Morgunblaðið - 26.06.1974, Side 20

Morgunblaðið - 26.06.1974, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JUNl 1974 19 □ Blaðamenn Morgunblaðsins fóru um Vestur- landskjördæmi um síðustu helgi og hittu þar að máli frambjóðendur sjálfstæðismanna, bændur og búalið, sjómenn, iðnaðar- menn og aðra, sem byggja þennan landshluta. Við ræddum við þetta fólk um landsmál- in, byggðamálin og atvinnumálin og bar að sama brunni hjá flest- um, fólki er heitt í hamsi vegna ástandsins í stjórn- málum þjóðar- innar, óvissunnar og stjórnleysins, sem hefur ríkt í einu og öllu hjá vinstri stjórninni. Hér fara viðtölin á eftir: TEXTI OG MYNDIR: ÁRNI JOHNSEN OG PÉTUR EIRÍKSSON „Nauðsynlegt að færa út í 200 mílur fyrir árslok 1974” Rætt við Jón Árnason, I. mann á lista Sjálfstæðisflokksins JÖN ARNASON, fyrrverandi al- þingismaður, er fæddur á Akra- nesi 15. janúar 1909. Hann var fyrst kjörinn á þing 1959. Hann er kvæntur Ragnheiði Þðrðardðtt- ur og eiga þau 4 börn. Mbl. byrjaði á þvf að spyrja Jðn, hvaða þýðingu þessar kosn- ingar hefðu fyrir landhelgismál- ið. Ut af fyrir sig hafa þær ekki mikla þýðingu fyrir niðurstöðu málsins. Stefnan er þegar ráðin. Nú talar enginn um 50 milur, heldur 200. Eins og nú liggur fyr- ir, eru fiskistofnarnir í hættu, og þvi er nauðsynlegt að láta koma til framkvæmda tillögu Sjálfstæð- ismanna um að færa út í 200 míl- ur fyrir árslok 1974. Ef eitthvað er varhugavert í sambandi við landhelgismálið, þá er það yfirlýsing stjórnarsinna, að í dag sé ekki tfmabært að taka ákvörðun um, hvenær fiskveiði- lögsagan verði færð út í 200 míl- ur. Þá tel ég það mjög hættulegt, hvað sjávarútvegsráðherra og stjórnarflokkarnir hafa verið hik andi í friðun uppeldisstöðva ung- fisks en það getur haft hinar al- varlegustu afleiðingar. Hvað um þá fullyrðingu, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið dragbýtur á útfærsluna f 50 mfl- ur? Hún er algjörlega tilhæfulaus, enda samþykkti Alþingi einróma þá ákvörðun og lýsti yfir, að samningarnir við Breta hefðu þegar þjónað tilgangi sínum og væru því úr gildi fallnir. Hitt er svo annað mál, að við vildum ganga lengra og færa út lögsögun yfir landgrunnið allt, sem sagt allt að 70 mílum, auk þess sem stjórnarliðar deildu hart á okkur fyrir, að við sáum ekki ástæðu til að ákveða útfærslu 1. september, þar sem að við töldum, að e.t.v. þyrfti að færa út fyrr. Vanrækti viðreisnarstjórnin ekki uppbyggingu togaraflotans? Sjávarútvegur hefur alltaf mark- azt af ytri aðstæðum. Þannig var þróunin á fyrri hluta áratugarins 1960—70 í þá átt, að fiskibátaflot- inn var endurnýjaður og stórauk- inn, auk þess sem á sama tfma var ráðizt í að byggja stórvirkar fiski- mjölsverksmiðjur. Það er þessi uppbygging síldveiðiflotans ásamt verksmiðjunum og þeim viðbótarflota, sem byggður hefur verið síðan, sem hefur verið uppi- staðan f að hagnýta hinn mikla loðnuafla síðari ára. Um uppbyggingu togaraflotans er það að segja, að á þeim tíma, sem síldaraflinn var sem mestur, þá er það staðreynd, að útgerð togara og framboð sjómanna til að stunda þann atvinnuveg fór stöð- ugt minnkandi. Hitt er svo annað mál, að eftir að síldarstofninn hafði gengið til þurrðar, var á ný lögð áherzla á að byggja ný og stærri togskip en áður hafði átt sér stað. Eins og kunnugt er hafði viðreisnarstjórnin samið um kaup eða smíði 16 nýrra skuttogara, sem dreifðust út um landsbyggð- ina. Það er vissulega ánægjulegt fyrir íslendinga sem eina fremstu fiskveiðiþjóð heims að eiga full- komin fiskiskip. Hitt er alvar- legra fyrir þjóðina, þegar stjórn landsins er þannig farið, að þessi afkastamiklu atvinnutæki hafa ekki rekstrargrundvöll vegna óða- verðbólgu og óstjórnar í efna- hagsmálum. Samkvæmt upplýs- ingum efnahagssérfræðinga ríkis- stjórnarinnar er nú talið, að tap nýju skuttogaranna verði ekki undir 8—14 milljónum króna. Það segir sig sjálft, að hér er um mikið vandamál að ræða og það kemur í hlut þeirrar ríkisstjórn- ar, sem tekur við að treysta grundvöllinn og tryggja áfram- haldandi rekstur. En hvernig er ástand frystiiðn- aðarins? Frystihúsin hafa undanfarið verið langstórvirkustu atvinnu- tækin í landi. A meðan söluverð í markaðslöndunum fór jafnt og þétt hækkandi, eins og átti sér stað ’71—’73, reyndust þessi fyrir- tæki fær um að mæta þeim kostn- aðarauka, sem leiddi af þeirri verðbólgu, sem þá var um að ræða. Nú hefur það hins vegar átt sér stað, um leið og sala á frystum fiski hefur stöðvazt eða söluverð farið lækkandi, að frystihúsin lenda strax í vandræðum vegna óstjórnar, sem nú er á efnahags- málum þjóðarinnar. Það er þegar sýnilegt, að ef ekki koma til að- gerðir til að treysta rekstur frysti- húsana hlýtur til þess að koma fyrr eða síðar að þessi þýðingar- mikli atvinnuvegur stöðvist. Hraðfrystiiðnaðurinn hefur ekki komizt hjá því að undan- förnu að leggja í fjárfrekar fram- kvæmdir, sérstaklega með tilliti til nýrra laga um hollustuhætti hjá aðalviðskiptaþjóð okkar, Bandaríkjunum, en koma til framkvæmda innan skamms. Um þessar framkvæmdir og kostnað þeirra hafa verið gerðar nákvæm- ar áætlanir og yfirlýsing stjórn- valda um útvegun lánsfjár til framkvæmdana liggur fyrir. En það er staðreynd, að þessi fyrir- heit um fjármögnun framkvæmd- anna er mjög vanefnd og því eiga frystihúsin í miklum erfiðleikum með þessar framkvæmdir. Hvaða mál ber að leggja mesta áherzlu á f Vesturlandskjör- dæmi? Eitt þeirra mála, sem ég álft að Jón Arnason beri að leggja höfuðáherzlu á, er hagnýting þeirra orkulinda, sem fyrir hendi eru í kjördæminu. Landshlutaveitur og virkjanir eiga að vera sjálfstæðar einingar f eigu heimamanna, en með þátt- töku rikissjóðs, þannig að þær verði ekki undir miðstjórnarvald- inu í Reykjavík. Fyrir Vesturland er Andakflsárvirkjun traustur og öruggur kjarni til að byggja á frekari framkvæmdir í raforku- málum. Jarðhitinn er sá mála- flokkur, sem að mínum dómi á að hafa forgang við útvegun fjár- magns, og gera þarf allt, sem unnt er, til að flýta uppbyggingu hita- veitu, þar sem það má teljast hag- kvæmt. Þá er fátt ákjósanlegra fyrir hinar dreyfðu byggðir en að sam- göngumál séu í góðu lagi. Það þarf því að hyggja betur að þeim, þar sem fjármagn, sem veitt hef- ur verið til þeirra, hefur étizt upp í verðbólgunni. „Við stjórnvölinn vantar menn með reynslu” Rabbað við Þórð Oskarsson útgerðarmann á Akranesi ÞÓRÐUR Óskarsson útgerðar- maður á Akranesi hafði ákveðnar skoðanir á stöðunni I stjórnmál- um þjóðarinnar f dag, og hann var þungorður, enda einn af þeim mönnum, sem á nú f vök að verj- ast með atvinnurekstur sinn þrátt fyrir einstætt góðæri til lands og sjávar sfðustu ár. „Stóra málið er,“ sagði hann, „að ef ekkert verður að gert á næstunni, stöðvast bátaflotinn og fyrirtækin. Það er ömurlegt að þetta er að gerast í kjölfar hreinna góðæra eins og hafa verið undanfarin ár. Staðreyndin er sú, finnst mér, að þjóðarbúið er eins og hvert annað heimili eða fjöl- skylda. S.l. 3 ár hefur þetta verið þannig, að tekjur hafa aukizt um allt að helming á ári, með að vfsu aukinni vinnu, en sarot sem áður hefur þetta fjármagn ikki dugað heimilinu og skuldir safnazt. Hvaða álit hafa menn á heimili, sem þannig er stjörnað? Við stjórnvölinn í ríkisstjórn Is- lands vantar menn, sem hafa reynslu af rekstri. Mér finnst það skipta öliu máli að slíkir menn taki við þessu. Geir Hallgrímsson vil ég nefna í þessu sambandi. Geir hefur stjórnað næst stærsta fyrirtæki á Islandi, Reykjavfk, með svo miklum ágæt- um, að andstæðingar hans gátu ekki komið á hann einu höggi, og mér finnst því alveg tilvalið að fela honum stjórn stærsta fyrir- tækisins, þjóðarbúsins. Það væri hægt að tala langt mál um stöðuna hjá þjóðarbúinu, en staðreyndin er sú f stuttu máli, að það hefur verið úthlutað á undan- förnum árum því sem er ekki til og aldrei hefur vitleysan og austurinn verið meiri en að undanförnu. Ef það væri mögu- legt að hafa þetta svona væri ekki við nein vandræði að etja, en allir landsmenn vita, að verið er að slá vandanum á frest að sið þeirra, sem litla stjórnvizku hafa. Sjávar- útvegurinn og útflutningsfram- leiðslan þola verst þessa óðaverð- bólgu innanlands en allt fer eftir því hvort þessir atvinnuvegir geti gengið eðlilega fyrir sig. Það er alveg á hreinu, að það, sem út- flutningsvegirnir þarfnast, er ákveðin og traust fjármálastjórn f landinu. Eg held, að allir hugsandi menn sjái, að þetta getur ekki gengið svona áfram og að það þýðir ekk- ert að vera að berja hausnum lengur við steininn. Fyrir nokkru þegar hag- rannsóknastjóri ríkisins birti skýrslu sína um væntanlegt ástand f efnahagsmálum og blöð fóru að ræða um að stórlega vantaði fjármagn í hina ýmsu sjóði til þess að þeir gætu staðið við skuldbindingar sínar, komu strax feitletraðar fyrirsagnir í blöðum stjórnarsinna um að alls staðar væri fullt af peningum og ekkert minna en hefði verið. Allir vita þó, að það er rétt það, sem hagrannsóknastjóri segir um sjóði, sem eru að tæmast og margs konar efnahagsvanda framundan. öllu venjulegu fólki finnst þessi málflutningur undarleg pólitfk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.