Morgunblaðið - 10.11.1973, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
Minning:
Guðbjartur Ásgeirsson
f, skipstjóri og útgerðarm.
GUÐBJARTURASGEIRSSON
Hinn 4. nóvember s.l. andaðist í
Sjúkrahúsi Isafjarðar einn af
virtustu borgurum Isafjarðar-
kaupstaðar, Guðbjartur Ásgeirs-
son fyrrv. skipstjóri.
Guðbjartur var fæddur í Þernu-
vík í ögursveit við Isaf jarðardjúp
14. aprfl 1899. Foreldrar hans
voru hjónin Guðbjörg Pálsdóttir
og Asgeir Guðbjartsson, en þau
bjuggu þ á í Þernuvík, fluttu síðan
að Markeyri í Skötufirði, síðan í
Hnífsdal og loks til ísaf jarðar, þar
sem Asgeir stundaði "útgerð og
fiskverkun um árabil. Ólst Guð-
bjartur upp hjá foreldrum sínum,
ásamt tveim eldri bræðrum sin-
um, Guðm. Júní og Sölva, sem
báðir voru þekktir sjósóknarar og
aflamenn á sinni tíð. Er Sölvi nú
einn lifandi þeirra bræðra,
búsettur á Flateyri.
Eins og títt var um Vestfirðinga
á þeim árum, tók sjórinn snemma
við. Strax um fermingu fór hann
að róa með föður sfnum á opnum
báti, en 16 ára gamall fluttist
hann með foreldrum sínum í
Hnífsdal. Þar tóku við róðrar á
dekkuðum bátum. Árið 1930
fluttist hann svo til Isafjarðar og
gerðist formaður á eigin báti,
fyrst á Guðmundi, sem var 8 lesta
bátur, en síðan á Venusi, 14 lesta
báti. Reri hann á V enusi til 1943,
en þá hætti hann sjómennsku.
Hafði hann þá stundað sjóróðra
áfallalaust í 30 ár og svo ótrúlegt,
sem það kann að virðast, verið
sjóveikur alla sína sjómannstíð.
Sagði hann svo sjálfur frá, að
hefði haldið, að hann myndi sjó-
ast en það dróst á Ianginn og
eftir 30 ár varð hann að hætta.
Þá var maginn alveg bilaður.
Sýnir það með öðru hið fá-
dæma viljaþrek, sem honum'
var í blóð borið. En það
var fleira, sem hafði látið undan í
30 ára harðri sjósókn á litlum
bátum. Eitt sinn fór hann í róður
með nærri 40 stiga hita og þá
munu lungun einnig hafa látið
undan.
En afskiptum Guðbjarts
Ásgeirssonar af fsfirzkri útgerð
var ekki þar með lokið. Hann átti
eftir að skrifa sfðari kapitula
þeirra sögu. Þó að hugur hans
væri öðru fremur bundinn sjón-
um, ól hann sterka þrá til um-
svifa, og hann var sá gæfumaður,
að hann átti eftir að sjá marga af
draumum sínum rætast síðar á
lífsleiðinni. Hann átti eftir a8
fylgjast með sonum sínum taRa
við hverju nýju fiskiskipinu eftir
annað og verða virkur þátt-
takandi í mesta framfaratfmabili,
sem orðið hefur í íslenzkum
sjávarútvegi.
Haustið 1942 gekk hann 1 félag
við Hálfdán í Búð og stofnuðu
þeir Hraðfrystihúsið Norðurtanga
h/f, ásamt þeim Aðalsteini Páls-
syni, Steingrími Ámasyni og
Guðm. M. Jónssyni, sem nú er
einn á lífi þeirra félaga. Hefir
Guðbjartur verið stjórnarfornjað-
ur þess félags leng&t af síðan
1949, að Hálfdán í Búð féll frá.
Gerðist hann fljótlega starfsmað-
ur félagsins, en starfaði þó um
tíma við Sundhöll Isaf jarðar. Þeg-
ar félagið hóf eigin útgerð var
starfssvið hans markað. Starfaði
hann við útgerðina alla tíð sfðan
og sinnti þörfum sjómannanna og
óskum af þeirri kostgæfni; sem
honum var eiginleg. 1 starfi sínu
naut hann þeirrar ástsældar, sem
á rót sína í fölskvalausu trúnaðar-
trausti samfylgdarinnar og
leyndist engum, sem til þekkti, að
honum var fleira lagið en að ráða
vind og báru og greina dulspeki
veiðimannsins.
Guðbjartur Ásgeirsson unni
islenzkri sjómannastétt og
vildi veg hennar sem mestan í
einu og öllu. I samræmi við þetta
lífsviðhorf sitt var hann stofnandi
og hluthafi í útgerðarféíögunum
Víkingur h/f, Eir h/f og Hrönn
h/f og stjórnarformaður þess
síðast nefnda frá upphafi. Auk
þess sem hann var þátttakandi í
öðrum atvinnufyrirtækjum á Isa-
firði í tengslum við sjávarútveg-
inn.
Guðbjartur Asgeirsson var hár
maður vexti, fremur hold-
grannur, kvikur í hreyfingum og
hinn gjörvilegasti maður á velli.
Hann var afburðamaður til orðs
og æðis, traustur og heilsteyptur,
og frá honum andaði hlýhug og
góðvild til allra. Greiðvikinn var
hann og bóngóður úr hófi fram.
Hann var draumspakur og sá oft
fyrir óorðna hluti. Trúmaður var
hann mikill. I allri framkomu var
hann einstaklega hlédrægur og
mikið ljúfmenni, en eigi að síður
var hann skapríkur maður. En
hann hafði tamið svo skapgerð
sína, að nánast var útilokað að
menn gætu reitt hann til reiði.
Aftur á móti þurfti hann lítið til
að gleðjast, svo að samferðamenn
hans gerðu sér stundum ekki
grein fyrir, yfir hverju hann var
að gleðjast. Af þessu, eins og svo
mörgu öðru, verður hann
ógleymanlegur þeim, er honum
kynntust. Mættu margir af þessu
læra í heimi, þar sem óánægjan er
að verða stærsta dyggðin.
t
Sonur minn, stjúpsonur og
bróðir
NÍELS JÓN HANNESSON
lézt 1. nóv. Útför hans hefur
farið fram. Þökkum auðsýndan
vinarhug.
Hannes Friðsteinsson,
Magnea Sigurðardóttir
og systkinin.
t
Hugheilar þakkir fyrir samúð og
vináttu við andlát og jarðarför
INGUNNAR ÁRMANNS
DÓTTUR.
Þórkatla Sveinsdóttir,
systkini og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför
ÓLAFS LOFTSSOIMAR
Gránufélagsgötu 51,
Akureyri.
Guðrún Ragúelsdóttir.
börn, tengdabörn. barnabörn
og varnabarnabarn.
I einkalífi sínu var Guðbjartur
Asgeirsson gæfumaður. Hann
kvæntist 16. des. 1925 eftirlifandi
eiginkonu sinni, Jómnu Guð-
bjartsdóttur, frá Höfðaströnd í
Grunnavíkurhreppi. Börn þeirra
eru öll búsett á Isafirði. Þau eru:
Margrét, fædd 26.12. 1926, gift
Kristni Ambjörnssyni vélstjóra.
Ásgeir, fæddur 31.7. 1928, skip-
stjóri á m/s Guðbjörgu, kvæntur
Sigríði Brynjólfsdóttur. Guðbjart-
ur Kristján, fæddur 8.7. 1930 bif-
reiðastjóri, kvæntur Guðbjörgu
Svandísi Jónsdóttur. Hörður,
fæddur 17.8 1932, skipstjóri á m/s
Guðbiarti. kvæntur Sigriði Jóns-
dóttur. Ragnheiður, fædd 17.11.
1937, gift Jóhann’i Kárasyni lög-
regluþjóni.
Ekki er mér kunnugt um, hvað
afkomendur þeirra hjóna eru
orðnir margir, en frá þeim er
kominn stór ættbogi dugmikls
fólks, sem sett hefur svip sinn á
Isaf jörð um langt árabil.
Þegar degi mikilla starfa og far-
sælla er lokið, vilja samstarfs-
menn hans við Hraðfrystihúsið
Norðurtanga h/f þakka störf hans
og vináttu. Ég minnist hans með
þakklæti fyrir holl ráð og leið-
beiningar. Minningin um hann
mun jafnan minna mig á báruna,
því að með honum bjó ætíð líf,
sem steig og hneig, átti sér
hræringar, eins og síkvik alda.
Jón Páll Halldórsson.
I dag fer fram frá Isafjarðar-
kirkju útför Guðbjarts Ásgeirs-
sonar fyrrv. skipstjóra og út-
gerðarmanns í Hnífsdal og síðar
höfuðstað Vestfjarða Með honum
er góður og eftirminnilegur mað-
ur genginn; einn af þeim, sem
áttu fáa sina líka. Hann lézt á
Sjúkrahúsi Isafjarðar að morgni
laugard. 3. okt. eftir langvarandi
vanheilsu, á 75. aldursári.
Guðbjartur var fæddur í Þernu-
vík í Ógurhreppi 14. apr. 1899.
Foreldrar hans voru þau
dugnaðar- og heiðurshjón Guð-
björg Pálsdóttir frá Botni 1
Súgandafirði og Ásgeir
Guðbjartsson, Dýrfírðíngur að
ætt. Þau bjuggu þá á þessu
rýrðarkoti, sem svo lagðist i eyði,
en siðar bjuggu þau í Hnífsdal og
á Isafirði, þar sem Ásgeir var
umsvifamikill formaður og út-
vegsbóndi. enda lá hugur hans og
þeirra beggja miklu meira til sjó-
mennsku en landbúnaöar, þótt
þau kynnu sem flestir Vest-
firðingar góð tök á hvoru
tveggja. Einkum er mér í
minni sjómennskuleg hetju- og
víkingslund Guðbjargar —
þessarar góðhjörtuðu konu —
sem var alveg einstök. Hún hefði
áreiðanlega i engu gefið eftir
Þuríði formanni, ef örlögin hefðu
skipað henni á sama bekk. Það
var því ekki að furða, þótt synir
þeirra hjóna allir yrðu fræknir
sjósóknarar, skipstjórar og afla-
menn; Guðmundur Júní, Sölvi og
Guðbjartur — að ógleymdum
sonarsonunum alkunnu; ekki sizt
þeim, er góðu heilli hefir siglt
hverju aflaskipinu á fætur öðru
með nafni ömmu sinnar: „GUÐ-
BJÖRGU" Annar sona Guðbjarts
stýrir nú nýju, glæsilegu skipi
með nafni föður síns. Því mun
einnig fylgja gæfa.
Þegar ég innan við tiu ára ald-
ur, eftir að hafa harla óvænt misst
föður minn af slysförum á sjó,
kom í fóstur til foreldra Guð-
bjarts, varð hann eðlilega mikill
félagi minn og æskuvinur. Hann
var að vísu rúmum áratug eldri,
en það kom ekki að sök og var að
ýmsu til bóta, því ekki var
örgrannt um, að stundum væri
þörf að halda svolítið afturaf
villingnum; mér! Til þess var
Guðbjartur allra manna bezt fall-
inn sökum prúðmennsku sinnar
og háttvísi, sem snemma ein-
kenndu hann. Ég á margar góðar
minningar frá þessum árum, sem
ég nú vil þakka honum, ekki sizt
nærgætni og tillitssemi eftir að ég
barnungur varð háseti hans f 7
vertíðir, þjáður af sjóveiki, sem
aldrei rann alveg af mér.
Þótt Guðbjartur sækti sjó frá
bernsku og yrði formaður I Hnífs-
dal innanvið tvítugt, og væri
sjálfur aldrei laus við sjóveiki,
stundaði hann sjósókn í áratugi af
reisn og skörungsskap. Sýnir það
karlmennsku hans og þraut-
seigju. Vinsæll var hann alla tíð
af undirmönnum sinum, bæði á
sjó og landi. Um það bar trygg-
lyndi þeirra við hann gleggstan
vottinn, en margir þeirra unnu
hiá honum árum saman og
þótti hvergi betra að vera.
Mikill reglu- og fyrirmyndar-
maður var Guðbjartur. Þótt hann
værí mjög skapríkur að eðlisfari
og stór f lund, eins og hann átti
sannarlega kyn til, var hann jafn-
aðarlega einstaklega ljúfur í við-
móti, og jafnvel blíður. Og þótt
hann ætti til sumra ósvikinna orð-
háka að telja, féll honum nálega
aldrei blótsyrði að vörum. Og þótt
sumir náinna ættmenna hans
þætti í betra lagi góður sopinn og
spýttu skroi, kom aldrei nokkru
sinni vfn né tóbak innfyrir varir
Guðbjarts. Grandvarari mann til
orðs og æðis en hann, hefi ég ekki
þekkt.
Eftir að Guðbjartur hætti skip-
stjórn, tók hann æ meiri þátt f
útgerð og fiskvinnslu, mörg
seinustu árin einkum í hraðfrysti-
húsfyrirtækinu Norðurtanga h/f,
sem rekur útgerð og vinnslu
sjávarafurða í stórum stil. En
enda þótt hann væri þarna með
stærstu hluthöfum og sæti í stjórn
fyrirtækisins, lét hann það ekki
glepja meðfætt yfirlætisleysi sitt
og vinnusemi, raunar bæði á landi
og sjó, því hann stundaði árum
saman hrognkelsaveiðar einn á
báti og var fengsæll. Betri en
enginn var hann varðandi veiðar-
færi skipa sinna, sem hann sá um
að mestu eða öllu leyti árum
saman, enda kunni hann á því
tökin.
Það samræmdist vel grandvar-
leik og manngæzku Guðbjarts,
hversu kirkjurækinn hann var,
enda einlægur trúmaður. Verður
nú einu sæti færra setið í
Eyrarkirkju við guðsþjónustur.
En segja mætti mér, að kirkju-
gestir söknuðu þess að sjá ekki
framar Guðbjart með sálmabók-
ina sfna, hvort sem hann hefir nú
alltaf beinlínis sungið mikið,
blessaður. Ég sá hann aldrei eða
heyrði syngja, nema við skip-
stjórn, og helzt i vondum veðrum.
Þá söng hann gjaman við raust og
því sterkar sem hærra söng f rá og
reiða. En það var eins og þessi
víkingur yrði hálffeiminn, ef
hann varð þess var, að jafnvel
strákhvolpur heyrði þetta og
veitti athygii! Slík var hlédrægni
hans, og er þá ekki f urða, að hann
tæki ekki mikinn þátt í opinber-
um málum, þótt ekki vantaði
hann glöggskyggnina og dóm-
greindina. Kátur og skemmtileg-
ur var Guðbjartur á góðra vina
fundum.
— 0 —
Þótt Guðbjartur Ásgeirsson
ætti við nokkurt heilsuleysi að
stríða mikinn hluta ævinnar, var
hann samt mikill gæfumaður.
Ungur eignaðist hann frábæra
eiginkonu að dugnaði, rausn og
myndarskap; Jónínu Guðbjarts-
dóttur frá Höfðaströnd i Jökul-
fjörðum. Þau gengu í hjónaband
skömmu fyrir jól — 16. des. —
1925, og man ég enn þá hátfð.
Engan þurfti að undra, þótt
töggur væri í Jónínu, þegar vitað
var, að hún var einkadóttir Ragn-
heiðar, hinnar frægu ljósmóður
þeirra Grunnvfkinga i áratugi, en
hún varð raunar þjóðsagna-
persóna i lifanda lífi, við hlið séra
Jónmundar, sökum hreysti og
kjarks og hlýrra líknarhanda.
Jónína reyndist manni sfnum
einkar samhent, og því betur, sem
meira mæddi á, svo sem göfugra
og góðra kvenna er háttur. Gest-
risni og rausn á heimili þeirra
hjóna er við brugðið, og þeir eru
margir, sem gleyma ekki komu
sinni þangað. „Við skulum koma
til Jóninu", sagði ungur nafni
minn fyrir fáum vikum, alltaf
t
Maðurinn minn og faðir okkar.
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON,
frá Aðalvík,
Akurgerði 8, Reykjavfk,
andaðist aðfararnótt föstudagsins á Landakotsspítala.
Margrét Bjarnadóttir og börnin.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
ÞORVALDUR DANÍELSSON.
by gg inga me ista ri
Kjalarlandi 25, Reykjavik, lést þann 7. nóvember
Hjördis Oddgeirsdóttir Óskar M. Þorvaldsson
Herdis B. Þorvaldsdóttir Eva G. Þorvaldsdóttir
Gerður G. Þorvaldsdóttir Finn Söbjerg Nielsen
t
Þökkum ínnilega öllum nær og fjær auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður og tengdamóður,
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Hverfisgötu 28,
Siglufirði.
Björn Karlsson,
synir og Tengdadætur.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður, ömmu og systur okkar,
BIRNU GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR,
Heiðmörk 48, Hveragerði.
Sigurður Auðunsson,
Auður Agnes Sigurðardóttir,
barnabörn og systkini.