Morgunblaðið - 10.11.1973, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 360,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 22,00 kr. eintakið.
Hvarvetna um landið
er nú hlegið að komm-
únistum. Önnur eins koll-
steypa hefur ekki verið
tekin f íslenzkum stjórn-
málum og þeir Alþýðu-
bandalagsmenn hafa nú
tekið. Þeir hafa ákveðið að
segja já við „gjörsamlega
óaðgengilegum úrslitakost-
um“. Þeir hafa tekið
ábyrgð á samningum við
Breta, sem þeir telja mjög
óhagstæða fyrir Islend-
inga. En hvað sem líður
stóryrðum þeirra um þessa
samninga geta þeir ekki
firrt sig þessari ábyrgð.
1 forystugrein Þjóðviljans
hinn 18. okt. s.l. sagði m.a.:
„Þegar ríkisstjórn eins
lands eins og ríkisstjórn Is-
lands í dag er stillt upp
frammi fyrir úrslitakost-
um eins og nú gerist í til-
boði Bretanna er það bein-
línis eðlilegt og sjálfsagt,
að slíkum kostum sé hrein-
lega hafnað. Engin ríkis-
stjórn í fullvalda ríki getur
sætt sig við úrslitakosti frá
öðru ríki. Slík ríkisstjórn
væri að bregðast skyldum
við þjóð sína og það umboð,
sem hún hefur veitt.“ Sam-
kvæmt þessum ummælum
Þjóðviljans, hafa þeir Lúð-
vík Jósepsson og Magnús
Kjartansson nú brugðizt
skyldum sínum við þjóðina
og það umboð, sem hún
hefur veitt þeim, og sætt
sig við úrslitakosti, sem að
dómi málgagns þeirra
engin ríkisstjórn í full-
valda rfki getur fellizt a.
Kommúnistar hafi haft
uppi hin mestu gífur-
yrði um efnisþætti sam-
komulagsins, sem þeir hafa
nú gleypt, en þeir hafa
einnig af vaxandi hörku
ráðizt á Ólaf Jóhannesson
persónulega fyrir málsmeð
ferð hans og vinnubrögð
öll í málinu. Samkvæmt
frásögn Þjóðviljans flutti
Lúðvfk Jósepsson ræðu á
flokksráðsfundi Alþýðu-
bandalagsins, en um hana
sagði blaðið: „Lúðvík
Jósepsson fór því næst
nokkrum orðum um þá
spurningu hvort forsætis-
ráðherrann hafi leikið af
sér í London eða hvort vís-
vitandi hafi verið staðið að
þeirri óþarflegu tilslökun,
sem samkomulagsdrögin
bera vott um. Ekki sé um
það að efast, að þau fela
það í sér, að við fáum minna
út úr þeirri sterku stöðu,
sem við þá höfum . . . Við
höfum nokkuð almennt
hér í Alþýðubandalaginu
orðið býsna reiðir yfir þvi,
hvernig hér var haldið á
málum. Við teljum, að við
höfum að vissu leyti verið
svikin, vinnubrögðin hafi
ekki verið eðlileg og þar að
auki verið leikið niður
fyrir okkur góðri stöðu í
þýðingarmiklu máli.“Með
þessum orðum hefur Lúð-
vík Jósepsson sakað Ólaf
Jóhannesson forsætisráð-
herra um svik í sambandi
við landhelgismálið og látið
að því liggja, að hann hafi
vísvitandi og af ráðnum
hug samið af sér í London.
Þrátt fyrir þessi meintu
svik og brigðmæli forsætis-
ráðherra hafa kommúnist-
ar samþykkt samninga,
sem þeir telja að hafi
þannig orðið til.
Kommúnistar hafa hald-
ið því fram, að þeir hafi
tekið þá ákvörðun að éta
ofan í sig allar fyrri yfirlýs-
ingar og samþykkja hina
„óaðgengilegu úrslita-
kosti“ til þess að „bjarga“
landhelgismálinu. I raun
og veru er þetta mesta
árásin, sem þeir hafa gert á
samstarfsflokka sína, því í
þessari yfirlýsingu felst, að
þeir vantreystu Fram-
sóknarflokknum og Sam-
tökum frjálslyndra og
vinstri manna fullkomlega
til þess að standa vörð um
útfærslu landhelginnar.
Má langlundargeð þeirra
flokka vera mikið að þola
slíkt brigzl af hálfu þeirra
kumpána, Lúðvíks Jóseps-
sonar og Magnúsar
Kjartanssonar.
Allar tilraunir kommún-
ista til að skýra þá koll-
steypu, sem þeir hafa tek-
ið, munu reynast gagns-
lausar. Staðreyndir máls-
ins eru þær, að þeir hafa
ákveðið að samþykkja
„gjörsamlega óaðgengilega
úrslitakosti“, samninga,
sem þeir telja hafa orðið til
með svikum og brigðmælgi
af hálfu Ólafs Jóhannes-
sonar, forsætisráðherra, og
óhagstæða fyrir þjóðina á
allan veg. Þeir hafa
ákveðið að samþykkja
þessa samninga. Þeir eru
ábyrgir fyrir þessum samn
ingum, en um leið hafa
þeir oröio ao aoniatursefm
um land allt. Hvaða mark
verður héðan í frá tekið á
yfirlýsingum þeirra og
skoðunum? Bæði Fram-
sóknarflokkurinn og SFV
vita nú, að stólarnir eru
kommúnistum svo kærir,
að þeir éta ofan í sig hvað
sem er til þess að halda
þeim. Þessi vitneskja er
gott veganesti í þeirri bar-
áttu sem framundan er um
varnarmálin.
KOMMÚNISTAR KYNGJA
HVERJU SEM ER
Próf. Lennart
Segerstrále á
sýningu sinni.
Teflir birtu
gegn dimmu
hann i hyggju að fara til Lille-
hammar í Noregi, þar sem hann
ætlar að vinna freskumynd í
kirkjuna. Jafnframt hefur hon-
um verið boðið að gera fresku-
mynd á vegg í kirkju í Conven-
try i Bretlandi, en þar sem
hann treystir sér illa til að fara
og vinna hana þar, hefur orðið
að samkomulagi, að hann máli
myndina heima og hún verði
síðan límd á vegginn.
Sýningin á verkum Lennarts
Segerstrále í Helsinki var í
september. Þar sýndi hann 43
olíumálverk. Sagði prófessor-
inn við gesti á opnun sýningar-
innar, að myndirnar væru sjón-
rænar myndir úr „Svörtu og
hvítu bókinni", sem er trúarrit.
Dagblaðið Helsinki Sanomat
sagði í grein um verk próf.
Segerstrále, að þau lýstu
byltingunum tveimur — bylt-
ingu efnisins, sem nú berst um
öll lönd, og byltingu andans. Og
blaðið Uusi Suomi skrifar:
„Sýning próf. Segerstrále er
ekki afturhverf, heldur litur
hann til framtíðarinnar. Hann
er greinilega hugsjónamaður,
teflir fram birtu gegn dimmu
og tekur hið góða fram yfir það
illa.
í ellinni er listamaðurinn
fyrirmynd ungra samstarfs-
manna sinna, bæði hvað snertir
magn og gæði verka hans“
R-óf. Lennart Segerstrále er
mikill trúmaður. Hann var einn
af stofnendum Oxfordhreyf-
ingarinnar fyrir stríð, en upp
úr henni spratt, sem kunnugt
er, siðvæðingarstefnan Moral
Rearmament, sem hann vinnur
mikið fyrir nú. Þrátt fyrir háan
aldur ferðast hann um og flytur
fyrirlestra og skrifar greinar i
blöð og tímarit um þessi mál.
Frá sýningu Segerstrále í Helsinki. Myndirnar heita, talið frá
vinstri: Sameiginleg byrði, Frá sáningu til uppskeru og Móðurgleði.
PRÓFESSOR Lennart Seger-
strále, finnski máiarinn, sem
m.a. gerði aitaristöfluna í Saur-
bæjarkirkju á Hvalfjarðar-
strönd, hélt nýlega stóra mál-
verkasýningu i Galerie Hor-
hammer í Helsinki. Mbl. hafa
borizt blöð, þar sem þessara’
sýningar er lofsamlega getið.
Og þar sem prófessorinn er Is-
lendingum kunnur, notum við
tækifærið til að flytja af hon-
um fregnir.
Segerstrále er orðinn aldrað-
ur maður, verður 82ja ára 17.
júní í vor, en hann virðist halda
starfskröftum sínum. Nú, eftir
að sýningunni lýkur, hefur