Morgunblaðið - 19.10.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.10.1973, Blaðsíða 4
4 ^ 22-0-22- RAUOARÁRSTÍG 31 -------------' BfLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 BlLALEIGA CAR RENTALj BÍLALEIGAN EYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIOMŒŒJR ÚTVARP OG STEREO CASETTUTÆKI BILALEIGA JÓNASAR & KARLS Ármúla 28 — Sími 81315 SKODA EYÐIR MINNA. Snann LElCJUt AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bllaleiga. - Simi 81 260. Fimm manna Citroen G.S stat- ion. Fimm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m bílstjórum) MJÓR ER MIKILS $ SAMVINNUBANKINN i WM 1 esiii t . - - 1 ^3 6fu OxubljM a- ~ z I mnLECR MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1973 STAKSTEINAR Hrópandi þögn ÞEGAR Ölafur Jóhannesson forsætisráðherra kom heim frá viðræðunum við Edward Heath í London í fyrradag, leyfði hann blaðamönnum að hafa það eftir sér, að hann teldi, að nú væri fáanlegur grundvöllur fyrir bráðabirgðalausn, sem væri hagstæðari en Bretar hafa hingað til fengizt til að semja um. 1 fréttastofufregnum frá London er það haft eftir opin- berum embættismönnum brezku rfkisstjórnarinnar, að forsætisráðherrar landanna tveggja hafi komið sér saman um grundvöll tii lausnar land- helgisdeilunni. Er f fregnunum sagt að samkomulag þetta verði sfðan lagt fyrir brezku og Is- lenzku rfkisstjórnirnar og sé bundið við samþykki þeirra Og AP-fréttastofan hefur það eftir brezkum embættismanni, að brezka rfkisstjórnin búizt við svari frá tslendingum inn- an tveggja vikna, og ekki sé við þvf búizt, að samningaviðræður fari fram á ný, og orðrétt segir: „Við erum greinilegi. ánægðir með það, sem náðst hefur hingað til, og það er grundvöilur fyrir samkomulag, sem við teljum réttlátt." En þegar forsfðufregn Tfmans f gær af komu Öiafs Jóhannessonar til landsins er lesin, kemur f ljós, að þar er ekkert orð eftir ráðherranum haft og þvf sfður vitnað tif framangreindra ummæla fréttastofnana. Þessi þögn f blaði forsætisráðherrans er hrópandi. Grundvöllur samkomulags Þrátt fyrir þögn Tfmans er það ijóst, að Ölafur Jóhannes- son og Edward Heath hafa komið sér saman um grundvöll að samkomulagi. Öiafur Jó- hannesson átti hins vegar eft- ir að bera þennan samnings- grundvöll undir rfkisstjórn og utanrfkismálanefnd, og er ekk- ert óeðlilegt, að hann segi fátt um samningsuppkastið, á meðan hann hefur ekki haft tækifæri til að ráðgast við sam- starfsmenn sfna. Hins vegar eru þau vinnubrögð Tfmans gjörsamlega óskiljanleg, að hafa ekki eftir forsætisráðherr- anum þau orð, sem hann lét þó falla og margendurtekin hafa verið f sjónvarpi og útvarpi og hin blöðin hafa skýrt frá, meira að segja tekur Þjóðviljinn upp ummæli forsætisráðherr- ans og dylst þó engum, að þeir Þjóðviljamenn eru lftt hrifnir af þvf, að Ölafur Jóhannesson skuii hafa gert tilraun til að setja niður deiluna við Breta. Og svo sannariega höfðu menn vænzt þess, að blað forsætisráð- herrans gæti ftarlega um öll þau ummæli, sem hann leyfir eftir sér að hafa. Á það hefur verið bent, að Ölafur Jóhannes- son eigi nú stærsta tækifæri sitt til þess að sýna og sanna, að þrátt fyrir allt geti hann verið einbeittur, þegar hann loks hefur gert upp hug sinn f ein- hverju máli. En þá þegir blað hans þunnu hljóði. Væntanlega skýrist, áður en langt lfður, hvað býr f þögninni. spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hins vegar gera lög ráð fyrir nokkurri forsjálni skatt- greiðandans, þannig að hann miði ráðstöfun tekna sinna á hverjum tíma við væntanlegar skattgreiðslur. FÆÐISPENINGAR OG SKATTHEIMTA Herdís Hermóðsdóttir, Eski- firði, spyr: Má hinn almenni launþegi í landinu ekki treysta því, að stjórn hinna vinnandi stétta sjái til þess, að honum séu eftir skildir til daglegra þarfa, eftir að opinber gjöld eru greidd, ekki minni fæðispeningar en sama stjórn greiðir slnum starfsmönnum, fyrir utan laun, til uppihalds, er þeir sinna sín- um störfum? Ef svo er ekki, hvernig getur það þá samræmzt réttlætiskennd hinnar sömu stjórnar, eða álítur hún, að ríkisstarfsmenn þurfi meira til matar síns en aðrir launþegar í landinu? Fjármáiaráðuneytið svarar: Sá samanburður, sem fyrir- spyrjandi gerir milli skatt- heimtu og ferðakostnaðar rfkis- starfsmanna er órökréttur og verður því ekki svarað. Hin almenna tekjuskatt- lagning rikis og sveitarfélags fer eftir tekjum og er frá þvi að vera engin, en fer upp fyrir 40% af brúttótekjum við hæstu tekjur og minnstar frádráttar- heimildir. Algengust skatt- lagning mun vera á bilinu 20—30% af brúttótekjum. Vegna kauphækkana undan- farin ár hefur þetta hlutfall verið mun lægra af brúttótekj- um greiðsluársins. Þannig skil- ur hið opinbera fjöldanum af skattgreiðendum eftir 65—80% af brúttótekjum skattársins og meira, ef tekjur eru lágar eða frádrættir miklir. TILGANGUR FJÖLSKYLDUBÖTA Leifur Kristleifsson, Bröttu- kinn 30, Hafnarfirði, spyr: Hver er meiningin ineð fjölskyldubótum? Er verið að greiða til baka óbeina skatta eða eru þetta algjörir gjafapen- ingar? Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytisins, svarar: Frá því á árinu 1960 hafa fjölskyldubætur verið greiddar með börnum, hver sem stærð fjöldkyldunnar hefur verið og frá 1. janúar 1964, þá hafa þær verið greiddar með öllum börn- um, þ.e. einnig þeim, sem barnalífeyrir eða meðlag er greitt með. Ástæðan til þeirra breytinga, sem voru gerðar á fjölskyldu- bótum á þessum árum, áttu að nokkru leyti rót sína að rekja til þreytinga, sem gerðar voru á skattakerfinu, þ.e.a.s. að óbeinir skattar voru auknir, en beinir skattar lækkaðir, svo að skattafrádráttur vegna barna missti að nokkru leyti gildi sitt. Það má því fullyrða, að fjölskyldubætur í núverandi formi, eru aðferð til tekjujöfn- unar, sem talið hefur verið, að ekki takist að ná með öðru móti eða með ákvæðum núgildandi skattalaga. 1 samræmi við þetta hafa breytingar á fjölskyldubótum ekki fylgt breytingum á öðrum bótum almannatrygginga og jafnvel lækkað, þó að aðrar bætur hafa hækkað. Það er í samræmi við þennan megintilgang f jölskyldubóta, að þær hafa jafnan verið greiddar að fullu beint úr rikissjóði, en ekki gegnum fjármögnunar- kerfi Tryggingastofnunar rikis- ins að öðru leyti. Ævisaga Osmonds im Fyrri hluti MEÐ Osmonds-bræður f efsta sæti vinsældalistans á Islandi þessa dagana finnst Poppkorni tilhlýðilegt að rekja sögu þeirra bræðra i stórum dráttum, þar sem hún hefur einmitt orðið á vegi fréttaritara Poppkorns í miðjum poppblaðahaugi vikunnar! — O — Alan Ralph Osmond, f. 22. júm' 1949 — gítarleikari. M. Wajme Osmond, f. 28. ágúst 1951 — gftar- og saxófón- leikari. (Hann vill alls ekki láta uppi hvað M-ið þýðir). Merrill Davis Osmond, f. 30. apríl 1953. (Davis var eftirnafn móður hans, áður en hún gifti sig.) Jay Wesley Osmond, f. 2. marz 1955 — trommuleikari. Donald Clark Osmond (Donny), f. 9. des. 1957 — píanó- og orgelleikari og aðal- söngvari. James Arthur Osmond, (Jimmy litli), f. 16. apríl 1963. Olive Marie Osmond, f. 13. okt. 1959. (Systirin!) Osmonds-fjölskyldan er strangtrúuð mormónafjöl- skylda frá Ogden í Utah í Bandaríkjunum. Tveir elztu bræðurnir, Virl og Tommy, eru ekki f hljómsveitinni. Þeir eru báðir með skerta heyrn og mikið af ágóða hljóm- sveitarinnar rennur I sjóð, sem stofnaður var með það mark- mið að hjálpa fólki með skerta heyrn. Alan, Merrill og Jay hófu feril sinn sem söngflokkur og söfnuður þeirra fékk þá til að syngja á móti í Kaliforníu. Einn daginn áttu þeir frí og fóru í Disneyland-skemmtigarðinn, þar sem þeir sáu karlakvartett syngja á einu útisviðanna I garðinum. Bræðurnir tóku þátt f söngnum og voru hvattir áfram af áhorfendum — og svo átti forstjóri skemmtigarðsins einmitt leið framhjá og heyrði í þeim. Hann réð þá til að syngja opinberlega, og brátt voru þeir fengnir til að syngja í sjón- varpsþætti Walt Disney. Faðir söngvarans heimsfræga, Andy Williams, sá þá og stóð fyrir því, að þeim var boðið að koma fram í geysivinsælum sjón- varpsþáttum Andys. Voru þeir fastagestir þar um árabil, og siðan fylgdu fjölmargir aðrir sjónvarpsþættir í kjölfarið. Donny bættist þá f hópinn, og þeir urðu mjög frægir. (Framhald sfðar).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.