Morgunblaðið - 06.03.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐ VIKUDAGUR 6. MARZ 1974
7
Eftir Ingva
Hrafn Jónsson.
ffekRaekc
og fískeUöí
Það tekur mörg ár að byggja
upp svona atvinnugrein
Spjallað við Kristin Guðbrandsson
og Guðmund Hjaltason um Tungulax h/f
MEÐ opnun hinnar stórglæsilegu
fiskeldisstöðvar Tungulax H/F 'aS
Öxnalæk hafa verið mörkuð tfma
mót f fiskeldismálum hér á landi,
því að hér er um að ræða fyrstu
tilraun til eiginlegs fiskibúskapar.
Það er raunar einkennilegt að það
skuli ekki vera fyrr en á árinu
1974 að þetta skref er stigið. þvf
að enginn vafi leikur á, að hér á
landi eru einhver ákjósanlegustu
skilyrði til stórfellds fiskibúskapar
í heiminum. Forráðamenn Tungu-
lax mega vissulega vera stoltir yfir
þessum áfanga, en fyrirtækið rek-
ur nú þrjár fiskeldisstöðvar, en
upphaf þess var f bflskúr hér f borg
fyrir rúmum áratug.
Fyrir þremur árum birtist f þætti
þessum viðtal við þá Snorra heit-
inn Hallgrfmsson og Kristin Guð-
brandsson, þar sem þeir skýrðu
frá áformum sfnum og hugsjónum
og sögðust þeir félagar þá geta
fallizt á, að um skýjaborgir væri að
ræða unz starfsemin væri komin f
gang. Við opnun stöðvarinnar á
laugardag ræddum við stuttlega
við Kristin um þessi mál.
— Þegar við töluðum saman
fyrir þremur árum áttuð þið félag-
ar stóra drauma og i dag hefur
einn þeirra rætzt.
— Við áttum marga drauma
saman við Snorri. Upphaflega ætl-
uðum við okkur aðeins að rækta
upp árnar og lækina austur f Land-
broti, en gerðum okkur fljótlega
grein fyrir, að við vildum meira.
Við litum alltaf á þetta sem til-
raunastafsemi, sem við sjálfir
myndum ekki njóta ávaxtanna af,
þvf að það tekur mörg ár að
byggja upp svona atvinnugrein.
Aðalatriðið er, að þetta komist f
gang fyrir þá, sem áhuga hafa á
fiskeldi og fiskrækt. Ég tel engan
vafa á, að fiskeldi á íslandi á
stórkostlega framtfð fyrir sér og
þessi stöð verður vonandi til að
sanna það og undanfari meiri og
stærri átaka i þessum málum.
— Þetta hefur liklega ekki allt-
af verið dans á rósum hjá ykkur?
— Nei, það er óhætt að segja,
að þetta hefur oft verið erfitt og
við höfum öll orðið að leggja mik-
ið á okkur til að koma upp þeim
þremur stöðvum. sem nú eru f
gangi. En ánægja mín yfir þessum
áfanga er tregablandin, þvf að hér
vantar Snorra Hallgrfmsson. En
andi hans svffur hér yfir vötnum
og þessi stöð eins og hinar stöðv-
arnar eru verðugur minnisvarði
um hans eldlega áhuga og framlag
til fslenzkra fiskeldismála.
— Hvað tekur við þegar þið
verðið búnir að ganga endanlega
frá aðstöðunni hér ?
— Við höfum alltaf verið skýja-
glópar og næstu skýjaborgir eru
gerð sjóeldistjarna við suður-
ströndina, til að rækta í stórum
stfl lax og silung.
Framkvæmdastjóri Tungulax
Kristinn Guðbrandsson
Guðmundur Hjaltason
H/F er Guðmundur Hjaltason.
Hann sagði okkur, að fram-
kvæmdir við stöðina hefðu hafizt
1971, er byrjað var að bora eftir
heitu vatni, en það var mjög mikil-
vægt fyrir uppbyggingu stöðvar-
innar, að heitt vatn fengist. Bor-
unin bar góðan árangur og fram-
kvæmdir við byggingu stöðvarinn-
ar hófust í september 1972 og
þeim lauk sfðla á nýliðnu ári.
Vatnslögninni lauk þó ekki fyrr en
! janúar og þá fyrst var hægt að
byrja starfið. „Við erum nú með
um 90 þúsund bleikjuseiði hér og
20 þúsund laxaseiði og er stofn-
inn úrölfusáog Soginu. Annars er
geta stöðvarinnar með þeim 88
eldiskerjum, sem hér eru, um
1,2—1,4 milljónir smáseiða eða
150—200 þúsund 10—15 sm
seiði. f vor verður svo hafizt handa
um gerð 5 tvöhundruð fermetra
útitjarna, en áætlunin gerir ráð
fyrir, að alls verði hér um 7000 fm
undir vatni. Seiðin verða alin f
stöðinni upp f 10—15 sm stærð,
en þá verða þau sett út og alin f
200 gr. þyngd. sem er hæfileg
markaðsstærð.
Nú eruð þið með þrjár stöðvar.
hér, við Tungulæk og á Keldum.
Er bein verkaskipting milli þeirra?
— Hér verður lögð áherzla á
silungseldið, en við verðum einnig
með laxaseiði fyrir almennan
markað. Stöðin á Keldum getur
framleitt um 50 þúsund göngu-
seiði á ári og er sú framleiðsla
fyrir almennan markað. Dýrfinna
Tómasdóttir sér um þá stöð. Þá
erum við með 60—70 þúsund
laxa og sjóbirtingsseiði f Tungu-
lækjarstöðinni, sem hugsuð eru til
ræktunar ánna og lækjanna fyrir
austan og einnig fyrir almennan
markað og sér Eyþór Valdimars-
son um þá stöð. Eftir þv! sem við
fikrum okkur áfram, þvf að hér er
auðvitað um tilraunastarfsemi að
ræða, vonumst við til að geta
aukið afköstin.
— Hver er kostnaðurinn orðinn
við stöðina hér?
— Hann er nú um 20 milljónir,
en gert er ráð fyrir, að heildar-
kostnaður verði 35 milljónir. Þess
má til gamans geta, að upphaflega
áætlunin hljóðaði upp á 23
milljónir.
— Hvenær búizt þið við að geta
sett fyrstu bleikjurnar á markað-
inn?
— Það verður vonandi sfðla á
þessu ári.
Séð yfir sal Öxnalækjarstöðvarinnar.
ÍBÚÐ ÓSKAST. Tannlæknir óskar eftir Iftilli íbúð Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upplýsingar í sfma 10028 og eftirkl. 7.30 81587. BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði. Staðgreiðsla. Nóa- túni 27, sími 25891.
reykjavIk nágrenni Tæknifræðingur óskar eftir 4ra herb íbúð á leigu frá 1. maf. Upplýsingar i síma 38437. fh. HÚSNÆÐI TILLEIGU í Hveragerði. Vel staðsett. Hent- ugt fyrir léttan iðnað eða aðra Starfspmi Aage Michelsen Simi 99-4166 og 99-4180.
KEFLAVlK — NJARÐVlK Er nokkur sem getur leigt eða selt 3ja til 4ra herb. íbúð'strax. Uppl f sfma 1983 — 2657 eftir kl 7. sfðdegis. MÓTARIFRILDI: Viðgerðir, glerísetningar, máln- ingar, flfsalagnir. Simi 18329.
VERKAMENN VANTAR f byggingavinnu. Upplýsingar í síma 31 104. KEFLAVÍK — NJARÐVIK Afgreiðslustúlku vantar nú þegar hálfan daginn Valgeirsbakarí, Ytri Njarðvfk. Sími 2630 — 1 037.
TILSÖLU er eldhúsinnrétting 3x2.50 Bað- ker, handlaug, strauvél, 50 fm gúmifilt, Ijósatafla og zetubraut- ir. Upplýsingar í síma 36791 eftir kl. 8 á kvöldin. PENINGAR Vil lána 3—400 þús. kr. i eitt ár. Tilboð merkt: ..Skuldabréf 4878" sendist afgr Mbl.
UNG BARNLAUS HJÓN óska eftir 1 —3ja herb fbúð fyrir 1. april. Óskast leigð til 1 árs. Vinsaml. hringið í síma 84837 eftir kl. 7 á kvöldin. FRfMERKJASAFNARAR Sel islenzk frimerki og FCD-útgáf ur á lágu verði Einnig erlend frímerki og heil söfn. Jón H. Magnússon, pósthólf 337, Reykjavik.
2 NEMENDUR ÚR 5. BEKK V.í. (piltur og stúlka) óska eftir at- vinnu ! kaupstað eða kauptúni úti á landi í sumar. Þeir, sem vildu sinna þessu, eru beðnir um að senda tilb. merkt: 2 áhugasöm -— 4877" til afgr. Mbl. PEUGEOT 404'69 bill i sérflokki, til sölu. Má borgast með 2ja — 3ja ára skuldabréfi eða eftir samkomu- lagi. Sfmi 1 6289.
Innilegar þakkir til barna minna, tengdabarna, bama-
barna, frændfólks og vina, vinnufélaga minna í Frystihúsi
UA og annarra er minntust mín með heimsóknum,
gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli mínu 23. febrúar s.l.
Lifið heil.
LOREIMZ HALLDÓRSSON,
Fróðasundi 3, Akureyri.
Tollskvrslur -
verðútrelknlngar
Get tekið að mér sjálfstætt starfa. Hálfan daginn. Mikil
reynsla. Góð menntun. Tilboð óskast send. afgr. Mbl.
merkt: „3356 '.
Véiritunarskðll
Slgríðar Þðrðardðttur
Ný námskeið hefjast næstu daga.
Upp. í síma 33292 e.h.
Fullkomið philips verkstæói
Fagmenn sem hafa sérhæft sig í umsjá
og eftirliti með Philips-tækjum
sjá um allar viðgerðir.
Breytum sjónvarpstækjum fyrir Keflavík.
heimilistæki sf
SÆTÚNI 8. SÍMI:1 3869.