Morgunblaðið - 10.11.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.11.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1973 Fa JJ Itíl. i l.l 'K. i V (i lAit; ^ 22*0*22* RAUOARÁRSTIG 31 BILALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 tei. 14444 * 25555 BlLALEIGA CAR RENTAlI /p BÍLALEIGAN V^IEYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIO NEER ÚTVARP OG STEREO KASETUTÆKI l'Hverfisgötu 181 SENDUM I 86060 SKODA EYÐIR MINNA. Snaott LCIGAN AUÐBREKKU 44-46. SlMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga. - Simi 81260. Fimm manna Citroen G.S stat- ion Fimm manna Citroen G S 8 — 22 manna Mercedes Benr: hópforðabilar (m bilstjórum) EMUR GAMALL TEMUR ORÐ DAGSINS Á AKURPYRI Hringið, hlustið og yður mun gefast ihugunarefni. SÍMÍ (96)-2l840 |Hí>r0ijnl>Iöíiib mnRGFRLORR mÖGULEIKH VÐRR Arfíigarður Framsóknar Mikil átök eiga sér stað innan Framsóknarflokksins. Tveir ólíkir armar eigast við, og er barizt af mikilli hörku. Annars vegar er tiltölulega einangrað- ur hópur ungra manna, sem sölsuðu Samband ungra fram- sóknarmanna undir sig fyrir nokkrum árum og hafa haldið þvf sfðan. Hins vegar eru Tóm- as Karlsson, Alfreð Þorsteins- son, Ólafur Jóhannesson, Kristinn Finnbogason og fleiri ungir framsóknarmenn f Reykjavfk. Fyrri armurinn lýtur forystu Ólafs Ragnars Grfms- sonar, sem ungur ætlaði sér mikil metorð innan Fram- sóknarflokksins. Um þærmund ir sem Ólafur Ragnar og félag- ar hans slitu barnsskónum, skimuðu þeir í kringum sig og könnuðu, hvar helzt myndi vera að vænta skjóts frama f stjórnmálum. Þeim varð fljótlega ljóst, að Fram- sóknarflokkurinn var allra flokka steinrunnastur og gamlaður, svo líklegt var, að innan hans yrði fljótlega um nokkra yngingu að ræða. Flestum bar saman um, að Framsóknarflokknum var orðið nauðsynlegt að bæta yngri mönnum f sitt forystulið. Ólafur Ragnar og fylgisvein- ar hans urðu þvf fram- sóknarmenn. Þeir hófu klif sitt upp metorða- stigann á þvf að hvetja unga háskólamenn að ganga sem fyrst f Framsóknarflokk- inn, þvf að þar væri skjóts frama að vænta. Þegar fjöldinn var orðinn nægur, þá var Sam- band ungra framsóknarmanna gleypt. Ólafur Ragnar gat ekki ímyndað sér annað en gegnir framsóknarmenn mundu þeg- ar sjá, er hann færi að sækja fundi f sveitum landsins, aðþar væri kominn maður, sem þá vantaði. Maður, sem gat rætt pólitfk af slíkri þekkingu og kúnst, að allt annað varð eins og fánýtt hjal f samanburði. Þetta fór á annan veg. Fram- sóknarmenn skildu ekki hvað þessi mikillæti áttu að þýða. Hvaða mál talaði maðurinn. Þetta var ekki hrein og ómeng- uð sambenska. Framsóknar- flokkurinn hafði ekkert við galgopa að gera, sem óð um f skýjum útlendra kennisetn- inga. Þeiin barsaman um, að þó Ólafur Ragnar hefði lært stjórnmál við erlenda skóla, þá kynni hann ekki snefil í fram- sókn. Vissulega hefði Fram- sóknarflokkurinn þörf fyrir yngingu. En þegar framsóknar- menn tala um að yngja upp hjá sér, þá láta þeir 58 ára menn taka við af 68 ára, en ekki börn undir fimmtugt. Óiafur Ragnar brást ókvæða við þeim móttökum, sem hann hlaut hjá leiðtogunum. Og sfð- ustu tvö árin hefur hann reynt að knýja fram með góðu, sem ekki fékkst með iliu. Ungir, prúðir og veluppaldir framsóknarmenn f marga ætt- liði ve-u ákveðnir í að láta Ólaf ekki skjóta föstum rótum í forystu Framsóknar. og þar með var strfðið skollið á. Og nú er Tfminn heill og óskiptur kominn ð band ungu mannanna Ólafs Jóhannesson- ar, Kristins Finnbogasonar og hinna, sem kusu sér nýja stjórn f Klúbbnum á dögunum. Arfa- skafan er á lofti og illgresið skal á brott en rósunum skal vökvað. Eftir þeim lýsingum sem deiluaðilar hafa gefið af kosningunum til Félags ungra framsóknarmanna er Ijóst, að þar hafa allar venjulegar regl- ur félaga verið brotnar f bak og fyrir af báðum fylkingarörm- unum. Þvf er ekki ólfklegt, að þegar framsóknarforystan tek- ur að lú garðinn, þá standi fáar urtir eftir. Og vfst er, að ef að kenning Tfmans er rétt og Tómas Karlsson, Alfreð Þor- steinsson og Kristinn Finn- bogason eru rósirnar I arfa- garði Framsóknar, þá hefur hið fornkveðna sannast betur en nokkru sinni fyrr, að „engin er rós án þyrna“. spurt og svarað Hringið f sfma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS unblaðsins. MENNTUN OG STÖRF FÓSTRA Steinunn Kjartansdóttir, Bústaðavegi 42, spyr: 1. Er fóstrum heimilt að kenna forskólabekkjum barna- skóla, sbr. 77. grein grunnskóla- frumvarpsins og 2. grein laga um Fósturskóla íslands? 2. Ef fóstrur hafa einnig stúdentspróf, hafa þær þá meiri möguleika á að kenna 6 ára börnum en þær, sem ekki hafa stúdentspróf? 3. Hvaða möguleikar eru á framhaldsmenntun fyrir fóstrur hér á landi? 4. Hvernig verður í framtíð- inni háttað tilraunakennslu 5, 6 og 7 ára barna og samstarfi milli Fósturskólans og Kenn- araháskólans í þeim efnum? 5. Hafa stúdentar ennþá möguleika á að taka kennara- próf á einum vetri eða einhvers konar námskeið til þess að öðlast réttindi til að kenna? Eða er nóg að hafa stúdents- próf til að kenna? Valborg Sigurðardóttir, skólastjóri Fósturskólans, svarar liðum 1,2,3, og 4: 1. í 2. grein laga um Fóstur- skóla Islands segir, að hlutverk skólans sé að mennta fóstrur til uppeldisstarfa á hvers konar uppeldisstofnunum fyrir börn frá fæðingu til 7 ára aldurs, svo sem vöggustofu, dagheimili, leikskólum, forskólabekkjum barnaskóla og leikvöllum. Heimilt er að fela Fósturskóla Islands að mennta fólk til starfa á skóladagheimilum. 1 77. grein grunnskólafrum- varpsins segir m.a., að við for- skólann skuli starfa kennarar, sem lokið hafa viðurkenndu kennaraprófi, og skulu þeir ráðnir og launaðir eftir sömu reglum og kennaraprófi, og skulu þeir ráðnir og launaðir eftir sömu reglum og kennarar við 1.—6. bekk grunnskóla. Kennarar, sem hlotið hafa viðurkennda viðbótarmenntun fyrir forskólakennara, skulu ganga fyrir með rétt til starfs- ins. Heimilt er að ráða að for- skóla fóstrur eða aðra starfs- menn með viðurkennda mennt- un, sem henta þykir. I Reykjavík hafa fóstrur ekki verið ráðnar til að kenna for- skólabekkjum, en ég veit um, að slfkt hefur verið gert úti á landi. 2. Mér er ekki kunnugt um að stúdentspróf hafi breytt neinu þar um hingað til. 3. Eins og er eru engir mögu- leikar fyrir fóstrur til að fá framhaldsmenntun hér, en í nýjum lögum um Fósturskól- ann er gert ráð fyrir, að um framhaldsmenntun geti verið að ræða. 4. Lögin um Fósturskólann eru það ný, voru sett sl. vor, að framkvæmd þeirra er vart komin á þann rekspöl, að þessu sé hægt að svara að svo komnu. Broddi Jóhannesson, rektor Kennaraháskóla Islands, svarar lið 4. og 5: 4. I lögum nr. 38/1971 um Kennaraháskóla Islands er svo fyrir mælst, að hann skuli eiga samstarf við aðra skóla, er mennta kennara í sérgreinum. Að þvf er Fósturskólann varðar hefur slíkt samstarf ekki verið hafið enn sem komið er, enda var honum fyrst sett löggjöf áþessu ári. 5. Til þess að ölast kennara- réttindi frá Kennaraháskóla Is- lands þurfa stúdentar að stunda þar nám 13 ár. Messur á morgun Dómkirkjan Messa kl. 11. Kristinboðsdagur- inn. Séra Þórir Stephensen. Messa kl. 2. e.h. (fjölskyldu- messa) Foreldrar fermingar- barna vinsamlega beðnir að koma tilmessu. SéraÖskarJ. Þorláksson. Barnasamkoma kl. 10.30. í Vesturbæjarskólanum við Öldugötu Pétur Þórarins- son stud.thol. talarviðbörnin. Sr. Óskar J. Þorláksson. Frfkirkjan Barnasamkoma kl. 10.30. Friðrik Schram. Messa kl. 2. e. h. Kristinboðsdagurinn. Sr. Þorsteinn Björnsson Dómkirkja Krists konungs í Landakoti Lágmessa kl. 8.30. f.h. Hámessa kl. 10.30. f.h. Lágmessa kl. 2. e.h. Grensássókn Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. e.h. Aðaisafnaðarfundur verður að lokinni guðsþjónustu. Séra HaMdór S. Gröndal. Frfkirkjan, Hafnarfirði Barnasamkoma kl. 10.30. f. h. Séra Guðmundur Ó. Ólafs- son. Arbæjarprestakall Bamaguðsþjónusta f Arbæjar- skóla kl. 10.30. f.h. Messa í skól- anum kl. 2. e.h. Tekið á móti gjöfum til Kristniboðsins. Séra Guðmundur Þorsteinsson. Laugarneskirkja Messa kl. 2. e.h. Tekið við gjöf- um til Kristniboðsins. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Séra Garðar Svavarsson. Haligrímskirkja Messa kl. 11. f.h. Ræðuefni: Þekkir unga fólkið . kirkjuna? Dr. Jakob Jónsson. Langholtsprestakall Barnasamkoma kl. 10.30. f.h. Séra Árelíus Nielsson. Guðsþjónusta kl. 2. e.h. Ræðuefni: Hlutleysi er dauði. Óskastundin kl. 4. Séra Sigurður H. Guðjónsson. Háteigskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. f.h. Séra Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2. e.h. Séra Arngrim- ur Jónsson. Bústaðakirkja Bamasamkomaki. 10.30. f.h. Guðsþjónusta kl. 11. f.h. Benedikt Arnkelsson, guðfræð- ineur predikar. Tekið móti gjöfum til Kristniboðsins. Vinsamlega ath. breyttan messutíma. Hafnarfjarðarkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11. f.h. Séra Bragi Benediktsson. Ásprestakall Messa í Laugameskirkju kl. 5. Barnasamkoma f Laugarásbíói kl. 11. Sr. Grímur Grímsson. Reynivallaprestakall Messa að Saurbæ kl. 2. Sr. Kristján Bjarnason Lágafellskirkja Messa kl. 2 e.h. Aðalsafnaðar- fundur eftir messu. Tekin verð- ur afstaða til frumvarps þess um veitingu piestakalla, sem nú liggur fyrir Alþingi. Sr. Bjami Sigurðsson Útskálakirkja Messa kl. 2. Sr. Guðmundur Guðmundsson Hvalsneskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnar Guðmundsson Keflavfkurkirkja Messa kl. 2. Gjöfum til kristni- boðsstarfsins veitt móttaka. Ytrí-Njarðvfkursókn Barnaguðsþjónusta í Stapa kl. 11. Sr. Björn Jónsson Eyrarbakkakirkja Guðsþjónusta kl. 2. Kristniboðs- dagur. Sóknarprestur. Stokkseyrarkirkja Bamaguðsþjónusta kl. 10.30. Sóknarprestur. Garðasókn Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson. Hafnarfjarðarkirkja Messa kl. 2. Sr. Bragi Friðriks- son prédikar. Digranesprestakall Barnaguðsþjónusta í Víghóla- skóla kl. 11. Guðsþjónusta 1 Kópavogskirkju ki. 11. Sr. Þor- bergur Kristjánsson Kársnesprestakall Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Kristniboðsdagurinn. Sr. Ami Pálsson. Innri-Njarðvík Sunnudagsskóli kl. 11. 1 Barna- skólanum og sunnudagsskóli í Fíladelfiu kl. 11. Almenn sam- koma kl. 4.30 — Filadelffa. Bænastarfið Fálkagötu 10. Samkoma kl. 4. Sunnudagsskóli kl. 11. Sunnu- dagsskóli Kristniboðsfélagsins er i Álftamýrarskóla kl. 10.30. öll börn velkomin Fíladelffa Reykjavfk Safnaðarguðsþjónusta kl. 2. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Willy Hansen prédikar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.