Morgunblaðið - 28.08.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. AGÚST 1974
27
BARNAMÓT HSH f frjálsum
íþróttum fór fram að Göðrum I
Staðarsveit sunnudaginn 23. júní
sl. Er það f fyrsta skiptið, sem
mótið er haldið með þessu sniði.
Keppendur voru alls um 100
talsins frá 6 félögum, en keppt
var f þremur aldursflokkum, alls
28 greinum.
Frjálsíþróttaráð HSH annaðist
framkvæmd mótsins, en allan
undirbúning á íþróttavelli sá
UMF Staðarsveitar um. Mótið fór
ágætlega fram, og var veður til
keppni hið bezta. Mótsstjóri var
Guðmundur Sigurmonsson, for-
maður HSH.
Úrslit í stigakeppni mótsins
urðu þau, að UMF Reynir, Hellis-
sandi, sigraði, hlaut 111 stig, UMF
Vfkingur frá Ölafsvík varð í öðru
sæti með 71,5 stig, UMF Grundar-
fjarðar hlaut 48,2 stig, íþrótta-
félag Miklaholtshrepps hlaut 41,1
stig og Ungmennafélag Staðar-
sveitar hlaut 7,5 stig.
Sigurvegarar f einstökum
keppnisgreinum urðu:
Piltar 13—14 ára:
100 metra hlaup:
Magnús Stefánsson, V 13,1 sek.
800 metra hlaup:
Bárður Tryggvason, R 2:41,7 mín.
Langstökk:
Magnús Stefánsson, V 5,27 metr.
Hástökk:
Magnús Stefánsson, V 1,32 metr.
Kúluvarp:
Magnús Stefánsson, V 12,25 metr.
Kringlukast:
Magnús Stefánsson, V 37,80 metr.
Telpur 13—14 ára:
100 metra hlaup:
Laufey Jónsdóttir, V 15,6 sek.
800 metra hlaup:
Petríng Sigurðardóttir, R 2:59,5
mín.
Langstökk:
Halldóra Sigurðardóttir, G 3,72
metr.
Hástökk:
Laufey Jónsdóttir, V 1,23 metr.
Kúluvarp:
Helena Kristinsdóttir, R 7,83
metr.
Kringlukast:
Petrína Sigurðardóttir R 13,10
metr.
Strákar 11—12 ára:
60 metra hlaup:
Mikael Sigþórsson, R 9,8
800 metra hlaup:
Gunnar Tryggvason, G 3:02,0 mín.
Langstökk:
Georg Óskarsson, V 3,75 metr.
Hástökk:
Mikael Sigþórsson, R 1,15 metr.
Kúluvarp: Mikael Sigþórsson,
R 7,54 metr.
Stelpur 11—12 ára:
60 metra hlaup:
Ragna Marteinsdóttir, V 9,8 sek.
FRAMSTULKURNARISLVNDSMEISTARAR
SIGRUÐU VAL 6:5 í ÚRSLITALEIK
800 metra hlaup:
Ragna Marteinsdóttir, V 3:15,6
mín.
Hástökk:
Ingibjörg Kristjánsdóttir, IM 1,15
metr.
Langstökk:
Ingibjörg Kristjánsdóttir, ÍM 3,61
metr.
Kúluvarp:
Helga Halldórsdóttir, IM 5,86
metr.
Strákar 10 ára og yngri:
60 metra hlaup:
Þór Hinriksson, G 10,1 sek.
Langstökk:
Þór Hinriksson, G 3,45 metr.
Boltakast:
Þröstur Leósson, V 29,74 metr.
Stelpur 10 ára og yngri:
60 metra hlaup:
Lilja Stefánsdóttir, V 10,8 sek.
Langstökk:
Herdís Sigurðardóttir, R 2,97
metr.
Boltakast:
Inga Ingólfsdóttir, R 25,52 metr.
FRAM VARÐ Islandsmeistari f
útihandknattleik kvenna f ár.
Sigruðu Framstúlkurnar Val f úr-
slitaleik, sem fram fðr f fyrra-
kvöld, og þá var einnig keppt um
þriðja sætið f mótinu. Það sæti
hreppti Ármann, með sigri sfnum
yfir FH.
Leikur Fram og Vals bar tölu-
verð svipmót úrslitaleiks. Bæði
liðin léku þó allvel á köflum, sér-
Danskt
kúluvarpsmet
A FRJALSIÞRÓTTAMÓTI, sem
fram fór nýlega í Kaupmanna-
höfn, setti Ole Lindskjold nýtt
danskt met í kúluvarpi — varpaði
20,02 metra. Átti hann einnig
annað kast, sem betra var en
gamla danska metið, eða 19,72
metra. Sigurvegari í kúluvarps-
keppninni var A1 Feuerbach frá
Bandaríkjunum, sem varpaði
20,95 metra. Á sama móti stökk
Dwight Stones frá Bandaríkjun-
um 2,14 metra í hástökki, og Mike
Boit frá Kenfa hljóp 1000 metra
hlaup á 2:16,3 mín., sem er einn
bezti árangur, sem náðst hefur í
þvf hlaupi fyrr og síðar.
tslandsmeistarar Fram f utanhússhandknattleik kvenna 1974, ásamt Ólafi Jónssyni, formanni
handknattleiksdeildar Fram og þjálfara sfnum: Sigurbergi Sigsteinssyni.
staklega I vörninni og mark-
varzlan hjá báðum liðum var
afbragðsgóð.
Framstúlkurnar náðu snemma
forystunni í leiknum og komust í
2:1, Valsstúlkurnar náðu síðan að
jafna 2:2, en Fram komst aftur
yfir og hafði eins marks forystu í
leikhléi 4:3.
I seinni hálfleik komst Fram
svo í 5:3, en Valsstúlkurnar börð-
ust af miklum krafti og náðu að
jafna 5:5 skömmu fyrir leikslok.
Leikurinn var síðan framlengdur
I 2x5 minutur og snemma í fyrri
hálfleik framlengingarinnar var
dæmt vítakast á Val, sem Arn-
þrúður Karlsdóttir skoraði úr.
Reyndist það vera sigurmark í
leiknum.
leik. Þær unnu 18, gerðu 2 jafn-
tefli og töpuðu aðeins einum leik.
Framstúlkurnar halda nú senn
í keppnisferð til Danmerkur, þar
sem þær munu leika 4-5 leiki.
Hins vegar mun Fram ekki taka
þátt í Evrópubikarkeppni kvenna
að þessu sinni.
Mörk Fram skoruðu: Arn-
þrúður Karlsdóttir 3 — þar af 2
úr vítaköstum, Kristfn Orradóttir
1, Jóhanna Halldórsdóttir 1 og
Jenný Magnúsdottir 1. Sigrún
Guðmundsdóttir skoraði 4 af 5
mörkum Valsstúlknanna.
Árangur Framstúlknanna á
liðnu keppnistfmabili hefur verið
hinn glæsilegasti. Þær urðu
íslandsmeistarar utanhúss f
fyrra, síðan Reykjavíkurmeistar-
ar, Islandsmeistarar innanhúss og
nú aftur Islandsmeistarar utan-
húss. Á keppnistímabilinu hafa
Framstúlkurnar leikið samtals 21
tslandsmeistarar Hauka 1974 f 2. flokki kvenna, ásamt þjálfara
sfnum: Aftari röð frá vinstri: Halldóra Mathiesen, Guðfinna
Guðmundsdóttir, Margrét Teódórsdóttir, Hlfn Hermannsdóttir
og Þorgeir Haraldsson, sem þjálfað hefur kvennaflokka Hauka
frá 1970. Fremri röð: Lfsa Harðardóttir, Valgerður Júlíusdóttir,
Björg Jónatansdóttir, Guðrún Dóra Aðalsteinsdóttir, fyrirliði,
Sjöfn Hauksdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. A myndina vantar
Rebekku Valgeirsdóttur.
Um 100 keppendur
á bamamóti HSH
Undanúrslit í kvöld:
VALUR - VÍKINGUR
VÖLSUNGAR - ÍA
I KVÖLD fara fram undanúrslitaleikirnir í Bikarkeppni KSI
1974. A Laugardalsvellinum leika Valur og Vfkingur, en á
Húsavfkurvellinum leika Völsungur við Akurnesinga. Báðir
leikirnir eiga að hef jast kl. 19.00.
Búast má við skemmtilegri viðureign f báðum þessum leikj-
um, þótt fyrirfram megi reyndar búast við þvf, að leikur
Vfkings og Vals verði tvfsýnni. Bæði þessi lið hafa einu sinni
orðið bikarmeistarar og hafa eflaust hug á þvf að hljóta þann
titil aftur nú.
Völsungar frá Húsavfk hafa komið verulega á óvart f bikar-
keppninni. Liðið, sem nú er f fallhættu f 2. deildar keppninni,
vann það afrek að slá Vestmannaeyinga út — og það meira að
segja í Vestmannaeyjum. Akurnesingar munu þvf varla eiga
auðveldan dag á Húsavfk f dag, þeir munu verða að berjast fyrir
sínu. Mikill áhugi er á þessum leik á Húsavfk — og verða
heimamenn örugglega dyggilega hvattir f leiknum gegn Is-
landsmeisturunum. Úrslitaleikur Bikarkeppninnar á svo að
fara fram á Laugardalsvellinum miðvikudaginn 11. september
n.k.
Haukastúlkurnar
sigruðu í 2. flokki
HAÚKAR urðu Islandsmeistarar
f öðrum flokki kvenna utanhúss
1974, og er þetta f fyrsta sínn, sem
annar flokkur Hauka sigrar f úti-
mótinu. Kvennaflokkar tóku til
starfa f Haukum árið 1970 eftir
nokkurt hlé, og hafa flestar
stúlknanna, sem nú urðu meistar-
ar, æft og keppt saman sfðan með
góðum árangri.
Stúlkurnar tóku þátt í Partille-
Cup f Svfþjóð f sumar, og höfðu
þær æft mjög vel fyrir það mót.
Þar urðu þær í þriðja sæti eftir
mjög harða keppni við sigur-
vegarana.
Alls tóku 52 lið frá 7 löndum
þátt í öðrum flokki kvenna í
Partille-Cup, og er þvf árangur
Haukastúlknanna mjög góður,
þar sem þær hafa aldrei tekið þátt
í slíku stórmóti fyrr, og háði
taugaspenna þeim mikið í úrslita-
keppninni. Úrslit í leikjum
Haukastúlknanna í Partille urðu
sem hér segir:
Haukar — Halsen (Noregi 7:2
Haukar — Njard (Svíþjóð) 6:3
Haukar — Glostrup
(Danmörku) 7:4
MILLIRIÐILL:
Haukar — Fjellhammer
(Noregi) 8:2
Haukar — Ahrensburger
(Þýzkal.) 6:12
Haukar — Gladsaxe
(Danmörku) 15:4
ÚRSLIT:
Haukar — Halsen 5:4
Haukar — SSvehof 6:7
Sflvehof, sem voru gestgjafar
mótsins, sigruðu, en Ahrens-
burger sem talið var sterkasta
liðið, komst ekki I úrslit.
I Islandsmótinu í öðrum flokki
kvenna 1974 sigruðu Haukar með
yfirburðum í sínum riðli, og
unnu síðan FH í jöfnum úrslita-
leik, eftir að fyrri leik liðanna
hafði lyktað með jafntefli eftir
framlengingu.