Morgunblaðið - 17.03.1973, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1973
SA GAI N 1 Eliszabet Ferrars: 1 Samfsráa i d laudan
þagnir hans, sem virtust svo
vandræðalegar, og tregðu á að
samþykkja annað en sjálfsögð-
ustu skoðanir — var hún kom-
in að þeirri niðurstöðu að hann
væri óvenju eftirtektarsamur og
skarpur. Hún var farin að halda
að þetta seinlæti hans stafaði
mest af því, að hann hefði um
of margt að hugsa i senn, lík-
lega of margvíslegar hugmynd-
ir, sem hann héldi sig þurfa að
skipuleggja áður en þær gætu
orðið skiljanlegar öðrum en sjálf
um honum.
Til dæmis að taka, þegar hann
horfði á hana nærsýnum augun-
um, fannst henni hann allt-
af geta lesið það, sem gerðist
1 huga hennar við að sjá hann —
að hún hefði verið auðveldlega
grannskoðuð og sálarástand
hennar hefði verið lagt til hlið
ar til nánari athugunar síðar
meir.
Þegar hún kom nú inn í stof-
una, reis Brian á fætur, en eins
og honum var tamt, sagði hann
ekki neitt, heldur stóð þarna,
brosti til hennar og beið síðan
grafkyrr eftir því, sem verða
vildi.
Hann var stórvaxinn og slytt-
islegur, með langa handleggi og
stórar grófar hendur. Lófarnir
voru breiðir og fingumir snubb
óttir. Með svona fingur, hugsaði
Rakel, var það eitt af mörgu
einkennilegu við hann, að rit-
höndin hans var svo merkilega
smá og snyrtileg.
Hún gekk að arninum og
sagði: — Einhver maður, sem
segist vera bróðir ungfrú Dalzi-
el, var rétt áðan að spyrja mig,
hvort ég hefði nokkuð séð til
hennar. Hann hafði komið í hús
ið, sagði hann, og þar var hún
ekki. Ég sagðist halda, að hún
hefði komið heim í morgun, en
hefði samt ekki séð hana. Hef-
ur þú séð hana, Brian?
— Nei, ekki i dag, sagði hann.
— Ég vísaði honum á hlöðuna,
ef hún skyldi hafa farið þangað
að tala við þig, sagði hún. —
Hann sagðist vera væntanleg-
ur, og honum virtist eitthvað
liggja á.
Faðir hennar sagði nú: —
Bróðir hennar — það er þá fað-
ir Rodericks, býst ég við. Ég
veit ekki, hvernig á þvi stend-
ur, en ég hef einhvern veginn
alltaf haldið, að Roderick væri
munaðarleysingi.
— Það er hann líka, sagði
Brian. Hann stóð enn, og virtist
þurfa að hugsa sig um, hvort
hann ætti að setjast aftur, eða
.............. 11
Híttumst i kaupfélaginu
V.
fara að hitta komumann-
inn. Rakel hafði setzt niður á
lágan stól við arininn, og henni
fannst hann fylla stofuna með
breidd sinni og hlýju rétt eins
og hugsunin um hann fyllti
huga hennar.
— Þau eiga einhvern bróð-
ur, sagði hann. — Ég hef nú
aldrei séð hann, og ég held, að
þau Margot sjáist ekki oft.
— Hann sagði, að hún hefði
gert boð eftir sér, út af ein-
hverju í sambandi við hlöðuna,
sagði Rakel.
Brian brá ekki svip. — Ekki
er mér neitt kunnugt um það,
sagði hann.
— Heldurðu, að hún gæti ver-
ið þar núna? spurði hún.
— Nei, það held ég fráleitt.
— Seztu niður, Brian, sagði
Paul Harwicke, hálfönugur.
Stóri skugginn af Brian gerði
honum erfitt að fylla pípuna
sína. — Þú missir af honum
hvort sem er, þótt þú farir á eft
ir honum. Seztu niður.
— Ég Var einmitt að velta
þvi fyrir mér, hvers vegna . . .
Brian þagnaði en ákvað sig svo
skyndilega og settist. — Ég held
hann sé húsameistari, sagði
í þýáingu
Páls Skúlasonar.
hann. — Já, það er hann víst.
— Kannski hún ætli þá að
arta eitthvað upp á hlöðuna og
selja hana svo? sagði Paul.
— Hlöðuna? sagði Rakel og
hún fann um leið til einhvers
kulda fyrir hjartanu.
Brian leit á Paul, hugsi. — Já,
sagði hann dræmt. — Vitanlega
mætti gera úr henni allra bezta
sumarbústað og selja hana háu
verði. Loka einhverju af sprung-
unum sem mest gustar gegnum
og láta útbúa baðherbergi —
annað þyrfti ekki að gera. Hún
er nógu skemmtileg að öðru leyti
— finnst þér ekki?
— Já, og í þægilegri fjarlægð
frá London, sagði Paul og kink-
aði kolli. — Og þá gæti hún
um leið losnað við eitthvað af
lóðinni, sem er alltof stór fyrir
hana, eins og er, og það er eng-
in hætta á, að byggt verði þama
á næstu grösum, svo að ég viti,
eða vegur lagður gegnum lóð-
ina.
Vudd- og snyrtisofa
Ástu Baldvinsdóttur Kópavogi
HRAUNTUIMGU 85 — SlMI 40609.
Tyrknesk böð
Megrunarnudd
Partanudd
Húðhreinsun
Handsnyrting
Fótsynrting
Augnabrúnalitanir
Vil sérstaklega vekja athygli á 10 tíma
megrunartímum með mælingum.
Opið til klukkan 10 á kvöldin.
Bílastæði. — Simi 40609.
Irtnilega þakka ég ykkur öllum, sem á 70 ára afmæli minu,
8. marz sl., sýnduð mér margháttaða vinsemd með heimsókn-
um, gjöfum og vinarkveðjum.
Lifið heil.
Sigmundur Sigurðsson,
Syðra-Langholti.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Saga og lærdómur
geymd í örnefnum
Þá er bezt að taka hér fyrir
bréf, sem fjallar um nafngift
Heimaeyjarfellsins nýja.
„Það hefur alltaf þótt bar-
átta að búa í Eyjum. Hefir sú
barátta verið ströng og hörð og
kostað fómir, en misjafnar að
vöxtum. Aldrei hefur verið gef
inn greiðslufrestur á gjöldum
þeim, sem lífsbaráttan hefur
krafizt. Miskunn er fyrirbæri,
sem þekkist ekki á þeim vett-
vangi.“
Þannig hefst bréf frá Gísla
Óskarssyni, Faxabraut 2b, Vest
mannaeyjum, stöddum í Kaup-
mannahöfn. Og Gísli heldur
áfram:
„Barátta Eyjamanna fyrir lif
inu hefir kennt þeim margt, og
hafa þeir geymt sögu og lær-
dóm reynslunnar í örnefnum,
sem alls staðar má finna, jafnt
í eyjunum sjálfum sem og á
hafinu umhverfis. Sem dæmi,
þessu til stuðnings, mætti
nefna: Dufþekju með Dufþaks
skor, Beinakeldu við Klettsnef
ið, Syðri- og Nyrðri-Hvíld, að
ógleymdum helli úti í Urðum,
sem nefndur var/er jöfnum
höndum Rauðhellir eða Píslar-
hellir."
0 Kenndu menn hellinn
við píslir Jóns . . .
Þá segir í bréfi Gísla:
„Við Pislarhellis (Rauðhell-
is) nafnið er tengd minning at-
burðar frá Tyrkjaráninu árið
1627. Hafði Jón Þorsteinsson,
prestur á Kirkjubæ leitað hæl-
is í helli þessum ásamt heima-
fólki sínu. Til allrar óham-
Ólafsfjörður
Til sölu 140 ferm. glæsilegt raðhús (endahús)
með innbyggðum bílskúr. Allt á einni hæð. Ibúðin er
forstofa, hol, stofa, 4 svefnherb., bað, eldhús, búr
og þvottahús. Harðviðarklæðning I öllum loftum.
Teppalögð gólf.
Húsið sem er nýtt síðan í haust er í leigu til 1. júní,
verður þá laust. Verð 2,8 — 3 milljónir kr. Áhvílandi
um 850 þús., um 900 þús. kr. lán er til 10 ára.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN, Hafnarstræti 11,
símar 20424 og 14120, heima 85798.
ingju uppgötvuðu ránsmenn-
irnir felustað Jóns, og þurfti
ekki nð sökum að spyrja. Jón
var di ifinn út og uppfyrir hell-
inn, en fólk hans látið bíða ör-
laga sinna inni í hellinum.
Stundu seinna sá það blóð
drjúpa niður í gegnum glufu á
hellisloftinu. Kom fljótlega í
ljós, að blóð þetta rann frá
Jóni presti, hálshöggnum.
Er glæpamenn þessir hurfu,
með feng sinn, brott frá Eyjum,
var Jóni gert leg á Kirkjubæj-
um. Árituð steinhella var sett á
leiði hans. Hellirinn gleymdist
ekki. Kenndu menn hellinn við
píslir Jóns (og annarra Eyja-
manna) og gáfu honum nafnið
Píslarhellir. Var síðan Píslar-
hellisnafnið og Rauðhellisnafn
ið notað jöfnum höndum, og
hefur slíkt verið gert fram á
þennan dag. — Nú er þessi hell
ir farinn veg allrar veraldar.
Geta menn þakkað eldgosinu
það og margt annað ógagn."
0 Hellirinn horfinn
en fjallið situr
Enn segir Gísli:
„Hafa þessir næstum tveir
mánuðir, sem eldgosið hefur
varað, verið sannkallaðir písl-
armánuðir fyrir Eyjamenn. Þó
svo að enginn hafi dáið líkt og
gerðist í Trykjaráninu forðum,
hefir eignatjónið verið gifur-
legt, og er það vissulega písl
út af fyrir sig, a.m.k. fyrir eig-
endur þeirra verðmæta, sem
glötuð eru. Finnst mér því
óþarfi að velja einhver goð-
sagnanöfn á öskuhaug þennan,
svo sem Þrymur, eða dunda við
miður falleg „skáldanöfn“, eins
og Árna-Krumm-fjall. Þar eð
Píslarhellir er horfinn, en fjall
ið situr þar sem hann var, þá
finnst mér hlýða að færa hellis
nafnið yfir á þennan eldspú-
andi ógnvald og kalla hann
Pislarfell. Getur nafnið minnt
á píslir Eyjamanna í fortíð og
nútíð og þjóðarinnar (í nútíð)
að hluta.“
0 „Ástarvísa Vatnsenda-
Rósu“
S.l. miðvikudag var hér i
þættinum spurzt fyrir um,
hvort „hinar kunnu ástarvísur
Vatnsenda-Rósu" væru ortar
til Natans Ketilssonar eða Páls
Melsteð, sýslumanns. Um það
virtust deildar meiningar.
Jón Þ. Jónsson, Skipholti 53,
hringdi til Velvakanda og tjáði
honum, að hvorki væru vísurn
ar ortar til Natans né Páls.
Þær væru ekki einu sinni eft-
ir Vatnsenda-Rósu, þó svo að
þær væru oft eignaðar henni.
Vísur þessar væru tvö er-
indi úr „Vetrarkvíða", ljóða-
flokki eftir Sigurð Ólafsson í
Katardal á Vatnsnesi. Þann
ljóðaflokk orti Sigurður til
konu sinnar, Þorbjargar Hall-
dórsdóttur, en Sigurður og Þor
björg voru foreldrar Friðriks,
sem varð Natani Ketilssyni að
bana. Erindin í ljóðaflokknum
eru alls 35, og eru þessar um-
ræddu visur þar númer 24 og
25.
Ja, hvað nú, góðir hálsar,
vill einhver bæta hér um bet-
ur?
Húseign ísafirði
Til sölu íbúðarhús ásamt um 70 fermetra góðum
geymsluskúr.
Upplýsingar í síma 3203 Isafirði og 34113 Reykjavík.
Nú eða...
næst er þér
haldið samkvæmi;
FERMINGAR-
AFMÆLIS-
eða
T7EKIF7ERISVEIZLU
erum við reiðubúnir
að útbúa fyrir yðurs
Kalt borð, Heita rétti,
Smurbrauð, Snittur,
Samkvæmissnarl.
Auk þess matreíðum
við flest það, sem
yður dettur f hug,
— og ýmislegt fleiral
Sœlkervnn
HAFNARSTRÆTI 19
S&ni 13835 og 12388.