Morgunblaðið - 10.11.1973, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
11
„Ókeyrandi
af og til”
„ÞAÐ ER alltaf ókeyrandi þarna
um veginn til Þorlákshafnar af og
tiL“ sagði Þóroddur Kristjánsson
steypubflstjóri, þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær, en
hann komst aðeins eina ferð með
steypu f húsbyggingu frá Selfossi
til Þorlákshafnar.
„Það eru miklir þungaflutn-
ingar um veginn,“ sagði Þórodd-
ur, „ og því ekki von, að vegurinn
dugi nokkuð á meðan ekki er
hugsað betur um hann og borinn í
betri ofaníburður, auk þess að
hefla verður hann oftar. Ekkert
nema olíumöl mun að sjálfsögðu
duga til lengdar, en ástandið er
vonlaust eins og það er. Ég var
klukkutíma og fimmtán minútur
á leiðinni, en venjulegur tími er
35 mín.“
Vegna þessa sneri Morgun-
blaðið sér til vegagerðarinnar og
fékk þ ar þær upplýsingar, að ekki
væri gert ráð fyrir olíumalarlagn-
ingu á þennan veg á núgildandi
vegaáætlun, er nær til árs-
ins 1975. Hins vegar hefði
verið ráðstafað á áætlun 13
milljónum króna til við-
halds, breytinga og end-
urbyggingar á Þorlákshafnar-
vegi. Viðurkennt var, að mikið
álag hefði verið á veginum í
sumar, en jafnframt bent á, að
vegagerðin væri algjörlega bund-
in af vegaáætlur.inni. Ráð.agerðir
um lagningu olfumalar á Þorláks-
hafnarveg væri því pólitísk
ákvörðun og í höndum fjárveit-
ingavaldsins, en ekki vegagerðar-
innar.
Ný vatnsleiðsla
fyrir Stykkishólm
Stykkishólmi, 29. október-,—
UNDANFARNA mánuði hefir
verið unnið að lögn vatnsveitu-
æðar fyrir Stykkishólm og er nú
vatnið tekið úr uppsprettulind i
Svelgsárhrauni og leiðslan til
Stykkishólms þaðan verður 12.5
km. Vatnsveita var fyrst lögð til
Stykkishólms árið 1947, en áður
höfðu Stykkishólmsbúar vatn sitt
úr brunnum hingað og þangað um
kauptúnið og f mestu þurrkum
þurfti að sækja vatnið upp í sveit.
Vatnsveitan frá 1947 var tekin úr
uppsprettu i Drápuhlfðarfjalli,
sem síðar var aukin en er nú
orðin alltof lítil.
Nýja leiðslan er úr 10 tomma
plaströrum framleiddum á
Reykjalundi. Liggur hún um lönd
Svelgsár, Hóla og Saura og yfir
Vigrafjörð, sem er 640 metra
langur. Undanfama daga hefir
verið unnið við að leggja rörin
yfir fjörðinn og því verki senn að
ljúka, þrátt fyrir ýmsar
hindranir. Þá liggur leiðslan yfir
Helgafellsland og Helgafellsvatn
þar sem hún verður tengd eldri
lögn sem liggur niður í Stykkis-
hólm. Sú lögn er 6 tommu stál-
pípulögn og liggur í geyma á holti
í efri hluta bæjarins þar sem
vatnið kvfslast um bæinn. Fyrir
ofan bæinn er dælustöð.
Þessi áfangi, sem nú er lagður,
er 8.5 km. Verktaki var Sveinn
Amason úr Reykjavik þar til í
sumar, að hreppurinn tók verkið f
sinar hendur og hefir Ágúst
Bjartmars oddviti verið verkstjóri
og driffjöður þess og miðar fram-
kvæmdum nú svo, að vonir standa
til, að hægt verði að tengja
lögnina fyrir jól og jólavatnið
verði úr lindinni fyrir ofan
Svelgsá. f
Síðan í sumar hefir erfiðasti
kaflinn verið að koma rörunum
yfir Vigrafjörð sökum mikilla
strauma og sæta þarf sjávarföll-
um. Þar þurfti einnig að sprengja
400 metra langan skurð sem ekki
ÞRR ER EITTHURfl
FVRIR RLIR
var hægt að gera nema á fjöru. Pa
hefir það seinkað verkinu að
erfitt hefir reynst að fá vinnuafl
en mikið hefir hjálpað að félagar
úr Lionsklúbbi og Rotaryklúbbi
Stykkishólms ásamt öðrum
áhugasömum bæjarbúum hafa
komið um helgar og lagt hönd á
plóginn.
Þessi áfangi er áætlaður um 18
milljónir króna en ekki er vitað
hvort sú áætlun stenst. Meðþessu
átaki mun vatn til bæjarins
aukast um helming og þegar
leiðslan verður orðin 10
tommur alla leið i bæinn, svo
sem áætlað er í framtíðinni,
mun verða nægjanlegt vatn
fyrir kauptúnið í náinni fram-
tið og þá miðað við aukinn
vöxt bæjarins. Þriðji áfangi þessa
verks verður svo að leggja nýjar
lagnir f bænum ásamt viðbótar
geymi til aðrennslisjöfnunar.
Fréttaritari.
Létt í spori
Þessi Singer saumavél kostar
aðeins kr. 22.164,00, en hefur
flesta kosti dýrari saumavéla
og þann kost fram yfir að hún
vegur aðeins 6 kíló og er þess
vegna mjög létt í meðförum.
Þegar þér saumið úr hinum
nýju tízkuefnum getið þér valið
úr mörgum teygjusaumum, m.
a. ,,overlock“, svo að engin
hætta er á að þráðurinn slitni
þó að togni á efninu.
Singer 438 hefur einnig:______innbyggðan, sjálfvirkan hnappagata-
saum tvöfalda nál, öryggishnapp (gott þar sem börn eru),
fjölbreyttan skrautsaum og marga fleiri kosti.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugávegi 91, Gefjun, Austurstræti,
Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SÍS, Ármúla 3 og Kaupfélögin um land allt.
SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA
S Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVIK. SIMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar
ef þú írilt
vera öruggur um að
tengdamamma gisti
ekki eina nóttina enn ...
er betra að hafa bílinn
á TOYO snjóhjólbörðum
TOYO snjóhjólbarðar
koma þér heilum heim
og að heiman!
Útsölustaður:
Hjólbarðasalan
Borgartúni 24 Sími 14925
Umboð á íslandi
KRISTJÁN G. GÍSLASON HF
Flóamarkadur
Sjálfstædiskvennafélagid Edda, Kópavogi, heldur Flóamarkad I dag ad
Hallveigarstödum. Húsidopnadkl. 3. Margt gódra muna.