Morgunblaðið - 08.03.1974, Side 40

Morgunblaðið - 08.03.1974, Side 40
■öT KIR RUKR umsKiPTin SEm RUGLÚSR I iíloröimWíií>iitu FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974 micivsincRR ^^-«22480 Engin loðna BRÆLA var á miðunum sl. sólarhring og engin loðnu- veiði. Voru bátarnir yfir- leitt á leið inn með slatta, til að losa sig. Loðna sú sem veiddist á Breiða- firði í fyrradag og reyndist ein hin bezta seni aflast hefur á þess- ari vertið til frystingar er fiski- fræðingum töluverð ráðgáta. Þeir telja nær útilokað að hún hafi gengið allt í kringum land án þess að vera búin að hrygna og velta því nú fyrir sér hvort hún sé komin annars staðar að. Eru þá aðallega tvær kenningar uppi. Annars vegar er vitað að loðna er við austurströnd Grænlands — í krika út af Angmagsalik, en hins vegar hefur aldrei verið kannað hvert hún fari til hrygningar og nú er spurningin hvort henni skjóti nú upp í Breiðafirði. Hin kenningin er á þá leið, að þessi loðna hafi farið öfugan hring — vestur með Norðurlandi, fyrir Vestfirði og inn á Breiðafjörð. Myndina tók Snorri Snorrason af Gísla Arna RE á leið í Sundahöfn með full- fermi af loðnu. Viðey er í baksýn. TILRAUN TIL RITSKOÐUNAR A BARNAEFNI UM KRISTINDÓM Þotunni ferjufiogið á þremur hreyflum R/VNNSÓKN á þotu Loftleiða var haldið áfram í gær og fyrradag og er nú fullljóst að ekkert hefur skemmzt í vélinni nema hreyfill- inn. í fyrrinótt komu til landsins sérfræðingar frá Seaboard Air- ways, er annast viðgerðir og við- hald véla Loftleiða, til að lita á þotuna. Hefur nú verið ákveðið að ferjufljúga þotunni vestur um haf til Kennedyflugvallar, þar sem Seaboard Airways hefur bækistöðvar sínar. Fljúga verður vélinni á þremur hreyflum og þess vegna verður að biða mjög hagstæðs veðurs — bæði við flug- tak hér á Keflavíkurflugvelli og viðlendingu á Kennedyflugvelli. ÞRIGGJA manna ráðgefandi nefnd um barnatímaefni fyrir sjónvarpið gerði tilraun til að fella niður formála KatrínarGuð- laugsdóttur að stuttri sögu frá Konso, sem hún ætlar að flytja i harnatíma. En Katrín er kona Gísla Amkeissonar trúboða og hefur lengi búið í Konsó, þar sem nú ríkir mikil hungursneyð og verið að safna til hjálpar á vegum æskulýðs- og fórnarviku kirkj- unnar. En tilraun nefndarinnar til ritskoðunar var að engu gerð, þegar útvarpsráð felldi tillögu þess efnis á jöfnum atkvæðum. Ummælin, sem þessi nefnd ætlaði að fella niður voru svohl jóðandi: „Fyrir rúmum 20 árum var mikið myrkur heiðindóms og fá- fræði í Konso. Ekki einn kristinn maður, engin sjúkrahjálp eða skóli. Allir sem þarna bjuggu voru heiðingjar, sem aldrei höfðu heyrt um guð eða frelsarann, sem hann sendi, Jesú Krist. Meðan allt leikur í lyndi geta heiðingjarnir stundum verið glaðir, en strax og MORGUNBLAÐIÐ sneri sér tii Kristjáns Ragnarssonar formanns Landssambands ísl. útvegsmanna og spurði hann, hvort vitað væri, að margir Færeyingar kæmu á eitthvað kemur fyrir, leiðinlegt eða vont, þá eiga þeir ákaflega bágt. Svo þið skiljið þetta betur, ætla ég að segja ykkur sögu frá Konsó.“ Vegna þessara ummæla taldi Framhald á bls. 22 islenzka báta á vetrarvertíðinni. Kristján sagði, að alltaf kæmu einhverjir þaðan á báta hér og réðu sig þá fyrir milligöngu ann- arra landa sinna, sem þekktu is- lenzka útgerðarmenn, en ekki í gegnum LlU. LlU hefði leitað eftir upplýsingum um það í Fær- eyjum, hvort möguleikar yrðu á að ráða menn þaðan á íslenzka báta, en fengið þau svör, að sára- litlir möguleikar væru á því. Hingað kæmu þvi einungis fáir Færeyingar og þeir leystu í engu þann vanda, sem felst í skorti á sjómönnum á bátaflotann. Eldd þingmeiríhluti fyrir skatta- frumvarpi ríkisstjómarinnar FAIR FÆREYINGAR KOMA Á ÍSL. BÁTA Gunnar Thoroddsen lýsti þvi yfir fyrir hönd þingflokks Sjálf- stæðisflokksins á fundi neðri deildar í gær, að Sjálfstæðisflokk- urinn myndi ekkí styðja fyrirætl- anir nkisstjórnarinnar að hækka söluskattinn um 5%. Sams konar yfirlýsingu gaf Gylfi Þ. Gislason formaður Al- þýðuflokksins, hvað sinn flokk varðaði. Sagði hann Alþýðuflokk- inn þó vera tilbúinn að fallast á 3‘A% hækkun söluskattsins. Bjarni Guðnason þingmaður Frjálslynda flokksins lýsti því yfir I útvarpsviðtali í gærkvöldi, að hann myndi ekki heldur styðja áform ríkisstjórnarinnar um hækkun siiluskatts. Gunnæ- Thoroddsen benti í ræðu sinni í fyrsta lagi á, að nú væri rétt að þingið næði sam- komulagi um að skera niður rikis- útgjöld yfírstandandi árs um t.d. l'i milljarð til að vega upp ámóti þeirri lækkun.tekjuskattsins, sem í frumvarpi ríkisstjórnarinnar felst. I annan stað yrði nú að endurmeta tekjuáætlun fjár- laganna, en fyrir lægi að tekju- áætlunin hefði hækkað mjög frá þeim grundvelli, sem þá var mið- að við. Taldi hann ekki ólíklegt, að tekjurnar mundu hækka um allt að 3 milljarða miðað við for- sendur nú. Eftir að þingmenn hefðu fengið að sjá þetta væri fyrst ástæða til að taka afstöðu til þess, hvort hækka þyrfti óbeina skatta og þá hve mikið. Gylfi Þ. Gíslason taldi óheimílt að miða kerfisbreytíngu á skatt- heimtu við afgang yfirstandandi árs, hvað tekjuöf lunina með hækkuðum söluskatti snerti. Þeg- ar slík kerfisbreyting væri gerð bæri að míða við ársgrundvöil. Væri niðurstaða þeitra Alþýðu- flokksmanna um 3‘/i% söluskatt byggð á upplýsingum i greinar- gerð með frumvarpi ríkisstjórn- arinnar, þar sem segði, að 1% söluskattstig myndi gefa 800 milljónir i tekjur á ársgrundvelli. Yrði tekjutapinu þvi mætt með 314% söluskattshækkun, sem gæfi 2,8 milljarða á ársgrundvelli. Sér- staklega yrði að leggja fram til- lögur til að bjarga greiðslugetu rikissjóðs á yfirstandandi ári. Slíku mætti ekki blanda inn í ráðagerðir um varanlega kerfis- breytingu á skattheimtu. Bjarni Guðnason staðfesti í við- tali við Morgunblaðið, að hann myndi ekki styðja frumvarpið. Hefði hann lengi barizt við að lækka þennan níðþunga tekju- skatt.og talið þá eina leið færa, að lækka ríkisútgjöldin. Þó þau yrðu ekki lækkuð nema um 5%, þá væri þar um að ræða 1!4 milljarð. Þá sagði Bjarni, að nkjandi verð- bólguástand mælti einnig með þessari niðurstöðu sinni. 5 sölu- skattstig væru auknar álögur á fólkið og fælu í sér meiri álögur en tekjuskattslækkuninni næmi. Hann styddi því ekki söluskatts- hækkunina, heldur teldi hana uppgjöf í efnahagsmálum. Að fengnum þessum upplýsing- um er Ijóst, að ríkisstjórnin hefur ekki meirihluta fyrírþessu máli í óbreyttu formi i neðri deildþings- ins. Hefur fjármálaráðherra lýst því yfir opinberlega, að rfkis- stjórnin hyggist ekki breyta frum- varpinu — frekar láta fella það i þinginu. Jafnframt hefur hann sagt, að ríkisstjórnin muni sitja áfram, jafnvel þó svo fari. Sjá nánari frásögn af þessum umræðum i þinginu á þingsíðu blaðsins i dag, bls. 19. Enn kyrrstaða í mjölsölunni ENGIN hreyfing er á mjöl- sölu héðan um þessar mund- ir. Erlendir kaupendur halda enn að sér höndum. Ansjósuvei ðar Perúmanna hófust 4. marz sl. og munu þeir hafa fengið rúm 30 þús- und tonn eftir fyrsta daginn. Hins vegar er ekki enn vitað um framvindu þessara veiða og hvort þær eiga eftir að hafa mikil áhrif á hinn al- þjóðlega mjölmarkað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.