Morgunblaðið - 08.03.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR8. MARZ 1974
Læknishéruðum
er bara fækkað
Skipun nýrrar rfkisstjórnar hefur ekki dregið úr mótniælaaðgerðum
í Eþíópfu. Hér eru bornar fram kröfur um lýðræðislega stjórnarhætti
f Addis Ababa.
Verkföll 1 Eþíópíu
Bíldudal,7. marz —
VIÐ hér á Bíldudal heyrðum það
f morgun, þegar lesið var úr rit-
stjórnargrein Þjóðviljans, að
mikið lof var borið á heilbrigðis-
ráðherra fyrir það, að nú væri
hvert læknishérað í landinu
skipað. Það er enginn vandi að
skipa öll læknishéruð með því að
fækka þeim.
Tveir læknar eru á Patreks-
SAMBAND íslenzkra sveitarfél-
aga, menntamálaráðuneytið og
Barnaverndarráð íslands gangast
fyrir ráðstefnu um málefni
yngstu borgaranna að Hótel Sögu
dagana 12. og 13. mars, á þriðju-
dag og miðvikudag i næstu viku.
Á ráðstefnunni verður kynnt
núverandi skipan barnaverndar-
mála og verkefni barnaverndar-
nefnda og í því sambandi fjallað
um hlutverk vistheimila og
sumardvalarheimi la.
Kynnt verða ákvæði um þátt-
töku ríkisins i byggingu og rekstri
dagvistunarstofnana og rætt um
dvöl yngstu nemendanna í heima-
vistum. Páll Lindal, formaður
Sambands íslenzkra sveitar-
félaga, setur ráðstefnuna, en
síðan flytur Magnús Torfi Ólafs-
son menntamálaráðherra ávarp.
Framsögumenn á ráðstefnunni
verða Ölafur Jónsson, formaður
Kvöldvaka
Norræna félagsins
í Kópavogi
NORRÆNA félagið i Kópavogi
efnir til kvöldvöku sunnudaginn
10. marz n.k., kl. 20.30, i félags-
heimili Kópavogs, annarri hæð.
Þar leika tveir nemendur úr
Tónlistarskóla Kópavogs menú-
etta eftir Telemann, þeirSigurð-
ur Ármannsson á flautu og Garð-
ar Rögnvaldsson á gítar. Minnzt
verður l'l hundrað ára afmælis
íslandsbyggðar með samfelldum
dagskrárþætti um fiskveiðar og
sjósókn hérlendis. Nefnist þáttur-
inn ,,Frá Éyrabakka og út i vog er
svo mældur vegur '* Bjarni Ólafs-
son menntaskólakennari hefur
tekið þáttinn saman. Tveir
norrænir vísnasöngvarar, Daninn
Sören Ejerskov og Finninn Sture
Ekholm, kynna norræna söngva
og leika auk þess fyrir fjöldasöng.
Að lokum verður sýnd kvikmynd
um sjósókn Íslendinga.
Kirkjukór
Akraness
í Kristkirkju
Akranesi — 7. marz
Á SUNNUDAGINN kemur mun
kirkjukór Akraness halda hljóm-
leika í Kristkirkju í Landakoti kl.
20.30. Á söngskránni verða verk
eftir J.S. Bach, Pergolesi og
Berlioz, Rossini og J. Gruger.
Einnig verða flutt verk eftir inn-
lenda höfunda, svo sem Björn
Jakobsson, dr. Pál ísólfsson og
Þorkel Sigurbjörnsson. Ein-
söngvari, með kórnum verður
Guðmundur Jónsson, Operu-
söngvari, en undirleik á orgel
annast Árni Arinbjarnarson.
Trompetleikararnir Jón Sigurðs-
son og Lárus Sveinsson munu
einnig aðstoða kórinn. Raddþjálf-
un kórsins í vetur hefur Einar
Sturluson óperusöngvari annast.
Söngstjóri kórsins er sem fyrr
hinn kunni organleikari Haukur
G uðlaugsson. — J úlíus.
firði, og á annar að vera héraðs-
læknir á Bildudal. Fyrst var
ákveðið að hann kæmi hingað
ánnan hvern dag, en svo varþeim
ferðum fækkað í eina á viku. Og
hingað kemur hann vikulega, ef
fært er og hann hefur ekki öðrum
störfum að sinna. Er heldur
ósennilegt að þéttbýlismenn
sættu sig við slíkt, enda er þetta
sannkallað hörmungarástand.
— Páll.
Barn^verndarráðs íslands, dr.
Björn Björnsson, formaður barna-
verndarnefndar Reykjavíkur,
Sigurjón Björnsson prófessor,
Magnús Sigurðsson, fv. skóla-
stjóri, Sveinn Ragnarsson félags-
málastjóri, Gunnar Guðmundsson
skólastjóri, Stefán Ólafur Jónsson
stjórnarráðsfulltrúi og Reynir G.
Karlsson æskulýðsfulltrúi.
Tvær konur
slösuðust
í árekstri
MJÖG harður árekstur varð milli
tveggja fólksbifreiða á Hafnar-
fjarðarveginum f Garðahreppi
laust fyrir miðnætti á miðviku-
dagskvöldið. Hafði önnur bifreið-
in farið yfir á öfugan vegarhelm-
ing og lenti beint framan á hinni.
Kona, sem ók annarri bifreiðinni,
hlaut rifbeinsbrot og skaddaðist á
lunga og liggur á gjörgæzludeild
Borgarspítalans, og kona, sem var
farþegi í hinni bifreiðinni, skarst
á hnjám. Ökumaður þeirrar bif-
reiðar slapp ómeiddur. Báðar bif-
reiðarnar skemmdust mjög
mikið.
Sæmilegur
rækjuafli
Bíldudal, 7. marz.
RÆKJUAFLI var hér sæmilegur
í febrúar. Var þá alls landað 84
lestum. 13 bátar stundu veiðarnar
að meira eða minna leyti. Vísir
var aflahæstur með tæplega 13
lestir, Jödís var með 10,5 ogHelgi
Magnússon með 9,7 lestir.
Bolfiski hefur ekki verið landað
hér, en fiski ekið hingað úr einum
báti, sem landar á Patreksfirði,
það er að segja, þegar fært er á
milii. Kemur ófærðin sér mjög
illa, og nú leið t.d. nær vika ámílli
þess, sem við fengum mjólk, en
henni er ekið frá Patreksfirði.
Bændur hér hafa nær alveg gefist
upp á búskap vegna þessara sam-
gönguerfiðleika. — Páll.
Naglabyssu og
skotum stolið
AÐFARARNÓTT fimmtudags
var brotizt inn i nýbyggíngu Sam-
vinnubankans við Bankastræti og
stolið naglabyssu með tilheyrandi
nöglum og skotum Einnig var
stolið hjólsög og ýmsum hand-
verkfærum.
Þá var einnig brotizt inn í rak-
arastofu á Hrísateig, en litlu
stolið, og í Knattborðsstofuna í
Einholti og stolið tóbaksvörum og
skiptimy nt.
Addis Ababa, 7. marz. NTB.
ALLT athafnalíf lamaðist i
Eþiópfu í dag, þegar 85.000
félagar í verkalýðsfélögum hófu
fyrsta al Isherjarverkfal lið í sögu
landsins. Margir, sem eru ekki í
verkalýðsfélögum, taka þátt í
verkfallinu.
Sovézkar
flugvélar
á Svalbarða
Ósló, 7. marz, NTB.
1 dag var undirritaður í Ösló
samningur milli Noregs og Sovét-
ríkjanna um afnot sovézkra far-
þegaflugvéla af Longyearflug-
vellinum áSvalbarða. 5—6 starfs-
menn sovézka flugfélagsins
Aeroflot verða á flugvel linum.
— Skattamál
Framhald af bls. 3
brúttótekjum. Þess ber að geta, að
svo undarlega vill til, að óhag-
kvæmast er að hafa árstekjur að
upphæð 550 þúsund krónur, því
að þar er heildarlækkun skatta
aðeins 9.100 krónur eða 1,7% af
brúttótekjum, en það hlutfall er
eins og menn sjá lægra en hlutfall
2ja milljón króna hjónanna.
Prósentuhlutfallið er frá 1,7 og
upp í 3,9 eftir árstekjum hjóna
með 2 börn og mælir hlutfallið
lækkun heildarskatta og eru þá
bornar saman tekjuskattslækkun
og söluskattshækkun. Hvernig
þetta fæst út, þegar söluskatts-
aukning er mæld 4 milljarðar og
tekjuskattslækkun aðeins 2,8
milljarðar er raunar ekki skýrt í
töflunni.
— Rafveitur
Framhald af bls. 2
Norðurlandi annars vegar og til
linutengingar suður hins vegar.
Síðari dagurinn snerist einkum
um fjármál, verðlagningu og
gjaldskrár. Gunnar Ólafsson, við-
skiptafræðingur, og Guðjón Guð-
mundsson ræddu um gjaldskrárn-
ar og möguleika á gerð staðal-
gjaldskrár. Síðan ræddu þeirEgg-
ert Jónsson borgarhagfræðingur
og Haukur Pálmason yfirverk-
fræðingur um viðhorfin í fjár-
málum rafveitna, þá fyrst og
fremst um afskipti hins opinbera
af verðlagningu raforkunnar, og
hvaða áhrif það hefur haft á fjár-
hagsstöðu rafveitnanna.
Lögregla varð að beita táragasi
til þess að dreifa hóp unglinga
fyrir framan heimili Endal-
katchew Makonnens forsætisráð-
herra. Viðar var efnt til mótmæla
gegn stjórninni. Hún lagði fram
sparnaðaráætlun i dag og lofaði
að endurskoða stefnuna i efna-
hagsmálum.
Diplómatar telja, að Haile
Selassie hafi nú glatað öllum
völdum sínum. Hann ók i dag um
götur Addis Ababa og dreifði pen-
ingum til fátækra.
— Ritskoðun
Framhald af bls. 40
ráðgjafanefndin um barnaefni
þetta verða að falla niður, en er
málið kom fyrir útvarpsráð
reyndust 3 útvarpsmenn sam-
þykkir henni, þeir Njörður P.
Njarðvík, Stefán Karlsson og
Stefán Júliusson, en aðrir þrír
vildu ekki fella sig við þá ritskoð
un. Þeir voru Magnús Þórðarson,
Valdimar Kristinsson og Tómas
Karlsson. Féll tillagan því á jöfn-
um atkvæðum og mun Katrín því
fá að koma og segja börnunum frá
Konsó, þar sem hún var lengi og
þekkir tiL
— Arabar
aðvara
Framhald af bls.l
október í fyrra ákváðu olíuríkin
að skrá önnur lönd ýmist sem
vinsamleg, hlutlaus eða óvinsam-
leg eftir afstöðu þeirra til
styrjaldaiinnar. Var þessi skrán-
ing ráðandi þegar ákveðið var
hver fengi að kaupa olíuna. Var
salan til óvinsamlegra rikja ýmist
takmörkuð, eða algjörlega stöðv-
uð, eins og gert var gagnvart Hol-
landi og Bandaríkjunum. Wilson-
stjórnin hefur enn ekki markað
stefnu sína gagnvart Mið-Austur
löndum. Samkvæmt yfirlýsingum
Verkamannaflokksins má þógera
ráð fyrir að Wilson-stjórnin reyni
að vera óhlutdræg í málinu, þ.e.
haldi sömu stefnu og fyrri rikis-
stjórn Wilsons á árunum 1964 —
70. Það var rikisstjórn Verka-
mannaf lokksins, sem sámdi álykt-
un 242 eftir styrjöldina 1967, en
sú ályktun varð undirstaða friðar-
samninganna. Ályktunin olli
síðar nokkrum ágreiningi, þvi
Wilson hefur oft lýst því yfir að
Bretar hafi alls ekki ætlazt til
þess að hún yrði túlkuð á þann
veg að ísraelar ættu skilyrðislaust
að skila aftur öllum herteknum
landsvæðum, en því halda full-
trúar Araba og kommúnistarikj-
anna fram.
— Bretland
Framhald af bls.l
unin verði til þess að verð á kol-
um hækki um 20%, en vegna
orkukreppunnar er kolaiðnaður-
inn vel samkeppnisfær, þótt rikis-
valdið verði að greiða uppbætur.
Enn er eftir að semja um kaup
rafvirkja, en önnur verkalýðs-
félög hafa tekið vel í tilmæli nýju
stjórnarinnar um að stilla kröfum
sinum i hóf og nota ekki launa-
hækkanir námamanna til stuðn-
ings kröfum sínum.
Tilboð stjórnarinnar var sam-
þykkt með 25 atkvæðum gegn 2 í
stjórn félags námaverkamanna.
Formaður félagsins, Joe Gormley,
kvaðst fagna samningunum þótt
námamenn hefðu ekki fengið ölL
um kröfum sinum framgengt.
Derek Ezra, formaður kolráðsins,
fagnaði einnig lausninni, en sagði
að einhver yrði að borga brúsann.
— Kissinger
Framhald af bls. 19
Hann kvað ósamræmi í því að
Bandarikin væru beðin um að
hafa fullt samráð við Evrópu í
NATO-málum jafnframt því sem
Efnahagsbandalagslöndin hæfu
viðræður við olíuframleiðslulönd-
in án samráðs við Bandaríkin. Ef
ekki tækist að tryggja samstöðu
yrðu Bandaríkin að hugleiða önn-
ur ráð.
— Sex ákærðir
Framhald af bls.l
er til að stefna forsetanum fyrir
alríkisdómstól.
Nixon forseti sagði á blaða-
mannafundi að hann hefði ekkert
á móti þvf að skýrslan og öll gögn
alrikisdómstólsins yrðu send laga-
nefndinni en John Sirica dómari
tekur lokaákvörðun um það.
Nixon kvaðst einnig fús að svara
skriflegum spurningum og veita
nefndinni viðtai.
Nixon sagði á fundinum að
hann hefði hafnað á fundi með
samstarfsmönnum þeirri hug-
mynd að sakborningar í Water-
gate-málinu fengju borgun fyrir
að þegja. Hann sagði að ef til vill
mætti túlka ummæli sín á segul-
bandi á annan veg, en hann
kvaðst vita hvað hann hefði átt
við.
Forsetinn kvaðst hafa verið
hlynntur þeirri hugmynd að birta
efni hljóðritananna, en komizt að
þeirri niðurstöðu að það gæti
hindrað það að hinir ákærðu
fengju þá vernd dómstóla sem
þeir ættu kröfu til.
,,Hins vegar er ég'viss um að
þegar öll kurl eru komin til grafar
verður fullkomlega ljóst að for-
setinn vissi ekki um málið
fyrirfram og að hann hafnaði hug-
myndum um mútur og loforð um
náðun, “ sagði Nixon forseti.
— Keppa um
3. sætið
Framhald af bls.39
taldir leikmenn markhæstir í
HM: Birtalan, Rúmeniu 28 mörk,
Sadoh, Japan 26 mörk, Klepe, Pól-
landi 20 mörk, G ainshow, A-Þýzka
landi 19 mörk, Axel Axelsson, Is-
landi 18 mörk, Jary, Tékkóslóv.
18 mörk og Peles, A-Þýzkalandi
18 mörk.
Lokastaðan í milliriðlunum var
þessi. Urslit úr fyrri leikjum lið-
anna í 16 liða keppninni gildir
áfram í milliriðlana:
A-riðill:
Rúmenía 3 3 0 0 58:38 6
Pólland 3 2 0 1 47:43 4
Tékkóslov. 3 1 0 2 47:43 2
Danmörk 3 0 0 3 32:50 0
B-riðill:
A-Þýzkal. 3 2 1 0 51:42 5
J úgóslavía 3 2 0 1 56:52 4
Sovétríkin 3 1 1 1 47:48 3
Ungverjal. 3 0 0 3 43:55 0
9.—12. sætið:
V-Þýzkal. 2 2 0 0 50:42 4
Svíþjóð 2 1 0 1 39:39 2
Búlgaría 2 1 0 1 42:43 2
J apan 2 0 0 2 46:53 0
Þingað um málefni
yngstu borgaranna