Morgunblaðið - 10.11.1973, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
Ólýðræðisleg
vinnubrögð?
300 milljónkr. sjúkrahús
vígt á Keflavíkurflugvelli
1 GÆR (föstudag) var vfgt nýtt
sjúkrahús bandaríska hersins á
Keflavlkurflugveili. I því eru
25 sjúkrarúm og skurðstofa og
ýmsar sérdeildir svo sem slysa-
varðstofa, rannsóknarstofa,
röntgendeild, háls- nef- og
eyrnadeild, og barnagæzlu-
deild.
Bygging sjúkrahússins hófst i
mai 1971 og tóku Islenzkir aðal-
verktakar hana að sér. Kostn-
aður við bygginguna er orðinn
3.75 millón dollarar eða um 311
milljön íslenzkar krónur. Húsið
er þannig byggt, að I neyðartil-
fellum er hægt að bæta við í
það 50 sjúkrarúmum og setja
upp tvær nýjar skurðstofur.
Sjúkrahúsið hefur einnig eigin
rafstöð til notkunar í neyðartil-
fellum.
Um 170 gestir voru viðstaddir
vígsluna, en Jerome Levy, kaf
teinn, yfirlæknir herstöðvar-
innar og Adeline Fudula, sjó-
liðsforingi, sem er yfirhjúkr-
unarkona, sýndu gestum
sjúkrahúsið. Myndin er af nýja
sjúkrahúsinu.
Fiskiþing:
NAUÐSYN ER AÐ TRYGGJA
FÓLKINU JAFNA VINNU
og eins gagnrýni eins þingfulltrúa mjög illa á útgerð eldri báta.
á skuttogarakaup, í jafnríkum Ráðherrann var barna á önd-
mæli og orðið væri, og kvað verðum meiði, og taldi hag út-
þingfulltrúinn þau bitna vfða_Framhald á bls. 18
Flugflotinn
nýtist betur
ALÞVÐUSAMBAND Islands
hefur sctt fram kröfu um vísitölu-
skerðingu á laun, sem eru hærri
en 50 þúsund krónur á mánuði og
segir f bréfi frá Bandalagi
háskólamanna, að slfk skerðing
myndi augljóslega bitna á laun-
þegum, sem eru ekki innan ASl.
Einnig segir, að BSRB hafi sett
fram kröfu fyrir launaflokka,
sem eru að mestu skipaðir há-
skólamönnum. Sfðan segir f bréfi
BHM: „Vegna tilrauna þessara
launþegasamtaka til að hafa áhrif
á kjör launþega innan Bandalags
háskólamanna, telur BHM nauð-
synlegt að koma meðfylgjandi
ályktun á framfæri."
Alyktun BHM er svohljóðandi:
„Fulltrúaráðs- og formanna-
fundur Bandalags háskólamanna
Vörur verði
verðmerktar
A FUNDI neytendanefndar hinn
.2. nóvember s.l. var eftirfarandi
samþykkt:
Neytendanefnd beinir þeim til-
mælum til smásöluverzlana, að
þær verðmerki allar vörur, er þær
hafa til sölu, þar á meðal vörur í
sýningargluggum. Einnig telur
nefndin æskilegt, að auglýsingum
fyrirtækja fylgi upplýsingar um
vöruverð, eftir því sem við verður
komið.
I þessu sambandi bendir
nefndin á, að með því að verðlags-
stjóri, hefur notað heimild laga
um verðmerkingar og óskað eftir,
að allar vörur séu verðmerktar,
hvflir sú lagaskylda á vöru-
dreifendum að verða við þeim til-
mælum verðlagsstjóra.
DOKTOR Þorleifur Jónsson
kennari við Kennaraháskól Is-
lands varði doktorsritgerð við Há-
skólann f Notthingham f Bret-
landi 29, okt. s.l. Þorleifur er 25
ára gamall, fæddur að Litla-Nesi f
Ámeshreppí í Strandasýslu 1948,
sonur Jóns Hjaltasonar og Klöru
Þorleifsdóttur.
Heiti ritgerðar Þorleifs er On
the Formation and Use of Tre-
particle Compounds in Middle
English og undirtitill er A Study
in Gramatical Interference.
haldinn 8. nóvember 1973, varar
alvarlega við ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum þess, að einstök heild-
arsamtök launþega fari inn á þá
vafasömu braut, að leitast við að
marka almenna stefnu í launa-
málum, sem sérstaklega er beint
gegn launþegum i öðrum sam-
tökum.
Með því væri brotið blað i sam-
skiptum launþega og er slfkt að-
eins til þess faliið að koma af stað
illindum milli launþega innbyrð-
is. Það samræmist ekki lýðræðis-
reglum að taka stefnumarkandi
ákvarðanir á vettvangi, þar sem
ekki eru formælendur þeirra,
sem ákvarðanimarsnerta.
Ennfremur lítur fundurinn svo
á að komi til samninga milli rfkis
valsins og BSRB, án samráðs
við BHM, um launaflokka sam-
svarandi þeim, sem að miklu eða
mestu leyti eru nú skipaðir há-
skólamönnum, hafi ríkisvaldið
þar með gengið út frá því, að
BHM eigi að hafa sérstaka launa-
flokka."
Tvö slys í
Hafnarfirði
TVÖ slys urðu með skömmu milli-
bili á föstudag í Hafnarfirði. Um
kl. 13:30 valt dráttarvél út af
götunni Breiðvangi og hlaut öku-
maður hennar, ungur maður,
nokkur meiðsli. Stundu síðar var
ekið á 10 ára dreng á gangbraut á
Reykjavíkurvegi, en hann mun
ekki hafa hlotið alvarleg meiðsli.
Sérstök umferðarljós eru við
gangbrautina, en þrátt fyrir þau
hafa slys ekki alveg verið úr
sögunni á þessum stað.
Ritgerð Þorleifs fjallar um efni
úr enskri málsögu og þá sérstak-
lega um latnesk áhrif á myndun
samsettra orða með vissum smá-
orðum sem fylgdarlið á tímabil-
inu um 1100 til 1500.
Eftir að hafa lokið BA prófi frá
Háskóla Islands í ensku og latínu
var Þorleifur 3 ár við nám í Nott-
hingham þar sem hann samdi
doktorsritgerðina. Hann kennir
nú ensku og Iatínu við Kennara-
háskóla Islands.
FISKÞnýGI var fram haldið
dagana 7. og 8. nóv. og var þá
aðallega unnið að málum í nefnd-
um. Þingfundir hófust að nýju
föstudaginn 9. nóv., og mætti þá
sjávarútvegsráðherra í byrjun
fundar og ávarpaði þingheim.
Hann ræddi um sveiflur í fisk-
vinnslunni og þann baga, sem
þær yllu fólki, sem að henni
stafaði, en taldi ástandið hafa
lagazt og allt heldur horfa til bóta
I því efni. Hann taldi og mögu-
leika á að skipuleggja þannig
veiðar flotans, að um jafna
dreifingu „hráefnis" gæti orðið
að ræða og þar með jafnari
vinnslu og vinnu. Hann sagði það
ekki aðeins nauðsyn að tryggja
fólkinu jafna vinnu, heldur
einnig frystihúsunum jafna
vinnslu, þar sem þau væru mörg
hver orðin mjög dýr í byggingu og
rekstri.
Nokkrar fyrirspurnir voru
bornar fram af fundarmönnum og
svaraði ráðherra þeim jafnharðan
SÆTAFRAMBOÐ flugfélaganna
hefur minnkað frá þvf er þau
samræmdu rekstur sinn, en ferð-
um hefur þó ekki fækkað. Mun
betri nýting hefur fengizt úr
rekstri flugflotans, þar sem
möguleikar á breytileika í stærð
flugvélanna á áætlunarleiðunum
er miklu meiri nú. Ef Ld eftir-
spurn eftir fari til Kaupmanna-
hafnar einn daginn er meiri en til
Luxemburgar, er skipt um flug-
vélar og Flugfélagsþota flýgur til
Luxemburg, en Loftleiðaþota til
Kaupmannahafnar.
Á þennan hátt hafa möguleikar
ferðalanga, sem fara vilja milli
tslands og útlands í engu minnk-
að, en nýting flugvélanna er mun
betri en áður. Sameiginlegt sæta-
framboð til og frá Norðurlöndum
hefur hins vegar minnkað úr
rúmlega 37 þúsund sæti f tæplega
23 þúsund sæti, en flugfélögin
hafa þó miklu meiri möguleika en
áður á að stórfjölga sætafram-
boði, ef sérstaklega stendur á.
Ferðafjöldi Loftleiða til Norð-
urlanda hefur minnkað um þrjar
ferðir frá því er sameining átti
sér stað, en ferðum Flugfélagsins
hefur fjölgað um jafn margar. I
dag er 21 brottför í viku hverri til
og frá tslandi fyrir ferðafólk, sem
ætlar til Evrópu. Ferðum Loft-
leiða hefur hins vegar fækkað til
Bandaríkjanna um þrjár — eru
þær nú 11 á móti 14 áður. Tvær
ferðir eru til Chicago og 9 til New
York. Sætaframboð á þessum
ferðum er þó hið sama og áður.
Þessar upplýsingar fékk Mbl. í
gær hjá Grétari Kristjánssyni, að-
stoðarframkvæmdastjóra Loft-
leiða h.f.
BEIÐ BANA
í VINNUSLYSI
MAÐURINN sem beið bana i
vinnuslysinu í fyrradag, hét Ingi-
bjartur Jónsson, til heimilis að
Skipholti 48, og var 43 ára að
aldri. Hann var ókvæntur og
barnlaus, en bjó í óvígðri sambúð
með konu. Hann átti foreldra á
lífi. Slysið varð í Húsasmiðjunni
að Súðarvogi 3, þar sem hann var
starfsmaður.
„Btess you góðu vinir!”
MORGUNBLAÐIÐ spurði tvo
talsmenn brezka fiskiðnaðarins
I gær um álit þeirra á lausn
landhelgisdeilunnar. Rætt var
við talsmann Sambands
brezkra togaraeigenda og tals-
mann Félags yfirmanna á
Grimsbytogurum. Báðir fögn-
uðu samkomulaginu, þótt þeir
teldu raunar að Bretar hefðu
orðið að færa talsverðar fórnir
fyrir það. Engu að sfður sagði
annar fulltrúanna, að þegar um
samninga væri að ræða, yrðu
deiluaðilar ávallt að færa fórn-
ir.
Fyrst var rætt við Austin
Laing, framkvæmdastjóra Sam-
bands breskra togaraeigenda.
Hann sagði. „Ég held að brezki
fiskiðnaðurinn fagni því, að
senn líður að undirritun samn-
ings. Með samningnum færum
við miklar fórnir, en við verum
samt reiðubúnir að færa þær,
þar sem við trúum þvf, að með
því endurreisum við vináttu og
gott samband milli þjóðanna.
Við erum mjög þakklátir for-
sætisráðherra okkar fyrir það,
sem hann hefur gjört og við
virðum mjög stjórnvizku þá,
sem fslenzki forsætisráðherr-
ann hefur sýnt á lokastigi
samningaumleitana."
Austin Laing var spurður að
því, hver væri mesta „fórnin"
að hans mati f sambandi 'við
samningana og svaraði hann
því þ á þannig, að samningurinn
allur væri í raun ein stór fórn.
„öll bönn og boð samninganna
til samans eru mikil fórn,“
sagði Laing „og hefur skipulags
lega erfiðleika fyrir brezka
fiskiðnaðinn og krefst þess, að
honum verði breytt mjög veru-
lega.“ Þá spurði Mbl., hvort
brezki togaraflotinn myndi
leita á önnur mið. Laing svar-
aði: „Hvar eru þessi önnur
mið? Þetta er vandamálið. Tak-
markið hlýtur að verða að
breyta mörkuðunum, svo að
þeir taki öðrum fisktegund-
um, sem nú eru óvinsælar.
Áherzlu má leggja á ufsa og
fleiri tegundir, sem unnt er að
veiða um mest allt Norður-
Atlantshaf. Þá eru einnig fisk-
tegundir, sem unnt er að veiða
á miklu sjávardýpi, tegundir
með skrítnum nöfnum. Nú
kemur til kasta fæðusérfræð-
inga og markaðssérfræðinga að
vinna þessum fisktegundum
vinsældir. En slíkt starf er
kostnaðarsamt og tekur langan
tíma. Slíkur markaður verður
ekki búinn til á einni nóttu. En
þetta starf þarf að vinna, ekki
aðeins vegna þessara samninga,
heldur og vegna þess, að nú er
veitt í heiminum eins mikið af
þorski og hægt er og til þess að
fullnægja þörfunum, verður að
finna nýjar tegundir."
Jimmy Nunn, framkvæmda-
stjóri Félags yfirmanna á
Grimsbytogurum sagði: „Við
vonum að sjálfsögðu, að Islend-
ingar og Bretar hafi yfirstigið
þá erfiðleika, sem ríkt hafa í
samskiptum þeirra og að báðar
þjóðirnar geti stundað veiðar
sínar í friði og vináttu.“ Nunn
var þá spurður að þvl, hvort
hann áliti, að íslenzkir togarar
gætu komið og landað í Grims-
by. Hann sagði: „Hér hefur
aldrei neitt stöðvað íslenzka
togara frá því að landa. Eina
vandamálið hefur verið ónógur
mannskapur við uppskipun og
enn er ekki nægilegpr mann-
skapur, sem vinnur við hana
hér I Grimsby." Þá sagði Nunn,
að brezki fiskiðnaðurinn færði
miklar fórnir við samþykkt
þessara samninga, en það væri
ekki óeðlilegt, þegar deiluaðil-
ar settust að samningum, að
báðir yrðu að gefa eftir. „Þið
hafið líka fært fórnir og gefið
eftir frá ykkur sannfæringu,“
sagði hann og bætti við: „Til
þess að ná upp því, sem víð
töpum, verðum við að endur-
skipuleggja veiðar okkar og
snúa okkur að djúpsjávarfiski
og fisktegundum, sem lifa á
miklu dýpi. Þá spurði Mbl.
Nunn, hvort hann vildi segja
eitthvað að lokum og svaraði
hann því játandi.
Við lok þorskastríðsins vildi
hann segja þetta: „Bless you
góðu vinir!“
Varði doktorsritgerð við
Háskólann í Notthingham