Morgunblaðið - 03.03.1974, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
15
... þeir eru frum-
legir í þokkabót
□ Þeir eru ef til vill ekki marg-
ir, sem hafa átt þess kost að hlýða
á söngflokkinn ÞOKKABÓT, en
þeir sem það hafa gert, skilja okk-
ur Slagsíðumenn sjálfsagt þegar
við fullyrðum, að þar séu á ferð-
inni skemmtikraftar sem vert er
að gefa nánari gaum. Slagsíðu-
menn brugðu sér nefnilega á æf-
ingu hjá Þokkabót ekki alls fyrir
löngu og komust þá að raun um að
meðlimir söngflokksins hafa allt
til þess að bera að verða fyrsta
flokks skemmtikraftar. Hljóð-
færaleikur er með miklum ágæt-
um, samstilling radda til fyrir-
myndar og þeir eru frumlegir í
þokkabót, — a.m.k. var ekki að
heyra neitt í flutningi þeirra, sem
minnti á hefðbundna framkomu
eða lagaval hinna gömlu íslenzku
söngflokka, sem flestir hverjir
eru nú hættir störfum.
Lagaval er mjög fjölbreytt, eins
konar blanda af islenzkum þjóð-
Iögum, negrasálmum, irskum
þjóðlögum, ádeilusöngvum og
grinvísum, m.ö.o. tónlist 'úr öllum
áttum. En þar með er ekki allt
upp talið því að þeir félagar hafa
nefnilega í hyggju að bæta
kvartett-söng í M.A. stil í efnis-
skrá sína, enda hafa þeir öll tök á
því þar sem einn þeirra er liðtæk-
ur pianóleikari og hinir hafa iðk-
að kvartettsöng í einkasamkvæm-
um um árabil. Þá ber þess að geta,
að í samstarfi við Þokkabót er
ungur og upprennandi skemmti-
kraftur, eftirherman Jóhannes
Ágústsson (þekktur undir nafn-
inu Jói frændi) og mun hann
koma fram á skemmtunum með
söngflokknum þegar svo ber
undir og þess er óskað. Þeir í
Þokkabót hafa sem sagt ekki í
hyggju að skreyta efnisskrá sína
með bröndurum á milli laga eins
og lengi hefur verið hefð hjá is-
lenzkum söngflokkum, heldur
mun Jói frændi sjá um þá hlið
málsins. Sú hugmynd hefur einn-
ig komið upp að tengja eftirherm-
urnar ljóðrænu og tónlistarlegu
ívafi, en það mál er enn á byrj-
unarstigi.
Áður en lengra er haldið er rétt
að geta þess, að sá ágæti aust-
firzki bær Seyðisfjörður kemur
mjög við sögu I sambandi við
Þokkabót. Þrir þeirra hafa átt þar
heimili um lengri eða skemmri
tima, allir hafa þeir starfað þar að
tónlistarmálum og það var þar
sem hugmyndin um söngflokkinn
Þokkabót kom fyrst fram. En
þrátt fyrir náin tengsl við Seyðis-
fjörð hafa þeir í Þokkabót í
hyggju að starfa að miklu leyti
hér á höfuðborgarsvæðinu, a.m.k.
fyrst um sinn, og munu þeir verða
í einhverju sambandi við hina
gagnmerku umboðsskrifstofu
Ámunda Ámundasonar.
í Þokkabót eru:
Gylfi Gunnarsson sem syngur
og leikur á gítar. Gylfi er Seyð-
firðingur í húð og hár og hefur
lengi starfað með hljómsveitum
þar eystra. Gylfi útskrifast úr
söngkennaradeild Tónlistarsköl-
ans i Reykjavík nú í vor, og meðal
annarra frægðarverka sem hann
hefur sér til ágætis unnið má
nefna, að hann fór með hlutverk
Annas æðstaprests í uppfærslu
Leikfélags Reykjavikur á Súþer-
star i vor er leið.
Ingólfur Steinsson er Seyðfirð-
ingur eins og Gylfi og auk þess að
syngja leikur hann einnig á gítar.
Ingólfur hefur sungið og spilað í
mörg ár, vgr m.a. I því ágæta triói,
sem tók þátt í sýningu Leikfélags
Akureyrar á Jörundi hundadaga-
konungi. Ingólfur var eins og
Gylfi þátttakandi í Superstar og
Eg opna á þjóð-
hátíðarárinu
ENN verða menn sennilega að
bíða um skeið unz þeir geta farið
að skemmta sér í hinu risavaxna
nýja Sigtúni, sem Sigmar
veitingamaður er að koma upp
inni á Suðurlandsbraut. Sigmar
sagði Slagsíðunni, að hann væri
alltaf að búast við, að þessu færi
nú að ljúka en síðan yrði raunin
önnur. Varðist Sigmar allra
nánari frétta af fyrirkomulagi,
stefnu og stíl þessa nýja dans-
húss, en sagði þó, að fyrst i stað
yrði aðeinsneðstahæðininotk-
un, og þar yrði bæði matur og
drykkur veittur. Eins og fram
hefur komið i fréttum, hefur
verið stofnað ný hljómsveit til að
leika fyrir gesti Sigmars. Nefnist
hún tslandia og er skipuð úrvals
hljóðfæraleikurum undir forystu
Þuríðar Sigurðardóttur og Pálma
Gunnarssonar. Er það því
nokkurt tilhlökkunarefni að
kynnast þessum nýja skemmti-
stað, — ekki sízt vegna tilfinnan-
legrar fábreytni i þeim efnum í
Reykjavík. En sem sagt, enn
verða menn að sýna biðlund og
eina tímasetningin, sem Sigmar
vildi gefa upp, var: „Ég reikna
með að opna á þjóðhátíðarárinu."
Það þótti Slagsiðunni þó alltént
gott.
# Eftirhermusnillingurinn Jói
frændi á æfingu niðri á Lækjar-
torgi.
fór hann með hlutverk eins af
postulunum. Ingólfur lék um
langt skeið með danshljómsveit-
um austur á fjörðum og má þar
m.a. nefna hljómsveitina Eins-
dæmi sem starfaði við mikinn
orðstír áSeyðisfirði ásl. sumri.
Magnús Einarsson leikur á
kontrabassa og syngur. Hann
hefur mikið komið við sögu í tón-
listarlífi Austfirðinga, lék um
skeið með Nasasjón á Seyðisfirði
að ógleymdri hljómsveitinni For-
húð frá Hornafirði, en sú hljóm-
sveit starfaði þar fyrir u.þ.b.
þremur árum.
Halldór Gunnarsson er borinn
og barnfæddur í Hveragerði en
hefur starfað í hljómsveitum
fyrir austan og var m.a. með þeim
Gylfa og Ingólfi í Einsdæmi.
Hann syngur, leikur á flautu,
munnhörpu, bongótrommur og
píanó þegar svo ber undir. Þess
má geta að Halldór var orgelleik-
ari í hljómsveitinni Torrek, sem
Framhald á bls. 21.
Kynlegt kver atarna
Þokkabót, f.v. Magnús, Halldór, Ingólfur og Gylfi.
HAFNAÐ hefur i höndunum á
Slagsiðunni nýútgefið kver eitt
allsérstætt að gerð og efni. Höf-
undur og útgefendur kversins eru
Edda og Gunna. Þar sem Slagsfð-
an stóð eiginlega á gati, þegar til
þess kom að segja frá kveri þessu,
var slegið á þráðinn til Gunnu.
Hún var eiginlega jafnilla sett og
Slagsíðan i þessum efnum, en lét
þó uppi, að þær Edda hefðu gefið
þetta kver út „að gamni okkar“.
Þetta þóttu Slagsfðunni mikil tfð-
indi og stór.
Slagsíðan leyfir sér að slá þvi
fram — svona til að slá einhverju
fram — að saga þeirra Eddu og
Gunnu (Edda skrifar en Gunna
teiknar) sé goðsöguleg smásögn
af sambandi karls og konu. Og nú
setti Slagsiðan upp spekingssvip
og fitjaði gáfulega upp á nefið.
Sagði Gunna okkur, að Edda hefði
skrifað þessa sögu fyrir fimm
árum. Því er það svo, að þótt i
sögunni sjálfri sé látið í ljós nokk-
urt vonleysi um að karlar og kon-
ur muni nokkurn tíma ná saman,
(að því er bezt verður séð vegna
þess, að „karlmaðurinn hafi ekk-
ert móðurlíf og gat því ekki getið
af sér afkvæmi“.) þá telja þær
Edda og Gunna, að í dag, fimm
árum eftir að sagan var skrifuð,
hafi skilningur náðst milli kynj-
anna. Er það breytta viðhorf sett
fram á all nýstárlegan hátt á bak-
síðu kversins góða, og kemur
Halldór Laxness þar fram sem
eins konar bjargvættur Eddu og
Gunnu og sambands kynjanna.
Enda sagði Gunna: „Kiljan er eini
maðurinn í lífi okkar. Hann er
eini maðurinn, sem stendur á bak
við það, að skilningur hefur
náðst."
Þær Edda og Gunna hyggja
ekki á frekari útgáfustarfsemi í
bráð, — enda Edda komin til
Ameriku („sennilega vegna þess,
HHDÍNN I LOK/D
\JLRKI SINU
Fyrsta blaðsfða kversins góða.
að það er svo gott að æra lýðinn í
Ameríku," sagði Gunna), en
Gunna er hér heima, — og býr til
kerti. „Við erum orðnar hund-
leiðar á tíðarandanum,“ var það,
sem Gunna hafði að segja um
stöðuna á heimamiðunum, „hann
er að sjúga merginn úr Is-
lendingum.“ — Slagsíðan óskar
þeim til hamingju með þennan
menningarviðburð, sem mun
væntanlegur í bókaverzlanir nú
upn úr „-rkfalli.
brifadálkur
„Oft er fjör í Eyjum,
þegar fiskast vel“ —
eitthvað í þessum dúr
hraut af vörumeins stór-
skáldsins forðum daga.
Okkur komu þessar ljóð-
línur í hug, þegar okkur
barst þessi mynd af
starfsstúlku í frystihúsi
Isfélags Vestmannaeyja
— en hún er engin önn-
ur en Shady Owens, sem
um árabil var ein vinsæl-
asta söngkonan í ís-
lenzka poppheiminum,
en hefur nú flutzt til
Eyja og starfað þar í
fiskvinnu í allan vetur.
Sjálfsagt tekur Shady
lagið yfir þerskflök-
unum af og til, þegar vel
liggur á henni, og þá
kannski þetta: „Þeir
sigla á fullri ferð með
þorskinn heim, bátarnir,
og fara á ball með stelp-
unum, ef stoppa þeir í
landi, strákarnir!"
□ Þetta vörpulega fólk á myndinni hér að ofan kom fram á þjóðlaga-
kvöldi sem haldið var uppi á Akranesi f síðustu viku, og hafa þær
fregnir borizt til Slagsfðunnar, að kvöid þetta hafi verið þrællfflegt og
tilþrifamikið. Vrrðist sem talsverð gróska sé I tónffnum börkum
Skagamanna, þvf þarna komu fram átta innfæddir flytjendur auk hins
askvaðandi aðkomumanns Arna eyjatrölls Johnsen, sem jafnframt
stjórnaði samkundunni. Hún var haldin f samkomusal Sjálfstæðishúss-
ins og var það þéttsetið af ungu fólki frá 15 ára aldri og upp úr, — alls
um 60 manns. A myndinni eru f.v. Andrés Helgason, Ingimar Arnason.
Ingibjörg Gestsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Guðrún Aradóttir, Árni
Johnsen og Marfanna Hallgrfmsson. Þeir Andrés, Ingimar og Bjarni
mynda tríó, Marfanna syngur sjálf með gftarundirleik og Guðrún og
Ingibjörg eru dúó. Einnig lék Aðalsteinn Aðalsteinsson á munnhörpu
og Guðmundur R. Ingólfsson stjórnaði hljómtækjunum. Þá var ríf-
legur f jöldasöngur kyrjaður.
breff
„SLAGSIÐAN’
MORGUNBLAÐIÐ
PÓSTHÓLF 200
REYKJAVÍK
Hvar getur maður fengið
stórar myndir (helzt litmynd-
ir) af poppstjörnum eins og
David Cassidy, Alice Cooper,
Gary Glitter o.fl. og hvar getur
maður fengið myndir af hljóm-
sveitum eins og Slade, Wings,
Dawn, Focus o.fl.?
Tóta spyr:
Hvar getur maður fengið
myndir af islenzkum popp-
stjörnum?
Svör: Við vitum ekki um
neinn aðila, sem selur myndir
af islenzkum poppstjörnum —
en ef einhver slíkur er til, má
hann gjarnan hafa samband
við SLAGSÍÐUNA, svo að hún
geti veitt betra svar við þessari
spurningu. En hins vegar er
auðveldara að nálgast myndir,
einnig litmyndir, af erlendum
poppstjörnum. Bæði er það, að
verzlanir þær, sem hafa vegg-
myndir á boðstólum (plaköt),
hafa oft slíkar myndir af popp-
stjörnum í myndarlegri stærð,
og svo er vænlegt að kaupa
þýzk (m.a. Bravo, Pop), dönsk
(Vi unge) og ensk (Sounds,
Disc, Jackie o.fl.) poppblöð
þvi að þessum blöðum fylgja
oftast stórar litmyndir af popp-
stjörnum og hljómsveitum og
margar smærri litmyndir
einnig. Þessi blöð eru seld i
ýmsum bókaverzlunum i
Reykjavík og viðar.