Morgunblaðið - 03.03.1974, Qupperneq 48
ÞEIR RUKH
UIÐSKIPTin SEm
RUGLVSR I
J¥lor0wnMíií»ittu
úvmmMafoifo
SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
IRargnnMðbRi
nUGLVSincnR
^-»22480
Færð spilltist talsvert
á vestanverðu landinu
VEGNA vonzkuveðurs á vestan-
verðu landinu á föstudag spilltist
færð talsvert á þessum slóðum. Á
Vestfjörðum eru fjallvegir ófærir
og vestast á Snæfellsnesi, þ.e. á
Útnesvegi og Fróðárheiði, var
ófært, en fært að norðanverðu til
Olafsvfkur og Hellissands og að
sunnanverðu að Fróðárheiði.
Kerlingarskarð var ófært, en Hey-
dalir opnir.
Brattabrekka var lokuð, en fært
tilBúðardals um Skógaströnd, en
lokað þar fyrir norðan. Holta-
vörðuheiði átti að ryðja á föstu-
dag en var ekki unnt vegna veð-
urs, fyrr en um miðnætti, að hægt
var að fylgja bílalest yfir. í gær
átti að reyna að halda leiðinni
opinni, svo lengi sem ekki færi að
fenna. A Norðurlandi var yfirleitt
greiðfært, allt til Raufarhafnar.Á
Austfjörðum voru fjallvegir yfir-
leitt ófærir. en fært um suður-
firðina allt til Hornafjarðar og
leiðin sunnan jökla opin. Færð
var ágæt áSuðurlandi, samkvæmt
upplýsingum vegaeftirlits Vega-
gerðarinnar.
„Vonum, að virkilega
verði reynt að semja”
— segir Kristján Ragnarsson formaður LIÚ
Landhelgisgæzlan hefur nú tekið tvo hvalbáta f þjónustu sfna. Þeir lágu báðir f Reykjavfkurhöfn í
gærmorgun, grámálaðir með íslenzka fánann í skut. Til vinstri er Týr en hinum hefur enn ekki
veriðgefið nafn. (Ljósm. Ól. K.IVf.)
ER LOÐNAN BÚIN?
Fiskifræðingar
vonast þó eftir
að meiri loðna
eigi eftir að
ganga upp að
landinu
LlTIL loðnuveiði hefur verið að
undanförnu og frá miðnætti á
föstudag til hádegis f gær til-
kynntu aðeins sjö skip um afla.
Sex skipin fengu afla við Ingólfs-
höfða en eitt hér í Faxaflóa. Ein
ástæðan fyrir minnkandi loðnu
veiði er slæmt veður upp á sfð-
kastið en jafnframt eru teknar að
vakna spurningar hvort loðnan sé
búin. Það kemur þó væntanlega
betur í Ijós, þegar veðrið er geng-
ið niður, þvf að einnig getur ver-
ið, að hún hafi fært sig til. Loðn-
an, sem nú veiðist, er yfirleitt
mjög léleg til frystingar. Á mið-
nætti á föstudag var heildarafl-
inn orðinn 354,893 tonn en var
alla vertíðina í fyrra um 440 þús-
und tonn. Hæstu bátarnir eftir
veiðina í fyrrinótt voru Gfsli Arni
með 400 tonn, Ásberg með 370
tonn, Súlan með 280 og Örn með
140.
Morgunblaðið náði í gær tali af
Hjálmari Vilhjálmssyni fiskifræð-
ingi um borð í Árna Friðrikssyni,
sem nú er að leita fyrir
Austurlandi. Hjálmar sagði, að öll
sú loðna, sem komin væri upp
að landinu, virtist vera
búin að hrygna. Hann
kvaðst þó vona, að meiri loðna
gengi upp að landinu áður en
langt um liði. Þetta væri þó hrein
ágiskun en Hjálmar kvaðst
byggja þessa von sína á rannsókn-
arferð Árna Friðrikssonar í janú-
armánuði. Þá fundu leiðangurs-
menn nokkuð fyrir norðan megin
gönguna sem nú er gengin upp að
landinu, blöndu af hrygningar-
loðnu og smáloðnu og taldi Hjám-
ar lfkur á, að hrygningarloðnan
úr þessari blöndu ætti eftir að
ganga upp að landinu. Hann taldi
ekki fráleitt að ætla, að um mán-
uður væri milli megin göngunnar
og þessarar blönduloðnu, og taldi,
að hér væri allmikið magn á ferð-
inni, þó að það væri e.t.v. ekki
eins mikið og það, sem komið
væri.
Þess má geta, að um miðja síð-
ustu viku fannst loðna í Lóns-
bugt, sem átti eftir að hrygna, og
taldi Hjálmar, að þar hefði getað
verið á ferð fyrri parturinn af
fyrrgreindri hrygningarloðnu.
Eins kvað Hjálmar trollbáta hafa
SÁTTASEMJARI boðaði til
samningafundar með sjómönnum
og útgerðarmönnum eftir hádegi
í gær. Mbl. sneri sér til Jóns
Sigurðssonar, forseta Sjómanna-
sambandsins, og Kristjáns
Ragnarssonar, formanns Lands-
sambands fsl. útvegsmanna, og
spurði þá álits á stöðunni í
samningamálunum.
Formannafund-
ur Skógræktar-
félags Islands
FORMANNAFUNDUR Skóg-
ræktarfélags Islands fer fram um
helgina í fundarsal Hótel Holts.
Fundinn sækja formenn skóg-
ræktarfélaganna víðs vegar að af
landinu ásamt starfsmönnum
Skógræktar ríkisins. Aðalmálefni
fundarins er, hvernig skuli minn-
ast 75 ára afmælis skógræktar á
íslandi, sem er á þessu ári. Nánar
verður sagt frá fundinum síðar.
orðið vara við loðnu suður af
Hvalbak og sagði, að Árni Frið-
riksson myndi nú halda á þær
slóðir til að kanna hvort þar væri
komin þessi síðari hrygningar-
loðna.
NOKKRIR Vestmannaeyingar
héldu í morgun til Noregs tilþess
að kynna sér ákveðna tegund til-
búinna húsa, sem þeir hyggjast
kaupa til Eyja fyrir vorið. Vegna
hinnar miklu óvissu, sem rikir í
öllum uppbyggingarmálum Vest-
mannaeyja, hafa þessir menn séð
sig tilneydda til þess að gera ein-
hverjar róttækar ráðstafanir. All-
ir þessir menn misstu hús sin í
eldgosinu, en ætluðu aðganga inn
í áform um byggingaráætlanir,
sem mikið var slegið upp og talað
um á sínum tima, en virðast síðan
hafa dagað uppi í úrræðaleysi yf-
irvalda. Sérstaklega horfir þetta
mál illa fyrir þúsundir Vest-
mannaeyinga, sem verða húsnæð-
islausir í vor og haust og þá, sem
ekki hafa komizt heim til Eyja
Kristján Ragnarsson sagði, að
samningsaðilarnir vildu ekki láta
mikið uppi um stöðuna núna, „en
við vonumst til þess, að það verði
virkilega reynt að ná samningum
nú um helgina, og við vonumst til
þess, að það takist.“ Jón
Sigurðsson kvað stöðuna þá sömu
f samningamálunum og fyrir
verkfall, en samningaviðræðurn-
ar höfðu legið niðri í um 10 daga,
þar til sl. fimmtudag, en þá var
stuttur fundur. „Það er unnið að
ýmsum sérmálum," sagði Jón, „og
við höfum notað tímann á milli
funda til að vinna að þeim.“
Aðildarfélög Sjómannasambands-
ins hafa veitt stjórnum sínum
heimild til vinnustöðvana, „en ég
vona bara, að ekki þurfi að grípa
til þeirra aðgerða," sagði Jón,
„skæruhernaður er alltaf slæm-
ur.“
--------------
Samkvæmt áætl-
un segir við-
skiptaráðherra
MORGUNBLAÐH) sneri sér I gær
til Lúðvfks Jósefssonar viðskipta-
ráðherra og spurði hann hverra
viðbragða væri að vænta af hálfu
verðlagsyfirvalda vegna ákvörð-
unar samtaka kaupmanna um að
fresta að taka afstöðu til nýgerðra
kjarasamninga fyrr en fengizt
hafa fram breytingar á verðlags-
máium verzlunarinnar.
„Það verður unnið að þessum
málum eins og til stóð,“ sagði
ráðherra, „og verður allt sam-
kvæmt áætlun. Meira hef ég ekki
að segja um málið.“
aftur eftir gos vegna húsnæðis-
leysis.
Eyjamennirnir, sem héldu utan
f morgun, munu koma aftur um
miðja viku.
Skemmdarverk
SKEMMDARVERK voru framin
á nokkrum bifreiðum Bflaleigu
Loftleiða við Flugvallarveg f
fyrrinótt. Voru rúður brotnar f
bifreiðunum og einnig var flösku
grýtt gegnum stóra rúðu f af-
greiðsluskála bflaleigunnar.
Þá var f fyrrinótt brotizt inn í
kjörbúð og stolið tóbaksvörum
o.fl. og f mjólkurbúð og stolið
skiptimynt.
Prófkjörið: — 8 kjör-
staðir opna kl. 14
1 DAGheldur prófkjör um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins f
Reykjavfk áfram. Kosið verður frá kl. 14—19 f dag og eru 8 kjörstaðir
opnir í borginni. Á bls. 2 í dag er yfirlit um kjörstaði og kjörhverfi.
A morgun, mánudag, verður einn kjörstaður opinn í Tjarnarbúð frá
kl. 16—20. Frambjóðendur i prófkjörinu eru 53. Kosningin fer þannig
fram, að kjósandi merkir með krossi fyrir framan nöfn þeirra, er hann
vill kjósa. Ekki má kjósa færri en 8 frambjóðendur og ekki fleiri en
12. Allir þeir, sem hyggjast styðja Sjálfstæðisflokkinn f borgar-
stjórnarkosningunum f vor, hafa rétt til þátttöku 1 prófkjörinu.
Eyjamenn skreppa
út að skoða hús