Morgunblaðið - 06.03.1974, Page 2

Morgunblaðið - 06.03.1974, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974 Sumir ætla á all- ar sýningarnar Fyrsta sýning Helga Tómassonar og dans- flokksins frá New York City Ballet í kvöld HELGI Tómasson (lcngst til vinstri) og aðrir dansarar New York City Bailet-dansflokksins á æfingu í Þjóðleikhúsinu í gær — Ljósm. Mbl.ÓI. K.Mag. Sjúkraflutningar með bifreiðum langar leiðir SLYSAVARNAFÉLAGI Islands bárust í f.vrrakvöld tvær hjálpar- beiðnir um flutninga á sjúkl- ingum, önnur úr Öræfum, en hin af Snæfellsnesi, en vegna veðurs var ekki unnt að senda flugvélar eða þyrlur til aðstoðar og varð því að flytja sjúklingana langar leiðir í bifreiðum. 1 öðru tilvik- inu var um að ræða mann, sem hafði slasazt alvarlega í grjót- námi Vegagerðarinnar í Hafra- felli, skammt vestan viðSvfnafell í Öræfum, og var hann fluttur I sjúkrabifreið tiI Reykjavfkur, um 350 km leið. I hinu tilvikinu var um að ræða mann, sem hafði hlot- ið heilablóðfal 1, og var hann flutt- ur i sjúkrabifreið frá utanverðu SnæfelIsnesi til Akraness. Maðurinn, sem slasaðist í Öræf- unum, mun hafa klemmzt á milli tveggja þungra vinnuvéla. Vegna veðurs og ástands flugvallarins á Fagurhólsmýri var ekki hægt að senda flugvél eftir honum og var því fengin sjúkrabifreið frá Höfn í Hornafirði til að flytja hann til Reykjavfkur. Héraðslæknirinn á Kirkjubæjarklaustri var kominn á slysstaðinn nokkru áður en bif- Stærstu vinningar SÍBS út á land í GÆR, þriðjudag, var dregið í þriðja flokki Vöruhappdrættis SÍBS og komu þrír stærstu vinn- ingarnir allir upp á miða, sem seldireru i umboðum úti álandi. 500 þús. kr. vinningur kom á miða nr. 58862, sem seldur er í umboðinu á Hvammstanga. 200 þús. kr. vinningur kom á miða nr. 4457, sem seldur er í umboðinu á Seyðisfirði. 100 þús. kr. vinningur kom upp á miða nr. 13632, sem seldur er í umboðinu á Hólmavík. (Birt án ábyrgðar). reiðin kom og hlúði hann að manninum og gaf honum blóð. Var síðan ekið til Reykjavíkur, með stuttri viðdvöl á Klaustri, og tók ferðin rúma tólf tíma. Var maðurinn lagður i gjörgæzludeild Borgarspítalans, en samkvæmt upplýsingum læknis reyndust meiðsli hans ekki eins alvarleg og í upphafi hafði verið talið. Var líðan mannsins því eftir atvikum góð og hann var ekki talinn í lífshættu. Framhald a bls. 18 HELGI Tómasson kom til landsins í gær, ásamt níu öðrum dönsurum frá New York City Ballet. Hópurinn heldur sex sýningar í Þjóðleikhúsinu á næst- unni, og er fyrsta sýningin í kvöld. Nú þegar er uppselt á flestar þeirra. Helgi er talinn einn af þremur beztu ballettdönsurum i heimi, og hefur hann starfað hjá New York City Ballet s.l. þrjú ár. Þegar við litum inn í Þjóðleik- húsið í gær var dansfólkið önnum kafið við æfingar, en við náðum tali af Helga, og spurðum hann um starf hans í New York. Helgi sagðist vera ákaflega ánægður þar, starfsaðataða væri eins og bezt yrði á kosið, enda mun New York City Bailet nú vera talinn bezti ballett í heimi. Við spurðum Helga hvert væri álit hans á ballett i Sovétríkj- unum, en lengi vel voru þarlendir taldir standa í fremstu röð. Helgi sagði, að klassíski ballettinn þar væri enn mjög góður, enda stæði hann á gömlum merg og hefði alla tið verið gert hátt undir höfði. Hins vegar væri það víst, að þróunin þar væri hægfara, en á allra síðustu árum hefði þetta breytzt nokkuð, m.a. vegna þess, að erlendir dansflokkar hafa komið þangað og sovézkt dansfólk hefur aftur farið og kynnt sér það sem er að gerast annars staðar. Þá spurðum við Helga í hvaða borgum listdansinn stæði með mestum blóma, og kvað hann það litið vafaatriði, að þar væri New York fremst í flokki, en London væri sennilega næst í röðinni. Eins og fyrr segir eru 10 manns í dansflokknum, og eru dans- ararnir allir hér í leyfi. Helgi sagði, að nokkuð hefði verið vandasámt að setja upp góða sýningu með svo fáum döns- urum, en valin hefðu verið verk- efni bæði úr klassískum og nú- tímab allett. Með Helga er einnig eiginkona hans og synir þeirra tveir, sjö og tveggja ára. Fjölskyldan dvelst hér hjá móður Helga, Dagmar Helgadóttur, og sjúpföður, Hauki Guðjónssyni. íslenzku dansfólki og áhuga- mönnum um ballett er mikill fengur að komu dansflokksins hingað, og er vitað til þess, að sumir ætli að fara á allar sýningarnar. Guöni Jónsson, fyrrv. prófessor, er látinn GUÐNI Jónsson, fyrrv. prófessor við Háskóla Islands, lézt í Reykja- vfk á mánudag, 72 ára að aldri. Guðni fæddist 22. júlí 1901 að Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, son- ur Jóns Guðmundssonar bónda og formanns og síðari konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur. Hann varð stúdent frá M.R. 1924 og mag.art. í islenzkum fræðum frá Háskóla Islands 1930. Hann var um tíma við nám í Kaupmanna- höfn 1928 og aftur 1937. Hann var kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga (siðar Vesturbæjar) frá 1928 til 1945 og skólastjóri við sama skóla 1945—1957. Prófessor í sögu Islands við Háskóla íslands var hann frá 1958 til 1967, að hann lét af störfum vegna veik- inda. Hann var forseti heimspeki- deildar H. í. 1959—1961. Hann tók mikinn þátt í félagsstörfum, var m.a. forseti Sögufélags um langt skeið. Hann varð doktor frá Háskóla íslands 1953. Hann var höfundur fjölmargra sagnfræði- rita og sá um útgáfu margra ís- lendingasagna. Fyrri kona hans, Jónína Páls- dóttir, lézt 1936. Síðari kona hans, Sigríður Einarsdóttir, lifir mann sinn. Hættir í blaða- fulltrúastarfi HAFSTEINN Hafsteinsson, sem verið hefur hlaðafulltrúi Land- helgísgæzlunnar undanfarið, er nú að hætta því starfi og tekur við starfi framkvæmdastjóra Sam- bands ísl. tryggingafélaga. Ekki hefur af hálfu Landhelgisgæzl- unnar verið tekin ákvörðun um ráðningu annars blaðafulltrúa. Geir Gíslason flugstjóri: Flogið þessa leið í 14 ár en aldrei lent í þvílíku — £G HEF flogið á þessari flugleið í fjórtán ár en aldrei lent í neinu í líkingu við þessi ósköp, sagði Geir Gfslason, flugstjóri hjá Flugfélagi is- lands, en hann stjórnaði Fokk- er Friendship vélinni sem Ienti í feikilegum misvindum yfir Akrafjalli á mánudaginn. Ann- ar hreyfill vélarinnar stöðvað- ist meðan hún þeyttist þarna upp og niður, en Geir og Jóhannesi Fossdal aðstoðar- flugmanni tókst að ræsa hann aftur og ná vélinni út úr ólg- unni, þótt hann ynni ekki af fullu aflL 30 farþegar voru um borð. — Við vorum að búa okkur undir lendingu og vorum komnir niður í 4000 feta hæð þegar þetta byrjaði. Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu því það var ekkert sem benti til þess hvað í vændum var. Ég er búinn að fljúga þessa leið í fjórtán ár og tel mig þekkja nokkuð vel veðrabrigðin, en ég hef aldrei lent í neinu þessu líku. — Þetta byrjaði með því að við lentum í gífurlegu niður- streymi. Við gáfum báðum hreyflunum fulla orku en það dugði ekki til að halda hæð, en svo lentum við í uppstreymi og þeyttumst upp aftur, og í þess- um sviptingum fór hægri hreyfillinn út. Ef svona hlutir gerast f mikilli hæð gerir það ekki svo mikið til, en við vorum ekki f nema 4000 fetum svo við urðum að einbeita okkur að þvf að missa sem minnst. Nú, við lentum aftur í niðurstreymi og vorum á hraðri leið niður þegar okkur tókst að koma hægri hreyflinum í gang þótt hann gengi ekki af fullri orku og svo vorum við komnir út úr þessu. — Valt vélin mikið til og frá? — Tja, hún vaggaði náttúr- lega töluvert, en við vorum ekki í neinum vandræðum með að halda henni á réttum kili. Þetta voru að vísu mikil læti, en Fokkerinn er bæði aflmikil vél og hefur góða flugeigin- leika. Ég skal þó viðurkenna að við höfðum nóg að gera mcðan á þessu stóð. Eg hef flogið þessa leið á Fokker Friendship f miklu meira hvassviðri en var á mánudaginn og hún er mjög góð i þeim, en þetta var nú ekkert venjulegt hvassviðri. — Voruð þið í lífshættu? — Ekki vil ég nú segja það. Þetta hefur sjálfsagt verið óhuggulegt fyrir farþegana meðan á því stóð, en við fórum aldrei niður fyrir þrjú þúsund fet og þótt mikið gengi á held ég ekki að við höfum verið í neinni bráðri hætfu. — 0 — Sérfræðingur frá RollsRoyce verksmiðjunum er . væntan- iegur til landsins til að skoða hreyfla vélarinnar og komast að raun um hvers vegna sá hægri stöðvaðist. Til vonar og vara var ákveðið að skipta lun báða hreyfla ávélinni. % WÉM/í, m 'j’ív! "<'lr ssjæm •v.&'- : Tvær af Fokker Friendship vélum Flugfélagsins á flugvel linum í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.