Morgunblaðið - 03.03.1974, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
KROSSGOTUR
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason
Æskulýðsstofan „ÖRKIN”
Ritaó
I guðs mynd . . .
Biblfan segir okkur frá
þvf, hvemig kærleikur Guðs
er frumorsök allrar sköp-
unarinnar. Knúinn af kær-
leika sfnum skapaði hann
manninn f sinni mynd, til
samfélags við sig. Og það
greinir manninn frá allri
annarri sköpun, að hann get-
ur trúað áGuð.
Þegar okkur er sagt, að við
séum skapaðir.f Guðs mynd,
er auðvitað ekki verið að
lýsa útliti Guðs, heldur er
okkur sagt, að við séum
sköpuð sem sjálfstæðar per-
sónur með möguleika til
samfélags við Guð eftir
frjálsu vali okkar sjálfra.
Þessi frjálsi vilji okkar
ber f sér mikla ábyrgð. Ef
við getum valið þjónustuna
við Guð af frjálsum vilja,
hlýtur hinn möguleikinn
einnig að vera fyrir hendi,
að við getum hafnað Guði,
snúið baki við honum.
Gætum þess, að við mis-
notum ekki frelsi okkar í
afstöðunni tilGuðs.
Jónas Gfslason.
Það má segja, að föstudaginn
22. febrúar hafi Æskulýðsstof-
unni „örkinni" verið hleypt af
stokkunum, en þá var auglýst
fyrsta „opna húsið“, eins og það
er kallað. Okkur þótti forvitni-
legt að kynnast því hvað hér
væri á seyði og brugðum okkur
því á vettvang.
Örkin er staðsett f hjarta
Hafnarfjarðar, Vesturgötu 4,
annarri hæð. Húsnæði er mjög
skemmtilegt, allt undir súð, og
myndar hlýlegan ramma um
það starf, sem þarna er unnið.
Þegar við komum í staðinn
voru þegar komnir nokkrir
unglingar og var okkur öllum
fljótlega vísað inn í setustofuna
og þar var byrjað með því að
syngja nokkra létta kristilega
söngva. Þá voru al lir boðnir vel-
komnir og gerð svolítil grein
fyrir þessu starfi, sem þarna
var að hefjast. Að því loknu var
unglingunum svo boðið að not-
færa sér þá aðstöðu, sem er
fyrir hendi, en það eru ýmis
leiktæki, spil, töfl, bækur, plöt-
ur o.s.frv. Auk þess voru svo á
boðstólum veitingar, kaffi eða
kók og kökur.
Við tókum nokkra af aðstand-
endum „Arkarinnar“ tali, og
báðum þá að gera grein fyrir
því starfi sem hér var að hefj-
ast.
Það er sundurleitur hópur,
sem að„Örkinni“stendur, enda
tala menn jafnvel ekki allir
sama tungumálið. Upphaflega
voru þau sjö, sem fyrir tveimur
árum byrjuðu að koma saman
og mynduðu bænahóp. Þau
höfðu áhuga á að koma af stað
einhverju sliku starfi og tóku
að biðja fyrir því, að svo mætti
verða, og nú hafa þau fengið
svar. Það smáfjölgaði í hópnum
og nú munu þau vera u.þ.b. 25
af 6 þjóðernum, en hópurinn er
opinn öllum þeim, sem hafa
áhuga. Það, sem sameinar þau
(31, þrátt fyrir mismunandi
þjóðerni og tungumál, er Jesús
Kristur, sém frelsar: Þau trúa
því, að hann eigi erindi til allra
manna og vilja með þessu starfi
leggja fram sinn skerf til að svo
megi verða. En mörg þeirra
hafa kynnzt svipuðu starfi er-
Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar
hefur nefnt vikuna 3.—^10 marz,
Æskulýðs- og fórnarviku kirkjunnar.
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Kristniboðssamband íslands ásamt
æskulýðsstarfinu hafa sameinazt um
að beina sjónum landsmanna að
neyðinni I Eþíópíu. Lögð er áherzla
á, að við getum rétt hungruðu fólki
hjálparhönd með fjárframlögum
okkar og bent er á hvernig íslenzkir
kristniboðar hafa unnið mikið starf I
Eþíópiu síðustu 20 ár
Samkomur verða haldnar viðs
vegar um landið og má segja, að
vikan hefjist með útvarpsguðsþjón-
ustu i Akureyrarkirkju þann þriðja
Þar flytja félagar i Æskulýðsfélagi
Akureyrar söngbálkinn „Eþiópla"
eftir sr. Hauk Ágústsson. Þá verður
og kvöldvaka í kirkjunni og sam-
komur verða á Egilsstöðum. ísafirði,
Selfossi og e.t.v. á fleiri stöðum, er
vitað um samkomu í Stapa á vegum
sóknarprestsins í Keflavík.
Að sögn Guðmundar Einarssonar
æskulýðsfulltrúa er þess vænzt, að
fólk sjái sér fært að sækja þær
samkomur og messur, sem boðið er
upp á, ög hvetur hann alla til að
koma og gefa gaum að því, sem flutt
verður. Að lokum sagði Guðmund-
ur, að stórsamkoma yrði I Dómkirkj-
unni að kvöldi 10. marz.
Þar verður fluttur söngbálkurinn
eftir sr. Hauk Ágústsson og ungt
fólk flytur kristilega tónlist, Vonaðist
Guðmundur eftir að sjá sem flesta á
þeirri samkomu, helzt fólk á öllum
aldri.
lendis, bæði á Norðurlönd-
unum og i Englandi.
Húsnæðið bauðst þeim fyrir
jólin og þau ákváðu að taka það
á leigu í sex mánuði til að byrja
með. Það var þá í mjög slæmu
ástandi og þau hafa síðan sjálf
unnið að lagfæringum á því, en
þeim er nú að mestu lokið. Þeg-
ar hafa verið haldnar nokkrar
samkomur og sýnd kvikmynd,
með umræðum á eftir, en þetta
var fyrsta „opna húsið". Það er
ætlunin að hafa slík opin hús á
hverju föstudagskvöldi fyrst
um sinn. Annars er starfið ekki
enn mótað í smáatriðum,
reynslan verður látin skera úr
um það hvernig starfað verður.
Núna starfa þau þannig, að
hópurinn skiptir sér hverju
sinni, þannig að nokkrir fara út
á göturnar og bjóða ungling-
unum f opna húsið, meðan aðrir
eru svo um borð í „Örkinni" og
taka á móti þeim, sem koma.
Ekki er um að ræða neina
skipulagða dagskrá, en ungling-
arnir geta notfært sér þá að-
stöðu, sem leiktækin og hús-
næðið bjóða til skemmtunar,
eða sungið og spjallað saman.
Þau leggja áherzlu á, að hér
er um kristiiegt starf að ræða.
Markmiðið er, að unglingarnir
kynnist Jesú sem frelsara. Þau
vilja nátilþeirra unglinga, sem
ráfa um göturnar og hanga í
sjoppunum á kvöldin og benda
þeim á, að Jesús er svarið við
spumingum þeirra. Það er
mikil þörf fyrir staði eins og
„örkina“,þar sem unglingarnir
geta komið saman. Þeir hafa í
dag ekkert nema götuna, sjopp-
urnar og aðra óheppilega staði.
Sem dæmi um þetta vandamál
benda þau á það, að sennilega
er „örkin“ eini staðurinn í
Hafnarfirði, þar sem aðstaða er
fyrir unglinga að koma og leika
borðtennis. Um leið og þau
boða unglingunum Krist, telja
þau sig því einnig vera að bæta
félagslega aðstöðu ungling-
anna, þó að i litlum mæli sé, og
fá þau til að hugsa um annað en
áfengið.
Þau tóku það skýrt fram, að
þau vom ekki með þessu starfi
að stofna neinn sérsöfnuð,
heldur þvert á móti. Starfið er
öllum opið og þau líta á það sem
stuðning við starf kirkjunnar.
Að lokum töluðu þau um það,
að þau þyrftu á fleira ungu,
kristnu fólki að halda. Til þess
að koma, bjóða kunningjum
sínum með og taka á móti og
tala við þá, sem koma. En það
er mikil þörf fyrir að ná per-
sónulegu sambandi við þá ungl-
inga, sem koma.
Það verður fróðlegt að fylgj-
ast með þessu nýstárlega fram-
taki þeirra í „Örkinni". Von-
andi tekst þeim að skapa hafn-
firzkum unglingum það at-
hvarf, sem þeir þarfnast. At-
hvarf þar sem þeim er bent á
veginn, veginn eina, sem Jesús
Kristur hefur gert okkur mönn-
unum kleift að ganga. Veginn,
sem endar með eilífu lífi hjá
Guði.
K.S.F. í Skálholti
GUÐ ÞARFNAST
HANDA ÞINNA
Eins og margir vj.ta, er rekinn
f Skálholti lýðháskóli á vegum
kirkjunnar. Þar eru í vetur 27
nemendur á aldrinum 18—25
ára og leggja þeir stund á ýmis
fræði til framhalds- eða endur-
menntunar. Á miðvikudögum
koma oft gestir til að flytja
fyrirlestra eða fróðleik 1 öðru
formi og stundum eru líka
gestakomur á Iaugardögum.
Nýlega kynnti Kristilegt
stúdentafélag starfsemi sína
fyrir nemendum. Við notuðum
tækifærið og spjölluðum ofur-
Iítið við sr. Heimi Steinsson
rektor og spurðum m.a. til
hvers slíkur skóli starfaði:
„Hann er eins og aðrir lýðhá-
skólar á Norðurlöndum ætlaður
til þess að efla frjálsa, almenna
fullorðinsfræðslu, og hann er
miðaður við fólk, sem er komið
undir tvítugt og vill annaðhvort
halda áfram námi eða taka upp
rofinn námsþráð að nýju, með
frekara nám eða ýmis störf
fyrir augum. Þetta er almenn
fullorðinsfræðsla að því leyti,
að hann á helzt að vera opinn
öllum, sem lokið hafa skyldu-
námi og náð hafa þessum aldri,
og almenn að því leyti, að hann
reynir að stikla á eins mörgum
greinum og hægt er.Og frjáls á
þessi fræðsla að vera, að því
leyti, að valfrelsi er mikið á
skólanum, raunar yfirgnæfandi
og engin próf eru tekin.“
„Og hvernig er námi háttað?“
„Nokkrar greinar eru skyldu-
greinar, islenzka, íslandssaga
og menningarsaga, samtímavið-
burðir, sem við köllum, og
frjálsir fyrirlestrar, en annað
er frjálst.“
„Eru miklar umræður meðal
nemenda í sambandi við þessa
fyrirlestra?"
„Það hefur verið furðu vax-
andi þátttaka í vetur finnst mér
og þá sérstaklega f mörgum
miðvikudagsfyrirlestrum, þar
sem tekin eru fyrir ýmis efni og
skemmtileg og vaxandi þátt-
taka í hinum ýmsu greinum,
sem varða lífsskoðunar-
myndun. Fulltrúar stjórnmála-
flokkanna hafa komið hér hver
á fætur öðrum og hafa sannar-
lega ekki þurft að kvarta undan
því að vera ekki spurðir spjör-
unum úr.“
Formaður K.S.F. segir frá starfi
félagsins.
„Ræðið þið mikið trúmál?“
„Hvað nemendur ræða sín á
milli þegar við erum fjarri, get
ég ekki svarað, en við höfum
hér kennslu í heimspekisögu,
almennri trúarbragðasögu og
kristnisögu þar með, siðfræði
og biblíulestrum og i þessum
tímum höfum við náttúrlega að-
stöðu til að ræða trúmál frá
ýmsum hliðum.“
„Er lögð sérstök áherzla á
kristindóminn vegna þess að
þetta er skóli rekinn af kirkj-
unni?“
„Ef borið er saman við aðra
skóla þá geri ég ráð fyrir, að
hægt sé að segja, að lögð sé
talsvert meiri áherzla á kristin-
dóminn hér heldur en annars
staðar. Auk þess, sem ég áður
sagði um námsgreinar, eru hér
vikulegar guðsþjónustur, sem
allir nemendur sækja. Fleira
mætti telja. Yfirleitt held ég, að
sé óhætt að segja, að þessi skóli
fari á engan hátt 1 felur með
það, hver að baki honum stend-
ur.“
Nokkrir félagsmenn K.S.F.
kynntu starfsemi félagsins,
sagt var frá hvernig það starfar
meðal háskólastúdenta að
markmiði sinu, en þau eru tvö:
Að boða trú á Jesúm Krist og
veita mönnum samfélag í
trúnni.
Nemendur hlustuðu með at-
hygli á það, sem flutt var, og
sýndu áhuga á bókum, sem fé-
lagið hefur á boðstólum Eru
það mest allt enskar bækur um
kristileg efni, sem enska kristi-
lega stúdentahreyfingin gefur
út. Þá hefur K.S.F. gefið út
nokkra bæklinga og einn ber
heitið Kristindómur — nútíma
þekking. Nemendur fengu
þann bækling og sagði rektor,
að hann hefði hug á að nota
hann í umræðuhópum.
1 kvöldmatnum urðu nokkrar
umræður um kristindóminn og
virðist svo sem áhugi sé fyrir
honum meðal margra nemenda.
Einn piltanna sagði m.a., að
hann vildi helzt ekki taka
ákveðna afstöðu til neinnar
trúar fyrr en hann væri búinn
að kynnast fleiri trúarbrögðum
en kristninni. Hann sagðist
einu sinni hafa átt trú, sem
drengur þegar hann var eitt
sinn á báti með félaga sínum á
Þingvallavatni, og óveður skall
á. „Þá báðumst við fyrir, en
síðan hef ég ekki gert það.“
Þá sagði ein stúlknanna, að
sér þætti leiðinlegt að þurft
hefði að fella niður tíma í
Biblíuskýringum vegna ónógr-
ar þátttöku.
Það var að heyra á þessum
umræðum öllum, að ekki var
nemendum fullkomlega ljóst
enn hver eru grundvallaratriði
kristinnar trúar.
En þess er að vænta, að eftir
námið þennan vetur verði nem-
endum ljóst hvaða þýðingu
kristin trú hefur enn í dag.