Morgunblaðið - 10.11.1973, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
94 Moelven-
hús afhent
Moelven-h'úsin á Selfossi
Nú er lokið við að reisa á Suður-
landi 94 viðlagasjóðshús frá fyrir-
tækinu Moelven Brug í Noregi. A
Selfossi eru 60 af þessum húsum
á Eyrarbakka 12, á Stokkseyri 12,
á Hellu 5 og á Hvolsvelli 5. Við-
lagasjóður gerði upphaflega
samning við Moelven um kaup á
55 húsum í marz, en í maímánuði
var gerðu/ viðbótaramningur upp
á 39 hús. Húsin eru öll 120 fer-
metrar að flatarmáli.
Formleg afhending húsánnafór
fram á mánudaginn, en þegar er
flutt inn í mörg þeirra. I því til-
efni hélt Moelven Brug a/s blaða-
mannafund, þar sem staddir voru
bæjarfulltrúar frá Vestmannaeyj-
um og forráðamenn Viðlagasjóðs.
Þar kom í ljós, að Moelven hefur
flutt vörur til Islands allt frá því
um 1920, og voru það upphaflega
einkum hjól á hestakerrur og öxl-
ar fyrir sams konar farartæki.
Um 1950 byrjaði fyrirtækið að
selja litla fbúðarvagna til Islands,
sem mikið hafa verið notaðir af
verktökum, og eru nú til nokkur
hundruð af þeim hér.
Það var ekki fyrr en 1958, sem
Moelven hóf framleiðslu á íbúðar-
húsum og um þessar mundir
framleiðir fyrirtækið um 1000
íbúðir álega.
Alls störfuðu 44 Norðmenn við
að reisa húsin hér í sumar, eru
þeir nú flestir farnir heim, en
þeir síðustu fara um helgina.
Forráðamenn Moeíven sögðu á
blaðamannafundinum, að þeim
hefði fundizt sérstaklega ánægju-
legt að vinna með Islendingum
við að reisa húsin. Allt hefði geng-
ið einstaklega vel, nema hvað
nokkrar húsaeiningar skemmdust
af vatni í upphafi, og eins áttu sér
stað nokkur óhöpp um borð í skip-
unum, sem fluttu húsin til lands-
ins. Húsin komu í samtals 16
skipsferðum til Islands. Fyrsta
skipið kom til landsins 12. maí, en
það síðasta 11. september.
Allir þeir Vestmannaeyingar,
sem flytjast inn i húsin, fá að gjöf
frá fyrirtækinu sex fallegar
norskar silfurskeiðar.
Aðalfundur Félags
einstæðra foreldra
Borgarstjóri flytur ávarp á fundinum
AÐALFUNDUR Félags einstæðra
foreldra verður haldinn á Hótel
Borg mánudagskvöldið 12.
nóvember og hefst kl. 21. Jóhanna
Kristjónsdóttir, formaður FEF,
flytur skýrslu fráfarandi stjórnar,
lagðir verða fram reikningar og
kosin ný stjórn félagsins.
Að loknum aðalfundarstörfum
flytur Birgir Isl. Gunnarsson,
borgarstjóri, ávarp og svarar fyr-
irspurnum fundargesta. Má ætla,
að félögum sé mjög f mun að
Fjórar barnabækur
ísafold hefur nýlega sent frá
sér fjórar barnabækur.
Litli dýravinurinn, kvæði og
sögur eftir Þorstein Erlings-
son, sér nú enn dagsins ljós í
nýrri endurútgáfu, mynd-
skreytt sem fyrr.
önnur bókin er „Skemmti-
legir skóladagar", eftir Kára
Tryggvason f annari útgáfu
með teikningum eftir Odd
Björnsson.
Þá eru 8. og 9. Siggu-bókin
eftir Herdísi Egilsdóttur kenn-
ara, „Sigga og skessan í vor-
verkunum“ og „Sigga og
afmælisdagur skessunnar í
fjallinu". Þetta eru mynd-
skreyttar bækur fyrir byrjend-
ur í lestri.
ræða við borgarstjóra, m.a. um
dagvistunarmál og ekki sízt fyrir-
hugaðar byggingaframkvæmdir
félagsins á Eiðsgranda.
Jólakort félagsins verða afhent
á fundinum frá kl. 20,30. Að þessu
sinni eru nýjar gerðir tvær, sem
ellefu ára börn úr Álftamýrar-
skóla hafa teiknað. Þá verða einn-
ig á boðstólum kort frá fyrra ári,
en þá var prentað mjög stórt upp-
lag til að spara prentunarkostnað
í ár.
Brenndu
skólablaðið
ÞAÐ BAR til tfðinda í Mennta-
skólanum í Reykjavík í fyrrad.,
þegar nýju skólablaði var dreift í
skólanum, að f jöldi nemenda lét í
ljós mikla óánægju með blaðið,
sem var helgað Rússlandi c®
Kína. Einn bekkur t.d., 6. bekkur
Q, tók sig til og brenndi öll eintök-
in, sem bárust í bekkinn. Nem-
endur úr öðrum bekkjum sóttu
eld í bálið og fóru mörg skólablöð-
in fyrir lítið. Ekki er vitað til, að
skólablað hér á landi hafi fyrr
hlotið slíkar móttökur nemenda
en eins og einn nemandi komst að
orði: „Oft höfum við séð það svart
af kommúnistaáróðri, en aldrei
svartara."
BlLUM MEÐ gírskiptinguna á
stýrisstönginni sjálfri hefur
farið sífækkandi, þótt enn sé
nokkuð um slíkt á amerískum
bílum og nokkrum evrópskum.
Broncoinn er enn í gamla stíln-
um, sem stafar sennilega mest
af því, að drifskiptistöngin er í
gólfinu milli framsætanna. —
Breytingar á 1974 árgerðinni
eru hverfandi litlar.
Núna hafa nokkrir bflar
komið til landsins á fólksbíla-
dekkjum, en frá desember n.k.
hættir það og framvegis verður
Broncoinn eingöngu fluttur inn
á 700 x 15 jeppadekkjum.
Bronco er í standardútgáf-
unni nokkuð þungur í akstri,
sérlega innanbæjar, en hér er
um að ræða jeppa og það því
ekki óeðlilegt.
Til að gera Ford Bronco að
lúxusjeppa er fáanleg sjálf-
skipting og vökvastýri. Það
síðarnefnda öllu nauðsynlegra
og kostarum kr. 20þúsund.
Ford Bronco er fáanlegur
ýmist með 6 strokka 200 kúbik
vél eða V8 302 kúbik vél. Með
minni vélinni er bensíneyðslan
frá um 15 1/100 km. Utbúnaður,
sem dregur úr mengun í út-
blástri eykur bensfneyðsluna
væntanlega nokkuð. Þennan út-
búnað er skylda að hafa í
Bandaríkjunum en hér má taka
hann úr ef vilL
Broncoinn virðist sæmilega
stöðugur í akstri en er vissu-
lega með þyngdarpunktinn
nokkuð ofarlega eins og aðrir
jeppar og vissara að fara ekki
of geyst f beygjurnar.
Beygjuradíusinn er lítill og
þarf Broncoinn því lítið pláss
til að snúa við. Ekki á að vera
hætta á skemmdum á framdrifi
þó að mikið sé á stýrið lagt. —
Læst drif eru einungis fáanleg
sérpöntuð.
Varadekkið er utan á
jeppanum að aftan, fest á járn-
stangir, þannig að auðvelt er að
færa það til hliðar er opna þarf
að aftan.
Bronco er einungis fáanlegur
með þriggja gíra gírkassa og
eru allir gfrar samhæfðir
þannig að skipta má niður í 1.
án þess að stöðva, sem ekki er
mögulegt á nærri öllum jepp-
um.
Sex strokka bíllinn a.m.k. er
lágt gfraður og þarf ekki að
skipta niður í annan úr þriðja
fyrr en á 30—40 km/klst hraða
Hátt heyrist í vélinni ef annar
gír er notaður á yfir 35 km/klst
hraða. Framsætin eru allgóð en
nokkuð hvassar brúnir geta
verið til óþæginda þegar stigið
er út úr bílnum.
Það mákannski minnastá, að
Ford Bronco hefur tvö síðustu
ár sigrað í Baja 1000 kappakstr-
inum, sem haldinn er í Mið-
Amerfku á ári hverju og er
allsérstæð keppni þar sem
öllum er heimil þátttaka. Þ.á.m.
eru mótorhjól, vörubílar, alls
konar sérsmfðaðir bílar og
venjulegir bílar. Þetta var svo
sem enginn venjulegur Bronco
(Big Oly), sem sigraði enda
mikið í hann lagt og aðalmaður-
inn á bak við bílinn var Banda-
rikjamaðurinn Parnelli Jones,
sem var mjög góður kappakst-
ursökumaður fyrir fáum árum.
Big Oly er hvorki meira né
minna en 550 hestöfl og svo
þrælstyrktur að hann er senni-
lega sterkasti Bronco f heimi.
Ford Bronco kostar með 6
strokka vél í standard útgáf-
unni þ.e. án aftursætis, vökva-
stýris og sjálfskiptingar, kr. 607
þús. Ödýrasti 8 strokka bíllinn
kostar kr. 640 þúsund.
Br.H.