Morgunblaðið - 08.03.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974
5
Danir
gegnsíld
arkvóta
Briissel, 5. marz.NTB.
DANSKA stjórnin mun
leggja til á fundi Norðaust-
ur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar á mánudag
að sá kvóti sem Danir og
Færeyingar mega veiða af
síld í Norðursjó verði ekki
skorinn niður um 140.000
lestir á ári eins og nefndin
hefur lagt til.
Slíkur niðurskurður mundi
leiða til þess að síldveiðar Dana í
Norðursjó minnkuðu um helm-
ing. Danskir fiskimenn hafa lagzt
gegn hvers konar niðurskurði, en
danska fiskimálaráðuneytið mun
samþykkja niðurskurð á fund-
inum, þó miklu minni en þann
sem nefndin leggur tiL
Heimildir í Briissel herma að
Danir muni reyna að afla tillögu
sinni stuðnings á fundi EBE-land
anna á morgun, en vafasamt er að
það takist.
Afglöp
kostuðu
þúsundir
lífið
New York, 4. marz.NTB.
RÚMLEGA 100.000 manns dóu úr
hungri í þurrkunum f Vestur-
Afríku samkvæmt skýrslu friðar-
sjóðs Carnegies. Þar eru
Sameinuðu þjóðirnar og margar
ríkisstjórnir harðlega gagn-
rýndar fyrir skipulagsskort og
afglöp í hjálparstarfinu.
Bandaríkin, Sovétríkin og
Frakkland eru gagnrýnd fyrir
það að hafa ekki gert ráðstafanir í
tíma til þess að draga úr áhrifum
harmleiksins.
Sameinuðu þjóðirnar eru gagn-
rýndar fyrir , að togstreita í skrif-
stofubákni þeirra hafi valdið því,
að hjálparstarfið hafi ekki hafizt
nógu snemma.
Höfundar skýrslunnar segja, að
hægt hefði verið að bjarga lifi
margra barna ef þau hefðu verið
bólusett gegn mislingum í tíma.
Tamningamaður
fótbrotna^
Mælifelli 6. marz —
SÍÐASTLIÐINN laugardag varð
það óhapp heima undir bæ á
Starrastöðum á Fremribyggð, að
ungur foli, sem verið er að temja,
hrasaði í freðinni grasbrekku
með þeim afleiðingum, að tamn-
ingamaðurinn, Björn Sveinsson á
Varmalæk, fótbrotnaði illa á
hægra fæti, sem varð undir
hestinum, er rann nokkra metra i
brattanum.
Björn er aðeins 21 árs, en þó
þaulvanur hestamaður og hefur
mikið fengizt við tamningar með
föður sinum Sveini Jóhannssyni.
Björn liggur nú í sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki, þar sem gert var að
meiðslum hans.
— Sira Agúst.
Hljómtækjum
og gítar stolið
BROTIZT var inn í kjallaraher-
bergi í Hlíðunum aðfararnótt mið-
vikudags og stolið hljómburðar-
tækjum og gítar. Var þarna um að
ræða Dual-plötuspilara, tvo hátal-
ara og Hagström-gftar í kassa.
NV OFSALEG PLOTUSENDING
POSTSENDUM UM LAND ALLT
aTIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
•Ijp KARNABÆR
™ LÆKJARGOTU 2 LAUGAVEGI 20A LAUGAVEGI 66
MUNIÐ EFTIBI
ÚTSÖLUMARKAÐURINN.
AUSTURSTRÆTI 22
ÓTRÚLEGA GÖÐAR VÖRUR OD VERD
ÞETTA KOM
AF NYJUM VORUM I GÆR OG I DAG
DÖMUPEYSUR í OFSALEGU ÚRVALI — HERRAPEYSUR OG HERRA-
VESTI — HERRASKYRTUR — MJÖG FALLEGAR — SOKKAR í MJÖG
FJÖLBREYTTU ÚRVALI — UNDIRFÖT KVENNA — SPORTSOKKAR
— DUNIGAL-TWEED HERRAFÖT MEÐ VESTI — STAKIR DUNIGAL
TWEED HERRAJAKKAR — MJÖG FALLEGIR KÖFLÓTTIR STAKIR
HERRAJAKKAR — TVÍSTUNGIN HERRAFÖT MEÐ VESTI _______
FERMINGARFÖT — NÝ SENDING — BAGGY-BUXUR ÚR TVEED —
TERYLENE & ULL — BURSTUÐU DENIM OG FLAUELI — DUNIGAL
TWEED KVENJAKKAR — RIFFLAÐIR KVENFLAUELSJAKKAR —
KVENLEÐURJAKKAR — BOLIR
— BOLIR — BOLIR