Morgunblaðið - 28.08.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. AGUST 1974
21
fclk f
fréttum
Frelsisengillinn Biggs yngri
Við sögðum frá þvf hér í
þessum dálki nýlega, að lestar-
ræninginn Ronald Biggs hefði
orðið faðir um miðjan ágúst.
Dreng þennan átti hann með
brasilískri stúlku, og því geta
þarlend yfirvöld ekki framselt
hann brezkum lögreglumönn-
um, sem bfða hans eins og
hungraðir úlfar. Nú hefur okk-
ur borizt mynd af þessum frels-
isengli Biggs. Myndin er tekin í
Rio de Janeiro, þar sem móðir
og sonur dvelja nú.
ASTIR SAMLYNDRA
HJÓNA
Vel er fylgzt með öllu athæfi
bandarísku forsetahjónanna
þessa dagana. Fregnir frá
Washington herma nú, að Betty
Ford sé hæstánægð með svefn-
svítu Hvíta hússins, þar sem
fyrirrennarar Ford-hjónanna
hafa gengið á vit Óla lokbrár
allt frá því að Hvíta húsið var
tekið til sinna virðulegu nota.
Svefnsvítan er f frönskum stíl
og samanstendur þannig af
tveimur samliggjandi svefn-
herbergjum. Þrátt fyrir ánægju
sfna með svítuna vill frú Ford
ekki lúta þeim næturaðskilnaði
sem þessi skipan bfður upp á:
„Við Jerry höfum deilt saman
rúmi síðustu 25 árin,“ segir
Betty ákveðin, „og við munum
ekki breyta út af því úr því sem
komið er.“ Þessi skipan kemur
sér þó vel, því að Betty segir, að
nú geti Jerry notað það sem
klæðaherbergi. „Arum saman
hef ég reynt að sofa meðan
Jerry klæðist. Eftirleiðis þarf
hann ekki að tipla á tánum af
tillitssemi við mig.“
Sömu heimildir segja einnig,
að Susan, 17 ára dóttir Ford-
hjónanna, ætli ekki að hætta
barnapössun fyrir starfsmenn
þingsins þrátt fyrir upphefð-
ina, sem er samfara því að
verða heimilisfastur í Hvita
húsinu. „Og ég mun ekki hætta
að vera í gallabuxum," segir
Sussan.
Rússa-
pukur
Rússar eru til alls vfsir eins
og lesendur þessa blaðs vita.
Nú hafa ónafngreindir vfsinda-
menn f Lenfngrad tekið sig til
og vfxlað saman næpu og káli.
Rætur þessarar urtar munu
bragðast og Ifta út eins og
rætur næpunnar, en blöð
hennar eru safarík eins og kál-
blöð og hlaðin C-vftamíni.
Fréttaskýrendur hljóta að
velta þvf fyrir sér, hvort Kreml
muni ekki strfðala hermenn
sfna á þessari urt og þar af
leiðandi hvort stálhraustir her-
menn Sovétrfkjanna séu ekki
ógnun við valdajafnvægið f
heiminum. Nú er aðeins spurn-
ing, hvort Bandarfkin eiga mót-
leik við þessu næpulega káli
Rússanna.
Gefur nöfn
í höfuðið
á vinum,
ekki
ættingjum
Kanadfski leikarinn Donald
Sutherland, sem er 39 ára gam-
all, varð nýlega faðir i þriðja
sinn. Og eins og fyrri daginn
var hann ekkert að hugsa um
ættingjana, þegar kom að því
að gefa syninum nafn heldur
var hann skfrður eftir vinum
Donalds, og hlaut nafnið Roeg
Jacob Joe Gould Bernard
Recette Sutherland, svo einfalt
var nú það.
Og ef við spáum aðeins nánar
í þessi nöfn, er Roeg komið frá
leikstjóranum Nicholas Roeg,
Gould er að sjálfsögðu komið
frá stórvininum Elliot Gould,
sem lék með Donald í MARSH,
og Recette er komið frá
Francine Recette, vinkonu
Donalds og móður barnsins.
önnur nöfn eru fengin frá
minna þekktum vinum.
Aður var Donald kvæntur
leikkonunni Shirley Douglas og
átti með henni tvö börn, sem
heita til samans 18 nöfnum, öll
fengin að láni frá vinum
Donalds.
Fékk ekki
kirkjuvígslu
ÞAÐ urðu mikil
vonbrigði fyrir Gauta-
borgarstúlkuna Yvonne
Anderson og kærastann
hennar, Ronald Táng-
ström, þegar prest-
ur hvítasunnusafnaðar
bæjarins, en þar var
Yvonne meðlimur, neit-
aði algjörlega að gefa þau
saman í heilagt hjóna-
band. Ástæðan er sú, að
Yvonne er öll húðflúruð í
bak og fyrir. Hún er 20
ára, og er ■ með um 50
skreytingar á kroppnum,
þá fyrstu fékk hún 12 ára
í Nýhöfninni í Kaup-
mannahöfn, hjá Tato
Jack.
Yvonne fékk ekki sína
heitustu ósk uppfyllta,
kirkjubrúðkaup, en borg-
ardómarinn í bænum var
miklu frjálslyndari í
skoðunum og gaf þau
saman, þrátt fyrir allt
húðflúr á kropp brúðar-
innar.
Ótvarp Reykfavik 0
MIÐVIKUDAGUR
28. ágúst
7.00 Morgunútvarp
Veúurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45: Svala
Valdímarsdóttir lýkur lestri þýðingar
sinnar á sögunni „Malena hyrjar í
skóla“ eftir Maritu Lindquist (11).
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir 9.45.
Létt lög milli liða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Marie Claire
Alain leikur Orgelsónötu nr. 3 í d-moll
eftir Bach/ Kór holenska útvarpsins
syngur Hátfðarmessu op. 154 eftir
Alexander Gretchaninoff; C. Laout
stjórnar
Morguntónlikar 11.00: lsaac Stern,
Pinchas Zukerman og Enska kammer-
sveitin leika Konsertsinfónfu f Es-dúr
(K 364) eftir Mozart/ György Melis,
Judit Aándor, Jozsef Simándy og
Alfonz Bartha syngja lög eftir Liszt.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Meðsfnulagi
Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt-
um og talar um danslagakeppni SKT
1952 — 1954.
14.30 Sfðdegissagan: „Smiðurinn mikii“
eftir Keistmann Guðmundsson
Höfundur les (2).
15.00 Miðdegistónleikar
Peter Pongracz, Lajos Tóth og Mihály
Eisenbacher leika Trfó í C-dúr fyrir
tvö óbó og enskt horn op. 87 eftir
Beethoven.
Parfsarhljómsveitin leikur „Rapsodie
espangole“ og „Le Tombeu de
9 9
A skjanum
MIÐVIKUDAGUR
28. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Fleksnes
Norskur gamanleikjaflokkur.
Það fer alltaf lest
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvision — Norska sjónvarpið)
21.00 Drangeyjarferð
Mynd frá ferðalagi sjónvarpsmanna til
Drangeyjar sumarið 1969. Fylgst er
með bjargsigi f eynni.
Umsjónarmaður ólafur Ragnarsson.
Aður á dagskrá 13. febrúar 1970.
21.50 Kfnverjar á erlendri grund
Frönsk fræðslumynd um Kfnverja,
sem búsettir eru utan heimalandsins.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.40 Dagskrárlok.
FÖSTVDAGUR
30. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lögregluforinginn
Þýskur sakamálamyndaflokkur.
Engin heyrði skothvell
Þýðandi Brfet Héðinsdóttir.
21.25 Eþfópfa
Nýleg, dönsk fræðslumynd um stjórn-
mála- og efnahagsþróun f landinu á
undanförnum misserum.
Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
(Nordvision — Danska sjónvarpið)
Couperin“ eftir Ravel; Herbert von
Karajan stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
17.40 Litli barnatfminn
Gyða Ragnarsdóttir sér um þáttinn.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Landslag og leiðir
Jón I. Bjarnason ritstjóri talar um
Kerlingarfjöll
20.00 Bikarkeppni KSt: Valur og
Vfkingur undanúrslitaleikur
Jón Asgeirsson lýsir sfðari hálfleik frá
Laugardalsvelli.
20.45 Sumarvaka
a. Þegar ég var drengur
Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ
rekur æskuminningar sfnar (3).
b. Dettifoss og Herðubreið
Ivar Orgland magister frá ósló flytur
tvö kvæði sfn f þýðingu Þórodds
Guðmundssonar.
c. Kórsöngur
Kammerkórinn syngur lög eftir Sigfús
Einarsson, Þórarin Guðmundsson,
Emil Thoroddsen, Sveinbjörn Svein-
björnsson og Björgvin Guðmundsson;
Rut L. Magnússon st jórnar.
21.30 tltvarpssagan: „Svo skal böl bæta“
eftir Oddnýju Guðmundsdóttur
Guðrún Asmundsdóttir leikkona les
(4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
(Itum allar trissur
Umsjón: Einarörn Stefánsson.
22.45 Nútfmatónlist
Halldór Haraldsson kynnir.
23.45 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok.
*
21.50 Iþróttir
Umsjónarmaður ömar Ragnarsson.
LAUGARDAGUR
31. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili
Breskur gamanmyndaflokkur.
Stúdentar í anda
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20.50 Borgir
Kanadfskur fræðslumyndaflokkur um
borgir og borgarlff, byggður á bókum
eftir Lewis Mumford.
5. þáttur.
Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
21.10 Palmu lögregluforingí gerir
skyssu
Finnsk sakamálamynd, byggð á sögu
eftir Mika Waltari.
Leikstjóri Matti Kassila.
Aðalhlutverk Joel Rinne, Matti Ranin,
Leo Jokela og Elina Pohjanpaá.
Þýðandi Kristfn Mántylá.
Mynd þessi, sem er f gamansömum tón,
greinir frá starfi lögregluforingja
nokkurs og aðstoðarmanna hans við
lausn flókinnar morðgátu. Lögreglu-
foringinn er snillingur f sfnu fagi og
hinn geðfelldasti maður á flestan hátt,
en þó hefur hann sínar veiku hliðar,
einkum gagnvart kvenfólki.
23.10 Dagskrárlok.
fclk í
fjclmíðlum
Útvarp 1 dag:
Kerlingarfjöll og frásögn Þórar-
ins Helgasonar frá Þykkvabæ
I kvöld kl. 19.35 er I útvarps-
dagskránni þátturinn „Lands-
lag og leiðir", og að þessu sinni
ræðir Jón I. Bjarnason ritstjóri
um Kerlingarfjöll.
I Kerlingarfjölluni er eitt
vinsælasta skfðaland, sem um
getur, og er þar fullkomin að-
staða til skfðaiðkana, en sjálft
landslagið þar um slóðir er
ekki sfður umtalsvert en skfða-
skólinn f Kerlingarf jöllum.
Sá þáttur, sem hér um ræðir,
virðist hafa náð vinsældum
meðal útvarpshlustenda, en
jafnan er fengið kunnugt fólk
til að segja frá þeim stöðum,
sem til umræðu eru hverju
sinni.
A Sumarvökunni er atriði,
sem við viljum vekja sérstaka
athygli á, en það er frásögn
Þórarins Helgasonar frá
Þykkvabæ. Þórarinn segir hér
frá bernsku sinni og uppvaxtar-
árum, og má vera sérstaklega
fróðlegt fyrir þá, sem nú eru að
vaxa upp, að hlýða á þennan
lestur. Frásögn Þórarins er
nærfærin og glögg, og enda þótt
margt hafi verið erfitt f upp-
vexti hans og mjög frábrugðið
þvf atlæti, sem börn og ungl-
ingar nú um stundir eiga við að
búa, örlar hvergi á biturleika,
heldur er frásögnin hlutlæg og
sannfærandi.
Auk þess sem Þórarinn hefur
haft næmt auga og glöggan
skilning á þvf, sem fyrir hann
hefur borið, kann hann vel frá
að segja, — þannig að frásögn-
in vekur skilning, athygli og
samúð hlustandans.