Morgunblaðið - 08.03.1974, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974
LISTIR&LEIKHÚSSPJALL
Eftir
Arna Johnsen
Berrössun leikhúsanna
Kynlegt uppátæki að fara allt i
einu að berrassa leikara leikhús-
anna í borginni hvern i kapp við
annan. Það er meira hvað leik-
stjórar og höfundar tóku allt ieinu
við sér og sáu ástæðu til þess að
fækka fötum. Fyrr hefur nú mátt
gagn gera i túlkun með likömum
en tina þá úr hverri spjör. f þremur
verkum Islenzkra höfunda, sem nú
er veriðað sýna, eru þessi tilþrif,
þó án þess að nokkuð virðist I iggja
við.
Það er i sjálfu sér ekkert at-
hugavert við það að sjá fallega
likama nakta, en minna má nú
gagn gera. eða verðum við að éta
upp hverja einustu hugmynd
erlendisfrá til þess að geta talizt
menningarþjóð. Varla.
Fyrstu tilþrif in f vetur voru þau,
að karlleikari var látinn berrassast
i einu nýju verkanna og segir
sagan, að það haf i komið til vegna
rifríldis. Umrætt verk er Klukku-
strengir eftir Jökul, en það verk
skrifaði hann s.l. vetur fyrir Leik-
félag Akureyrar og var það sýnt
þar án þess að nokkur tæki upp á
þvi að afklæðast algjörlega. Sagt
er. að þegar verkið var i æfingu,
hafi spunnizt upp rauðsokkuhjal
og einhver hafi varpað þvi fram
svona út i bláinn, að það væri
einkennilegt, að oft væru konur
látnar vera hálfberar á sviði. en
karlmenn aldrei. Þar með var það
ákveðið að láta karlmanninn
ramba um á Adamsklæðunum og
getur þetta vel verið satt, þvi eng-
inn getur liklega sýnt fram á, að
leikritið sé betra fyrir bragðið
Þá þótti náttúrulega sjálfsagt i
næsta verki að láta konu striplast
soldið, þvi ekki má gera upp á
milli og er þó sú svívirða við höfð,
að konan getur að mestu hulið
leynda nekt sina i siðu hári sinu.
Nær þetta náttúrulega ekki
nokkurri meiningu.
Þá var röðin komin að Iðnó og
liklega hefði nú gamla góða Iðnó
NÚ virðist vera að rofa tili leiklist-
arskólamálum. SÁL, samtök
áhugafólks um leiklist, hefur rekið
skóla sinn af miklum dugnaði og
dirfsku og er sá skóli nú á öðrum
vetri. Þá hafa Þjóðleikhúsið og
Iðnó tekið höndum saman um að
setja á stofn leiklistarskóla, sem
alveg lifað það af að halda þræðin-
um strekktum i þessu efni. en ef
til vill er þetta atriði varðandi sókn
gesta á sýningar. Fólk almennt
hefur alltaf haft lunkið gaman af
að sjá það, sem það myndi ekki
sjálft viija gera á opinberum vett-
vangi, og ef til vill má f lokka þetta
undir eitthvað menningarlegt, en
eitthvað virðast nú leikhúsin þó
vera að ruglast i þessu. Það verð
ur gaman að sjá hver verður
berrassaður iJóniArasyni kannski
verða bara engin klæði notuð.
Sannleikurinn skal verða fram-
bærilegastur nakinn, bara að
menn snúi nú réttum enda fram.
aðstandendur vonast til að muni
áður en langt um liður verða ríkis-
leikl istarskól i og því hluti af hinu
opinbera menntakerfi landsins.
Vonandi tekur ríkisforsjáin við sér
fyrr en seinna í þessu efni, þvi
verkefnið er bæði verðugt og
brá ðn a uðsyn legt.
Rofar til í leik-
lis t arskólam álum
Fra Husavik
Gefið leiklist dreif-
býlisins meiri gaum
Leiklistaráhugi úti i dreifbýlinu,
eins og allt landið utan stór
Reykjavíkursvæðisins er nefnt, er
feikilega mikill og yfir vetrarmán-
uðina er hvarvetna úti á landi
veriðað æfa leikrit hjá áhugasöm-
um hópum dugmikils fólks. Alltaf
eru hin ýmsu félög þó i vandræð-
um með að fá sérmenntað leiklist-
arfólk og atvinnufólk til I iðs við
sig, þvi að það er allt bundið meira
og minna við leiklistarstörf i
Reykjavík. Á fjölmörgum stöðum
er nú verið að æfa alls kyns leikrit
og sums staðar fylgja leiklistar-
námskeið með. Á Húsavik t.d., eru
nú um 30 manns á leiklistar-
námskeiði hjá Benedikt Árnasyni
leikara og er þessi tala hærri en
þeiria, sem stunda leiklistarnám á
öl lu Reykjavikursvæðinu.
Auðvitað ættu leikhúsin, og þá
sérstaklega Þjóðleikhúsið, að taka
landið meira með i reikninginn en
gert er. Það er engan veginn hægt
að heimfæra það, að Þjóðleikhús-
ið sé eingöngu stofnað fyrir Stór-
Reykja vikursvæðið. Leikhúsin
reyna að visu að gera gott úr
hlutunum með þvi að senda eitt
og eitt leikrit um landið á sumrin,
en að sjálfsögðu ætti einnig að
vera ferðaleikhús á vetrum, ein-
mitt þegar beztur er timi fyrir
dreifbýlisfólkið að sinna slhum
hugðarefnum. Það er margt leik-
húsmenntað fólk, sem ekki er
bundið fast i leikhúsunum, en það
er þá bundið i annarrí vinnu og
getur ekki sinnt störfum i stutten
tima ieinu úti á landi.
Mörg félög hafa sýnt það, að
þau geta ósköp vel komizt af án
utanaðkomandi aðstoðar, en þeir
fjölmörgu, sem vilja fá sérmennt-
að leikhúsfólk til liðs við sig, ættu
að geta fengið úrlausn ef leikhús-
in i Reykjavik tækju slikt með í
reikninginn i upphafi hvers leik-
árs.
Leiklistarfólkið úti á landi hefur
sýnt, að það getur gert stóra hluti
í þágu Thaliu og það ætti að vera
metnaður þeirra, sem stjórna leik
listarmálum, að sinna þessu fólki
frekar en gert hefur verið Það er
stundum talað um, að það séu
bara áhugaleikarar, sem séu að
leika utan atvinnuleikhúsanna. og
það er alveg rétt, en þetta orð er
algjör óþarfi, þvi oft sýnir þetta
áhugafólk frábæra meðferð og
skilning i túlkun sinni á hinum
margvislegustu verkefnum. Þó að
það fáist ekki allt með skólalær-
dómi og liklega minnst þegar allt
kemur til alls, þá undirbúa
skólarnir stundum fólk til þess að
gera stóra hluti ef vel er á spöðun-
um haldið og vonandi eiga afskipti
þeirra, sem hafa mesta reynslu i
leiklistarmálum, eftirað aukast til
muna i framtiðinni gagnvart leik-
listarfólki úti á landsbyggðinni.
EINBÝLISHÚSALÓÐ — SELTJARNARNES Vil kaupa einbýlishúsalóð á Sel- tjarnarnesi. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Nes — 3364" I ÍBÚÐ ÓSKAST Roskin hjón vantar 3ja herb ibúð frá 1. mai n.k. Ekki i kjallara. Helzt i Vesturbænum, þó ekki skilyrði Upplýsingar i sima 21909
ATHUGIÐ Hjón með eitt barn utan af landi óska eftir ibúð á leigu í Reykjavik. Uppl í sima 93-221 5. TILSÖLU 3Vi ferm. ketill ásamt brennara Pottofnar og hitakútur, nýlegt Slmi 99-5626
TRILLA Óskum eftir að kaupa 2-—3 tonna trillu. Upplýsingar 1 sima 30103 eða tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „4886". HEIMASAUMUR Vanar saumakonur óskast 1 léttan saumaskap. — Tilboð merkt „Heimasaumur 3362" sendist Mbl.
TILSÖLU Commer sendibifreið, árg. 1 966. Verð kr. 20.000.-. Uppl. í síma 92-1728. KEFLAVÍK Afgreiðslustúlka óskast. Torg h.f., Vatnsnesveg 1 6. Sími 2674.
COLLIE-HVOLPUR 2ja mánaða Collie-hvolpur til sölu. Upplýsingar 1 sima 36528. SETUPP PÚOA ' Grenimel 23. Sími 1 501 3.
FORD MAVERICK 1971 Glæsilegur bill, 4ra dyra, powerst o.fl. til sölu. Samkomulag með greiðslu. Skipti koma til greina. Simi 16289. j&k ÞRR ER EITTHURfl FVRIR RLLR J |Hor0unbla2>ib
Tuttugu og fimm ára afmælis Krabbameinsfélags
Reykjavíkur verður minnst með fundi fyrir almenning
í Norræna-húsinu, föstudaginn 8. marz, kl. 5 síðdegis.
Ávörp og ræður verða fluttar. Komið og kynnist
störfum félagsins.
STJÓRN KRABBAMEINSFÉLAGS
REYKJAVÍKUR.
NÝ SENDING
Hudson
Sokkabuxur
Stærdir I, II, III, IV, V
Fyrirliggjandi í mörgum tískulitum
Heildsölubirgðir:
Davsð S. Jónsson & Co. hf.,
slmi 24-333