Morgunblaðið - 29.08.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.08.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1973 Fa J 1 ÍtÍM,.4 i.I'Jli | > 'ALVR" 22-0*22- RAUÐARÁRSTÍG 31 14444 1U 25555 mum BÍLALEIGA CAR RENTAL IBORGARTÚM 29 BILALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 BlLALEIGA JÓNASAR & KARLS Áimúla 28 — Sími 81315 I ALFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER §SAMV!NNUBANKINN SLST TRAUSTI NVWHOIT I5ATH. 25780 SKODA EYÐIR MINNA. Shddh LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. ” Ríkur maður Kristinn Finnboga, Alþýðublaðið hefur undan- farið verið að birta greinar úr óútkominni bók eftir ung- an framsóknarmann. Einar Björgvin að nafni. Segir hann latislega frá ýmsum væringum innan Framsóknar- flokksins, einkum þó átökum milli svokallaðra hægri og vinstri arma flokksins. í síð- ustu grein sinni segir fram- sóknarmaðurinn m. a. frá því, þegar hægri armurinn steypti Ólafi Ragnari Grímssyni og félögum hans úr valdastóli í FUF í Reykjavík. Lýsir hann tindirbúningsfundi hægri manna á þessa leið: ,,Ég stnddi hægri menn — sem fyrri daginn og kom tveimnr kunningjum minum á kjörstað, en bölvaðir asnarnir kusu þá vinstri menn. Við er- um þó ágætir knnningjar enn þá. Ekki tók ég meiri þátt. í þessari baráttn nema hvað ég sótti fund síðdegis, rétt fyrlr aðalfundinn, þar sem hægri menn báru saman bækur sín- ar. Fundurinn var haldinn í Snorrabúð á Loftleiðahótelinu og sá ég þá fyrst fleiri menn, er hreinsa vildu vinstri mcnn úr félaginu en félagana á Tímanum, Tómas Karlsson og Alfreð Þorsteinsson. Flesta þeirra hafði ég ekki séð áður, enda þjónar á hótelum í höfuð borginni, en á slíka staði kom ég sárasjaldan, íþrótlamenn, en ég hafði ákaflega litinn áhuga á kappleikjum og slíku, og svo voru þarna auðvitað fleiri, iögfræðingar o. s. frv. sem ég hafði aldrei séð á þeim fundum Félags ungra fram- sóknarmanna, er ég hafði sótt í húsi flokksins við Hring brant, og ekki heldtir i kosn- ingabaráttunni þá um vorið. Ég man þó eftir tveimur mönnum úr eldra félagi fram sóknarmanna í Rvík, sem ég hafði séð áður, en það voru Alvar Óskarsson, sem nú var kominn í starf hjá einum ráð- herra flokks síns, og fram- kvæmdastjórinn, Kristinn Finnbogason, bankaráðsmað- ur. Eitthvað var nú spjallað saman þarna á ftindinum, sem ég man ekki glöggt, og vil því ekki vera að tíunda. Ég man þó, að Kristinn Finn- bogason kvaðst ráða yfir nokkrum tugum þúsunda, sem varið skyldi til lokubar- áttunnar, en ef ég man rétt átti að verja því fé til að greiða inngöngugjöld nýrra meðlima í Félagi ungra fram- sóknarmanna, þegar þeir kæmu á aðalfundinn, en sam- kvæmt reglum félagsins hafði sá félagsmaður ekki rétt til að kjósa í stjórn félagsins, sem hafði ekki greitt gjöid sín til þess.“ Að gefa sjálfum sér á kjaftinn Verkalýðshreyfingin hefur nú sett fram kröfur sínar í næstu kjarasamningum. Auk þess hefur hún gert kröfur til ríkisstjórnarinnar um úrbæt- ur í skattamálum og hús- næðismálum. Þeir sem að þessum ályktiinum standa, eru m. a. þingmenn stjórnar- liðsins í verklýðshreyfing- unni, menn eins og Eðvarð Sigurðsson. Kröfur verkalýðshreyfing- arinnar á hendur ríkisstjórn- inni eru eðlilegar. Ástandið í húsnæðismálum hefur aldrei verið verra. Þar er hver sjóð- ur tómur og engin von til þess að úr rakni. Og skatta- lög vinstri stjórnarinnar eru þeim eiginleikum gædd að leggjast með mestum þiuiga á gamalt fólk og almeniu launamenn. Ekki þarf að efa, að ýmsúr foringjar verkalýðshreyfing- arinnar hafa talað af miklum alvöruþunga um óréttlætið í skatta- og húsnæðismálum. En skyldu þeir þá hafa minnzt þess, að þeir áttu sjálfir mest an þátt í að skapa núverandi ástand. Ætli Eðvarð Sigurðs- son hafi minnzt þess, að hann greiddi sjálfur atkvæði mcð núgildandi skattalögum. Ætll forseti ASÍ hafi minnzt þess, að tveir fyrirrennarar lians sitja báðir á þingi og greiddu sömu lögum atkvæði sitt og að þessir tveir forsetar ASÍ bera mesta ábyrgð á núver- andi ástandi húsnæðismála í landinu. Ályktun verkalýðshreyfing- arinnar um skatta- og hús- næðismál er kjaftshögg % stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málum. En fyrst og fremst er hún þó kjaftshögg á þá sjálfskipuðu talsmenn launþega í landinu, setn mesta ábyrgð bera á ástand- inu. Sjaldan hafa aumarf menn gefið sjálfum sér rækí- legar á kjaftinn en nú. spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið I sima 10100 kl. 10—11 frá mánudeg! tll föstndags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. VlXLAVIÐSKIPTI Ómar Franklínsson, Mel- gerði 37, Kóp., spyr: „Hafa bankamir ekki hugs að sér að taka upp eitthvað mannieskjuilegra kerfi í sam- baindi við víxlaviðsk'pti svo að menn sem hafa stundað víxlaviðskipti um árabi'l, þurfi ekki að hlaupa úr vlmnu og eyða lönigum og dýrmaetum tíma í að bíða á b'ðstofum bankanna fyrir 15—20 þús. kr. Væri ekki hægt að fá að leggja inn víxlana hjá ein- hverjum ákveðnum aðila og fá siðan umsögn hjá þeim sama? Ef einhverjar breytimgar eru fyrirhugaðar í sambandi við vixlaviðsk'pti, væri hæ>gt að fá upplýsingar um þær um teið? Björn Tryggvason, aðstoðar bankastjóri: EðlHegra hefði verið að beina þessari spumiingu til v'tð skiptabanka. Þegar um um- samdar framlenigintgar er að ræða á víxLuim er eðlilegt og sjáliflsagt, að menn komi nýj- um víxlum bein>t i vixladeildir án viðtala e'ns og flestir við- skiptamienn þekkja. Ekkert er þvi til fyrirstöðu, að men.n taki meira upp bréfaskipti við sína bamka varðandi ný lán, en það kallar á ítarlega fram setn ngu um ástæður og fjár- hag. Aðalregian er að sjáifsögðu, að viðtöl eigi sér stað um ny lán. Bankamir hafa stórbætt alla viðtalsaðstöðu og hafa fal ið fleiri yfirmönnum bank- arma að taka við viðsklpta- mönnuim. Þá hafa útibú bank anna á Reykjavíkursvæðinu í mjög vaxandi mæli tekið upp bein útlánsviðskipíi. Út.bú úti á landi hafa að sjálfsöigðu veitt þessa þjónustu frá upp- hafi. Hefur öll þjónusta bank- anna stóraukizt undanfarm ár. UM NÝTINGU LANDHELGINNAK Halldór Bjarnason, Hólatorgi 6, spyr: „Til sjávarútvegsráðherra eða formanns sjávarútvegs- nefndar neðri deildar: Spurt er vegna frumvarps um nýtingu landhelginnar frá landhelgislaganefnd: 1. Hvers vegna er dragnót hættulegri í Faxaflóa en annars staðar i kringum landið ? 2. Hvers vegna ætlar Al- þingi að mi-smuna sjó- mönnum eftir búsetu, Og ef svo fer, er ekki rikissjóður skaðabótaskyld Garðar Sigurðsson, alþingis- maður, svarar: 1. Bæði þessi spurmmg og hin síðari, eru þannig orðað- ar, að svörunum er slegið föstum, þ. e. spyrjandi svar- ar sér fyrirfram. Ég hef aldrei heyrt að dragnótaveiðar væru hættulegar, en ef átt er við að þær séu skaðlegar fisk- stofnum, og þá fremur í Faxa flóa en annars staðar, þá er því emfaldlega til að svara, að Faxaflói er álitinn ein mikilvægasta uppeldisstöð fyr ir fiskungviði. Séu aðrar jafn mikiilvægar uppeldisstöðvar annars staðar, eru dragnóta- veíðar að sjálfsögðu jafn skað legar þar. Það er orðið augljóst, að helztu fiskstofnar við landið eru freklega ofveiddir og auk þess humarstofninn, og sums staðar hafa rækjuveiðar vald ið miklu tjóni með seiðadrápi. Gegn þessari þróun þarf að spyrna við fótum, með hverj- um þeim hætti, sem vænlegast þykir, að beztu manna yfir- sýn, bæði með takmörkun bátafjölda og veiðarfæra auk lokunar uppeldisstöðva, svo dæmi séu nefnd. Ef við ger- um það ekki, er voðinin vis. 2. Andstæða orðsins mis- munun, eins og það kemur fram í spurningunni, gæti til dæmis verið aðstöðujöfnun, eða jafnrétti til veiða. Það er mín ákveðna skoðun, að sú aðstöðujöfnun ef mönnum finnst sér miismun- að, eigi ekki að vera fölgin í opnun Faxaflóa til þessara veiða, heldur í þvi, að loka sambærilegum uppeldisstöðv um annars staðar við landið. Um bætur fyrir veiðarfærl visa ég spyrjanda til ráðu- neytisins. Að lokum skal tekið fram, að þetta eru minar persónu- legu skoðanir. Reykvíkingur græðir u pp land í Myvatnssveit Björk, Mývatnssveit, 23. ágúst. FYRIR nokkrum árum keypti Guðmundur Gíslason, forstjóri í Reykjavík ailstóra landspildu af Grímsstaðabændum í Mývatns- sveit. Land þetta er við Sandvatn oig er við Rönd. Það er í u.þ.b. 10 km fjarlægð frá Gríms- gtöðnm. Strax í upphafi g'rti Guð mundur iand þetta af oig hóf byggiiingu sumarbústaðar á fögr um ag skjólgóðum stað rétt við vatnið. Þama er ákaflega fallegt umhverfi og friðsæit. Meðfram vatninu er fjölbreytileigur gróð- ur, en fjær, innan girðimgar'nnar, grýttir og gróðuriausir melar. — Þar sem eg hafði ekki komið þarna að Sandvatni í nokkur ár, skrapp ég í gærkvöldi ásamt öðr um manmi þangað, tiil að sjá hvemig uppbygigimgin og gróð urstarfið gemgi hjá Guðmundi. Veðrið var alveg dásamlegt, lagn og bMða ag umihverfið heillandi. Húsráðendur, hjómin Guðmiund- ur Gislason ag kona hans voru að koma heim, þegar okkur bar að garði. Þau þuðu okkur strax imn í viistleg húsakynni sím og ræddum við góða stumd við þau meðan kaffi var drukkið. Um- ræðuef-nið var aðallega ræktumar starf þeirra ag vera á þessum stað. Guðmundur kvaðst hafa haft þá aðferð v'ð uppgræðsJuna að sá ekki fræi, heldur bera á tilbúinn áburð. Árlega hefur hamn dreift um 6 tormum af á- burði imnan girðinigarinnar. öllu þessu áburðarmagni hefur ver:ð dreift með höndumum, vegna þess að hanm teiur óráðlegt að fara með vélknúin tæki yfir land ið. Þegar má sjá stórkostlegan árangur af þessiu rækbumarstarfi. Víða er þetta svæði að láita sem fuilgróið land, þar sem áður voru örfoka og grýttir melar. — Sýmilegt er, að allar framkvæmd ir eru miðaðar við að þær falli sem bezt við umhverfið og í öðru lagi að örva þau náittúrulegiu gróðurskilyrði, sem þama eru fyrir hendi. Hvort tveggja sýnist hafa tekizt dável. Hjónin virðast ánaegð að dveljasit við Sandvatn, enda mega þau vera stolt af þeitn jákvæða áramgri, sem máðst hef- ur við uppgræðsluma. Þegar við hélduim af stað frá Sandvatmi, var byrjað að húma ag faigiurt um að lltast. BelgjarfjaH spegV aði-st í vatmsfletimum og kyrrð'in var alger. Flestum ber saman um að þessi staður sé eirnn af þeiir fegurstu í nágrenmi Mývatns. — Kristján.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.