Morgunblaðið - 10.11.1973, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
19
íbúðir fyrir aldraða
í Hafnarfirði
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
samþykkti með 6 atkvæðum gegn
3 á fundi sfnum, sl. þriðjudag,
tillögu.frá bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins um að gangast
fyrir byggingu fbúða fyrir aldrað
fólk. Tillagan er svohjóðandi:
„Bæjarstjórn samþykklr að
gangast fyrir byggingu hag-
kvæmra íbúða fyrir aldrað fólk.
Er bæjarstjóra og bæjarverk-
fræðingi falið, í samíráði við
stjórn Styrktarfélags aldraða,
að kanna þörf fyrir slíka
byggingu, hentuga staðsetningu
og hugsanlega lánamöguleika og
aðra fyrirgreiðslu af opinberri
hálfu til slíkra framkvæmda.
Verði framangreindum athugun-
um lokið svo fljótt sem kostur er
og mál þetta lagt fyrir bæjar-
stjórn til nánari ákvörðunar."
Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins fylgdi til-
lögunni úr hlaði í ítarlegri ræðu,
þar sem hann gerði grein fyrir
þeirri brýnu þörf, sem væri á
byggingu húsnæðis fyrir aldrað
fólk i Hafnarfirði. Benti hann á
það framtak, sem Reykjavikur-
borg hefur sýnt i þessum málum,
svo og þann áhuga og þau undir-
búningsstörf, sem Styrktarfélag
aldraðra í Hafnarfirði hefur lagt
af mörkum til þess að hafizt verði
handa um framkvæmdir. Lagði
hann áherzlu á að haft yrði sem
nánast samstarf við styrktar-
félagið um framgang málsins.
Miklar umræður urðu siðan um
málið og lýstu bæjarfulltrúar
áhuga sínum á því, að Hafnar-
f jörður legði sitt af mörkum til
þess að sinna málefnum aldraðra
sem bezt. Engu að síður snerist
talsmaður meirihluta bæjar-
stjórnar, Ámi Gunnlaugsson, full-
trúi óháðra borgara, gegn þvi, að
tillagan yrði samþykkt á fundin-
um. Lagði hann í þess stað til, að
afgreiðslu málsins yrði frestað og
tillögunni vísað til bæjarráðs og
sérstakrar nefndar, sem til
stendur að bæjarstjórn kjósi siðar
til þess að fjalla almennt um
málefni aldraðs fólks i Hafnar-
firði. Gagnrýndu sjálfstæðismenn
þann tvískinnung, er þeir töldu
koma fram í málflutningi Áma
Gunnlaugssonar, þar sem hann
annars vegar lýsti áhuga sínum á
málinu, en vildi hins vegar ekki
ljá því brautargengi með atkvæði
sínu. Töldu þeir afstöðu hans
mótast af því, að tillagan væri
flutt af bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, en Ami Gunn-
laugsson ætti alltaf erfitt með að
þola það, að þeir sem minnihluti í
bæjarstjórn fengju þar sam-
þykktar sínar tillögur. Vildi hann
því láta gott málefni gjalda þess,
hverjir flyttu það inn í bæjar-
stjórn.
Lyktir málsins urðu hins vegar
þær, að meirihluti bæjarstjórnar
klofnaði í afstöðu sinni. Annar af
bæjarfulltrúum Alþýðuflokksins,
Stefán Rafn Þórðarson, lýsti yfir
eindregnum stuðningi sínum við
tillöguna og kvaðst mundu greiða
henni atkvæði. Var tillaga sjálf-
stæðismanna um byggingu Ibúða
fyrir aldraða þvf samþykkt með
V ar ði doktorsrit-
gerð um Esjuna
ÞANN 25. október varði Ingvar
Birgir Friðleifsson jarðfræðing-
ur, doktorsritgerð við Oxfordhá-
skóla. Nefnist hún á ensku
.J’etrology and Structure on the
Esja Qouarternary Volcanic Regi-
on South West Iceland" og fjallar
um uppbyggingu Esjunnar, berg-
fræði hennar, jarðefnafræði og
jarðlagaskipan fjallsins, en jarð-
lögin eru þau sömu, sem verið er
að bora I, á Reykjavfkur- og Mos-
fellssvæðinu. Þá er svæðið sett f
samband við tsland f heild og
hryggjakerfið í Atlantshafinu.
Andmælendur voru jarð-
fræðingarnir dr. G.P.L. Walk-
er, sem hefur rannsakað mikið
jarðfræði á íslandi, m.a. Aust-
fjarðagrágrýtið, og dr. G.P. Cox,
kennari við Oxfordháskóla. Luku
þeir miklu Iofsorði á ritgerðina f
lok doktorsvarnarinnar, sem stóð
í 2 1/2 tíma.
Ingvar Birgir Friðleifsson er
Hafnfirðingur, fæddur 1946. Hann
útskrifaðist úr Menntaskólan-
um i Reykjavík 1966, stundaði síð-
an jarðfræðinám i St. Andrews
háskóla og lauk þaðan lokaprófi
1970. Síðan hefur hann undirbúið
doktorsritgerð sina um Esjuna í
Oxford og stundað rannsóknir hér
á sumrin. Hann starfar nú hjá
Orkustofnun við jarðhitaiarð-
fræði á Reykjavikursvæðinu, sem
er i framhaldi af rannsóknarstörf-
um hans.
Geir Hallgrímsson o. fl. :
Afnemum heimild til
laxveiði úr sjó
GEIR Hallgrfmsson (S) hefur á-
samt þremur öðrum þingmönn-
um flutt frumvarp til breytinga á
lögum um lax- og silungsveiði. Er
f frumvarpinu lagt til að breytt
verði gildandi ákvæðum varðandi
undanþágu til laxveiði f sjó.
Meðflutningsmenn Geirs að til-
lögu þessari eru þeir Steingrímur
Hermannsson (F), Jón Ármann
Héðinsson (A) og Helgi F. Seljan
(Ab).
t greinargerð með frumvarpinu
segir m.a. svo:
„Eins og kunnugt er, hefur það
verið yfirlýst stefna tslendinga að
leyfa ekki laxveiði f sjó. Frá þess-
ari meignstefnu hefpr þó verið
vikið með undanþáguákvæði í lög-
unum um Iax- og silungsveiði.
Undanþáguatkvæði þetta nær i
framkvæmd aðeins til örfárra
aðila í landinu.
í 14. gr. laganna um lax- og
silungsveiði er þessi heimild orð-
uð þannig:
„Nú hefur laxveiði í sjó verið
metin sérstaklega til dýrleika í
fasteignamati þvi, er öðlast gildi
árið 1932, eða tillit hefur verið
tekið til hennar við ákvörðun fast-
eignaverðs i því mati, og er þá sú
veiði leyfileg."
Lagt er til í þessu frv. að fella
niður þessa heimildareglu.
Þýðingarmikið er, að stefna
íslendinga sé skýr og án undan-
tekninga í þessum efnum. Mikill
ágreiningur er i ýmsum löndum
um veiði á laxi í sjó og um reglur
varðandi slíkar veiðar er oft
tekist á æðihart á erlendum vett-
vangi, m.a. í fiskveiðistofnunum
sem tslendingar taka þátH-.“
AIÞIÍIGI
Stefán Jónsson
atkvæðum bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokks-
ins, en bæjarfulltrúar óháðra
borgara og Framsóknarflokksins
greiddu atkvæði gegn henni að
viðhöfðu nafnakalli.
Ingvar Birgir Friðleifsson.
Vilja afnema
vín í
ríkisveizlum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
A aðalfundi Félags óháðra
borgara, Hafnarfirði, 25. október
s.l., var gerð einróma svofelld
samþykkt, varðandi framkomna
tillögu á alþingi um afnám vín-
veitinea f veizlum ríkisins-
„Aðalfundur Félags óháðra borg
ara í Hafnarfirði, haldinn að
Austurgötu 10, 25. okt. 1973, læt-
ur i ljós eindreginn stuðning við
framkomna tillögu fimm alþingis-
manna að þingsáiyktun varðandi
áskorun til ríkisstjórnarinnar um
afnám vinveitinga i veizlum
hennar."
Aðeins
tvö skip
seldu
AÐEINS tvö skip seldu sfldarafla
f Danmörku á mánudag, annað f
Skagen, hitt i Hirtshals. Guð-
mundur RE seldi 2621 kassa f
Skagen fyrir 3.1 millj. og Jón
Garðar GK seldi 652 kassa 1 Hirts-
hals fyrir 864 þús. kr. Með þessari
sölu er Guðumundur búinn að
selja síld fyrir meira en 50 millj.
f Danmörku f sumar. Þá má geta
þess, að Guðmundur hefur aldrei
selt fyrir minna en 3 milljónir í
söluferð.
Meðalverðið, sem bátarnir
fengu f gær, var í kringum 37.30
kr.
Þingfréttir í stuttu máli
HRINGVEGUR UM
VESTFIRÐI
Hannibal Valdimarsson (SFV)
mælti þvi næst fyrir frumvarpi,
sem hann flytur ásamt Karvel
Pálmasyni (SFV) og Matthíasi
Bjarnasyni (S) um 60 milljóna kr.
happdrættislán ríkissjóðs til að
fullgera Djúpveg og opna þannig
hringveg um Vestfirði.
Sagði Hannibal, að frumvarp
þetta væri f lutt með fullu samráði
við aðra þingmenn Vestfjarða-
kjördæmis, sem ættu sæti í efri
deild. Þeir Vestfirðingar teldu
ekki, að hringvegi um landið væri
lokið, meðan sá hringvegur
krækti fyrir Vestfjarðakjálkann.
JARÐALÖG
Halldór E. Sigurðsson fjármála-
ráðherra mælti s.l. fimmtudag
fyrir stjórnarfrumvarpi að jarða-
lögum í efri deild. Auk hans tók
Ragnar Arnalds (Ab) til máls, en
síðan var umræðunni frestað.
ALMENN HEGNINGARLÖG.
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra mælti s.l. miðvikudag
fyrir stjórnarfrumvarpi i efri
deild um breytingu á almennum
hegningarlögum. Sagði hann, að
frumvarpið væri flutt til að full-
nægja skyldu, sem á væri lögð i
milliríkjasamningi, gerðum á veg-
um Sameinuðu þjóðanna. Er i
frumvarpinu lögð til ný grein í
lögin, sem verndi hópa manna
fyrir árásum vegna þjóðernis, lit-
arháttar, kynþáttar eða trúar-
bragða.
HUSNÆÐISMALASTOFNUN
RlKISINS
Stefán Valgeirsson mælti í
neðri deild s.l. mánudag fyrir
frumvarpi, sem hann flytur ásamt
fleiri framsóknarmönnum um
breytingu á lögum um Húsnæðis-
málastofnun ríkisins.
Þingspjall
SJALFSTÆÐISFLOKKUR-
INN hefur nú boðað róttækar
tillögur sínar I skólamálunum.
Hefur verið tilkynnt á Alþingi,
að þessar tillögur verði fluttar
til breytingar á grunnskóla-
frumvarpinu, sem nú hlýtur
meðferð þingsins. Efni tillagn-
anna er i meginatriðum á þá
leið, að sveitarfélögunum og
samtökum þeirra verði falin
framkvæmd skólamálanna,
a.m.k. á skyldunámsstiginu,
enda verði þeim séð fyrir tekju-
stofnum til þessa verkefnis.
Tillögur þessar eru settar
fram í þeim anda, að dreifa beri
valdinu í þjóðfélaginu frá ríkis-
bákninu og út til borgaranna
sjálfra, eða a.m.k. þeirra stofn-
ana þjóðfélagsins, sem næst
þeim standa.
Það er ánægjuefni, að Sjálf-
stæðisflokkurinn skuli nú gera
átak í því að sporna við þeirri
mjög svo óæskilegu þjóðfélags-
þróun , sem rikt hefur undan-
farin ár og sérstaklega frá því,
að vinstri stjórnin kom til
valda, i þá átt, að vald á sifellt
fleiri þáttum mannlegs h'fs,
færist í hendur ríkisins. Þetta
er þróun, sem öll vestræn þjóð-
félög hafa orðið að glíma við
og svo virðist sem víða hafi
veittst erfitt að sporna við
henni, jafnvel þó að menn hafi
haft vilja til þess.
Til eru tvenns konar lýðræð-
ishugmyndir í þessum löndum.
I fyrsta lagi er þar um að ræða
þá hugmynd, að lýðræðið eigi
einungis að taka til kerfisins.
Safna beri völdunum að mestu
leyti i hendur ríkisins og síðan
eigi borgararnir kost á, í al-
mennum kosningum, að kjósa
um sem flest í einum bita. Þessi
hugmynd byggir á því, að best
sé tryggt með þessum hætti, að
menn fái að hafa jöfn áhrif á
gang allra mála.
Á hinn bóginn er sú hug-
mynd, að meginkostir lýðræðis-
ins, þ.e. að hvetja einstakling-
inn til að hugsa ábyrgt og móta
frumlegar skoðanir á málum, sé
best tryggð með þvf að knýja
hann tii að taka sjálfur á við-
fangsefnum þjóðfélagsins.
Þetta verði einungis gert með
því að dreifa þjóðfélagsvaldinu
út til fólksins sjálfs eða þeirra
stofnana, sem næst því standa.
Með þessu móti einu sé hægt að
viðhalda tilfinningu einstakl-
inga fyrir því, að valdið sé frá
þeim sjálfum runnið. Lýðræðið
sé ekki bara stjórnskipan, held-
ur lífsháttur.
Sú mynd, sem hér er dregin
upp, er að sjálfsögðu einföldun
á miklu flóknari og marg-
slungnari sannindum, en ein-
faldanir eru oft nauðsynlegar
til skýringa. Það er alveg ljóst,
að Sjálfstæðisflokkurinn er það
stjórnmálaafl íslenskt, sem að-
hyllist síðarnefndu hugmynd-
ina, á meðan lýðræðisflokkar,
sem vilja kalla sig vinstri sinn-
aða, aðhyllast hina fyrri. Þrátt
fyrir þetta er ekki laust við, að
manni hafifundist, að stundum
hafi það, sem frá Sjálfstæðis-
flokknum hefur komið, verið
heldur tækifærissinnað og að
hugurinn hafi ekki ávallt verið
leiddur að þvi, hvernig tiliögur
í einstökum málum hafi sam-
rýmst meginhugmyndunum.
Af þessum ástæðum sérstak-
lega ber að fagna tillögum
flokksins i skólamálunum og
er hér með sett fram sú von, að
f leira gott fylgi í kjölfarið.
J.S.G.