Morgunblaðið - 18.05.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAI 1974
31
Skemmtun á vegum
Langholtssafnaðar
Langholtssöfnuður efnir til
skemmtunar með happdrætti til
ágóða fyrir kirkjubyggingu safn-
aðarins, sem nú er hafin. Verður
skemmtunin haldin að Hótel
Sögu, Súlnasal, sunnudagskvöld.
Á skemmtuninni verður m.a.
danssýning, tízkusýning og Ömar
Ragnarsson heldur uppi gaman-
málum. Milli atriða syngja félagar
— Gengislækkun
Framhald af bls. 1
minna gagnvart ýmsum öðrum er-
lendum gjaldmiðlum, sem farið
hafa hækkandi að undanförnu.
I tilkynningu Seðlabankans
segir, að ástæðan fyrir þessari
breytingu sé fyrst og fremst sú, að
afkoma ýmissa greina sjávarút-
vegs og útflutningsiðnaðar hafi
farið versnandi að undanförnu,
bæðivegnahækkandi tilkostnaðar
og verðbreytinga erlendis. I opin-
berum umræðum að undanförnu
hafi það komið fram hvað eftir
annað, að einn iiður í nauðsynleg-
um aðgerðum til að leysa þennan
vanda ætti að vera að láta gengi
krónunnar síga niður á við. Þetta
hafi skapað óvissuástand um
gengi krónunnar, sem síðan virð-
ist hafa ýtt urrdir spákaup-
mennsku og aukna gjaldeyrissölu.
Af hálfu Seðlabankans hafi því
verið taiið heppilegra að láta
gengið nú breytast i einum
áfanga um það, sem talið sé hæfi-
legt við núverandi aðstæður með
tilliti til hagsmuna útflutnings-
framleiðslunnar. Þessi breyting
eigi að gera kleyft að halda meðal-
gengi krónunnar nokkurn veginn
stöðugu á næstunni að öllu
óbreyttu.
Niðurgreiðslur
Ríkisstjórnin hefur nú tekið
upp stórfelldar niðurgreiðslur á
ýmsum landbúnaðarvörum í þvi
skyni að lækka vöruverðið um
skeið. Verðlækkunin nemur frá
30% og er hækkun þessara niður-
greiðslna igildi 8 stiga hækkunar
á kaupgjaldsvisitölu. Miðað við að
hvert vísitölustig samsvarar um
250—70 milljónum króna, koma
þessar niðurgreiðslur til með að
kosta rikissjöð yfir tvo milljarða
króna á ársgrundvelli. Hið nýja
verð á landbúnaðarafurðum kem-
ur til framkvæmda nk. mánudag.
t fréttatilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu segir, að
ríkisstjórnin hafi í samræmi við
stefnu sína um viðnám gegn verð-
bólgu ákveðið að lækka verð á
brýnustu nauðsynjavörum með
niðurgreiðslum á verði þeirra. I
þessu markmiði verði auknar
niðurgreiðslur á verði mjólkur,
kindakjöts, rjóma, skyrs, smjörs,
osta og kartaflna. Hækkun niður-
greiðslnanna, sem hér um ræðir,
sé ígildi 8 vfsitölustiga, eins og
áður kemur fram.
Hjá framleiðsluráði land-
búnaðarins fékk Morgunblaðið
þær upplýsingar, að útsöluverðs-
lækkunin nái til allra þeirra vara.
sem greiddar hafi verið niður upp
á síðkastið en verð á öðrum vör-
um sem ekki hafi notið slíks, hald-
ist óbreytt.
Sem'dæmi um verðbreytingarn-
ar má nefna, að 2ja lítra mjólkur-
fernan, sem kostar nú kr. 66.50,
lækkar um 14.90 i 41.60 kr. og er
lækkunin 37,4%;kvartlítrahyrna
af rjóma, sem kostar nú 66.70 kr.,
lækkar um 17.60 í kr. 49 eða um
26,5%; skyrið, sem kostar 73 kr.
kílóið, lækkar um 24.60 kr. í 48.40
eða um 33,7%. Smjörið lækkar
um 56,9% eða um 200 krónur úr
464 kr. í 264 krónur.
Sem dæmi um lækkun kjötvara
má nefna, að súpukjötið (fram-
partar úr siðu), sem kostað hefur
300 kr. kilóið, lækkar um 117
krónur og mun kosta 183 krónur.
Lækkunin nemur 39%. Læri
lækka um 25,6% kilóið — þau
kosta nú 337 krónur en munu
kosta 217 kr. svo að lækkunin
nemur 120 krónum. Kótelettur
hafa kostað 380 kr. kilóið, en
munu kosta 257 krónur. Lækkun-
in er því 123 krónur eða um
32,3%. Loks lækkar 1. flokkur af
kartöflum um kr. 20,60 eða um
56,6% en annar flokkurinn um
69,6% kílóið miðað við 5 kg. poka.
Innflutningshömlur
Viðskiptaráðuneytið hefur i
úr kirkjukór safnaðarins. Meðal
vinninga í happdrættinu, sem alls
eru 20, verður flugferð til Kaup-
mannahafnar og til baka. Verð-
mæti vinninganna nemur tugum
þúsunda króna.
Kynnar á skemmtuninni verða
Hannes Hafstein, safnaðarfull-
trúi, og Ölafur Örn Árnason, for-
maður sóknarnefndar. Skemmt-
unin er öllum opin.
samráði við Seðlabankann
ákveðið að taka upp 90 daga bind-
ingu á fé til gjaldeyriskaupa
vegna vöruinnflutnings. Inn-
borgunin nemur 25% af fjárupp-
hæðinni, sem varið er til vöru-
kaupanna. Nokkrir vöruflokkar
eru þó undanþegnir bindingu á
innborgunarfé.
I auglýsingu frá ofangreindum
aðilum segir, að við gjaldeyris-
kaup eða innlausn skjala í banka
gegn vixli eða öðru skuldaskjali,
beri að greiða innborgunarfé til
banka, samkvæmt þessum regl-
um.
í fyrsta innborgunarhlutfall sé
25% af innlausnarverði vöru-
skjala (gjaldeyriskaupum) og
skal féð bundið á reikningi í
bankanum I 90 daga eins og áður
kemur fram. Eftirfarandi vörur
eru þó undanþegnar innborgun
undir þessum liði; Mikilvæg hrá-
efni til iðnaðar, kornvörur og
fóðurvörur, kaffi, sykur, te, kakó,
matarsalt, kol, salt, olía, bensín,
gas, veiðarfæri, nauðsynlegar
umbúðir um útflutningsvörur og
efni til þeirra, áburður og
grasfræ, vörur til lækninga og
dagblaðapappír.
I öðru lagi nær þetta til inn-
flutnings án bankaábyrgðar en
með erlendum gjaldfresti, og er
innborgunin 25% af öllum öðrum
vörum en þeim, sem hér að
framan voru taldar. Þessi borgun
skal bundin á meðan greiðslu-
frestur stendur, en þó ekki
skemur en 90 daga. í þriðja lagi
ná þessar reglur til innflutnings
með bankaábyrgð, með eða án
greiðslufrests, og er innborgunin
þá bundin á reikningi gildistíma
ábyrgðar (að meðtöldum greiðslu-
fresti, sé um hann að ræða). Sé
hins vegar ábyrgð greidd áður en
90 dagar eru liðnir, skal haldið
eftir 25% innlausnarverðs til loka
þess tíma.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
hefur Verzlunarrað Islands ekki
verið látið fylgjast með þessum
málum, enda þótt farið hafi verið
fram á slíkt. Hins vegar er ljóst,
að þessi innborgun mun gera inn-
flutnings- og verzlunarfyrir-
tækjum mjög erfitt fyrir, enda
jafngildir hún því, að þjónusta að
óbreyttu fjármagni minnkar sem
þessu nemur, allir lagerar og allt
vöruframboð hlýtur að dragast
saman. Að þessu viðh ttu mun
Seðlabankinn hafa ákveðið að
draga úr lánum til verzlunar,
meira en til annarra atvinnu-
greina, sem einnig hlýtur að
stuðla að frekari samdrætti á
vöruframboði.
— SIS
Framhald af bls. 3
útflutningsgjaldinu að gera
sjóðnum kleyft að kaupa góða
gripi, sem annars yrðu seidir úr
landi.
Utflytjendur eiga að standa
skil á gjaldinu, en þeir hafa
færzt undan því. Ráðuneytið
hefur átt viðræður við SlS og
aðra aðila um málið, og sagði
Sveinbjörn, að sætzt hefði verið
á, að innheimta yrði miðuð við
slðustu áramót, og sleppa
því útflytjendurnir alveg við að
greiða gjöldin fyrir árið 1973.
Búnaðarfélag Islands innheimt-
ir gjöldin.
Ferming í
Oddakirkju
sunnud. 19. maí 1974, (kl.2 e.h.)
Nöfn fermingarbarna:
Auðbjörg Jónína Sigurðardóttir,
Vetleifsholti, Asahr., Rang.
Iris Björk Sigurðardóttir, Utskál-
um 7, Hellu, Rang.
Jóna Bjarnrún Arnadóttir, Hellu-
víði, Rangárvallahr.
Ragnheiður Guðný Sumarliða-
dóttir, Heiðvangi 6, Hellu, Rang.
Ragnheiður Hanna Sigurkarls-
dóttir, Hólavangi 3, Hellu, Rang.
Unnur Sveinsdóttir, Uxahrygg 2,
Rangárvailahr.
— Glistrup
Framhald af bls. 1
hefur komið I gegn, en í þeim
felast mjög miklar skattahækkan-
ir á lúxusvörum af ýmsu tagi og
milljarðarkróna niðurskurður á
ýmsum þáttum félagsaðstoðar. En
einnig kemur hér til hið almenna
pólitíska óánægjuástand í land-
inu, sem kristallaðist I miklum
stuðningi við öfgaflokka til hægri
og vinstri í kosningunum í desem-
ber í fyrra.
Meðal þeirra var Mogens
Glistrup og Framfaraflokkur
hans, sem í raun voru sigur-
vegarar kosninganna. Glistrup
varð fyrst landsfrægur árið 1971
þegar hann skýrði frá þvi hinn
borubrattasti, að hann greiddi
alls engan tekjuskatt, þrátt fyrir,
að hann hefði efni á mjög mikilli
einkaneyzlu. Lögreglan hóf fljót-
lega rannsókn á skattamálum
Glistrups, en hann lagði salla-
rólegur grundvöllinn að fiokki
sínum og leiddi hann inni í kosn-
ingabaráttuna 1973, þrátt fyrir
það, að opinberum ásökunum um
gróf lagabrot rigndi yfir hann.
Persónuleiki hans og blönduð
stefnuskrá stjórnleysis og ihalds-
semi höfðu aðdráttarafl ' fyrir
kjósendur og nú er flokkur hans
sá næst stærsti á þjóðþinginu.
Flokkurinn berst m.a. fyrir
afnámi tekjuskatts og næstum
allra opinberra stofnana. Eftir
um það bil mánaðardvöl I þinginu
klofnaði flokkurinn, þar eð einn
af þingmönnum hans dró sig út úr
og stofnaði eigin flokk.
HLEGARÐUR
Júdas
skemmta í kvöld.
Sætaferðir frá B.S.I. kl. 9 og 10.
HLJOMSVEIT HALLA
BJARNA LEIKUR TIL KL 2
FESTI GRINDAVIK
Laugardagskvöld
Ungó — Keflavík
Haukar skemmta
Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 9.30.
Ungmennafélag Grindavíkur.
HLJÓMAR
LEIKA íKVÖLD FRÁ KL. 10—2.
Sjálfboöalifear
á k jórdag
D-listan vantar fólk til margvislegra sjálfboðastarfa á
kjördag. Sérstaklega vantar fólk til starfa sem fulltrú-
ar listans i kjördeildum auk margvislegra annarra
starfa.
Þeir sem vilja leggja D listanum lið með starfskröftum
sinum á kjördag, 26. mai næstkomandi, hringi vin-
samlegast i sima: 84794.
Skráning sjálfboðaliða fer einnig fram á skrifstofum
hverfafélaganna
] l l-lisfinn