Morgunblaðið - 19.08.1973, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.08.1973, Blaðsíða 14
14 MORGIfN’BCA E>I D — SUNNUOAGUR 19. ÁGÚST 1973 Gunnar Flóvenz: Til þess eru vít- in að varast þau Myndirnar hér á síðnnni eru hvorki frá Siglufirði né Seyð- isfirði, heldur frá írskum síldarsöltunarhöfniim. írar eru nú orðnir skæðir keppinautar fslending-a á saltsíldarmörkuðiuium og nota sér vel veiðibannið við ísland. BLAÐAMAÐUR frá Morgun- blaðinu hringdi til mín 20. júli sL.ti'l að leita frétta af síldar- göngum við suðurströnd Is- lands í tilefni fréttar þar að lútandi, sem birtist í blaðinu þá um daginn. 1 viðtalinu við blaðamann- inn lét ég m a. það álit mitt í ljós, að síldarrannsoknir hér við land væru nú í hinum mesta ólestri Að gefnu tilefni og sökum slæmra prentviMn-a tel ég rétt að rifja upp þann hluta viðtalsins, sem fjallaði um þetta mál og fer sá hluti hér á eftir: „Kins og blaðið skýrði frá í gær, þá var Kldvatnsós full- ur af síld á þriðjudagskvöldið, og sjá mátti vaðandi síld langt á haf út, fyrir utan ós- inn. Við ætluðum að spyrja fiskifræðinga frekar um þessa sild í gær, en þá voru þeir, sem starfa við síldardeildina, annað hvort úti á sjó eða í fríi. Við snerum okkur síðan til Gunnars Fióvenz, fram- kvæmdastjóra Síldarútvegs- nefndar, en það er áhugamál Síldarútvegsnefndar að fylgzt sé náið með uppvexti síldar- stofna og hafa þeir sífellt klif- að á því, að fylgzt væri betur með uppvexti íslenzka síldar- stofnsins, Gunnar Flóvenz sagði, að af og til bærust fréttir af síld úti fyrir suðurströndinní og kæmi fréttin í Morgunblaðinu í gær sér þvi ekki á óvart. Síldin væri oft uppi við land- steina á þessu svæði. Hann sagði, að auk hrygn- andi stórsíldar virtist töluvert magn af millisild vera úti fyr- ir suðurströndinni. Ámi Frið- riksson hefði rannsakað svæð ið i nokkra daga í desember si. og þá fundið nokkrar stór- ar torfur. Tekin hefðu verið sýnishorn af þeirri sild tii rannsóknar og um helmingur- inn hefði verið þriggja ára síld, sem hrygndi í fyrsta skipti í júli í sumar, en hinn helmingurinn tveggja ára síld, sem hrygnir í fyrsta skipti í júlí á næsta ári. Með tiliiti til þessa hefði Jakob Jakobsson, fiskifræðing ur, lagt tii sl. vetur á fundi með Sildarútvegsnefnd, að veiðibannið við Suður- og Vest uriand yrði framiengt til sept ember 1974. Samþykkt var að styðja þær tillögur og gerðu það einnig Fiskifélag Islands, LlÚ, Farmanna- og fiski- mannasambandið og Skip- stjóra- og stýrimannafélagið Aldan. „Hitt er svo annað mál,“ sagði Gunnar, ,,að þrátt fyrir framlengingu veiðibanns ins verður að halda uppi ítar- legum rannsóknum á síldar- stofninum og þá ekki sízt á hrygningartíma, auk þess sem gera verður ráðstafanir til að vernda hrygningarsvæðin fyr- ir ágangi óæskilegra veiðar- færa, sem spilla fyrir áfram- haldandi endurnýjun stofns- ins. Okkur var lofað þvi, að eitthvað vrð; gert i þessum málum, en við það hefur ekki verið staðið og þvl borið við, að Hafrannsóknastofnunin hafi ekki skip til þessara rann sókna. Hlýtur mönnum að finnast ankannalegt, að einu fréttimar, sem berast af hrygni-ngarsvæðinu þessa dag ana, skuli koma frá sportveiði mönnum, samanber áður- nefnda frétt þar að lútandi í Morgunblaðinu í gær.“ Eftir að samtal þetta birtist hafa rikisútvarpið og tvö af dagblöðunum í Reykjavík rætt þessi mál við Jakob Jakobsson, f skifræðing, for- stöðumann síldardeildar Haf- rannsóknastofnunarinnar. Við tai það við Jakob, sem birtist á forsiðu Þjóðviljans 5. ágúst s>l. er sérstaklega athyglisvert og má furðuiegt heita að aðr- ir fjölmiðlar skuli ekki hafa minnzt einu orði á það hneykslismál, sem þar kemur fram. Þar sem ég tel áríðandi að vakin sé sérstök athygli við- komandi stjórnvalda og raun- ar allra landsmanna á máli þessu, leyfi ég mér ð endur- taka hér orðrétt umrædda frétt Þjóðviljans og viðtal blaðsins við Jakob Jakobsson. Fréttin og viðtalið er birt und ir fyrirsögninni: „íslenzki tog veiðiflotinn eyðileggur — síld in fær ekki að hrygna í friði.“ Síðan segir orðrétt: „Hrygn- ingarsvæði síldarinnar í sum- ar er við suðurströnd landsins, einmitt þar sem allur togveiði floti landsmanna er nú að veiðum. Hafrannsóknastofnunin bað í vetur um friðun á þessu svæði en þeirri beiðni var ekki sinnt. Síldin hefur nú hrygnt, eggin setzt á botninn og togveiðibátar skrapa nú þann sama botn fram og aftur og gjöreyðileggja nanþig þessi hrygningarsvæði. Þetta getur haft hinar al- varlegustu afleiðingar — hugs anlegt er að mikill meirihluti síldareggjanna eyðileggist. Þjóðviljinn hafði samband við -íakoh Jakobsson, fiski- fræðing, og spurði hann nán- ar um þetta mál. — Jú þetta er rétt, þvi mið- ur. Við hjá Hafrannsókna- stofnuninni lögðum fram til- lögur i fyrrahaust þess efnds að helztu hrygningarsvæði sildarinnar við suðurströnd- ina yrðu friðuð fyrir allri tog- veiði. Sú þingmannanefnd, sem um málið fjallaði, vísaði tillög unni frá á þeim forsendum, að nákvæm staðarákvörðun á hrygningarsvæðunum væri ekki fyrir hendi. Það er einnig rétt, erfitt er að ákvarða stað- ina nákvæmlega en engu að síður er ég sannfærður um að gífurlegar skemmdir hafa ver- ið unnar á hrygningarsvæðun um. Hrygningarsvæðum sildar- innar hefur oft áður verið spillt að okkar dómi. Þegar Faxaflóinn var opinn á sínum tíma gerðum við okkar ýtr- asta tiJ að loka honum fyrir togveiði, og nú hefur verið friðland víða um flóann síð- ustu 2 árin. Síldarstofninn hefur verið ákaflega lítill að undanförnu og þess vegna hefur ekki geng ið mjög vel að ákvarða þessa hrygningarbletti nákvæmlega. Hins vegar er það vitað að síldin hrygnir fyrir sunnan land í júlímánuði og því báð- um við um friðun svæðisins. Gunnar Flóvenz. í okkar tillögum gerðum við ráð fyrir að lokað yrði fyrir togveiði út aC 6 milum, en það var gagnrýnt að nákvæm ákvörðun hrygningarblett- anna var ekki fyrir hendi. Verndun þessa svæðis er ekki tiingöngu mikilvæg vegna siidarinnar, heldur einnig vegna þess hve mikil smáýsa er þarna Þvi miður gátum við ekki komið því við að hafa rann- sóknaskip á þessum slóðum yfir hrygningartímann. Við vorum með Hafþór þarna í vor, en þá var síldin ekki kom in og því lítið gagn af því. Hins vegar urðum við að veita fiskiskipunum á Norð- ursjó alla aðstoð sem við gát um nú í júli og því höfum við ekki náð nákvæmani stað- arákvörðun Ef við fyndum þessa ákveðnu bletti er ég sannfærð ur um að við fengjum þá sam- stundis friðaða fyrir togveiði. Togbátum er heimi'lt að toga upp að þremur mílum og surns staðar upp í harða land. Það gefur því auga leið, að síldarsvæðunum hlýtur að vera stórspillt." Hér lýkur frásögn Þjóðvilj- ans og iýsingin á ástandinu er ekki fögur Einn af þekkt- ustu og dugmestu fiskifræð- ingum landsins lýsir því yfir skýrt og skorinort, að hann sé „sannfærður um að gífur- iegar skemmdir hafi verið unnar á hrygningarsvæðun- um“ og að ekki séu fyrir hendi aðstæður til að „hafa rannsóknaskip á þessum slóð- um yfir hrygningartímann", þ. e. a. s. þann tima, sem nauðsyn ítarlegra rannsókna er hvað brýnus.t. Erfitt er að átta sig á því, hver sökina ber á þessu ófremdarástandi. Jakob Jakobsson upplýsir að Hafrannsóknastofnunin hafi lagt fram tillögur í fyrra haust þess efnis, að helztu hrygningarsvæði sildarinnar við suðurströndina yrðu frið- uð fyrir allr! togveiði, en „þingmannanefnd", sem um málið hafi fjailað, hafi visað tiMögunni frá á þeim forsend- um, að nákvæmar staðar- ákvarðanir á hrygningarsvæð- unum væru ekki fyrir hendi. Við íslendingar eigum nú i hinum alvarlegustu deilum varðandi fiskveiðilögsögu okk- ar og höfum marg lýst þvi yfir, að við munum vinna gegn allri rányrkju og nýta fiskstofnana í samræmi við niðurstöður vísindailegra rann sókna. En er þessi frásögn hiins kunna fiskifræðings í samræmi við þessar hátiðlegu yfirlýsoingar? Nei, svo sann- arlega ekki. Hér hafa átt sér stað hörmuleg mistök, mis- tök, sem skaða islenzkan mál stað og íslenzkan þjóðarhag, mistök, sem ekki mega koma fyrir aftur. 1 viðtali, er Þjóðviljinn átti við Jakob Jakobsson 2. þ. m., er þess getið, að stærð ís- lenzka sumargotsslldarstofns- ins verði um 70.000 smálestir næsta haust og í Tímanum segir 1. þ. m. að stofnstærðin sé aðallega byggð á „mjög ná kvæmum mæbngum, sem gerð ar voru á stofninum í desem- ber siðastliðnum'. Ég h‘eld að hér hljóti að vera um ein- hvern misskilning að ræða. Öllum, sem til þekkja, hlýtur að vera ljóst. að stofnstærð- ina er ekki unnt að ákveða út frá nokkurra daga síldarleit á takmörkuðu svæði í desember mánuði. 1 fyrsta lagi er engin vissa fyrir því og raunar fremur ósennilegt, að allur sumargots síldarstofninn hafi verið á um rseddu svæði þá daga, sem leit in stóð yfir. í öðru lag' er ailsendis ó- víst, að öll sildin á leitarsvæð- inu hafi myndað torfur þá dagna. 1 því sambandi er rétt að rifja upp eftirfarandi frá- sögn fiskifræðinganna Jakobs Jakobssonar og Hjálmars Vil- hjálmssonar af hegðun Norð- urlandssíldarinnar, sem birtist í 5. tbl. tímaritsins Ægis 1969, en þar segir svo: „ .. . Síldin var á hraðri suð urleið og skammt orðið á vet ursetustöðvarnar úti fyrir Austurlandi, en þar hefur sild veiði verið einna árvissust eft ir að vetrarsíldarveiðar hóf- ust þar árið 1964. Þau ein- stæðu tíðindi gerðust þó, að í öndverðum október dreifðust torfurnar í stað þess að þétt- ast og má segja að upp frá þeim tíma hafi varla orðið síld ar vart í veiðanlegu ástandi, ef frá eru taldir nokkrir dag- ar í október og nóvember. Eins og vonlegt var, héldu margir að híldin hefði hrein- lega týnzt, en svo var þó ekki og því til stuðnings næg ir að benda á að í október og nóvember fengu rússnesk rek netaskip oft allgóða veiði á stóru svæði 50—150 sjóm. út af Austfjörðum. Sildin var því á sinum venjulegu vetursetu- stöðvum, en hún var hins veg ar dreifð yfir svo stór svæði, að torfur til að kasta á mynd- uðust aðeins örsjaldan svo sem fyrr er sagt...“ 1 þriðja lagi má benda á, að sild sú, sem r/s Árni Friðriks- Framhald á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.