Morgunblaðið - 08.03.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.03.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974 32 Dagskrá næstu viku I þessu sveitahúsi búa þau Bassetthjónin í þættinum KONAN IVilNl NÆSTAHUSI. Þriðjudagur kl. 20.30. SUNNUD4GUR 10. mars 16.00 Endurtekið efni Kraftaverkið Bandarisk bíómynd frá árinu 1962, byggð á heimildum um æskuár Helenar Keller. Aðalhluthver Anne Bancroft og Patty Duke. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Áður á dagskrá 25. desember 1972. 18.00 Stundin okkar Meðal efnis í þættinum er mynd um Róbert bangsa og mynd um Finnlandsferð Rikka ferðalangs. Börn af barnaheimilinu Brákarborg syngja nokkur lög, og börn úr Myndlista- og handíðaskólan- um leika á hljóðfæri, sem þau hafa sjálf smíðað, og loks verður sýnt, hvernig búa á til dósafiðlu. Umsjónarmenn Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.50 Gftarskóiinn Gítarkennsla fyrir byrjend- ur. 5. þáttur endurtekinn. Kennari Eyþór Þorláksson. 19.20 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Það eru komnir gestir Elín Pálmadóttir ræðir við Bergþóru Sigurðardóttur, Láru Ragnarsdóttur og Sig- rúnu Harðardóttur í sjón- varpssal. 21.00 Enginn deyr f annars stað Austur-þýzk framhaldsmynd, byggð á sögu eftir Hans Fall- ada. 2. þáttur. Þýðandi Öskar Ingimarsson. Efni 1. þáttar: Myndin hefst i Berlin sumar- ið 1940. Trésmiðurinn Otto Quangel fær fréttir um, að einkasonur hans hafi fallið á vígstöðvunum. Skömmu síðar verður hann vitni að því, að nágrannakona hans af Gyð- ingaættum styttir sér aldur eftir yfirheyrslur Gestapo- manna. Þá er Quangel nóg boðið. Hann ákveður að hefja Sjónvarps- og útvarpsdag- skráin er á bis. ^5. IHVAÐ ERAÐ SJA? danskan sjónvarpsþátt um MANNRÉTTINDI I SOVÉT- A SUNNUDAGSKVÖLD kl. 22.10 verður sýndur afar tíma- bær þáttur þótt ekki sé hann alveg nýr. Hér er um að ræða Adolf Hitler — heimildar- mynd um örlög hans og þriðja ríkisins sýnd kl. 21.50 á mánudagskvöld. RlKJUNUM. Þáttur þessi er gerður áður en þau mál komust í brennidepíl á undanfqrnum vikum með brottrekstri rithöfundar- ins Alexanders Solzhenitsyn, en engu að síður ætti sú um- ræða sem í þættinum fer fram að standa fyrir sínu. I þessum þætti rökræða tveir Danir, — annar háttsettur mað- ur innandanska útvarpsins, en hinn forsvarsmaður Sovétríkj- anna og stjórnarforms þeirra, og er sá framarlega í vináttufé- lagi Danmerkur og Sovétríkj- anna. Reifa þeir t.d. spurning- una um ferðafrelsi Sovét- manna, bæði innanlands og er- lendis, og annað er varðar mannréttindi, — eða skort á mannréttindum í þessu landi. Inn i þessar umræður er m.a. skotíð löngu símtali við einn helzta baráttumanninn í þess- um efnum, visindamanninn Andrei Sakharov, og viðtali við kunnan sovézkan kvikmynda- gagnrýnanda sem nú býr í Dan- mörku. Þáttur þessi er úr HORISONT-f lokki danska sjónvarpsins. Á MÁNUDAGSKVÖLD kl. 21.50 verður sýnt brezk sjón- varpsuppfærsla á þýzku leikriti sem ber heitið BRUÐKAUPS- NÖTT og er eftir Gert Hof- mann. Verkið er framleitt af Granada-sjónvarpsfélaginu, sem kunnt er af fremur vönd- uðum vinnubrögðum, en um Gert Hofmann hinn þýzka vit- um við harla litið. Svo er að sjá sem þetta leikrit sé í heldur léttum dúr. Það ger- ist í Þýzkalandi nútimans. Fá- menn fjölskylda kemur saman til morgunverðarboðs á brullupsdegi þeirra Ullu og Rainer Steinkohls. Þessi fjöl- skyldufagnaður fer fram á heimili foreldra Ullu og er rétt i þann veginn að komast i gang þegar óvæntur og dularfullur gestur ber að dyrum. Er það Gústaf nokkur Botticher kaf- teinn, gamaii félagi Richards Muller, föður Uliu úr stríðinu. Hafði Muller mælt sér móts við kafteininn á brúðkaupsdegi dóttur sinnar af vangá. Og kaf- teinninn setur heldur betur strik í reikninginn. Hann lætur vaða á súðum, rifjar óspart upp sögur úr stríðinu og sýpur hressilega á þeim veigum sem fyrir hendi eru í brúðkaups- veizlunni. Fyrir bragðið fellur giftingin sjálf í skuggann, og þegar líða tekur á kvöldið og kafteinninn herðir drykkjuna skapast ýmis vandkvæði sem ekki er vert að fara nánar út í. Aðalleikendur í þessu verki eru Katharine Barker, Saam Dastoor, David Markham og Ewen Solon. Leikstjóri er Brian Mills. Á ÞRIÐ JUDAGSKVÖ LD kl. 20.30 verður tefld þriðja skákin í LITLA SKÁKMÖTINU I SJÓNVARPSSAL, en tvær fyrstu skákirnar voru tefldar í þessari viku. Fjórða skákin verður svo tefld þegar á FÖSTUDAGSKVÖLD kl. 22.05, en alls verða skákirnar sex. Þeir kappar sem þarna leiða saman hesta sína tóku allir þátt í Reykjavikurmótinu í skák sem nýlega er afstaðið með popm og pragt. Þessar hetjur skákborðsins eru Islend- ingarnir Friðrik Ölafsson og Guðmundur Sigurjónsson, og svo þeir Forintos og Trinkov úr hinu erlenda innrásariiði. Ekki er að efa, að margir eigi eftir að fylgjast af spenningi með þess- ari viðureign, eins og skák- áhugi íslendinga hefur risið upp eftir heimsmeistaraeinvíg- ið sem var haldið hér í hitteð- fyrra. A LAUGARDAGSKVÖLD kl. 20.50 verður sý'nd upptaka sjón- varpsins á flutningi kórs Verzlunarskólans á poppóper- unni TOMMY. Þessi annálaði söngleikur eftir Peter Townsend, fyrirliða brezku pophljómsveitarinnar The Who, hefur gegnum árin verið fluttur í hinum margbreyti- legustu útgáfum og útsending- um, m.a. mun standa fyrir dyr- um að kvikmynda hann. Verslunarskólakórinn setti „Tommy’' upp nú fyrir skemmstu í tilefni af nemenda- móti skólans, og einnig var verkið flutt fyrir almenning í Austurbæjarbíói. Stjórnandi uppfærslunnar var Sigurður Rúnar Jónsson, en undirleik annaðist sérstök súpergrúppa, skipuð þeim Karli Sighvats- syni, Sigurði Árnasyni, Ölafi Garðarssyni c® Gunnari Ringsted. „Tommy" segir frá vanda- málum samnefndrar söguhetju, ungs drengs sem er heyrnar- laus, blindur og mállaus, og samskiptum hans við for- eldrana. Aðalhlutverkið, Tommy sjálfan, syngur Kol- beinn Kristinsson, en í kórnum eru alls 50 nemendur. Stjórn sjónvarpsupptökunnar annað- ist Egill Eðvarðsson. Á LAUGARDAGSKVÖLD kl. 21.55 verður sýnd nokkuð at- hyglisverð frönsk kvikmynd, sem nefnist ADIEU PHILEPPINE. Mynd þessi er gerð árið 1961 af leikstjóranum J acques Rozier. Myndin segir frá Michel, sem er ungur myndatökumaður hjá sjónvarpsstöð einni. Hann kemst í kynni við tvær ungar stúlkur sem eru algerlega óað- skiljanlegar. Michel á aðeins fjóra mánuði til stefnu áður en hann verður kallaður í herinn, og því notar hann og stúlkurnar tímann eins vel og unnt er. Hann kýs ekki að velja milli þeirra — og hann þarf þess raunar ekki. En saman lenda þremenningarnir í hinum fjöl- breytilegustu kringumstæðum, bæði góðum og vondum, en fyrst og fremst tekst þeim að njóta lifsins. En allt tekur enda. Mynd þessi fékk mjög góða dóma erlendis, og m.a. hlaut hún nokkur verðlaun á kvik- myndahátíðum, t.d. í Mann- heim árið 1963. Þetta er fyrsta myndín sem Jacques Rozier gerði, og sem slík fékk hún einntg verðlaun i Oberhausen árið 1963. Af dómunum má sjá að hér er á ferð létt og „sjarmerandi" mynd í „cinema verité" — stíl og mun handritið að nokkru hafa verið samið jafnóðum og myndin var tekin. Aðalhlutverkin leika Yveline Cery, Stefania Sabatini og Jean-Claude Aimini. Lára Ragnarsdóttir, Bergþóra Sigurðardóttir, Elfn Pálmadóttir og Sigrún Harðardóttir í ÞAÐ ERU KOMNIR GESTIR á sunnudagskvöld kl. 20.25. leynilega andspyrnu gegn Hitler, og tekur fyrst til við að dreifa póstkortum í fjöl- býlishúsum með áletruninni „Móðir! Foringinn hefur myrt son þinn.“ Einnig kom nokkuð við sögu iðjuleysing- inn Kluge, sem er greiðvik- inn við Gestapo. En kona hans, sem er bréfberi að at- vinnu, er hins vegar hliðholl andspyrnumönnum. 22.10 Mannréttindi f Sovétríkj- unum Svipmyndir, umræður og hugleiðingar um almenn rétt- indi sovéskra þegna. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 22.35 Að kvöldi dags Sigurður Bjarnason, prestur 7. dags aðventista, flytur hugvekju. 22.45 Dagskrárlok A1MUD4GUR 11. mars 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 íþróttir Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 21.00 Brúðkaupsnótt Sjónvarpsleikrit frá Bret- landi. Höfundur Gert Hoffmann. Leikstjóri Brian Mills. Aðalhlutverk Katharine Barker, Saam Dastoor og David Markham. Þýðandi Guðrún Jörunds- dóttir. Leikurinn gerist i Þýskalandi nú á dögum. Roskinn heimilisfaðir hefur boðið til sín gestum í tilefni af brúðkaupi dóttur sinnar, en þegar veislan stendur sem hæst, kemur óvæntur gestur í heimsókn. 21.50 Fall þriðja ríkisins Dönsk heimildamynd um endalok heimsstyrjaldarinn- ar síðari og fall Hitlers. Fyrri hluti. I myndinni eru meðal annars viðtöl við þýska valdamenn frá þeim tíma. Þýðandi og þulur Óskar Ingi- marsson. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 22.50 Dagskrárlok. ÞRIÐJUDKGUR 12. mars 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Lítið skákmót í sjón- varpssal Þriðja skák. Forintos, hvítt. Tringov, svart. Skákskýringar flytur Guð- mundur Arnlaugsson. 21.05 Valdatafl Breskur myndaflokkur. 5. þáttur. Umhugsunarefni. Þýðandi Jón O. Edwald. Efni fjórða þáttar: Bligh-fyrirtækið sækist eftir umfangsmiklum verksamn- ingum við Arabalönd, en brátt kemur í ljós, að Arabar hafa illan bifur á fyrirtækinu veena fyrri greiðasemi Wild- ers við ísraelsmenn. Þá er brugðið á það ráð að stofna sérstakt fyrirtæki, til að ann- ast fyrrnefndar framkvæmd- ir. Með í ráðum er framgjarn Libanonmaður, og brátt þyk- ist hann sjá sér leik á borði að hafa meiri hagnað af þess- um feluleik en honum var upphaflega ætlað. Wilder tekst þó að sjá við þessu með aðstoð Susan Weldon og hef- ur sjálfur mestan hag af ævintýrinu. 21.50 Heimshorn Fréttaskýringaþáttur um er- Iend málefni. Umsjónarmaður Sonja Diego. Berjumst fyrir frelsi Sænsk fréttamynd um frels-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.