Morgunblaðið - 19.10.1973, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1973
Fimm seldu
í Hirtshals
SPASSKY GRETTl SIG, ER
HANN DRÓ NAFN BYRNES
IJNDANÚRSLITIIN HEFJAST í JANÚAR NK.
Fímm bátar seldu síldarafla í
Hirtshals í gærmorgun, og f dag
áttu fjórir bátar að selja þar. Þá
er vitað um nokkra báta, sem eru
á leið til Danmerkur með afla.
Bátarnir, sem seldu í gær, eru
þessir: Helga 2. RE 1865 kassa
fyrir 1.9. milljónir, Óskar
Magnússon AK 2122 kassa fyrir
2.5. milljónir, Tálknfirðingur BA
1441 kassa fyrir 1.6 milljónir, Eld-
borg GK 1059 kassa fyrir 1.2 mill-
jónir og Isleifur 4. VE 1376 kassa
fyrir 1.5 milljónir.
I dag eiga eftirtaldir bátar að
selja: örn SK 1400 kassa, Vörður
ÞH 2150 kassa, Hilmir SU 1500
kassa og Náttfari ÞH 1659 kassa.
Ferðatösku
stolið úr bíl
BROTIZT var inn í bíl á Smára-
götu aðfararnótt fimmtudags og
stolið úr honum góðri ferðatösku.
Hún vartóm.
Miami, Havana 18. okt.
AP. NTB.
TEKIZT HEFUR að bjarga
ómeiddum úr gfslingu sendiherr-
um Belgfu og Frakklands á Kúbu,
sem vopnaður maður hefur hald-
ið föngunum í sendiráði Belgfu
þar i borg í tvo daga. Ræninginn
varð fyrir skotum lögreglu er hún
Fyrir skömmu var dregið um
það í Moskvu, hvaða menn eiga að
tefla saman I undanúrslitunum f
keppninni um réttinn til að skora
á Bobby Fischer heimsmeistara f
skák 1975.
8 menn höfðu tryggt sér rétt til
gerði áhlaup á bygginguna og
andaðist skömmu sfðar á sjúkra-
húsi. Hann hafði krafizt þess að
fá að fara óáreittur úr landi, en
hann mun vera eindreginn and-
stæðingur Fidels Castro. Ekki var
gengið að kröfu hans, og var árás
lögreglumanna á sendiráðið mjög
vel skipulögð, að sögn AP-frétta-
stofunnar.
þátttöku f undanúrslitunum með
því að sigra á svæðamótum.
Heimsmeistarinn fyrrverandi,
Boris Spassky, á að tefla við
bandaríska stórmeistarann Ro-
bert Byrne, og fer einvígi þeirra
fram í Puerto Rico. Korchnoi
á að tefla við Mecking frá Brasilíu
og munu þeir tefla í Bandaríkjun-
um. Karpov teflir við Poluga-
evsky í Sovétríkjunum og
Petrosjan teflir við Portisch á
Spáni.
Einvígin eiga að hefjast á
tfmabilinu 10.—15. janúar n.k.
Talið er, að Spassky, Karpov,
Portich og Korchnoi séu sigur-
stranglegastir, og munu þeir tveir
fyrstnefndu þá tefla saman svo og
Portisch og Korchnoi. Þeir, sem
þá fara með sigur af hólmi tefla
siðan um réttinn til að skora á
Fischer.
Fischer hefur sent stjórn FIDE
skeyti, þar sem hann fer fram á,
að heimsmeistarinn verði sá, sem
fyrstur vinnur 10 skákir í
einviginu, en FIDE hefur sam-
þykkt, að 6 vinningar nægi.
I brezka blaðinu Guardian nú
um helgina er lýsing á við-
brögðum meistaranna, er þeir
drógu mótherja sína. Þar segir, að
Spassky hafi orðið heldur súr á
svipinn, er hann dró nafn Byrnes.
Svipurinn á Petrosjan lýsti
hreinni örvæntingu, er hann dró
nafn Portisch, því að Petrosjan
hefur aldrei unnið Portisch, en
tapað fjórum skákum fyrir
honum. Korchnoi gretti sig, er
hann dró nafn Meckings, en
Karpov hló dátt, því hann vissi, að
hans mótherji yrði Polugaevsky.
Sendiherrum bjargað
Talið að ofan frá vinstri:
Spaasky — Byrne —
Korschnoj — Portisch —
Petrosjan.
„Loftleiðir í New York helzti
keppinautur Loftleiða í Chicago”
„Byrjunin hjá Loftleiðum á
flugleiðinni milli Chicago og
Luxemborgar er áreiðanlega sú
bezta, sem nokkurt flugfélag
hefur fengið á nýrri flugleið,“
sagði Tom Loughery fram-
kvæmdastjóri Loftleiða í
Chicago, er Mbl. hitti hann að
máli um helgina.
Loughery var hér í stuttri
ferð með hóp ferðaskrifstofu-
manna frá miðvesturfylkjum
Bandaríkjanna. Þess ber hins
vegar að gæta, að félagið var
vel undirbúið, því að í Chicago
hefur verið starfandi söluskrif-
stofa síðan 1956 og verið önnur
arðbærasta söluskrifstofa
félagsins alla tíð.
67% NVTING
Aðspurður um nýtinguna á
þessari flugleið sagði Loug-
hery: — Við höfum tölurnar
fyrstu 4 mánuðina, en eins og
kunnugt er, var fyrsta flugið til
Chicago farið 3. maí. Nýtingin i
maí var 81,4% frá Chicago, en
32% frá Evrópu. Ber hér að
geta, að undirbúningstími
skrifstofanna í Evrópu var ekki
eins langur og hjá okkur í
Chicago. I júní var nýtingin
81,6% frá Chicago, en 47,5%
frá Luxemborg. í júlí er þetta
farið að jafnast og nýtingin
73,8% frá Chicago og 74,9% frá
Luxemborg, og í ágúst er nýt-
ingin 48,2% frá Chicago og
97% frá Luxemborg. Þarna eru
bandarísku ferðamennirnir
farnir að snúa heim. Er meðal-
nýtingin þessa 4 mánuði því um
67% og fjöldi farþega um 20
Tom Loughery framkvæmda-
stjóri Loftleiða f Chicago er 32
ára gamall og hefur starfað í 10
ár hjá Loftleiðum. Hann kom
til Chicago í maf sl„ en var áður
f New York og Los Angeles.
þúsund. Hér er þó ekki um
beina fjölgun að ræða, því að
margir þessara farþega hefðu
farið með Loftleiðum gegnum
New York, ef flugið frá Chicago
hefði ekki verið byrjað. Fyrir
utan þessar tölur eru svo far-
þegar, sem aðeins fóru til Is-
lands eða komu þaðan og far-
þegar milli Chicago og Norður-
landanna og Bretlands. í þessu
sambandi má benda á, að
meðalnýting IATA-flugfélag-
anna á N-Atlantshafsflug-
leiðinni er 59% og megum við
Loftleiðamenn þvf vel við una.
— Hvað hafa ferðir verið
margar í sumar?
— Upphaflega var gert ráð
fyrir, að ferðirnar yrðu 3 í viku,
en þeim var fjölgað í 5, og var
notuð þota, sem tók 173 far-
þega. i vetur verða ferðirnar 2 í
viku og notuð þota, sem tekur
204 farþega.
10 MANNA STARFSLIÐ
— Hversu margir vinna hjá
Loftleiðum í Chicago og
hvernig er sölustarfinu háttað?
— Á skrifstofunni í Chicago
vinna 9 manns með mér og úti á
flugvelli er Gunnar Oddur Sig-
urðsson stöðvarstjóri. Flest af
þessu fólki hefur starfað um
árabil hjá félaginu og getur því
gengið í öll störf. Raunar væri
meira réttnefni fyrir Loftleiðir
f Chicago „Loftleiðir í miðvest-
urríkjunum“, • þvf að okkar
markaðssvæði er öll miðvestur-
ríkin, Illinois, Wisconsin, Indi-
ana, Ohio, Iowa, Michigan,
Minnesota og Colorado svo að
nokkur séu nefnd. A þessu
svæði eru um 800 ferðaskrif-
stofur, sem við eigum viðskipti
við. Stór þáttur f starfinu er að
fara að heimsækja þessa aðila
og síðan halda sambandinu með
símtölum öðru hverju. Svæðinu
er skipt niður á starfsfólkið,
þannig að hver er ábyrgur fyrir
ákveðnum hluta. Þetta er
kjarni starfsins í örstuttu máli,
nú er svo auðvitað starfið á
söluskrifstofunni í Chicago.
— Nú hlýtur aðstaðan í
Chicago að hafa breytzt mikið
eftir að farið var að fljúga
þangað.
— Það er alveg rétt og breyt-
ingin á söluaðferðunum er sú,
að nú leggjum við eingöngu
áherzlu á að selja farseðla frá
Chicago, en áður fyrr voru allar
brottfarir frá New York. I
öllum okkar auglýsingum nú og
upplýsingum til ferðaskrifstof-
anna er lögð áherzla á þann
sparnað og það hagræði, sem
brottför frá Chicago hefur í för
með sér. Það má því segja, að
Loftleiðir í New York séu helzti
keppinautur Loftleiða í
Chicago, því að Loftleiðir í New
York reyna auðvitað að selja
alla þá farseðla, sem þeir geta
frá New York.
GOTTSAMSTARF
— Hvernig viðtökur hafa
Loftleiðir fengið í Chicago?
— Við höfum fengið mjög
vinsamlegar móttökur. Auð-
vitað líta hin flugfélögin okkur
nokkru hornauga, en þó er sam-
vinnan yfirleitt mjög góð. Við
teljum okkur veita nýja þjón-
ustu og að stór hluti okkar við-
skipta sé ný viðskipti. Hins
vegar skal enginn halda, að þó
að svo vel hafi gengið nú sé
samkeppnin einhver dans á rós-
um, því að það er hún ekki, og
við verðum sífellt að vera á
verði og leggja feiknaléga
vinnu í að reyna að fylla þau
sæti, sem við bjóðum upp á. Nú
svo veit maður aldrei, hvað
kann að gerast í fargjalda-
Rabbað við
Tom Loughery,
framkvæmda-
stjóra Loftleiða
í Chicago
málum, sem gæti hreinlega
kippt fótunum undan okkur.
Við leggjum alla áherzlu á að
hafa kostnað í lágmarki og
rekstur eins hagkvæman og
unnt er. Við vorum mjög'
heppnir að fá Irish Airlines til
að sjá um þjónustu við vélarnar
og-farþegana og það samstarf
hefur verið sérlega gott, sem á
raunar við alla þá mörgu aðila í
Chicago, sem við eigum sam-
skipti og samstarf við.
— Hafa íslendingar notað sér
þennan nýja áfangastað eitt-
hvað?
— Það hefur verið slæðingur
af íslendingum, og ég er full-
viss um, að þeirra ferðir til
Chicago eiga eftir að stór-
aukast. Chicago er ákaflega
vinaleg borg og mun ódýrari en
t.d. New York. Þeir íslending-
ar, sem til borgarinnar hafa
komið, hafa látið vel af henni
og flugliðar IiOftleiða hafa
verið sérlega hrifnir. Nú svo er
Chicago ákaflega miðsvæðis í
Bandarikjunum og hægt að
fljúga þaðan til allra átta.
— Hefur þetta þá gengið
betur en þið vonuðuð?
— Þetta hefur gengið mjög
vel, ég held að óhætt sé að segja
vonum framar og við stefnum
að því að viðhalda þeirri þróun.
-ihj.