Morgunblaðið - 08.03.1974, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.03.1974, Qupperneq 1
40 SIÐUR 56. tbl. 61. árg. FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins Aðskiljast kirkjan og Spánarríki Lokið er löngu og ströngu verkfalli kolanámamanna sem varð ríkisstjórn Heaths að falli og hjólin fara að snúast f Bretlandi á næstu dögurti. Fimm daga vinnuvika tekin upp í Bretlandi London, 7. marz. AP.NTB. MINNIHLUTASTJÓRN Harold Wilsons forsætisráðherra aflýsti í dag þriggja daga vinnuviku eftir lausnina á verkfalli námuverka- manna er leiddi til þess að iðnaðurinn fékk engin kol, og hefur þar með staðið við eitt kosningaloforða sinna. Eric Varley orkumálaráðherra sagði að fimm daga vinnuvika hæfist að nýju í verksmiðjum frá og með miðnætti á föstudag. En hann skoraði á Breta að halda áfram að fara sparlega með raf- Skömmtun Svía hætt Stokkhólmi, 7. marz. NTB. ALLRI skömmtun á rafmagni og olíu verður hætt í Svíþjóð sam- kvæmt því sem skömmtunar- nefnd eldsneytis og rafmagns ákvað i dag, Skömmtun á oliu til upphitun- ar og parafinoliu verður hætt 15. marz. Bann við rafmagnskynd- ingu og notkun rafmagnsofna fellur strax úr gildi. magn á heimilum unz vinna hæf- ist að fullu í kolanámunum og orkubirgðir kæinust aftur í eðli- legt horf. Þó taldi hann að þess yrði skammt að bfða. Washington, 7. marz AP—NTB. ALRlKISDÓMSTÓLL ákærði í dag John D. Ehrlichman og Charles W. Colson, fyrrverandi starfsmenn Hvíta hússins, fyrir að hafa staðið að innbrotinu í skrifstofu sálfræðings Daniel Ellsbergs. Watergate-samsærismennirnir G. Gordon Liddy, Bernard L. Barker, Eugenio R. Martinez og Felipe De Diego voru einnig ákærðir fyrir sömu sakir. Liddy var einnig ákærður fyrir að neita að bera vitni fyrir einni af nefnd fulltrúadeildarinnar. Ehrlichman var einnig ákærður fyrir að ljúga að starfsmönnum FBI og að alríkisdómstól um 280.000 námaverkamenn Bret- lands hafa enn ekki formlega samþykkt launasamningana sem hafa bundið enda á eins mánaðar verkfall og 10 vikna yfirvinnu- starfsemi leyniþjónustudeildar Hvita hússins. Jafnframt samþykkti laganefnd fulltrúadeildarinnar einróma í dag að krefjast þess að alrikis- dómstóllinn afhendi henni leyni- skýrsluna um tengsl Nixons for- seta við Watergate-hneykslið. Nefndin á að ákveða hvort ástæða Framhald á bls. 22. Madrid, 7. marz. AP. SPÆNSKA stjórnin hefur til- kynnt Páfagarði að hún sé þess albúin að rifta samningi ríkisins og kaþólsku kirkjunnar frá 1953 vegna máls biskupsins Antonio Anoveros. Anoveros biskup var í dag sendur í flýti frá Bilhao til Mad- rid til viðræðna við sendimann páfa, Luigi Dadaglio. Hann hefur setið í stofuvarðhaldi í eina riku vegna stuðnings rið málstað Baska. Hvorki Vatíkanið í Róm né stjórnin í Madrid vilja nokkuð segja um möguleika á þvi að sam- bandi rikis og kirkju verði slitið. Franco þjóðarleiðtogi hefur alltaf bann er kollvörpuðu stjórn Ed- ward Heaths forsætisráðherra, en búizt er við að þeir verði sam- þykktir mótþróalaúst á fundum um helgina. Varley sagði að sparnaðarráð- stöfunum yrði haldið áfram og því geta liðið margar vikur þangað til banni við ljdsaauglýs- ingum verður aflétt þótt þess sé vænzt að iðnaðarframleiðslan komist í fullan gang eftir örfáa daga. Námamenn fá 100 milljón punda launahækkun, sem er í samræmi við tillögur sem launa- málaráðið gerði nýlega. Hækk- unin er helmingi meiri en stjórn Heaths bauð og er 29—30%. Upp- haflega kröfðust námamenn 30—35% launahækkunar. Kunnugir telja að launahækk- Framhald á bls. 22. notið stuðnings páfa siðan í borg- arastríðinu semlauk 1939. Stjórn Carlos Arias Navarro hefur tjáð Páfagarði samkvæmt áreiðanlegum heimildum fyrir milligöngu æðsta manns spænsku kirkjunnár, Marcelo \Gonzales Martins erkibiskups, að hún sé þess albúin að slita samningnum við kirkjuna vegna athugasemda sem biskupinn hafi gert og vegna þess að hann hafi neitað að fara úr landi. Ef sambandinu við kirkjuna verður slitið getur stjórnin stefnt Anoveros biskupi fyrir að grafa undan þjóðareiningu með því að hvetja til aukins frelsis Böskum til handa. Þótt sambandinu við kirkjuna yrði slitið er ekki víst að sambandinu við Páfagarð yrði slitið um leið. Sendimaður páfa í Madrid hef- ur átt viðræður við Vatikanið i Röm og ráðherra spænsku stjórn- arinnar. Anoveros biskup kveðst ekki fara úr landi nema páfinn segi honum það eða hann verði neyddur tilþess. Þingmenn höfnuðu hækkun Washington, 7. marz.NTB. ÞINGMENN öldungadei Idar Bandaríkjaþings hafa hafnað 10.000 dollara (um 86.000 fsl. kr.) launaupphöt, sem Nixon forseti hefur boðið þeirn. Upplxítin hefði hækkað laun þeirra i 52.000 dollara á ári. Þingmennirnir felldu tilboð Nixons, þar sem kjósendur hefðu brugðizt hart gegn svo hárri launauppbót. Uppbótin var felld með 72 atkvæðum gegn 26. Sýrlendingar draga saman skriðdrekalið Ellsberg-málið: Sex ákærðir Arabar Wilson London, 7. marz — AP BÚIZT er við að helztu olíurfki Araba sendi Harold VVilson for- sætisráðherra bráðlega aðvörun um að Bretland verði sett á lista „óvinveittra þjóða“ nema nýskip- uð rfkisstjórn Verkamanna- flokksins sýni í verki samúð með málstað Araba. vara við Talsmenn Verkamannaf lokks- ins og sendifulltrúar Arabaríkj- anna skýrðu frá þessu í London í dag, og sögðu þeir að Wilson hefði verið send óformleg orðsending þessa efnis rétt áður en hann tók við embætti forsætisráðherra. Eftir styrjöld Araba og ísraela í Framhald á bls. 22. Jerúsalem, 7. marz. AP.NTB. SÝRLENDINGAR héldu áfram að draga saman herlið, skrið- dreka og stórskotalið í dag um- hverfis svæði sem Israelsmenn tóku af þeim f Golanhæðum í októberstrfðinu í fyrra. Jafn- framt er mikill viðbúnaður hjá ísraelska herliðinu sem hefur fengið liðsauka, hinn mesti síðan í októberstríðinu. Ástandið er sagt mjög viðsjár- vert og báðir aðilar virðast reiðu- búnir að láta sverfa til stáls. Sagt er að smáskotbardagi geti leitt til þess að-stórfelldir bardagar blossi upp á öllum vígstöðvunum. ísraelsmenn segjast hafa kom- izt yfir sýrlenzkar orðsendingar sem sýni að Hafez Assad forseti vilji hefja takmarkaða sókn í Gol- an-hæðum f þvf skyni að leggja fast að ísraelsmönnum áður en viðræður þeirra um vopnahlé hefjast. Þær eiga að byrja eftir hálfan mánuð í Washington. Sagt er að það sem fyrir Sýr- lendingum vaki sé að ná sams konar landvinningum i Golan- hæðum og Egyptum tókst á aust- urbakka Súez-skurðar til þess að treysta samningsaðstöðu sina og knýja israelsmenn til tilslakana. i Tel Aviv er haft eftir áreiðan- legum heimildum að fréttirnar um ástandið á Golanhæðum hafi sennilega átt mestan þátt í því að Trúarlegi þjóðarflokkurinn ákvað að styðja stjórn frú Goldu Meir. Stuðningsmenn Moshe Dayans landvarnaráðherra, Rafihópur- inn, ákváðu að styðja hana af sömu ástæðu. Ljóst er að Dayan verður áfram landvarnaráðherra og Abba Eban utanrikisráðherra. Þingmeiri- hluti stjórnarinnar verður að minnsta kosti tvö atkvæði, en auk þess fær hún stuðning óháðra þingmanna. Sovétríkin og Sýrland vöruðu i dag ísrael rið því að friður i Mið- austurlöndum gæti komizt i hættu ef israel hörfaði ekki með allt sitt herlið frá öllum herteknum ara- biskum svæðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.