Morgunblaðið - 04.12.1973, Qupperneq 1
44 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
272. tbl. 60. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunhlaðsins
SPRENGING-
ARí AÞENU
Aþenu 3. desember AP.
SPRENGJUR sprungu í tveimur
bönkum f Aþenu og Píreus f dag
og olli talsverðum skemmdum en
mannskaðar urðu ekki. Fáeinum
klukkustundum áður tóku háskól-
ar f landinu aftur til starfa eftir
nokkurra vikna hlé og undir her-
lögum. Þessar sprengingar eru
hinar fyrstu, sem vitað er til, að
sprengdar hafi verið í Aþenu á
háflu ári.
Samkvæmt fréttum frá Aþenu
yar mæting háskólastúdenta bæði
f Aþenu og Saloniki dræm, og þær
fréttir flugu fyrir, að herforingja-
stjórnin myndi gripa til einhverra
ráðstarfana gagnvart stúdentum,
ef þeir ætluðu með þessu að sýna
andstöðu sina í verki við nýju
valdhafana.
Eins og alkunna er hefur verið
haft á orði, að mótmælaaðgerðir
stúdentana í Aþenu os víðar í
fyrra mánuði hafi orðið stjórn
Georges Papadopoulosar að falli.
Á laugardaginn var ritstjórnar-
skrifstofum blaðsins Vradyni lok-
að og útgáfa blaðsins bönnuð og
enn hefur ekkert komið fram,
sem bendir til, að blessun verði
lögð yfir útgáfu blaðsins í bráð.
Nokkrum dögum áður höfðu full-
trúar herforingjastjórnarinnar
kvatt á sinn fund alla ritstjóra og
Framhald á bls. 35
Nú fer Kissinger
til Sýrlands
London 3. des. AP.
HENRY Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur á
Egyptar pynd-
uðu stríðsfanga
Jerúsalem, 3. des. NTB.
í AÐALFRÉTT ísraelska blaðsins
Jerusalem Postsegir f morgun, að
allir fsraelskir strfðsfangar f
Egyptalandi hafi verið pyntaðir
og jafnvel drepnir, meðan þeir
voru f haldi nú f haust. Er það
hérnaðarsérfræðingur blaðsins,
sem skrifar fréttina og segir
hann, að langflestir ísraelsku
strfðsfangana, sem sendir voru
heim, hafi þurft læknishjálp og
mikla aðhlynningu, þegar þeir
komu frá Egyptalandi, vegna
grimmúðlegrar meðferðar, sem
þeir hafi sætt.
Blaðið segir, að hermenn af öll-
um stigum hafi sætt pyndingum
og megi helzt jafna þeim við að-
ferðir nasista á strfðsárunum.
Verið er að vinna skýrslu um
þessi mál, segir blaðið, og verður
hún sendi Sameinuðu þjóðunum
og Alþjóð Rauða krossinum.
prjónunum að fara til Sýrlands,
sfðar í þessum mánuði, um leið og
hann fer til Kairo og nokkurra
annarra borga í Arabalöndum.
Þessi frétt hefur þótt verulegum
tíðindum sæta, segir fréttaritari
AP, vegna þess að Sýrlendingar
hafa verið mun harðskeyttari f
garð Israels en Egyptar, eftir
styrjöldina, sem raunar er ekki
fullkomlega til lykta leidd milli
Israela og Sýrlendinga.
Sýrlendingar hafa til dæmis
þverneitað að taka upp stríðs-
fangaskipti við 1 sraela og vitað er
að 127 ísraelskir fangar eru hjá
Sýrlendingum og í ísrael eru um
350 sýrlenzkir hermenn í haldi.
Sýrland var hið eina í hópi þeirra
Arabalanda, sem Kissinger sótti
ekki heim í fyrri friðarför sinni í
nóvember, þegar samið var um
vopnahléið, sem nú hefur að vísu
margsinnis verið rofið. Sér-
fræðingum ber saman um, að
Kissinger muni þurfa á allri sinni
samningalipurð og klókindum að
halda, þegar hann fer til
viðræðna við foringja
Sýrlendinga, svo og á næstunni,
þar sem sú hætta vofir yfir, að
friðarráðstefnan um Miðaustur-
lönd fari út um þúfur, ef svo
heldurfram sem horfir.
Guðmundur
enn efstur
í Chicago
Chicago 3. des.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá AP.
GUÐMUNDUR Sigurjónsson tók
á ný forystuna i alþjöðloga skák-
mótinu, sem stendur yfir í (Jii-
cago, með því að sigra Norman
Weinstein frá Bandaríkjunum á
sunnudag, og hefur hann nú f jóra
vinninga. Næstir og jafnír eru
þeir Weinstein og annar Banda-
ríkjamaður Andrew Soltis með
3Vi vinning hvor.
Nikolai Karaklajic frá Júgósla-
vfu kemur sfðan næstur með 3
vinninga. Enn eru nokkrar um-
ferðir ótelfdar, en mótinu lýkur
þann 9. desember.
Golda Meir, forsætisráðherra Is-
raels, við kistu Davis Ben Gur-
ion í Sde Boquer í Israel f gær, en
þar var hinn látni forvígismaður
jarðsettur skammt frá samyrkju-
búinu, sem var heimili hans sfð-
ustu æviár hans.
Ben Gurion jarðsettur að
samyrkjubúinu Sde Boqer
Jerúsalem, 3. des AP —
I DAG fór fram í tsrael útför
Davids Ben Gurions, fyrrum for-
sætisráðherra landsins, en hann
lézt sl. laugardag, 87 ára að aldri.
Að ósk hins látna var hann jarð-
settur án viðhafnar f grafreit
samyrkjubúsins í Sde Boqer f
suðurhluta Israels, þar sem Ben
Gurion hafði átt heimili frá því
árið 1953. Þangað var kista hans
flutt með þyrlu frá Jerúsalem,
þar sem hún hafði legið á
viðhafnarbörum á torginu fyrir
framan þinghúsið — Knesset frá
því á sunnudagsmorgun. Á þriðja
hundrað þúsund manna hafði þar
kvatt hinn látna hinztu kveðju.
Viðstaddir athöfnina í kirkju-
garði samyrkjubúsins, sem er f
útjaðri eyðimerkurinnar Zin, þar
sem við blasa fögur fjöll og kletta-
gil, voru nánustu ættingjar Ben
Gurions, helztu vinir og ríkis-
stjórn ísraels. Sex hermenn báru
kistuna úr þyrlunni, en á undan
gengu sex stúlkur úr hernum með
blómsveiga. Kistan var látin síga
hægt í jörðu við hlið grafar eigin-
konu Ben Gurions, Paulu, sem
lézt árið 1968. Þegar mokað hafði
verið yfir, var settur á gröfina
lítill trékross með' nafni hins
látna einu saman.
í Jerúsalem hafði farið fram
kveðjuathöfn, þar sem viðstaddir
Tvísýnt um úrslit
dönsku kosninganna
Kaupmannahöfn, 3. des. NTB.
ÞINGKOSNINGAR verða í Dan-
mörku á morgun, þriðjudag, og er
þeim mikill vandi á höndum, sem
hyggjast spá um úrslitin eða
hvernig næsta ríkisstjórn lands-
ins verði saman sett. Megi ráða af
úrslitum skoðanakönnunar, sem
dagblaðið Jyllandsposten í Arós-
um birti á sunnudag, fá tfu
stjórnmálaf lokkar þingmenn
kjörna, — en skoðanakönnunin
— sem stofnunin OBSERVA lét
gera — var framkvæmd um miðj-
an nóvember sl., og hefur ýmis-
legt getað breyzt síðan.
Könnun þessi gerði ráð fyrir, að
jafnaðarmenn fengju 22%
atkvæða, Radikale Venstre 13%,
íhaldssami þjóðarflokkurinn
10%, Venstre 12%, Réttarsam-
bandið 2%, Sósialistíski þjóðar-
flokkurinn 9%, Kommúnista-
flokkurinn 2%, Kristilegi þjóðar-
flokkurinn 3%, Framfaraflokkur-
inn 14% og Mið-demókratarnir
12%.
Tveir síðasttöldu flokkarnir eru
þeir, sem Mogens Glistrup og Er-
hard Jakobsen stofnuðu, og eru
báðir klofningsflokkar, sem orðið
hafa til fyrst og fremst út af ein-
stökum ágreiningsmálum, en
jafnframt af óánægju almennings
með aukin áhrif vinstri manna og
illþolanlegar skattabyvðar. Jakob-
sen, sem óviljandi felldi ríkis-
stjórn Ankers Jörgensens, tókst
að fá undirskriftir um 200.000
kjósenda á þeim stutta tíma, sem
hann hafði frá því Jörgensen
ákvað að nýjar kosningar skyldu
haldnar.
Áður fyrr hafá danskar kosn-
ingar yfirleitt staðið milli tveggja
fylkinga, jafnaðarmanna og
vinstriflokkanna annars vegar og
borgaraflokkanna svonefndu hins
vegar. Nú er því öðru vísi farið,
og talið víst, að hvorug þessara
fylkinga fái nægilegan meirihluta
til stjórnarmyndunar án stuðn-
ings Glistrups eða Jakobsens.
Varaformaður flokks jafnaðar-
rnanna hefur lýst þvi yfir, að þeir
rnuni ekki taka þátt í stjórn með
borgaraflokkunum, og yfirleitt
ekki eiga aðild að stjórn nema
Anker Jörgensen verði forsætis-
ráðherra hennar.
.Jafnframt hafa forystumenn
borgaraf iokkanna lýst því yfir, að
þeir hafi ekki áhuga á stjórnar-
samvinnu við jafnaðarmenn. Allir
virðast þó á einu máli um, að
Danmörk hafi nú fulla þörf fyrir
sterka og vel starfshæfa stjórn,
þar sem yfir vofa margvisleg,
alvarleg vandamál, svo sem oliu-
skortur, hugsanlegt atvinnuleysi
af hans völdurn og önnur efna-
hagsleg vandamál, að ógleymdum
eldri vandamálum, sem fylgja
hinni öru verðbólgu og versnandi
viðskiptastöðu gagnvart útlönd-
um.
Hugsanlegt er, að flokkur
Erhards Jakobsens verði annar
stærsti flokkur þingsins, þegar at-
Framhald á bls. 35
voru m.a. fulltrúar frá Banda-
rikjunum, Bretlandi, Frakklandi,
Vestur-Þj’zkalandi, Danmörku og
Hollandi. Tveir æðstu trúarleið-
togar Gyðinga lásu bænir, meðan
hermenn báru kistuna að
þyrlunni, sem átti að flytja hana
til Sde Boqer. Fjórar aðrarþyrlur
fluttu ættingjana og ríkis-
stjórnina. Heiðursvörð stóðu
nokkrir helztu hershöfðingjar
Israels.
Samúðarskeyti hafa streymt til
Israels víðsvegar að úr heiminum.
Meðal þeirra, sem minntust Bens
Gurions sem mikilhæfs leiðtoga
voru Richard Nixon, forseti
Bandarikjanna, og Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sem sagði,
að hugrekki hans og vizka hefðu
notið víðtækrar virðingar. John
Lindsay, borgarstjóri í New York,
viðhafði þau ummæli um Ben
Gurion, að hann hefði verið einn
af siðustu risunum meðal hinna
mikilhæfu alþjóðlegu stjórnmála-
manna heimsins, og Nelson
Rockefeller, rfkisstjóri i New
York, sagði að í sínum augum
hefði Ben Gurion verið tákn
ísraelsrikis svo og tákn
baráttunnar fyrir frelsi og
virðingu mannkynsins.
SKIPAFELOG
HÆKKA GJÖLD
London, 3. des., AP.
SJÖstór skipafyrirtæki hafa aug-
lýst tíu prósent hækkun á öllum
fargjöldum og flutningsgjöldum,
í þvf skyni að mæta auknum oliu-
kostnaði. Fyrirtæki þessi eru
Cunard, Chandris, Union Castle
Line, Holland Ameriea Line, Pen-
insular and Oriental, Sitmar
Cruises og Shaw Savill