Morgunblaðið - 04.12.1973, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973
35
ASKORUN UM UPPSOGN
HERSTÖÐVARSAMNINGSINS
Á SAMKOMU stúdenta i
Háskólabíói s.l. laugardag las
Margrét Guðnadóttir prófessor
eftirfarandi ávarp, sem 60 ein-
staklingar höfðu ritað undir:
„Við undirrituð lýsum
stuðningi við það stefnumark
ríkisstjórnarinnar að taka her-
stöðvasamninginn frá 1951 til
endurskoðunar eða uppsagnar I
þvi skyni, að bandaríski herinn
fari úr landinu á kjörtímabilinu.
Formlegum endurskoðunar-
tíma lýkur 25. desember 1973.
Liggi þá ekki fyrir samningur um
brottflutning hersins, ber að
segja samningnum upp einhliða.
Við skorum því á ríkisstjórnina
að afla sér heimildar til uppsagn-
ar herstöðvasamningsins í árs-
byrjun 1974, þannig að brottför
hersins sé tryggð á kjörtíma-
bilinu.“
Undir ávarpið rita:
Adda Bára Sigfúsdóttir.
AlfreðGíslason, læknir.
Andrés Kristjánsson.
Atli Heimir Sveinsson.
Baldur Oskarsson.
Baldur Pálmason.
Baldvin Halldórsson.
Benedikt Davíðsson.
Björn Bjarnason, form. Lands-
sambands iðnverkafólks.
Björn Bjarnason, rektor.
Eðvarð Sigurðsson.
Eggert Jóhannesson, varafor-
maður S.U.F.
Elías Snæland Jónsson.
Gestur Jónsson, varaformaður
Stúdentaráðs.
Gfsli B. Björnsson.
Guðmundur Daníelsson.
Gunnlaugur Stefánsson.
Hafsteinn Þorvaldsson.
Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli.
Hallgrímur Guðmundsson, form.
æskulýðsnefndar S.F.V. *
Haraldur Ilenrýsson.
Helgi Sæmundsson.
Herdís Olafsdóttir, form. verka-
kvennafélagsins Akranesi.
Hermóður Guðmundsson.
Hjörleifur Sigurðsson.
Hjörtur E. Þórarmsson, Tjörn.
Hörður Zophóníasson, yfir-
kennari.
Inga Birna Jónsdóttir.
Ingólfur A. Þorkelsson.
Jakob Björnsson, orkumálastjóri,
Jakob Jónsson, Dr. theol.
Jóhann S. Hannesson, mennta-
skólakennari.
Jón Ásgeirsson, form. Alþýðu-
sambands Norðurlands.
Jón Sigurðsson, form. Sjómanna-
sambands íslands.
Jónas Kristjánsson, forstöðumað-
ur Ámastofnunar.
Kristinn Kristmundsson,
skólameistari.
Kristján Ingólfsson.
Kristján Thorlacius.
Njörður P. Njarðvík.
Ölafur Ólafsson, landlæknir.
Ólafur Jóhann Sigurðsson.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Páll A. Pálsson, yfirdýralæknir.
Sigurður A. Magnússon.
Sigurður Einarsson, form.
Alþýðusambands Suðurlands.
Sigurður Guðgeirsson.
Sigurjón Rist.
Sigurvin Einarsson.
Snorri Jónsson, forseti ASÍ.
Stefán Ögmundsson.
Sveinn Skorri Höskuldsson.
Tryggvi Gfslason, skólameistari.
V aldimar Jóhannsson.
Vigdís Finnbogadóttir.
Þórbergur Þórðarson.
Þorbjörn Guðmundsson, form.
Iðnnemasambands Islands.
Þorleifur Einarsson.
Þorsteinn Ö. Stephensen.
Þorvaldur Skúlason.
Þorvarður Ömólfsson.
Uppbygging
Managua í
brennidepli
San Fransisco, 1. des. — AP
ENDURREISN Managua, höf-
uðborgar Nicaragua, sem varð
fyrir heiftarlegum jarðskjálft-
um á Þarláksmessu í fyrra,
kann að taka 10 ár og kosta 500
milljónir dollara, að því er
Anatasio Somoza hershöfðingi
og fyrrverandi forseti landsins
skýrði frá á ráðstefnu sérfræð-
inga um skjálftann f San
Fransisco f gær. Skýrði
Somoza frá þvf, að jarðskjálft-
inn, sem mældist 6.2 stig á
Richter-kvarða, hefði orðið
10.000 manns að fjörtjóni,
sært 20.000, og jafnað 1500
íbúðablokkir og 50.000 hús við
jörðu.
Somoza vísaði á bug sögu-
sögnufn um, að hjálparsjóðir
hefðu farið í allt aðra hluti en
til hjálpar borgarbúum, sem
eru um 500.000, og kvað dreif-
ingu fjárins hafa verið jafna
og réttláta. Allmargir mótmæl-
endur söfnuðust saman fyrir
utan ráðstefnusalinn í San
Fransisco í gær og sökuðu So-
moza um að hafa stungið hjálp-
arsjóðunum í eigin vasa og
látið her sinn fremja fjölda-
morð á eigin þegnum.
— Kosningar
í Danmörku
Framhald af bls. 1
kvæði eru talin. Jakobsen hefur
háð kosningabaráttu undir víg-
orðinu „við lofum engu, en stönd-
um við það allt“. Þetta vígorð
þykir öðrum stjórnmálamönnum
að vonum erfitt við að fást og
segja ekki gott að sjá, hvernig
byggja megi stjórnarsamvinnu á
slíkri stefnu. Þá hefur það vald
ið stjórnmálamönnum og stjórn- I
málafréttariturum erfiðleikum,
að flokksmenn Jakobsens eru
yfirleitt. vita reynslulausir I
stjórnmálum — og hann sjálfur
sá eini, sem reynslu hefur af þing-
störfum. Engu að síður gizka sum-
ir á, að útkoma kosninganna verði
stjórn borgaraflokkanna undir
forsæti Hilmars Baunsgaards með
stuðningi Jakobsens.
— Nýtt hótel
Framhald af bls. 12
undir stjórn Áma Ingimundar-
sonar frá Akureyri. Söngur þessi
tókst með ágætum og voru flest
lögin klöppuð upp aftur. Söng-
félag þetta er nú á förum til
Reykjavikur til að syngja I útvarp
og halda söngskemmtun í Austur-
bæarbfói. Undir borðum var
einnig almennur söngur veizlu-
gesta. Allir voru ánægðir með
þessa vígsluathöfn, sem vekur
vonir um aukna félagsstarfsemi
austan Skagaf jarðar.
B. J.
— Sprengingar
Framhald af bls. 1
útgefendur og gefið þeim fyrir-
mæli um, hvernig skrifað skyldi í
blöðin. Lagt var ríkt á við þá, að
ekki mætti gagnrýna nýju stjórn-
ina, en fyrrverandi valdamenn
mættu fá það ósvikið. Þó var talið
ástæðulaust að níða Papadopolos
meira en nauðsynlegt væri, aö
sögn fréttaritara AP i Aþenu. Út-
gáfa Vradyni, sem löngum hefur
reynt að hafa uppi gagnrýni á
fyrri og núverandi valdamann,
mun hafa verið bönnuð, vegna
þess að blaðið birti ekki opinbera
yfirlýsingu frá stjórnvöldum, en
það var þvi skylt að gera, sam-
kvæmt herlögum, sem i landinu
gilda.
I fréttum frá Grikklandi kemur
fram að þar una borgarar illa
sinum hag og sá feginleiki, sem
virtist vakna með fólki, fyrstu
dagana eftir fall Papadopoulsar,
hefur hjaðnað, eftir að ljóst er að
nýja stjórnin mun ^na meiri
hörku en sú fyrri og þróunin i átt
til lýðræðis virðist gersamlega
hafa verið stöðvuð um sinn.
Xanthopoulos Palams, fyrr-
verandi utanríkisráðherra,
ásakaði á sunnudag einstök
aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins fyrir, að hafa komið á
„köldu stríði" milli Grikklands og
annarra NATO-ríkja og þetta
hefði i för með sér, að hvorki
gríska þjóðin né her hennar ga.Hu
haftsama traust á bandalaginu og
áður.
Þá gaf mjög þekktur griskur
hershöfðingi, Nicholas Markar-
ezos, út yfirlýsingu i dag, þar sem
hann gagnrýndi Papadopoulos
mjög harðlega, án þess þó að
nefna forsetann fyrrverandi með
nafni. Makarezos tók þátt í
byltingunni 1967 og var lengstum
hægri hönd Papadopoulosar og
síðast aðstoðaforsætisráðherra,
unz Papadopoulos losaði sig við
hann úr stjórnmm, þegar hann
ákvað að borgaraleg stjórn skyldi
taka við í landinu.
Stolið úr báti
í Þorlákshöfn
BROTIST var inn I bát í Þorláks-
höfn aðfararnótt sunnudags og
stolið bjór og áfengi, þó ekki
miklu magni, sem skipverjar áttu,
en báturinn var nýkominn úr
söluferð á erlendan markað.
Frá ráðstefnu R.K.t. um sjúkraf lutninga.
Ráðstefna um
sjúkraflutninga
FYRIR stuttu efndi Rauði kross
íslands til ráðstefnu um sjúkra-
flutninga, í samráði við heil-
brigðisráðuneytið. Ráðstefnuna
sótti 131 manns úr öllum lands-
hlutum, fulltrúar þeirra aðila sem
yfir sjúkraflutningatækjum ráða,
og að auki nokkrir læknar og
hjúkrunarkonur.
A ráðstefnunni flutti Tryggvi
Helgason flugmaður erindi um
sjúkraflug. Lagði hann mikla
áherzlu á, að aðstaða á flugvöll-
um, yrði bætt, að mögulegt yrði að
hafa lækni með í sjúkraflug og
aðstoð veitt til kaupa á sjúkra-
flugvélum með jafnþrýsti útbún-
að, sem væri höfuðnauðsyn ef
fyllsta öryggis ætti að gæta.
Þátttakendur á ráðstefnunni
skiptust í umræðuhópa, þar sem
tekin voru fyrir til umræðu hin
ýmsu vandamál i sámbandi við
sjúkraflutninga. Rætt var um
hvaða leiðir mætti fara til sam-
eiginlegrar úrlausnar i sambandi
við innkaup, lækkun tolla á tækj-
um og neyðarnúmer i simakerfi
landsins.
Askorun uni bann við vinveil-
ingum í opinberum veizlum
UNGDÆMISSTÚKA nr. 1 hélt
haustþing sitt sunnudaginn 25.
nóvember sl. A þinginu voru
gerðar fjölmargar samþykktir um
innanfélagsmál og bindindismál
almennt. Meðal þeirra sam-
þykkta, sem gerðar voru, var
áskorun til alþingismanna um að
samþykkja þingsályktunartillögu
um bann við áfengisveitingum i
opinberum veizlum, þakkir til
Ríkisútvarpsins fyrir fræðslu-
þætti, sero fluttir hafa verið um
áfengismál og vakin var athygli á
breytingu þeirri, sem fram kemur
i skýrslum lögreglunnar í sam-
bandi við lokun vínveitingahúsa
vegna þjónaverkfallsins enþingið
telur þær staðfesta þá skoðun
bindindismanna að takmörkun á
áfengissölu dragi úr áfengis-
neyzlu og því böli, sem hún
veldur.
SUMARBÚÐIRN-
AR VIÐ VEST-
MANNSVATN
ÆSKULÝÐSSAMBAND kirkj-
unnar í Hólastifti gefur út jóla-
kort eins og venjulega til stuðn-
ing sumarbúðunum við Vest-
mannsvatn i Aðaldal. Að þessu
sinni er kortið skreytt með lit-
mynd úr sumarbúðunum, þar sem
tvö börn eru að tendra ljós við
krossinn í aðalsal sumarbúðanna.
KVIKMVNDATÖKUVÉLAR Reflex 09 zoom
Kvikmyndasýningavélar 8 mm. Liósmyndavélar,
margar gerðlr. Ljósmyndasýnlngavéiar.
Myndskoðarar. Þrlvlddarmyndsiár. Filmur.
FOKUS, Lækiargötu 6b. - Sfml 15555.