Morgunblaðið - 18.03.1973, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1973
Sjötug á morgun:
Helga Kristjánsdóttir
Þessi fábrotna endurminning
er rifjuð upp er sjötugsafmæli
frú Helgu nálgast, en eiginmað-
ur hennar náði þessu marki í
hraðspretti tímans þann 13. nóv-
ember síðastliðinn.
Þótt yfir æðimargt firnist með
háum aldri, þá munu flestir gaml
ir kennarar eiga lengi í fórum
sínum ýmsar augnabliksmyndir
af börnum, eins og þau komu
þeim fyrst fyrir sjónir er til skól
ans kom. Svo er því háttað með
húsfreyjuna, sem sjötug er í
dag.
Ég á af henni ljóslifandi mynd
i minni mínu, þegar hún kom
fyrst í skólann minn á Flateyri
fyrir rúmum 60 árum með spjald
ið sitt undir hendinni, vel klædd
og brosandi og sæl á svip.
Hún var dóttir Kristjáns Ás-
geirssonar verzlunarstjóra frá
Skjaldfönn og Þorbjargar Guð-
mundsdóttur frá Dýrafirði, sem
mörg börn áttu í skóla mínum
og öll ágæt.
Og Helga óx upp i glöðum
systkinahópi við prýðilegan heim
ilisbrag, sótti síðan Kvennaskól-
ann í Reykjavík og reyndist alls
staðar ágætur skólaþegn, enda
átti hún til góðra að telja.
En svo kom ungur maður til
sögunnar árið 1919, þá nýslopp-
inn úr Verzlunarskólanum. Hann
flyzt til Flateyrar og gerist
skrifstofumaður hjá verzlun
þeirri, er faðir Helgu veitti for-
stöðu. Hann hét Guðmundur, son
ur Sigurðar Þorkels kaupmanns
á Laugavegi 62 í Reykjavík og
konu hans Hólmfríðar Guð-
mundsdóttur frá Ánanaustum,
fallegur piltur, vel gefinn og
gerður, söngvinn ágætlega, svo
að mér þótti mikill fengur að
honum i kórinn minn. Og hann
kynnti sig svo vel, að okkur þótti
öllum vænt um hann.
En Helgu dóttur verzlunarstjór
ans varð hann þó kærastur allra,
því að 18. október 1925 gengu
þau í hjónaband. Þá var glatt á
hjalla í „Kristjánshúsi" þessum
rismikla rausnarranni, þar sem
séra Páll Stefensen lagði blessun
sina yfir hjónabandið, en gestir
að góðri veizlu lokinni fylgdu
brúðhjónunum til hins nýja heim
ilis þeirra í þorpinu.
'En árið 1926 fluttu þau til
Reykjavíkur, og þar hefur
heimilið siðan verið og farnazt
vel.
Húsbóndinn sístarfandi í meira
en hálfa öld, fyrst hjá einkafyrir
tækjum, en lengst hjá ríki og
banka, og allsstaðar þótt vaskur
maður og verður trúnaðar.
En húsfreyjan gætti bús og
barna af móðurlegri umhyggju
og hreinleika hjartans, sem er
öllu ofar. Og uppeldi 6 barna er
mikið og veglegt, ekki sizt þeg-
ar vel tekst sem hér.
Synirnir tveir, Sigurður Þor-
kell læknir, Gylfi hagfræðingur,
Ástríður, Hólmfríður, Þorbjörg
og Gerður, allt gagnmenntað
fólk og vinnusamt, og makar
þeirra ágætt fólk, segir tengda-
móðirin, og henni trúi ég.
En hjónin aldurhnignu dunda
sér við eitt og annað i sínu
fallega og velbúna heimili, minn-
ast horfins tíma og fagna heim-
sókn tengdafólks og afkomenda,
sem allmargir eru orðnir. En
við, gamlir og góðir vinir, sam-
gleðjumst þeim með árangurinn,
og árnum þeim og hópnum öll-
um heilla og blessunar.
Snorri Sigfússon.
UNIVERSrrETET IBERGEN
PROSEKTOR
NOREGI
Ný staða í 1 kl. 23 er laus frá 1. maí. I starfinu felst
stjórn rannsóknastofu fyrir kliniskar rafeindasmásjár-
rannsóknir.
Umsækj^pdur þrufa að hafa próf í læknisfræði eða
líffræði og reynslu í meðferð rafeindasmásjár. Ef
enginn sækir um starfið, sem hefur reynslu, kæmi til
greina fastráðning að loknum reynslutíma.
Upplýsingar hjá Det medisinske fakultets sek*retariat,
Postboks 25, 5014 BG-U. Umsóknarfrestur til 21. apríl.
Nánari upplýsingar í Norsk Lysingsblad nr. 58 9/3 '73.
ESS2K
Atvinna —
verzlunarmnður
Vanur verzlunarmaður, með langa reynslu við
heildsölu og smásöluverzlun, einnig sölu bif-
reiða, óskar eftir starfi á næstu mánuðum.
Upplýsingar, sem farið verður með sem trún-
aðarmál, óskast sendar afgr. Morgunblaðsins
fyrir 27. marz, merktar: „Verzlunarmaður"
- 9455".
Hjiíkrnnarkonur
óskast til starfa við handlækningadeild og
gjörgæzludeild. Einnig vantar hjúkrunarkonur
til sumarafleysinga í hinar ýmsu deildir spít-
alans. — Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
kona.
ST. JOSEPSSPÍTALI,
Landakoti.
Hóseti óskast
á 105 lesta netabát frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 92-8086 og 92-6577.
Hóseta vantar
á 60 tonna netabát sem rær frá Eyrarbakka.
Upplýsingar í síma 99-3162 og 99-3153.
Vélstjóri
Óskum eftir að ráða vélstjóra með próf frá
rafmagnsdeild í díselstillingaverkstæði okkar
BRÆÐURNIR ORMSSON HF.,
Lágmúla 9, sími 38820.
Félog
einstæðra loreldra
óskar að komast í samband við konur, sem
vilja taka að sér að sitja hjá veikum börnum,
meðan foreldri vinnur úti.
Upplýsingar í skrifstofu FEF í Traðarkotssundi
6, mánudaga frá kl. 5—9 og fimmtudaga kl.
10—2. — Sími 11822.
Umsjónarmoður
Viljum ráða lagtækan mann, sem getur séð um
viðhald og haft umsjón með byggingum heim-
ilisins. 2ja herbergja íbúð fylgir starfinu. Æski-
legt að umsækjandi hafi umráð yfir sendiferða-
bil.
Tilboð sendist fyrir 27. þessa mánaðar til
stjórnar Skálatúnsheimilisins, Mosfellssveit.
ifl ACM ír
I.O.O.F. 3 = 1543198 = 8} O.
I.O.O.F. 10 = 1543198i/2 =
Bingó.
□ Mimir 59733197 = 2.
C Gimli 59733197 - 1 atkv. Frl.
Kvenfélag Neskirkju
býður eldra fóliki ( sókninnl
i síödegiskaffi í Félagsheimil-
inu sunnudaginn 18. marz aö
lokinni guösþjónustu í kirkj-
unrvi sem hefst kl. 2.
Stjórnin.
Óháöi söfnuöurinn
Plattarnir með mynd af
kirkjunni okkar eru falleg
fermingargjöf.
Uppl. i símum 34843, 24846
og 14293.
Kjólameistarar
Munið aðalfundinn mánudag
kl. 8:30 á Hótel Esju, herbergi
nr. 727. Fundarefni: Venjuleg
aðalfundarstörf. 30 ára a-f-
mæli Fólags kjóhameistara. —
Tízkusýning að hausti.
Stjórnin.
Æskulýðsstarf Neskirkju
Fundir pilta og stúlkna 13 til
17 ára mánudagskvöld kl.
8.30. Opið hús frá kl. 8.
Sókna-rprestarnir.
Hörgshlíð 12
Almenn samkoma — boðun
fagnaðarerindisins í kvöld,
su-nnudag kl. 8.
Minningarkort Félags einstæðra
foreldra fást í Bókabúð Lár-
usar Blöndal í Vesturveri og
í skrifstofu félagsins í Trað-
arkotssu-ndi 6.
Skrifstofa
Félag einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6 er opin
mánudaga 5—9 eftir hádegi
og fimmtudaga kl. 10—12.
Sími 11822.
Filadelfía, Reykjavík
Safnaðarguðsþjónus-ta kl. 2.
Vakningarsamkoma kl. 8. —
Willy Hansen og fleiri tala.
Félagsstarf eldri borgara, Lang-
holtsvegi 109—111
Miðvikudagi-nn 21. marz verð-
ur „opið hús“ frá kl. 1.30 eh.
M. a. verður kvikmyndasýn-
ing. Fimmtudaginn 22. marz
hefst handavinna — föndur
kl. 1.30 ©h.
Mæðrafélagskonur
Aðalfundu-r félagsins verður
að Hverfisgötu 21 miðvikudag
i-nn 21. marz kl. 8.30. Mætið
vel og stundvísl-ega
Stjórnin.
I.O.G.T. St. Framtíðin
Fundur á morgun kl. 8.30 í
TemplarahöMinni. Inntaka
nýrra félaga. Fl-eiri i-nmsækj-
endur velkomnir. Fu-ndurinn
opnaður kl. 9.30. Erindi um
endurhæfingahæli í Noregi.
Gestir fundarins verða sér-
fræðing-ar þeirra mála. Spurn-
ing-ar og svör. All-ir velkomnir.
Kaffi. — Æðstitemplar.
Síðasta spilakvöld
Kvenfélags Kópavogs verður
sunoiudagin-n 18. marz kl.
8.30 í n-eðri sal. Allir vel-komn
ir. Mætið vel. — Spi-lanefndin.
Brautarholt 4
Sunnudagi-nn 18/3:
Sunndagaskóli kl. 11.00,
sa-mkoma kl. 5.00.
Aílir velkomn-ir.
Kristniboðsfélag karla
Munið fundimn í Beta-níu, La-uf
ásvegi 13, mánudagskvöldið
19. marz kl. 8.30. AMir karl-
menn velkomnir.
Vopnfirðingar
Munið árshátíðina í Félagsheimilinu Seltjarnaritesi
laugard. 24. marz kl. 19.30.
Miða-sala í Verzl. Verinu, Njálsgötu 86, mánud.
19. og þriðjud. 20. marz kl. 2—6 e. h.
Stjórn og skemmtinefnd.
BREYTT SÍMANÚMER
86266
3 línur
FRIÐRIK BERTELSEN,
Lágmúla 7, Reykjavík.