæmd?"
Hafsteinn Hafsteinsson, lög
fræðingur, blaðafuilltrúi Land
helgisgæzlunnar svarar:
„Frá þvi að fiskveiðilögsag-
an var færð út í 50 sjómílur
þann 1. september sl. hefur
ekki skapazt sú aðstaða, að
rétt hafi þótt að framkvæma
töku á erlendum togara.“
4 bílar skemmdir
Hydrovac
3REMSUKÚTAR
NÝKOMNfR
Bergur Lárusson hf.
Ármúla 32 — Símt 81050.
Okkar vinsælu hvíldarstólar eru
rú fáanlegir í úrvaii.
Gamla Kompaníii)
Síðumúla 33 — sími 36500.
LÖGREGLUNNI hafa undan-
farna daga borizt tilkynningar
um fjórar bifreiðir, sem hafa
verið skemmdar, er ekið var ut-
an í þær, þar sem þær stóðu
kyrrstæðar og mannlausar á bif-
reiðastæðum, og biður lögreglan
alla þá, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um þessar ákeyrsi-
ur, að láta hana vita sem fyrst.
Um kl. 03.30 aðfiaramótt sur.nu
dags var ljósgrárri Moskwitch-
bifreilð ekiJð á vinstri framhlið
drapplitaðrar Opel-bifireiðar, R-
32629, þar sem hún stóð í Háa-
gerði við Mosgerði, og var fram-
hlið henmar dælduð.
Á tímaniuim frá ld. 19.30 á fös'tu
dagsffcvöld til kl. 03 aðfararnótt
sun/nudags var ekið á dökkbláa
VW-bifrei® við Starbaga 16, og
hægra frambretti, hjólfeoppur og
felga eyðiilögð, auk þess sem
framihöggvari var slkemimdujr.
Skarkali heyrðist fyrir utan hús-
ið edmhverm tíma á t íimainum kL
23.30—00.30 aðfararmótt sunmu-
dags, og brot úr sfcefmiuljósshikit,
sem fumdust á staðmum, benda
til þess að bifreilðin, sem árekstr-
inum olíi, hafi verið Taumus 17
eða 20 M, árgerð 1968, og má
ætl-a að hún sé nofekuð daelduð
á vimstra frambretti.
I>á var á tknanum frá kl. 19 á
þriðjudagskvöldið 6. febrúar til
M. 09 næsta morgum eikilð á rauða
Skoda-bifreið, R-30902, við Dala-
l.and 7 og vinstri hlið hennar
dælduð, og á þriðjudag 6. febr.
kl. 09—17 var ekið á græma VW-
bifreið, R-10114, í Inigólfsstræti
eða Þimghoitssrtræti, og vinstra
fnambrettd henmar rispað og
dældað. Bifreið sú, sem því tjóml
olffi, mum hafa verið ljós að lit