Morgunblaðið - 19.10.1973, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. OKTÖBKR 1973
7
Hér fer á eftir spil frá Evrópu-
mótinu, sem fram fór nýlega í
Belgíu. Irsku spilararnir vinna
slemmu við bæði borð.
Norður.
S. —
H. K-G-9-6-5-2
T. —
L. A-D-G-8-6-4-2
Vestur
S Á-K-D-7-5-3
H. 7
T. 9-8-7-4
L. 10-3
Austur
S. G-8-6-4
H. 10-4
T. Á-K-D-G-6-5-3
L. —
Suður
S. 10-9-2
H. A-D-8-3
T. 10-2
L. K-9-7-5
Við annað borðið sátu Irsku
spilararnir A-V og þar gengu
sagnir þannig:
A S V N
1 T P 1 s 2 T
4 S 5 H 5 S 6 H
6 S D Allir pass.
Sagnhafi fékk alla slagina og
1310 fyrir spilið. Við hitt borðið
sátu írsku spilararnir N—S og
þar gengu sagnir þannig:
A S V N
1 T P 1 S D
2S 3 H 4 S 6 H
D p p p
Sagnhafi fékk alla slagina og
1310 fyrir spilið. Irska sveitin
fékk því samtals 2620 fyrir spilið
og græddi 21 stig.
PENNAVINIR f
Island
Asta Hólm Traustadóttir,
Hjarðarholti 18,
Akranesi.
Hún er 11 ára og vill skrifast á
við stúlku, 11-12 ára. Áhugamál
hennar eru frimerkjasöfnun,
sund, og margt fleira.
ÁHEIT OG GJAFIR
GJAFIR TIL BUSTAÐAKIRKJU
Margar eru þær gjafir, sem
Bústaðakirkju hafa borizt, bæði
síðan hún var vígð fyrir tveimur
árum, og ekki síður, meðan hún
var í byggingu. Hefur vitanlega
ekki verið hægt að geta allra
þeirra fjölmörgu, sem þar hafa
lagt sitt fram, bæði stórt og smátt,
en þó verður hér getið gjafar, sem
móttekin var núna um slðustu
helgi. En Páll H. Pálsson, Máva-
hlíð 47 og fjölskylda hans hafa
fært kirkjunni stórt og vanda
YAMAHA píanó, sem notað
verður I Safnaðarheimili
kirkjunnar. Er gefendum hér
með þakkaður höfðingsskapur
þeirra og hlýhugur til kirkjunnar
og þeim blessunar beðið.
Nýlega haf einnig borizt
eftirtaldar gjafir:
„Sóknarbarn" áheit 1.400.00
Elisabeth Okt 4.500.00
Gömul ekkja á Grund 500.00
Ágústa Magnúsd., áheit 500.00
Frú á Tómarsarhaga 2.000.00
Ólafur Þorsteinsson og
frú 2.000.00
Guðmundur I. Ágústsson 5.000.00
Ö.H.Ó. áheit 300.00
J.G. 5.000.00
Bjarni Sigurðsson og fjsk.2.000.00
Einar Guðmundsson og
frú 1.500.00
Dagmar Gunnlaugdóttir 2.000.00
Ástrós Sigurðardóttir 500.00
Sóknarbarn — áheit 1.000.00
Halldór Jóhannsson og
frú 1.000.00
Bjarni Sigtryggsson 1.000.00
Tómas Gíslason og frú 2.000.00
Kristbjörg Sigurðardóttir 2.000.00
Þorbjörg Guðmundsdóttir 500.00
Ymsargjafir 2.200.00
Allar þessar gjafir eru hér með
þakkaðar og gefendum beðið
heilla.
1»
DAGBÓK
BAHWWA..
Þýtur í skóginum
— Eftir Kenneth Grahame
2. kafli — Þjóðvegurinn
Þau litu við og sáu dálítinn rykstrók og
dökkan blett í miðjunni, sem hreyfðist. Þetta
nálgaðist með ótrúlegum hraða og út úr rykmekkin-
um heyrðist „tukk-tukk“, eins og heyrðist stundum í
dýrum, sem hafa meitt sig. Þau veittu þessu ekki
frekari athygli, en ætluðu aðhalda áfram samræðun-
um, þegar friðurinn var úti á einu augabragði, að því
er virtist. Hávaðinn ætlaði þau hreint að æra og
loftþrýstingurinn ætlaði þau um koll að keyra, svo
þau forðuðu sér í ofboði niður í skurðinn við veg-
brúnina. Snöggvast sáu þau bregða fyrir gullslegn-
um rúðum og leðursætum og hin stórkostlega bif-
reið, hraðskreið og fögur, með bílstjóra, sem ríghélt
sér í stýrið, grein yfir lofti og láði eitt augnablik og
fleygði síðan yfir þau þykku rykskýi. Á næsta auga-
bragði voru bifreiðin, og sá, sem í henni sat, orðin að
litlum depli úti við sjóndeildarhringinn, og loks
heyrðist bara ógreinilegur hvinur í f jarska.
Gráni gamli, sem hafði haft allan hugann við
hestagirðinguna heima, þótt hann hefði tölt þarna
eftir veginum, varð svo hvumsa við þessi ósköp, sem
yfir dundu, að hann missti alla stjórn á sjálfum sér.
Hann prjónaði og hann jós og hörfaði aftur á bak, þó
að moldvarpan togaði af öllu afli í taumana og reyndi
að höfða til skynsemi hans með ýmsum vel völdum
orðum, en vagninn rann æ framar á skurðbarminn
FRA MHA LÐSSflGA N
við vegbrúnina. Snöggvast hékk hann á blábrúninni
og svo heyrðist ógurlegur skruðningur og brak og
brestir. Gulmálaði vagninn, stolt þeirra og gleði lá á
hliðinni í skurðinum mölbrotinn.
Rottan hoppaði hæð sína í loft upp af bræði.
„Þorparar," öskraði hún og steytti hnefana. „Öku-
níðingar . . . ég skal kæra ykkur . . . ég skal kæra
ykkur fyrir hæstarétti.“ Heimþráin var alveg horfin
úr huga hennar. Þessa stundina var það hún, sem
hafði verið skipstjóri gulu freigátunnar, sem hafði
hrakizt upp á grynningarnar undan ásókn og gopa-
hætti keppinauta á hafinu. Og hún var að reyna að
rifja upp gífuryrðin, sem hún var vön að beita við
skipstjórana á gufuskipunum, þegar þeir sigldu
skipum sínum of nálægt árbakkanum svo kjölsogið
flæddi inn á gólfteppið hjá henni.
Froskur sat flötum beinum úti á miðjum þjóð-
veginum og starði stórum augum á eftir bifreiðinni.
Hann var andstuttur og yfir andliti hans hvíldi
einkennilegur ánægjusvipur. Með jöfnu millibili
tautaði hann fyrir munni sér: „Tukk-tukk“.
Moldvarpan átti fullt í fangi með að róa hestinn, en
tókst það um síðir. Svo fór hún að athuga vagninn
þar sem hann lá á hliðinni í skurðinum. Það var
sorgleg sjón að sjá. Veggir og gluggar voru brotnir,
öxullinn boginn, eitt hjólið dottið af, sardínudósir
eins og hráviði út um allt og vesalings fuglinn i
búrinu kjökrandi og veinandi og vildi komast út.
Rottan kom moldvörpunni til hjálpar, en þó að þær
neyttu báðar sinna ýtrustu krafta, gátu þær ekki
reist vagninn við. „Froskur, froskur," kölluðu þær.
„Komdu og hjálpaðu okkur.“
Froskur svaraði ekki einu orði og hreyfði sig ekki
úr sæti sínu á miðjum veginum. Þær fóru því til að
athuga, hvað væri að. Hann sat þarna eins og í
sæluvímu með ljúft bros á vörum og einblindi á eftir
farartækinu, sem hafði valdið öllum eyðileggingun-
um. Með jöfnu milli bili heyrðist hann tauta: „Tukk-
tukk“.
DRATTHAGI BLYANTURINN
SMÁFÓLK
1) Göðan daginn, Kalli. —
Svaka maður, hvað þessi
nótt er löng!
2) Það, sem ég þarf, er
hressandi morgunmatur.
H0U) ABOUTA STACKOF HOT
CAKE5 WITH TU)0 FKIED £665,
5ÖME 5AU5A6E, 0RAN6E JUlCE
AHP A 5LICE OF MELON ?
3) Hvernig væru fáeinir
hamborgarar, tvö spælegg,
pylsa, appelsfnusafi og
melónusneið?
4) Ilvort viltu haframjöl eða
kornflex?
FERDINAND
Ölafur Skúlason
sóknarprestur.