Morgunblaðið - 19.10.1973, Side 3

Morgunblaðið - 19.10.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTOBER 1973 3 9 milljón .króna sala hjá Ögra Skuttogarinn Ögri frá Reykja- vfk seldi 196.4 lestir af fiski í Bremerhaven f gær fyrir 255.649 mörk eða rétt tæpar 9 milljónir kr. Meðalverðið var 45.63. Þetta er einhver hæsta sala að krónu- tölu , sem fslenzkt fiskiskip hcfur fengið á erlendum markaði. Ögri hefur áður selt fyrir heldur hærri upphæð í Þýzkalandi, en það var sfðastliðinn vetur. Mun skipið því eiga tvær hæstu togarasölurnar á þessu ári. Þrjú önnur skip seldu í Þýzka- landi, Hjörleifur RE, sem seldi 119.3 lestir fyrir 126.100 mörk, eða 4.4 milljónir, og meðalverðið var 37.04 kr. Sigurbergur GK seldi 44 lestir fyrir 57. 700 mörk, eða 2 milljónir, og er meðalverðið 45.66 kr. Björg NK seldi 38.3 lest- ir fyrir 40.817 mörk, eða 1.4 Haustfagnað- ur Norðurlanda- félaganna í kvöld verður haldinn sameigin- legur haustfagnaður Norður- landafélaganna á tslandi. Eins og mönnum er í fersku minni gengust félög Norðurlanda- búa búsettra á Islandi ásamt öðrum félögum áhugamanna um norræna samvinnu, fyrir skemmt- un til styrktar Vestmannaeying- um í Háskólabíói síðastliðið vor. Þessari skemmtun var sjónvarpað skömmu síðar. Skemmtunin þótti takast mjög vel, og hafa samtökin, sem stóðu að henni, því ákveðið að halda áfram samvinnu sín á milli. Fagnaðurinn, sem verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu i kvöld hefst með borðhaldi kl. 19.30 og verður Pétur Pétursson, útvarpsmaður, veizlustjóri. Ragnar Lassinantti, lands- höfðingi hins víðáttumikla Norr- bottenléns í Svíþjóð, verður ræðu- maður kvöldsins, en finnski sendikennarinn Etelka Tammin- en mun flytja skemmtiþátt. Að lokum verður dansað. milljónir. Meðalverðið er 37.30 kr. Fiskverðið á þýzka markaðnum hefur verið nokkuð misjafnt sið- ustu daga, og samkvæmt þeim upplýsingum, sem L.Í.U hefur fengið frá V-Þýzkalandi, er þar mikið framboð af ufsa. Hefur mikið magn af ufsa borizt frá Belgíu og Frakklandi, þannig að þýzki markaðurinn þolir ekki miklu meira magn i bili. Vænleg- ast þykir þvi að koma með þorsk eða mikið blandaðan fisk á mark- aðinn, en fiskurinn, sem Ögri landaði, var nokkuð blandaður. Spilakvöld sjálfstæðis- félaganna að hefjast Miðvikudaginn 24. október n.k. hefjast hin vinsælu spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik. Á fyrstu tveim spilakvöldunum verður gerð tilraun með breytingu frá þvf, sem verið hefur undanfarin ár. Enginn dans verður á eftir félagsvistinni, en í staðinn mun einhver vinsæll skemmtikraftur koma fram að loknum spilum og skemmta gest- um. Breyting verður gerð á spilaverðlaunum, afhent verða 7 verðlaun fyrir hvert kvöld. 1. og 2. verð- laun karla og kvenna. Auka- verðlaun verða veitt þeirri konu, sem hæst verður og spilar sem karlmaður. Þá verða dregin út úr spilakortunum tvö kort, sem munu hljóta sérstök verðlaun, burt séð frá þvi hvað viðkomandi hefur fengið marga slagi. Þá verða öll verðlaun ávísanir á hinar ýmsu verzlanir borgar- innar, mismunandi aö upphæö. Þessi tilraun verður gerð á tveimur spilakvöldum, eins og fyrr segir 24. október n.k. og mið- vikudaginn 21. nóvember. Ef þetta fyrirkomulag fellur fölki í geð, mun verða áfram haldið á sömu braut eftir áramót, og þá einnig efnt til þriggja kvölda keppni með einhverjum vinsælum vinningi. Nóbelsverð- launahafinn Patrick White Patrich White, sem nú hef- ur hlotið Bókmenntaverðlaun Nóbels, að upphæð 50 þúsund sænskar krónur, er fæddur í Englandi árið 1912, en þar voru þá foreldrar hans í tveggja ára heimsókn, en þau voru búsett í Astralíu. Hann hélt siðan með þeim til Astralíu, þar sem faðir hans átti mikinn búgarð, og þar ólst Patrick upp til 13 ára aldurs, að hann var sendur til Bretlands til náms. Hann hvarf ekki til heimalands sins, Ástra- liu, fyrr en heimsstyrjöldin síðari var skollin á. I fyrra mánuði kom út nýjasta skáldsaga hans, geysi- langt og viðamikið sögulegt verk upp á 500 blaðsiður, sem heitir „The Eye of the Storm“ og fékk sú bók misjafnar móttökur bókmenntagagn- rýnenda White hefur verið líkt við brezka höfundinn D. H. Laurence og bandariska rit- höfundinn William Faulkner. Með fyrstu bók sinnu „Happy Valley" aflaði White sér, aðeins 27 ára gamall, verulegrar viðurkenningar, en það var ekki fyrr en skáldverkið „The Aunt’s Story" kom út árið 1948, að hann hlaut almenna viður- kenningu sem rithöfundur, bæði í Ástralíu, í Banda- rikjunum og i Bretlandi. Eftir það fór vegur hans sem rit- höfundar vaxandi hægt og sígandi og bókin „The Tree og Man“, sem út kom árið 1955 vakti feiknalega athygli og hef- ur verið kölluð „bókin um upp- runa Astralíu". Síðar fylgdi hann þessu bókmenntaafreki eftir með „Voss“ tveimur árum eftir og „Riders in the Chariot” 1961. Eftir útkomu þeirrar bókar var hann i fyrsta skipti orðaður við Nóbelsverðlaunin. Þegar Heinrich Böll fékk Nóbelsverðlaunin í fyrra kom White einnig mjögtil greina. I forsendum sænska aka- demíunnar er gerð allítarleg grein fyrir þeim ástæðum, sem lágu til grundvallar vali hennar að þessu sinni. Segir þar, að sjö bækur Whites hafi verið hafðar til hliðsjónar Eiiginn vafi er á því, að miklu hefur ráðið að mörgum hefur þótt timi til kominn að gefa nánar gaum bókmenntum Ástralíu. Eftir umsögnum að dæma virðist sem White beri þar höfuð og herðar yfir aðra höfunda og ástralskar bók- menntir hafa raunar ekki verið fyrirferðarmiklar á bóka- mörkuðum heimsins. Patrick White hefur þar með unnið það afrek að kynna heila heimsálfu umheiminum í gegnum bækur sinar. Ekki er vafi á þvi, að mikilvægi verka hans mun verða enn meira nú, þegar honum hefur hlotnazt sá mikli heiður og sú mikla aug- lýsing, sem hverju sinni fylgir þvi að fá Nóbelsverðlaunin i bókmenntum. 1 uppsláttarbókinni „British & Commonwelth Literature” er farið -sérlega lofsamlegum orðum um framlag Whites til bókmennta. Þar segir að sumar bækur hans séu meðal þess bezta, sem skrifað hafi verið á tuttugustu öldinni. Hann geri sér grein fyrir gildi þess að vera raunsær í skrifum sinum, en grundvallartónninn i verkum hans sé að takast á við móralskar kröfur sem til mann- anna eru gerðar. „Góðu" sögu- persónurnar hans eru þær, sem standa fast á skoðunum sínum. jafnvel þótt brenglaðar eða jafnvel brjálaðar séu. Persónur hans séu t.d. i The Aunts Story. ýmsar bæði vitfirrtar og af- skaplega raunsæjar. í öðrum gæti meira hófs i persónulýs- ingum. En allflestar eigi bækur hans það sammerkt að vera sögulegar og ýmsar eins konar könnum á stöðu Astraliu i heiminum. Baggy buxurnar úr flauell. teryiene og llannell Opid til kl. 8 POSTSENDUM um land allt. Bergstaöastræti 4a Sími 14350

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.