Morgunblaðið - 06.03.1973, Side 2

Morgunblaðið - 06.03.1973, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. MARZ 1973 ynd þrjú loðnuskip bíða eftir (Ljósnn. MM,: ÓI. K. Mag.) Nokkiir löndunarbið var í Reykjavík í gær og sjást á þessari in löndun við Grandagarð. Gífurleg loðnuveiði um helgina — heildaraflinn um 244 þús. lestir — Guðmundur RE aflahæstur GlFURLEG loðnuveiði var frá niiðnætti á laugardagskvöldið fram til miðs dags í gær og á þessum tíma fengu flestallir loðnubátarnlr afla, þannig að síð ari hluta dags í gær voru sárafá- ir bátar á miðunum, en hinir all- ir annaðhvort í höofn i löndun eða á leið til f jarlægra hafna með aflann. Á þessum tíma var loðnu löndunarnefnd tilkynnt um 24.500 lesta afla, sem er einhver mesti afli, sem um getur í loðnu- veiði hér við land á svo skömm- um tíma. Er heildarloðnuaflinn á vertíðinni þá kominn i um 244 þús. Iestir. Samkvæmt skýrslum Fiskifélagsins var aflinn sl. laug- ardagskvöld orðinn tæplega 220 þús. lestír, en var á sama tíma í fyrra orðinn rúmlega 216 þús. lestir. Aflahæsti loðnubáturinn er Guðmundur RE, sem var á laugardagskvöldið kominn með rúmlega 9.000 lestir, en næst vai Eldborgin með tæplega 8.500 lestir. Siðan komu Loftur Baldvinsson með rúmlega 6.300 lestir, Gísli Árni með rúmlega 5.600 iestir og Grindvildngtir með tæplega 5.600 lestir. Fjórir aðrir bátar höfðu fengið yfir 5.000 lestir. 10% álag á gjald- Alls höfðu yfir 80 bátar fengið einhvern afla og loðnu hafði ver- ið Iandað á 22 stöðum um allt land. Heildaraflinn síðustu viku var um 57 þús. lestir, sem er mesti vikuafli í sögu loðnu- veiðinnar hér við land. Sam- kvæmt upplýsingum Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna var áætlað að í gærkvöldi væri búið að frysta um 13 þús. lestir af loðnu í frystihúsum S.H. og Sam bandsins, og auk þess munu hafa verið frystar á annað þúsund lestir á vegum íslenzku umboðs- sölunnar. Heildarverðmæti loðnu aflans er nú komið í um 480 milljónir króna. í Mbl. hafði áður verið birtur listi yfir afla loðnubátanna fram til miðnættis á föstudagskvöld, en síðan var engin veiði í um sólarhring vegna storms á mið- unum. Síðan hafa eftirtalin skip tiikynnt um afla: Sæberg 150, Gísli Ámi 300, Hrafn Sveinbjarnarson 240, Álftafell 230, Loftur Baldvinsson 390, Ásberg 310, Helga Guð- mundsdóttir 330, Hilmir SU 150, Rauðsey 230, Súlan 53, Guðmund ur 698, Albert 230, Óskar Magn- ússon 480, Skímir 180, Ljósfari 180, Þórður Jónasson 220, Gríms eyingur 150, Vonin 150, Halkion 60, Sæunn 90, Árni Magnússon 180, Grindvikingur 270, Bjarni Ólafsson 310, Viðey 150, Huginn 190, Ólafur Sigurðsson 200, Esj- ar 350, Þorsteinn 320, Fífill 270, Vörður 170, Harpa 200, Héðinn 240, Börkur 800, öm 300, Gissur hviti 280, Bergur 190, Reykja- borg 330, Hinrik 190, Faxi 200, Haraldur 170, Skinney 250, Helga II 240, Hilmir 260, Náttfari 250, Ólafur Magnússon 170, Gunnar Jónasson 160, ísleifur IV 200, Gullberg VE 140, Guðrún 180, Sveinn Sveinbjörnsson 250, Magnús 250, Dagfari 260, Jón Garðar 300, Fylkir 20, Keflvík ingur 250, Súlan 450. Frá miðnætti á suimudags- kvöld: Ásgeir 270, Heimir 450, Hilmir SU 390, Rauðsey 290, Óskar Halldórsson 300, Ljósfari 250, Seley 260, Allbeit 300, Skímir 290, Grimseyinigur 260, Eldborg 580, Halkiom 230, Sæumn 170, Ársæll Sigurðsson 190, Þórkatla 230, Kristbjörg II 250, Árni Magnússon 220, Surtsey 110, Viðey 180, Loftur Baldvinsson 400, Fífill 350, Þórður Jón.asson 260, Arinbjöm 150, Ól'afur Sig- urðsson 250, Gulíberg NS 180, Jón Fimnssom 420, Vonim 200, Pétur Jónsson 350, Héðimn 380, Esjar 300, Hrafn Sveimbjamar- son 240, Bjami Ólafsson 270, Álftafell 240, Úranus 60, Huginm 170, Sæberg 250, Helga Guð- mumdsdóttir 350, Gísli Ámi 330, ísleifur 100 og Höfrungur III 280 lestir. Togarinn Úranus hefur þrisvar farið á veiðar með flotvörpu og hefur nú fangið tæpl. 200 lestir alls. Er þetta í fyrsta skipti, sem togari er notaður til loðnuveiða. Ekki hefur þó allt gengið að ósk um í þessari tilraun, því að varpan moin hafa rifnað í öllum veiðiferðunum, vegna þess að hún lenti í skrúfunini. Veiðisvæðin hafa verið tvö undanfama sólarhringa, annað við Ingólfshöfða, em hitt rétt norðvestur af Garðskaga. Hafa skipin á eystra svæðimu haldið á Austfjarðahafnir, en skipín á vestara svæðinu hafa farið á Faxaflóahafnir og eitnnig vestur til Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bolungarvíkur og til Siglufjarð- Bjartii Guðnason; Sit hjá um vantraustið Greiði hér eftir stjórninni atkvæði eftir málefnum „ÞVl er ekld að leyna, að félags- leg vinnubrögð ráðherra SFV eru með þeim hætti, að það er ábyrgðarhluti að styðja slíka menn til setu í ráðherrastólum. Þeir eru og lélegir ráðherrar og hlutdeild þeirra í því að grafa undan stjóminni með genglsfell- ingarkröfu sinni er ekki lítíl. Að öllu athugruðu styð ég aðeins ríkisstjórnina í þeim niálum, sem eru í samræmi við málefnasamn- ing hennar og stefnu þeirra sam- taka, sem ég er í, én greiði vita- skuld atkvæði gegn þeim málum, sem brjóta í bága við þær,“ sagði Bjarni Guðnason alþtn. í umræð- unum um vantrauststillögru Sjálf stæðisflokksins í gærkveldi. Sagðist Bjarni mundu sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Eftir þessa yfirlýsingu Bjarna má segja að meirihluti ríkisstjórnar- innar sé ekki lengur fyrir hendi, þar sem hann getur nú stöðvað öli mál hennar í neðri deild. 1 ræðu sinni gerði Bjami grein fyrir þvi, af hverju klofningur- inn væri orðinn innan samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Að því búnu gerði hann grein fyrir afstöðu sirrni til ríkisstjóm- arinnar og gagnrýndi hana harkalega fyrir óstjóm í efna- hagsmálum, þótt hann hins veg- ar teldi hana hafa staðið nokkuð í ístaðinu í öðrum málum. Verð- ur nánari grein gerð fyrir ræðu hans í blaðinu síðar. Framnesið náðist ekki út í gærkvöldi Látrum, 5. marz. Á ÁTTUNDA támanum í kvöld var gerð tUraun til að draga vél- bátinn Framnes af strandstað á Rauðasandsrifi, en ekki tókst að ná bátnum á flot. I dag höfðu tvær jarðýtur unnið þar niður- frá að því að undirbúa þessa til- raun, en undirbúningi var ekki fyllilega lokið, þegar háflóð var að verða komið, og því tókst ekki aö ná bátnum á flot. Hins vegar losnaði um hann og hann færðist aðeins tU á rifinu. Vrðist þvi sennilegt, að hæ,gt verði að ná honum út á flóðinu i fyrramálið, en það er stór- Þrír sækja um lektorsstöðu FYRIR gkömm'u rann út umsókm arfrestur um iektorssböðu í kirkjusögu við guðfræðideild Há skóla íslands. Þríir sóttu um, þeir séra Heimir Steinsson, séra Jón- as Gíslason og séra Kolbeinn Þor lei'fsson. straumsflóð. Verður unnið í nótt að undirbúningi þeirrar tilraun- ar. Það er björgunarskipið Goð- inn, sem liggur fyrir utan strand staðinn og reynir að ná bátnum út. Báturinn virðist óskemmdur, nema hvað hana laskaðist lítil- lega við tilraunina í kvöld, en menn töldu, að hægt yrði að gera við það í nótt. — Þórður. Olof Palme Olof Palme til íslands Olof Pahne og frú koma til lanidsins síðdegis á föstudag. Bkki mun enn fuilráðið, hve lengi þau dveljast hér, en telja verður víst að Palme hafi hug á að sjá eyðilegiging una, sem orðið hefur aif gos- iwu i Heimaey. OLOF Palme, forsættsráð- herra Svíþjóðar, og kona hans koma hingað til lands núna í vikunni í boði Alþýðuflokksfé lags Reykjavikur. Verða þau heiðursgestir á árshátið fé- lagsins, sem haldin verður í veitingahúsinu i Glæsibæ n.k. föstudag. Flytur Palme þar ræðu. Hraunið að bænum nær staðnað eyri ÞAR sem mikil óvissa ríkir enn í gjaldeyrismálum helms- ins hefur Seðlabankinn enn ekki hafið gengisskráningu að nýju. Hins vegar er gjald- eyrisdeildum bankanna aí- greiddur nauðsynlegur ferða- gjaldeyrir og gjaldeyrir vegna varnings, sem nauðsyniega þarf að losa úr tolli, en þessi gjaldeyrir er afgreiddur með 10% álagi miðað við það gengi sem síðast var skráð, og þegar gengisskráning verð ur tekin upp að nýju, verður endanlega gert upp við kaup endur hans, miðað við nýja gengið. __________________—i „ÞAÐ er ekkert nema gott að frétta það sem það er þessa stundina,“ sagði prófessor Þor- björn Sigurgeirsson í viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, en hann var þá nýkominn frá Eyj- um. „Það er algjört kraftaverk" hélt hann áfram, „hvað hraunið hefur lítið skaðað bæinn það sem af er og sama er að segja um það hvemig hraunið hefur stöðvazt á réttum stiiðum og runnið í hagstæðar áttir." Þorbjöm sagði að hraunið hefði liægt á sér í átt að hænum og allt að því stan/.að Jiar, en hraunið þarna kvað liann vera gamalt liraim, þ.e. ekki í b<ún- um tengslum við rennsli úr gígn um. Fjallið Flakkara kvað Þor- björn vera enn á flakki, en það hefur hægt á sér. Fór það 12 metra norðnorðvestur sl. sólar- hring. Taldi Þorbjöm líklegt að það stöðvaðist alveg þegar Jiað væri komið niður hallann og á jafnhæðirnar sem eru næst sjón um. V a rna rgarðu rirai við Grænai- hií5 var hækkaður í gær og þó að hraiuinið væri alit að því stöðv að þair í gær, taLdi ÞorbjÖm líik iegt að einlhver þrýstimgur ætti eftir að koima þar fram. Búið er að leggja vatnsleiðislur efitir nýja veginum, sem níer 300 mietra imn í hraunið og dæliir Sandey sjó um þær leiðsiur. Vegurinin breytt ist nokkuð á litlum hiuta, en jarð ýta rétrtli hainm af. Skiiipuilleiga er nú unnið að öðru björgunarstarfi í Eyjum. Mælingair hafa verið gerðar á rúimmáli nýja hraiunsins miðað við 23. febr. sl. eða þegar gosið hafði staðið í einn miánuð. 130 millj. rúmmetrar voru þá komnir upp. Til samanburðar má geta þess að í Hékluigosdnu 1947 komu 800 millj. rúmm. upp á 13 mánuðuim, í Öskjugosiniu 1961 komu 150 millj. rúmmetrar upp á 6 vikum, í Surtseyjargos inu 1963—1967 komu upp 1100 miillj. rúmmietrar á þremiur og hál’fu ári og í Heikliugosinu 1970 kornu uipp 200 millj. rúmmetirar á tveimur mánuðum. Aðalhraunrennslið á Heimiaey er nú í norðaustur, ein það virð- isst þó haÆá mkmkað síðústu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.