Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
Útvarp Reykjavík §
SUNNUDAGUR
3. marz
LISTDANS (!)
STJÖRNUNNAR
Belgíska kvikmyndaleikkon-
an Cathrine Spaak reimaði á sig
skauta um daginn og kom fram
á mikilli fjölleikahátíð á
skautasvelli í Rómaborg til
ágóða fyrir fötluð börn. Hún
byrjaði nógu vel — enda glæsi-
leg á að líta — en svo fór illa:
Af einhverjum ástæðum fór
svellið að renna undan skaut-
unum hennar og hún missti
jafnvægið og datt beint á rass-
inn!
Friðun húsa
á Islandi
Hádegiserindi útvarpsins í
dag flytur Hörður Ágústsson
listmálari og fjallar það um
friðun húsa á íslandi. Þetta er
fyrsta erindið af þremur a.m.k.
í erindaflokki um þetta efni, en
Hörður á sæti í húsfriðunar-
nefnd ríkisins. Formaður
nefndarinnar er Þór Magnús-
son þjóðminjavörður og auk
þeirra Harðar eiga sæti i nefnd
inni Hannes Davíðsson arkitekt
og Þorsteinn Gunnarsson arki-
tekt. Fimmti maðúrinn í nefnd-
inni sagði sig úr henni ekki
allls fyrir löngu, og er sá Páll
Líndal borgarlögmaður.
1 fyrsta erindi sínu ætlar
Hörður að fjalla um sögu frið-
unar hér á landi frá upphafi og
til þessa. Eins og kunnugt er, er
Húsið á Eyrarbakka síðasta
mannvirkið, sem friðað hefur
verið, en það gerðist núna um
daginn.
Við spurðum Hörð, hvert
væri elzta og yngsta mannvirki
HÆTTULEGAR
BÆKUR
Helztu trúarleiðtogar
Múhammeðstrúarmanna í fjöl-
mörgum löndum héldu fund í
Lahore í Pakistan á dögunum
— og auðvitað þurftu þeir að
lesa Kóraninn af því tilefni.
Burðarmaður kom með bóka-
bunka á einu bretti, sem hann
bar á höfðinu, og ætlaði inn í
fundarsalinn — en lögreglan
stöðvaði hann til að ganga úr
skugga um, að bækurnar væru
ekki hættulegar. Var leitað í
bunkanum og blöðum flett, því
að ýmis skaðræðisvopn er
unnt að fela í bókum, m.a.
sams konar ^prengjur og eru
stundum sendar í bréfum —
bréfsprengjur. En ekkert
hættulegt fannst og burðar-
maðurinn fékk að fara inn með
bækurnar.Enlögreglan áttaði
á Islandi, sem friðuð hefðu ver-
ið, og sagði hann, að klukkna-
portið á Möðruvöltum, sem er
frá 1781, væri það elzta, sem
byggt væri í íslenzkum stíl, en
þó væri bærinn að Keldum á
Rangárvöllum, sem hefur verið
endurbyggður að einhverju
leyti, öilu eldri eða frá 1634.
Viðeyjarstofa væri svo frá
1751—’52, og enda þótt íslenzk-
ir aðilar hefðu látið reisa hana,
hefði danskur arkitekt gert
teikninguna.
Landsbókasafnið taldi Hörð-
ur vera yngsta friðaða hús á
Islandi, en það var byggt á ár-
unum 1907—’08.
1 síðari erindum sínum
kvaðst Hörður mundu rekja
sögu íslenzkrar húsagerðar og
m.a. segja frá þeim mannvirkj-
um, sem gerð hefðu verið á
hinum ýmsu tímum, og hvað af
þeim stæði ennþá.
„Ég og fjöbniðlarnir”
„Við og fjölmiðlamir'
Kl. 17.50 er dagskrárliður, sem
sig auðvitað ekki á því, að Kór-
aninn er hættuleg lesning —
rétt eins og Biblian — á sinn
hátt og sést það bezt á þeim
stríðum, sem háð hafa verið af
trúarlegum ástæðum, þar sem
fleiri menn hafa verið drepnir
en allar bréfasprengju sögunn-
ar til samans hafa aflífað.
nefnist „Frá Norðurlandaráði".
Þá flytur Magnús Kjartansson
íslenzka útgáfu sina á ræðu
þeirri, sem hann flutti á þingi
Norðurlandaráðs, sællar min'n-
ingar.
Flutningur þessarar frægu
ræðu í útvarp á sér hina kostu-
legustu sögu. Magnús Kjartans
son óskaði sjálfur eftir því að fá
að flytja hana í útvarp á þeim
forsendum, að hún hefði vakið
mikla athygli á Islandi, en of
fáir hefðu haft tækifæri til að
kynna sér hana í heild, eða ein-
ungis lesendur Þjóðviljans,
sem birti ræðuna í heild
skömmu eftir Stokkhólmsflipp
Magnúsar. Ráðherrann er ekki
öldungis ánægður með það, að
ræða hans nái ekki til allra Is-
lendinga, svo að þess vegna hef-
ur hann einfaldlega samband
við Útvarpsráð, tjáir því ósk
sína og þá er öðrurp dagskrár-
lið, sem ráðgert hafði verið að
fluttur yrði á þessum tíma,
kippt út I snarheitum.
Ölafi Jóhannessyni og Gylfa
Þ. Gíslasyni var gefinn kostur á
því að tjá sig um ræðuna að
Ioknum flutningi Magnúsar í
dag, en báðir afþökkuðu heið-
urinn.
8.00 Moigunandakt
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup
flytur ritningarorðog bæn.
8.10. Fréttirog veðurfregnir.
8.15 Léttmorgunlög
Bandariskirlistamenn flytja
9.00 Fréttir. Otdráttur úr forustugrinum
dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10. Veður-
fregnir)
Flytjendur Fílharmóníusveit hollenzka
útvarpsins; stjórnandi: Carlos Paita og
FTlharmóniusveitin í Katovice; stjórn-
andi: Karol Stryja. Einleikari: Dagmar
Baloghovaá pianóleikarL
& Háskólaforleikur eftir Johannes
Brahms.
b. Sinfóníaí e-moll eftir Jean Sbelius.
c PTanókonsert nr. 2 i f-moll op. 21
eftir FrédéricChopin
11.00 Messa I Akureyrarkirkju I upphafi
æskulýðsviku þjóðki rkjunnar
Prestur: Séra Birgir Snœbjömsson.
Organ leikari: Jakob Tryggvason.
Félagar í æskulýðsfélagi Akureyrar-
kirkju frumflytja söngbálkinn
„Eþiópiu" eftir séra Hauk Ágústsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.15 Friðun húsa átslandi
Hörður Ágústsson listmálari flytur
fyrsta hádegiserindisitt.
14.05 Gestkoma úr stjálbýlinu
Jónas Jónasson fagnargestum frá Bol-
ungarvík.
15.00 Miðdeg istónleikar:
„Ofviðrið“, tónlist eftir Henry Purcell
við leikrit Shakespeares.
Stjómandi: John Eliot Gardener,
(hljóðritun frá brezka útvarpinu).
16.00 Norska lúðrasveitin Holmestrand
Ungdomskorps leikir
i útvarpssal; Alf Eine stj.
16.35 Veðurfregnir. Fréttir.
16.40 Frá heimsmeistaramótinu f hand-
knattleik: tsland — Danmörk
Jón Ásgeirsson lýsir síðari hálfleik frá
Erfurt.
17.35 Stundarkom með Bimi ólafssyni
f iðluleikara
17.50 Endurtekið efni: Tveir brezkir ts-
landsvinir
Anna Snorradóttir flytur erindi um
Wi lliam Morris og Maik Watson (Áður
útv.26. júlí 1972).
18.45 Veðurfregnir.Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tllkynningar.
19.25 Leikiiúsið og við
Helga Hjörvar og Hilde Helgason sjá
um þáttinn.
19.50 Sjaldan lætur sá betur, er eftir
hermir
Umsjón: Karl Einarsson
20.00 Tónlist eftir Þórarin Jónsson
a. Dr. Victor Urbancic leikur á orgel
tilbrigði við „Upp á fjallið Jesús
vendi“.
b. Jón Sigurbjörnsson syngur tvö lög;
Ólafur Vignir Albertsson leikur á
píanó.
c Humorerska fyrirfiðlu og pianó.
Bjöm ólafsson og Ami Kristjánsson
leika
d. Karlakór Reykjavíkur syngur lagið
„Huldur"; Sigurður Þórðarson stj.
20.20 Fulltrúar andans frá Kfna — Lao-
Tse og daoisminn
Dagur Þorleifsson tók saman efnið,
sem flutt er undir stjcrn Páls Heiðars
Jónssonar. Með þeim lesa: Vilborg Dag-
bjartsdóttir og Hjörtur Pálsson.
21.15 Tónl istarsaga
Atli Heimir Sveiasson
21.45 Um átrúnað: Ur fyrirbrigðafræði
trúarbragða
Jóhann Hannesson prófessor flytur
A skjánum
Sunnudagur
3. mars 1974
16.30 Ur lifi drykkjukonu
Breskt sjónvarpsleikrit eftir Jeremy
Sandford um drykkjusjúka förukonu
og eirðarlausa leit hennar að dvalar-
stað viðsitt hæfi.
Aðalhlutverk Patricia Hayes.
ÞýðandiBriet Héðinsdóttir.
Áður á dagskrá 28. janúarsiðasti.
18.00 Stundinokkar
1 þættinum að þessu sinni eru myndir
um Róbert bangsa, Jóa og Rikka ferða-
lang. Einnig syngur Drengjakór
heilags Jakobs frá Stokkhólmi nokkur
lög og haldið verður áfram spurninga-
keppninni.
Umsjónarmenn Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann Ragnar
Stefánsson.
18.50 Gítarskólinn
Gftarkennsla fyrir byrjendur.
4.þáttur endurtekinn.
Kennari Eyþór Þoriáksson.
19.20 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Heyrðu manni!
Spumingaþáttur.
Bessi Bjamason leitar svara hjá fólki á
förnum vegi í Hveragerði og á Stokks-
eyri.
20.55 Enginn deyr I annars stað
Ný, austurþýzk framhaldsmynd, byggð
á skáldsögu eftirllans Fallada.
1. þáttur.
Leikstjóri Hans Joachim Kasprizik.
Aðalhlutverk Erwin Geschonnek og
E1 sá Grube-De ister.
ÞýðandiÓskar Ingimarsson.
Sagan hefet í Berlin árið 1940, þegar
veldi Hitlers hefur náð hámarki. Tré-
smiðurirm OttoQuangel og kona hans
frétta, að sonur þeirra hafi fallið á
vígstöðvunum. Þá þykirþeim mælirinn
fullur. Þau ákveða að snúast gegn for-
ingjanum og stofna sina eigin and-
spymuhreyf ingu.
Enginn deyr í annars stað, eða Jeder
stirbt fúr sich allein, eins og sagan
heitir á frummálinu, varð síðasta bók
höfundarins, og skömmu eftir útkomu
hennar andaðist hann saddur lífdaga á
taugahæli í Austur-Þýskalandi.
22.10 Lffsraunir
Sænskur myndaflokkur um mannleg
vandamál.
Ástvinamissir
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög
HeíJar Ástvaldsson danskennari velur
lögin og kynnir.
23.25 Fréttirí stuttu máli. Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
4. marz
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kL 7.00,8.15 og 10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
landsm. bL), 9.00 og 10.00.
Morgunleikf imi kL 7.20.
Morgunbæn kL 7.55: Séra Gísli Bryn-
jólfsson flytur (av.dv.)
Morgunstund bamanna kL 8.45:
Þorleifur Hauksson heldur áfram að
lesa þýðingu Heimis Pálssonar á sög-
unni .JElsku Míó minn“ e. A. Lindgren.
Morgunleikfimi kL 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Léttlög ámilliliða
Búnaðarþáttur kL 10.25: Eðwald B.
Malmquist yfirmatsnaður flytur er-
indi: Yfirlit og horfurí kartöflurækt.
Passfusálmalög kL 10.40: Þuriður
Pálsdóttir, Magnea Waage, Erlingur
Vigfússon og Kristinn Hallsson syngja
Páll ísólfsson leikur á orgel. Sigurður
Þórðarson raddsetti lögia
Tónlistarsaga kL 11.00: Atli Heimir
Sveinsson kynnir (endurL)
Tónlist eftir Dvorák kl. 11.30.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna : Tónleikar.
14.30 Sfðdegissagan: „Föstuhald rabbf-
ans“ eftir Harry Kamebnan Kristin
Thoriacíus þýddi Séra Rögnvaldur
Fínnbogason byrjarlesturinn.
15.00 MiðdegLstónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veður-
fregnir.
15.25 Popphornið
17.10 „Vindum, vindum, vefjum band“
Anna Brynjúlfsdóttir sér um þátt fyrir
yngstu hlustendurna.
17.30 Framburðarkennsla f esperanto
18.00 Neytandinn og þjóðfélagð
Garðar Viborg flytur stutt erindi:
Neytandanum er ekkert óviðkomandi.
18.15 Tónleikar.Tilkynningar.
19.00 Fréttir.Tilkynningar.
19.25 Daglegt mál
Helgi J. Halldórsson cand. mag. flytur
þáttinn.
19.30 Um dag inn og veg inn
Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ tal-
ar.
19.50 Blöðinokkar
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
20.00 Mánudagslögin
20.25 Málrerkafalsarinn mikli
Halldór Stefánsson rithöfundur tók
saman. Hjörtur Pálsson les siðari hluta
frásögunnar.
20.55 Duo concertante fvrir fiðlu og
pfanó eftir Stravinskf
Rolf Schulte og David Levine, leika.
(hljóðritun frá útvarpinu i Vestur-
Berlin)
21.10 íslenzkt mál
Eridurt. þáttur Jóns Aðalsteins Jóns-
sonar frá laugardegL
21.30 Utvarpssagan: „Tristan og Lsól“
eftirJoseph Bediér
Ðnar Ól. Sveinsson prófessor islenzk-
aði. Kristín Anna Þórarinsdóttir leik-
kona lýkur lestri sögunnar (12).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passfusálma
Lesari: Valbjörg Kristmundsdóttir
(19)
22.25 Eyjapisti II
22.45 Hljómplötusafnið
i umsjá GunnarsGuðmundssonar.
23.40 Fréttir í stuttu málL Dagskrárlok.
í þessum þætti lýsa nokkrir einstakl-
ingar viðbrögðum sínum við fráfall
nánustu vandamanna, og segja frá,
hvemigþeir aðlöguðust nýjum aðstæð-
um og sættu sigvið orðinn hlut.
ÞýðandiDóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvisicn —Sænska sjcnvarpið)
22.40 Að kvöldi dags
Séra Guðjón Guðjónsson, æskulýðsfull
trúi, flytur hugvekju.
22.50 Dagskrárlok
Mánudagur
4. mars 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 240 f iskar fyri r kú
Kvikmynd eftirMagnús Jónsson, gerð
með tilstyrk Menntamálaráðs og Fiski-
málasjóðs.
1 myndinni er þvi lýst, hve n\jög lifsaf-
koma íslendinga er háð fiskveiðum og
vemdun fiskimiðanna kringum landið.
Kvikmyndun EmstKettler.
KyrrmyndirGunnar Hannesson.
TónlistSigurður Rúnar Jónsson.
Þulur Jón MúliÁmason.
21.00 Björgun sökkvandi borgar
Stutt kvikmynd um björgun mann-
virkja og lLstaverka í Feneyjum frá
skemmdum af völdum vaxandi vatns-
aga.
Þýðandiog þulur Gylfi Pálsson.
21.05 Emma Zunz
Frönsk kvikmynd eftir Alain Magrou,
byggðásögu eftir Jorge LouisBorges.
Aðal hlutverk Catherine Salviet.
ÞúðandiDóra Hafeteinsdóttir.
Aðalpersóna sögunnar er ung verk-
smiðjustúlka. Faðir hennar hefur stytt
sér aldur. Hún telur vinnuveitanda
sinn eiga sök á því og er staðráðin i að
koma fram hefndum með einhverju
móti.
21.55 Búnaðarspjall
Samræður i sjónvarpssal.
Eíður Guðnason ræðir við fjóra
Búnaðarþingsfulltrúa, Egil Bjamason,
ráðunaut á Sauðárkróki, Hjalta Gest»
son, ráðunaut á SelfossL Magnús Sig-
urðsson, bónda á Gilsbakka i Borgar-
firði, og Snæþór Sigurbjömsson, bónda
íGilsárteigií Suður-Múlasýslu.
22.35 Dagskrárlok
EIN Á UPPLEIÐ
Shane Murphy er 17 ára gömul áströlsk stúlka. Hún er að reyna
að skapa sér nafn í tízkusýningarstörfum og hefur gengið allvel,
ekki sízt þar sem hún hefur komið fram í nokkrum sjónvarpsþátt-
um um ungt fólk í Ástralíu. Þessi mynd var tekin af henni á
ströndinni skammt frá Sidney í Ástralíu í sumarsólinni fyrir
skömmu — en þeir andfætlingar okkar njóta nú sumars, á meðan
við þreyjum af fimbulveturinn.
félk í
fjölmiélum