Morgunblaðið - 04.10.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKT0BER 1974
3
Jóhann Hjálmarsson:
AKVÖRÐUN sænsku akademí-
unnar að skipta Nóbelsverð-
launum milli þeirra Eyvinds
Johnsons og Harry Martinsons
kemur ekki á óvart. Vitað var,
að akademfan hafði hug á að
veita sænskum höfundum verð-
iaunin. Eftir lát Vilhelms
eflaust eftir kvikmyndinni).
Hann elst upp f fátækt, hrekst
frá einum vinnustað til annars,
hneigist til róttækra stjórn-
málaskoðana. Eyvind Johnson
var snemma svarinn andstæð-
ingur nasisma og fasisma og
deilir hart á þessar stefnur f
Harry Martinson
Skrautfjöður í hatt
gamalla höfunda
Mobergs var mun auðveldara
en áður að velja Nóbelsverð-
iaunhafa. Ivar Lo Johansson er
að vfsu á lífi. Johnson og
Martinson eru báðir félagar f
akademfunni. Það breytir þó
engu. Þeir eru óumdeilanlegir
fuiltrúar sænskra bókmennta.
Nóbelsverðlaun eru orðin
skrautf jöður f hatt gamalla höf-
unda. Eyvind Johnson (f. 1900)
og Harry Martinson (f. 1904)
eru ekki f hópi þeirra sænsku
rithöfunda, sem nú setja mest-
an svip á sænskar bókmenntir.
Tfmi þeirra er að mestu liðinn.
Yngri höfundar eins og til
dæmis Lars Ahlin, Sven
Delblanc, Per Olof Sundman,
Lars Forssell og Thomas
Tranströmer verða að vfkja
fyrir gömlu mönnunum þegar
um mciriháttar viðurkenning-
ar er að ræða. En að þeim kem-
ur sjálfsagt Ifka.
Einstaka sinnum verða
Nóbelsverðlaun til þess að
vekja athygli á rithöfundum,
sem ekki hafa lokið æviverki
sfnu. Dæmi um þetta eru Hall-
dór Laxness (1955), Albert
Camus (1957), Alexander
Solsjenitsfn (1970) og
Heinrich Böll (1972). En
Nóbelsverðlaun eru engan veg-
inn trygging fyrir langlffi rit-
höfunda. Lfklegt er að þau
verði lögð niður f framtfðinni
eða róttækar breytingar gerðar
á þeim.
Skáldsögur Eyvinds John-
sons eru flestar f breiðum
epfskum stfl, en hann hefur
einnig lagt sitt af mörkum til
endurnýjunar skáldsögunnar.
Skáldsögur hans fjalla um
mannleg vandamál á mjög
raunsæjan hátt, eru oft um-
ræða um stjórnmálakenningar
og heimspeki. Sumar eru tákn-
rænar og það hefur vafist fyrir
mörgum að skýra boðskap
þeirra. Frægasta verk Johnsons
eru skáldsögurnar fjórar: Nu
var det 1914 (1934), Hár har du
ditt liv! (1935), Se dig inte om!
(1936) og Slutspel f ungdomen
(1937); sameiginlegt heiti
þeirra er Komanen oin Olof.
1 Romanen om Olof lýsir
Eyvind Johnson bernsku- og
æskuárum sfnum (sumir muna
skáldsögum sfnum. Sfðar meir
gerðist hann einnig ákafur and-
kommúnisti. 1 Strándernas
svall (1946) sækir hann inn-
blástur f Odysseifskviðu.
Evrópa eftirstrfðsáranna er
efni margra skáldsagna hans.
Johnson hefur verið kallaður
Evrópumaðurinn f sænskum
bókmenntum vegna þess hve
margar skáldsögur hans eru
mótaðar af dvöl hans f ýmsum
Evrópulöndum, einkum Þýska-
landi, Frakklandi og Sviss. Ein
þekktasta skáldsaga hans
Drömmer om rosor och eld
(1949) fjallar til dæmis um
gaidraofsóknir f Frakklandi á
sautjándu öld. Þótt hann fjalli
oft um fornöldina f skáldsögum
sfnum leitast hann við að varpa
ljósi á margt f samtfmanum
með þvf að tengja saman fortfð
og nútfð. Til vitnis um slfka
Eyvind Johnson
viðleitni er skáldsagan Hans
Nádes tid (1960), sem hann
fékk bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir fyrstur
manna 1962.
„Að vera skáldsagnahöfund-
ur þýðir meðal annars að gera
játningu sfna“, sagði Eyvind
Johnson f erindi, sem hann
flutti f Háskóla tslands 21.
aprfl 1958. Segja má að hann
hafi frá upphafi verið þessum
orðum trúr. Hann hefur þorað
að glfma við hin erfiðu og
sársaukafullu vandamál.
Harry Martinson ólst upp f
fátækt eins og Eyvind Johnson,
sigldi ungur út f heim,
menntaði sig sjálfur eins og
allir hinir svokölluðu sænsku
öreigarithöfundar. Skáldsögur
hans fjalla um ferðir, eirðar-
lausan förumann, sem finnur
hvergi ró. 1 Resor utan mál
(1932) og Kap Farvál (1933)
rfs frásagnarlist Martinsons
hátt. Hann hefur lýst bernsku-
og æskuárum sfnum f skáldsög-
unum Násslorna blomma og
Vágen ut (1935—36). t sfðustu
bókum Martinsons verður
sænsk náttúra sffellt nær-
tækara viðfangsefni um leið og
hann gagnrýnir vald tækninn-
ar, vélarinnar, yfir manninum.
Harry Martinson vakti ungur
athygli sem frábært ljóðskáld,
nýjungamaður f skáldskap. 1
Ijóðaflokknum Aniara (1956)
yrkir hann um samnefnt geim-
skip á leið út f tómið. Enginn
veit hvert stefnir Bölsýni og
efi um framtfð mannsins setur
svip sinn á Aniara eins og
ljóðabækurnar Grásen f Thule
(1958) og Vagnen (1960). 1
Dikter om ljus och mörker
(1971), sem minnir á fyrstu
ljóðabækur Martinsons, ekki
sfst vegna yrkisefna úr fjar-
lægum löndum, er meiri birta
og jafnvægi en f fyrrnefndum
bókum. Kfnversk lffsspeki
hefur haft mikið gildi fyrir
Harry Martinson, bergmál frá
henni er vfða f Ijóðum hans.
Skáldverk Harrys Martinsons
eru f rfkara mæli en verk ann-
arra sænskra skálda mótuð af
þvf lffi, sem hann hefur lifað
sjálfur, eigin reynslu. Þetta á
einkum við um æskuverk hans.
Með aldrinum hefur hann orðið
heimspekilega sinnaður, leitað
visku f gömlum bókum. Það
sem er kannski mest heillandi
við skáldskap hans eru minn-
ingarnar frá farmennskuár-
unum. I þeim er hreint og nær-
andi sjávarloft.
Jón úr Vör hefur þýtt all-
mörg ljóð eftir Harry Martin-
son. Gott sýnishorn þessara
þýðinga er að finna f ljóðabók
Jóns Maurildaskógi (1965).
Skáldsaga Martinsons Netf-
urnar blómgast f þýðingu Karls
tsfelds kom út 1957.
Nautaslátrun
í meira lagi
Breiðdalsvík 3. okt.
VIÐ HÉR á Breiðdalsvík urðum
fyrir litlum óþægindum af hret-
inu, sem gekk yfir Austfirði i
fyrri viku. Hér er sláturtíð í
fullum gangi og gengur vel. Fiski-
ri var heldur lélegt hjá bátunum í
sumar, nema helzt hjá skuttog-
aranum Hvalbak. Hin nýja við-
bygging frystihússins er orðrn
fokheld, og verður væntanlega
tekin í notkun næsta ár. I sumar
var endurgerður um 400 metra
vegarkafli fyrir olíumöl hér í
kauptúninu, og verður olíumölin
væntanlega lögð næsta ár. Nauta-
slátrun var með meira móti, enda
var töluvert um, að menn keyptu
kálfa I Eyjafirði, og hafa þeir alið
þá í þrjú misseri og slátrað svo.
Voru þetta orðnir vænstu gripir
hjásumum. —Fréttaritari.
Leiðrétting:
Kolbeinn
Agnarsson
í MORGUNBLAÐINU I gær í
grein frá Seyðisfirði urðu þau
mistök, að Kolbeinn Agnarsson
var sagður Jakobsson. Eru við-
komandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
BANNXNU AFLETT
Á STRANDAGRUNNI
Sjávarútvegsráðuneytið aflétti
f gærmorgun banni við veiðum á
friðunarsvæði þvf, sem verið hef-
ur á Strandagrunni frá 15. júlf
s.l., og geta þvf bæði fslenzkir og
brezkir togarar hafið þar veiði á
ný.
Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að þessi
ákvörðun hefði verið tekin af því
að óeðlilegt hefði verið að hafa
svæðið lengur lokað, þar sem til-
tölulega lítið af smáfiski væri á
því nú.
Þetta umrædda svæði markast
af eftirgreindum punktum: 66°
47° ’N _ 22° 24 ’V, 67° 00 ’N —
22° 24 ’V, 67° 00 N — 20° 49 ’V,
66° 34 ’N — 21° 26 ’V.
1
Hafrannsókna-
stofnunin fylgist
betur með í
framtíðinni
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú farið fram á það við Hafrann-
sóknastofnunina, að vel verði
fylgzt með rækjuveiðunum i ísa-
fjarðardjúpi, og þær heimilaðar
um leið og seiðamagnið fer
minnkandi.
Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði í samtali við
Mbl. í gær, að þeir í ráðuneytinu
hefðu orðið jafn hissa og rækju-
sjómenn fyrir vestan, þegar til-
kynningin um veiðibannið var
birt, aðeins 12 klukkustundum áð-
ur en veiðar áttu að hefjast, 30.
september s.l.
„Svona lagað má ekki endur-
taka sig aftur og stofnun eins og
Hafrannsóknastofnunin á að hafa
nægan tíma til rannsókna, áður
en veiðar eiga að hefjast og því
finnst mér ekki til of mikils
mælzt, að tilkynning um veiði-
bann komi tímanlega, þegar gera
þarf álíka ráðstafanir aftur,“
sagði ráðherra.
Enn góðar sölur í Þvzkalandi
ISLENZK fiskiskip fá enn gott
verð fyrir fsfisk f V-Þýzkalandi. 1
gærmorgun seldu tvö skip þar og
fengu bæði ágætis verð. Annað
skipið fékk yfir 70 kr. meðaiverð,
sem er það næst hæsta, sem feng-
izt hefur á haustinu.
Vestri frá Patreksfirði seldi
87,8 lestir fyrir 138.800 mörk eða
6,2 millj. kr. Meðalverðið er kr.
70,70. Aðeins Gunnar frá Reyðar-
firði hefur fengið hærra meðal-
verð í haust. Aflinn, sem Vestri
var með, var mest stórufsi.
Þá seldi skuttogarinn Hólmanes
frá Eskifirði 103 lestir af blönd-
uðum fiski fyrir 6,1 millj. kr.
Meðalverðið var tæpar 60 kr.
Þess má geta, að þótt sölur skip-
anna séu háar í milljónum, þá
dregst mikið frá þessum tölum
eftir löndun, þar eð 33—35% af
brúttóverði fer í kostnað í Þýzka-
landi. Þar er innflutningstollur
stærsti liðurinn, eða 15%. Við
þetta bætist svo 11,2% útflutn-
ingsgjald, þannig að um 46%
dragast strax frá heildarsölu-
verði.
Þjónar segja ekki
upp kjarasamningum
ALLMÖRG félög hafa nú bætzt f
hóp þeirra 50, er sagt höfðu upp
kjarasamningum f byrjun vik-
unnar, en endanleg tala þeirra lá
ekki fyrir — hvorki hjá Alþýðu-
sambandinu né sáttasemjara
rfkisins. Tvö félög hafa hins
vegar fellt að segja upp samning-
um og eru það Félög starfsfólks á
veitingastöðum og Félag fram-
reiðslumanna.
Á fundi Verkalýðsfélagsins
Einingar á Akureyri nýlega kom
fram tillaga um, aó félagsmenn
settu sjálfir upp taxta frá og með
1. nóvember, og yrði efnt til verk-
falls, fengizt hann ekki samþykkt-
ur. Við þessa tillögu kom breyt-
ingartillaga, þar sem gert var ráð
fyrir, að Eining leitaði samstöðu
með öðrum verkalýðsfélögum í
þessu efni og var hún samþykkt.
Jafnframt var stjórn og trúnaðar-
mannaráði Einingar veitt umboð
til að fylgja þessari tillögu eftir
með þeim ráðum sem talin væru
nauðsynleg.
Sigöldumenn fengu
20 þús. kr. uppbót
JÚGÓSLAVNESKA fyrirtækið
Energoprojekt, sem annast fram-
kvæmdir við Sigöldu, efndi f gæi
til fundar með verkstjórum og
flokksstjórum fyrirtækisins þai
efra.
A fundinum tilkynnti forstjóri
þess, Ivan Berger, að fram-
kvæmdaáætlunin fyrir september
hefði staðizt i öllum aðalatriðum
og stjórnendur fyrirtækisins þar
af leiðandi ákveðið að greiða
starfsmönnum uppbót þá, sem
heitið var í byrjun mánaðarins —
kr. 20 þúsund. Jafnframt lýsti
Berger þvi yfir, að á mánudag
mundi stjórn fyrirtækisins taka
ákvörðun um, hvort eins yrði
farið að varðandi framkvæmda-
áætlunina fyrir október.
Lýst eftir
vitnum
FÖSTUDAGINN 20. sept. s.l. varð
árekstur milli Volkswagenbíls og
strætisvagns á mótum Kringlu-
mýrarbrautar og Sléttuvegar.
Þetta gerðist um klukkan 17,30.
Einhverjir farþegar í vagninum
munu hafa séð, hvernig þetta at-
vikaðist, og eru þeir vinsamlegast
beðnir að hafa samband við um-
ferðardeild rannsóknarlögregf-
unnar í sfma 21100.