Morgunblaðið - 19.10.1973, Blaðsíða 1
32SIÐUR
Astralíumaðurinn
White fékk bókmennta-
Það varð aðeins hlé á bardögunum á sýrlensku landamærunum. Israelsku
'hermennirnir fleygðu sér niður. Sumir lágu og horfðu upp i himininn, aðrir
kveiktu sér í sigarettu. Enn aðrir . . . stríð eða ekki stríð, maður verður að hugsa
um útlitið.
verðlaun Nóbels
Stokkhólmi, 18. okt. AP:NTB.
ÁSTRALSKI rithöfundur-
inn Patrick White fékk í
dag Bókmenntaverðlaun
Nóbels. I greinargerð
sænsku akademíunnar
sagði, að hann fengi verð-
launin fyrir „sögulega og
sálfræðilega frásagnar-
Ömönnuð
könnunar-
snilld“, sem hann hefði til
að bera og hefði fært bók-
menntir i nýjum heims-
hluta á æðra sig.
Síðasta skáldsaga White kom út
á þessu ári og hét ,,The Eye of the
Storm", og meðal annarra verka
hans, sem þekkt hafa orðið, má
nefna „Happy Valley" og ,,The
Tree of Man“.
„White hefur lagt mikið af
mörkum til listrænnar þróunar i
samtímabókmenntum og hann
Framhald á bls. 18
flugvél
Israel sendir liðs-
auka yfir skurðinn
Tel-Aviv, Kairó, Washington,
18. október, AP.
tsraelska herstjórnin tilkynnti
i dag, að hún hefði sent skrið-
dreka og stórskotalið yfir Sues-
skurð til að aðstoða vfkingasveit-
ir, sem hafa sótt aftan að vfglfnu
Egypta nú um fjögurra daga
skeið. Sfðan Golda Meir til-
kynnti f þinginu fyrir fjór-
um dögum, að fsraelskar sveit-
ir berðust nú á austur-
bakka Suesskurðar, hefur
lítið verið frá þeim skýrt. Isra-
elskir herforingjar neita Ifka að
upplýsa, hversu fjölmennar sveit
irnar séu og hversu margir bryn
vagnar hafi nú verið sendir yfir
Þeir segja, að sveitirnar einbeit
sér að þvf aðeyðileggja fallbyssu
stæði, loftvarnabyssustæði og eld
flaugastöðvar. Vestrænir frétta-
menn, sem voru í heimsókn á
vesturbakkanum, sáu stóra,
svarta reykjarbólstra stfga til
himins af austurbakkanum. Þeir
hittu Moshe Dayan, varnarmála-
ráðherra, sem sagði, að Israelar
hefðu yfirtökin og að innan
skamms yrði háð úrslitaorrusta á
þessum vígvelli. „Ekki þó alveg
strax“, sagði ráðherrann.
REYNA AÐ FINNA LAUSN
Östaðfestar fréttir herma, að
Alexei Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna hafi komið til
Kairó til viðræðna við Sadat for-
seta um hugsanlegt vopnahlé.
Staðfest hefur verið, að bæði
Sovétrikin og Bandaríkin beiti
sér nú mjög til að reyna að finna
friðsamlega lausn, sem báðir
striðsaðilar geti sætt sig við. Hins
vegar neita báðir að gefa nokkuð
upp um þær friðartillögur, sem
hingað til hafa verið ræddar.
ARABAR ÓSAMMALA
Sadat forseti Egyptalands hef-
ur lýst þvi yfir, að hann sé fús til
að semja um vopnahlé og frið ef
Israelar flytji hermenn sína þeg-
ar af herteknu svæðunum. Segist
Sadat þá fús til að koma til friðar-
viðræðna í Sameinuðu þjóðunum
eða mæta til alþjóðlegrar friðar-
ráðstefnu hvar sem er annars
staðar. Bæði Sýrland og Jórdanía
hafa opinberlega lýst yfir stuðn-
ingi við Sadat í þessu efni, en írak
hefur hins vegar lýst sig algerlega
andvígt þessari lausn mála. Það
hafa Palestinuskæruliðar einnig
Framhald á bls. 18
London, 18. október, AP.
Egyptar segjast hafa skotið
niður ómannaða fsraelska
könnunarflugvél yfir Suesskurði.
Þessi frétt hefur vakið mikla at-
hygli, þvf aðef hún er sönn, þykir
víst, að Israelar hafi feng-
ið hana frá Bandarfkjunum.
Bandarfskar flugvélar af
þessari gerð eru algert
hernaðarleyndarmál þar f landi,
en miklar tilraunir hafa verið
gerðar með þær undanfarin ár.
Vélar þessar hafa verið reyndar
í loftbardögum gegn banda-
riskum Phantomorrustuþotum til
að kanna, hvort hægt sé að nota
þær í stað mannaðra flugvéla.
Enda þótt talið sé ólíklegt, að það
verði hægt næsta áratuginn eða
svo, hafa þær töluverða hernaðar-
lega þýðingu, þar sem í stað
myndavéla er auðvitað hægt að
hlaða þær sprengiefni og senda
þær á skotmörk af meiri
nákvæmni en hægt er með flestar
eldflaugategundir sem nú eru í
notkun. Vélar þessar eru yfirleitt
fjarstýrðar og þá flogið eftir sjón-
varpsauga, en einnig er hægt að
láta tölvu „fljúga“ þeim, eftir
fyrirfram ákveðinni leið.
Orrusta
við kóre-
anska
flugmenn
Washington, 18. október, AP.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið tilkynnti f dag, að ísra-
elskir flugmenn hefðu átt f
höggi við flugmenn frá
Norður-Kóreu, í grennd við
Kairó f dag. Kóreönsku flug-
mennirnir flugu rússneskum
orrustuþotum af gerðinni
MIG-21. Skiptst var á
skotum, en hvorugir aðilinn
missti flugvél.
Vitað var, að um 30 flug-
menn frá Norður-Kóreu voru
í Egyptalandi, þegar átökin
hófust, en þetta er í fyrsta
skipti, sem þeim lendir saman
við tsraela. Þoturnar, sem þeir
fljúga, eru með merkjum
egypska flughersins.
Geir Hallgrímsson:
w w
A Island að hverfa bak
við fremstu víglínu Rússa?
Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, talaði af hálfu
Sjálfstæðisflokksins í út-
varpsumræðunum í gær-
kvöldi um stefnuræðu-
forsætisráðherra. Vék Geir
m.a. að framkomu Alþýðu-
bandalagsins í sambandi
við samningsdrögin, sem
Ólafur Jóhannesson kom
með heim frá viðræðum
sínum viðforsætisráðherra
Breta, þegar málgagn
flokksins braut trúnað við
forsætisráðherra i gær.
Sagði Geir, að þetta sýndi,
að kommúnistar hefðu
engan áhuga á samráði við
aðra flokka eða þjóðarein-
ingu um landhelgismálið.
Um varnar- og örygg-
ismálin sagði Geir, að við
Islendingar gætum ekki
einir allra sjálfstæðra
þjóða, búizt við því, að við
þyrftum engar ráðstafanir
að gera til að vernda öryggi
okkar og sjálfstæði. Okkur
væri ekki sæmandi sem
þjóð að vilja ekkert á
okkur leggja til þess að
tryggja sjálfsákvörðunar-
rétt okkar.
Um síðustu tíðindi í
landhelgismálinu sagði
Geir Hallgrímsson:
„En í morgun getur að líta í
Þjóðviljanum, að kommúnistar
Geir Hallgrlmsson.
hafa algjörlega brotið trúnað, sem
þeir höfðu heitið forsætisráð-
herra og engu skeytt samráði við
aðra stjórnmálaflokka um afstöðu
til þess samkomulagsgrundvallar.
sem forsætisráðherra Islands og
forsætisráðherra Breta komu sér
saman um að leggj'a fyrir ríkis-
stjórnir sínar Það kemur fram í
Þjóðviljanum, að fundur hafi
verið haldinn í þingflokki Al-
þýðubandalagsins, áður en
fundur utanríkismálanefndar
hófst og þar tekin afstaða til
málsins. Sú afstaða var ekki til-
kynnt á fundi utanrikismála-
nefndar, enda sýna þessi vinnu-
brögð ekki eingöngu freklegt
trúnaðarbrot heldur og slíkt vírð-
ingarleysi gagnvart forsætisráð-
herra í stjórn, sem Alþýðubanda-
lagið á þátt í, áð forsætisráðherra
Framhald á bis. 18