Morgunblaðið - 06.03.1974, Qupperneq 25
MORG UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974
25
fclk f
fréttum
□ HtJN ER UTAN-
RÍKIS-
RÁÐHERRA
UGANDA!
Elizabeth er dóttir Rukikis
þriðja, konungs af Toro, og
fram til 1967 gekk hún undir
nafninu „Hennar konunglega
hátign, Elizabeth prinsessa af
Toro“. Nú heitir hún Elizabeth
Bagaya. Hún stundaði nám I
Bretlandi og varð lögfræðingur
1965, fyrsta konan I Austur-
Afríku, sem lauk lögfræðiprófi.
Er faðir hennar lézt, nokkru
seinna, fór hún heim til að vera
viðstödd útför hans, og sfðan
hóf hún lögmannsstörf í heima-
landi sínu. En mikil ólga var í
landinu, sem hlotið hafði sjálf-
stæði 1962, og 1966 var öðrum
kóngi, Edward Mutesa af Bug-
anda, nánast vísað úr landi til
útlegðar i Bretlandi. Ári síðar
var tekin upp ný stjórnarskrá
og öll þrjú konungdæmin' í
landinu lögð niður. Tveimur
mánuðum seinna fór Elizabeth
að nýju til Bretlands og hóf
fyrirsætustörf í tízkufataiðnað-
inum. — Ef ég hefði verið
áfram í Uganda, hefði ég lent í
fangelsi, en þó fyrst verið
krúnurökuð og nauðgað, sagði
hún seinna í viðtali. Elizabeth
gerðist tískusýningarstúlka
fyrst og fremst vegna löngunar
sinnar til að gerast leikkona og
eftir að hafa komizt á forsíður
þekktra tízkublaða, fékk hún
byr undir báða vængi á báðum
þessum sviðum, bæði í Bret-
landi og Bandaríkjunum.
Þegar Idi Amin komst til
valda í byltingu í Uganda, sneri
Elizabeth aftur til heimalands
síns, ásamt mörgum öðrum
Ugandamönnum, sem höfðu
verið í útlegð. Amin kallaði
hana til sín og gerði hana að
sendiherra og síðar var hún for-
maður sendinefndar Uganda á
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna. Og nýlega gerði Am-
in hana að utanríkisráðherra
Uganda. Og það var ekki vegna
fallegu svörtu augnanna henn-
ar eða álitlegra fótleggja henn-
ar, heldur vegna þess, að hún er
afar dugleg og hæfileikamikil
kona.
□ KOSNINGASJOPPA Á STRIKINU
ÞEIR eru að undirbúa borgarstjórnarkosningar í Kaupmannahöfn
og Jafnaðarmannaflokkur Ankers Jörgensens hefur í hyggju að
bæta sér þar að nokkru leyti upp það áfall, sem hann varð fyrir i
þingkosningunum fyrir nokkrum mánuðum. Eitt af vopnunum í
kosningabaráttunni er opnun kosningasjoppu á Strikinu og Anker
sjálfur var fyrsti „afgreiðslumaðurinn" í sjoppunni. I klukkutíma
stóð hann og svaraði spurningum vegfarenda. Síðar áttu svo vegfar-
endur kost á að leggja spurningar fyrir aðra forystumenn í flokkn-
um.
Kannski þetta sé góð hugmynd fyrir frambjóðendur í borgar-
stjórnarkosningunum í Reykjavík á vori komanda. Þeir gætu t.d.
leigt sér sölutjald, eins og notað er á 17. júní, og staðið þar og svarað
spurningum vegfarenda, t.d. í Austurstrætinu.
Útvarp Reykjavlk f
MIÐVIKUDAGUR
6. marz
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikf imi kl. 7.20. Frettir kl 7.30
8,15 (og forustugr. dagbL), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn k 1.7.55.
Morgunstund bamanna kl. 8.45: Þor
Leifur Hauksson les áfram söguna
„Elsku Mió minn“ eftir Astrid
Lindgren (5).
Morgunleikftni kL 9.20. Tilkynningar
kl.9.30.
Þingf réttir kl. 9.45.Léttlög ámilliliða.
(Jr játningum Agústfnusar kirkjuföð-
ur kL 10.25: Sér«i Bolli Gústafsson les
þýðingu Sigurbjörns Einarssonar
biskups (15).
KirkjutónlLst kL 10.40:
Óperuténlist kL 11.00: Renata ScottOk
Gianni Raimondi og Ettore Bastianini
syngja með kór og hljómsveit Scala-
óperuinar þætti úr „La Traviata" eftir
VerdL / Útvárpshljómsveitin í Berlín
leikir dansa úr óperum eftir Verdi,
Ponchielliog Tsjaikovskí.
12.00 Dagskráia Tónleikar Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Meðsfnulagi
SvavarGests kynnirlög af hljcmplöt-
um.
14.30 Sfðdegissagan: „Föstuhald rabbf-
anS" eftirHarryKamebnan
í þýðingu Kristinar Thorlacius. Séra
Rögnvaldur Finnbogason les (2).
15.00 Miðdegistónleikar:
Jörg Demus leikur á pianóPartitu nr. 1
i B-dúr eftir Bach. Antcnio de Bavier
og Nýi italski strengjakvartettinn leika
klarinettukvintett í A-dúr (K581) eftir
Mozart.
Montserrat Caballe syngur aríur úr
óperum eflir PuccinL Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leikur með; Charies
McKerras stj.
Á skjánum
Miðvikudagur
6. mars 1974
18.00 Perseifur
Sovésk teiknimynd, byggð á fomri
griskri goðsögn.
ÞýðandiHallveig Thorlacius.
18.20 Skippf
Ástralskur myndaflokkur fyrir börn og
unglinga.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.45 Svona eru börnin
— i Tanzanfu
Norskur myndaflokkur um lif og leiki
bama i ýmsum heimshiutum.
íýðandi og þulur Ellert Sigur-
björnsson.
19.00 Gftarskólinn
Gftarkennsla fyrir byrjendur.
ð.þáttur.
Kennari Eyþór Þorláksson.
19.30 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Konan mfn f næsta húsi
Nýr.breskur gamanmyndaflokkur.
1. þáttur. t nálægð þinni
ÞýðandiJón Thor Haraldsson.
Myndaflokkur þessi greinir frá ungum
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Útvarpssaga bamanna: ,4ói f ævin-
týraleit" eftirKristján Jónsson
Höf undur les sögulok (8).
17.30 Framburðarkennsla í spænsku
17.40 Tónleikar.
18.00 Tilumhugsunar
Þáttur um áfengismál i umsjá Sveins
H. Skúlasonar.
18.15 Tónleikar. T1 lkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Orðaforði
Ölafur Hannibalsson stjórnar viðræðu-
þætti
20.00 Kvöldvaka
a Einsöngur I
Guðrún A. Símonar syngur lög eftir |
Sigvalda Kaldalóns við texta eftir ■
Höllu Eyjólfsdóttur; Guðrún Kristins
dótti rleikur á pianó. ,
b. H já Austur-Skaftfellingum
Þórður Tómasson safnvörður í Skógum \
flytur þriðja hluta ferðaþáttarsins ,
c. Kvæði eftir Jón Magnússon
Guðmundur Guðmundsson les.
d. Æviminningar Eirfks Guðlaugsson-
ar
Baldur Pálmason les annan hluta frá-
sögu húnvetnsks erföismanns.
e. Um fslenzka þjóðhætti
Ami Björnsson cand. mag. talar.
f. Kórsöngur
Kammerkórinn syngur; Ruth L.
Magnússon stj.
21.30 Út varpssagan: „Gfsla saga Súrson-
ai*‘
Si Ija Aðalsteinsdóttir byrjar lesturi nn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passfusálma (21)
22.25 Kvöldsagan: „Vögguvfsa" eftir
ElfasMar
Höfundur les (5).
22.45 Nútfmatónlist
Halldór Haraldsson kynnir.
23.30 Fréttir i stuttu máh
Dagskrárlok.
hjónum, sem ákveðið hafa aðskilja, en
áður en lögskilnaði er náð þurfaþau að
yfirstiga margar hindranir. Með aðal-
hlutverk í myndinni fara John Alder
ton og Hannah Gordon, sem margir
munu kannast við úr myndunum Hve
glöð ervor æska.
20.55 Undir áhrifum
Sænsk fræðslumynd um áfengisnotk-
un. Meðal annars eru útskýrð áhrif
áfengis á mannslikamann, og þá fyrst
og fremst á heilann.
Þýðandi og þulur Dóra Hafsteins-
dóttur.
21.10 Krunkað á skjáinn
Þáttur með blönduðu efni varðandi
fjölskyldu og heimili.
Umsjónarmaður Magnús Bjamfreðs-
son.
21.55 Frá Senegal
Sænsk fréttamynd um baráttuSenegal-
manna fyrir endurreisn tungu sinnar j
og þjóðmenningar.
Þýðandiog þulur öm ólafsson.
(Nordvision—Sænska sjónvarpið) "
22.35 Dagskrárlok
fclk f
[ fjclmiélum
Nýr brezkur
framhalds-
myndaflokkur
1 KVÖLD kl. 20.30 hefst í
sjónvarpinu nýr, brezkur
framhaldsmyndaflokkur,
og nefnist hann „Konan
mín í næsta húsi“. Þetta
er efni af léttara taginu,
og leikarana þekkjum við
úr þáttunum „Hve glöð
er vor æska“. John
Alderton lék kennarann í
þeim þáttum og fer með
aðalkarlhlutverkið í þess-
um nýja flokki.
Myndirnar fjalla um
hjón, sem hafa gefizt upp
á sambúðinni og ákveða
að skilja, en það gengur
ekki eins léttilega fyrir
sig og þeim þykir æski-
legt. Til að hressa upp á
taugarnar ákveða þau
bæði að yfirgefa borgar-
lífið og flytjast út á land,
sitt í hvoru lagi að sjálf-
sögðu. En kaldhæðni ör-
laganna er slík, að þau
lenda í nábýli. Þetta leið-
ir svo af sér alls konar
óþægilega atburði.
Hjólmennið
KL. 20.55 er svo sænsk
fræðslumynd um áfengis-
notkun. Hér er um að
ræða teiknimynd, sem
nefnd hefur verið „Hjól-
mennið“. Þar er sýnt
hvernig mannslikaminn
starfar og hvaða áhrif
áfengisneyzla hefur á
viðbrögð og heilsu
manna.