Morgunblaðið - 04.10.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÖBER 1974
13
Starfshópur rauðsokka:
Andleg kynvilla
Síðastliðinn sunnudag var i
fyrsta sinn vígð kona til prests-
embættis á Islandi.
Rauðsokkar fagna þvi, að þetta
skarð er rofið í múr fordómanna,
og telja það vonum seinna, þar
sem nú er öld liðin siðan konur
áttu þess fyrst kost að setjast á
skólabekk hér á landi.
A Norðurlöndum fer konum
fjölgandi i prestastétt, þótt enn
gæti þar nokkurrar andstöðu, sem
á þó fremur rót sina að rekja til
kirkjunnar en safnaðanna.
Þess eru dæmi, að biskupar hafi
neitað að vigja konur og einnig,
að karlkyns guðfræðikandidatar
vilji ekki taka vígslu um leið og
þær.
I Morgunblaðinu 29. sept. sl.
eru viðtöl við nokkra menn i til-
efni af vfgslu Auðar Eir
Vilhjálmsdóttur. Einn viðmæl-
andinn, sem ekki vill sætta sig við
vígslu hennar er úr hópi þjónandi
presta og ber hann fyrir sig guð-
fræðileg rök.
Að kristin trú sé notuð sem
kúgunartæki, er ekki ný bóla.
Ótaldir eru þeir þjónar kirkjunn-
ar, sem hafa þóst finna í kenning-
um hennar rök fyrir alls kyns
fordómum.
Sá er illa villtur í trú sinni, sem
telur kynferði prestsins skipta
meira máli en boðskapinn. Mundi
ekki nærri lagi að kalla slíkt and-
lega kynvillu?
Hins vegar ber það þroska Súg-
firðinga gleðilegt vitni, að þeir
telja andlegum þörfum sínum
muni engu miður þjónað af vígðri
konu en karli, eins og fram kemur
í viðtali við oddvita þeirra í Mbl.
sama dag.
Rauðsokkar óska Auði Eir þess,
að af starfi verði hún vegin og
metin — það er f samræmi við
sjónarmið þeirra. Hæfni til að
gegna störfum hlýtur að byggjast
á gerð einstaklingsins án tilljts til
kynferðis.
Réttur til að hasla sér völl á að
vera óskoraður — það eru hin
einföldu rök og hljóta þau ekki að
duga mönnum best f mannheimi?
Starfshópur rauðsokka
um jafnréttismál
október 1974.
Þurfður Magnúsdóttir
Björg Einarsdóttir
Lilja Ölafsdóttir
Skulu konur
þegjaá
safnaðar-
samkomum?
Inilaö álit* klrrka og
kikmanna á vignlu fyrala
falrnzka kvrnprrttlsins
F.g fagna þvf afl
konur vigist til
prrslNstarfa
Samkvjrmt ínI.
lugumrrrkkrrt
til f> rirstiiöu aA
vigja konu
Kolilrgt að kynin
• “ »kipti mrflsrr
2; verkum i hvrrri
“ atétt
Trlrkkisjálfsairl
• a A knnur gangi
. inniftllKtftrf
vrgna k> nfrrAis
• !rins
3ír
Október:
Föstudagserindin í húsi Guðspekifél.
Ingólfsstræti 22 hefjast kl. 9.
4. okt. Mystik í Sólarljóðum
11. okt. Vísindi og dulræn
fræði
18. okt. Hafa jurtir vitund )
25. okt. Um Daoisma.
í sláturtíðinni
húsrr.æður athugið:
Höfum til sölu vaxbornar pappaöskjur undir
hvers konar matvæli. Öskjurnar eru mjög
hentugar til geymslu á sláturafurðum og öðrum
þeim, matvælum sem geymast eiga í frosti.
Komið í afgreiðsluna, gengið inn í portið að
Norðanverðu.
Kassagerð Reykjavíkur, K/eppsveg 33.
STANLEY
ft;
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um að
_______ þaðsé
Afhending
skírteina
Kennsla hefst f rá og með 7. okt.
Reykjavík
Brautarholt 4 föstud. 4. okt. frá kl. 4 —10 eh.
Félagsheimili Fáks
Skirteini afhent i Brautarholti 4.
Breiðholtshverfi
Fellahellir (kjallara Fellaskólans) laugardaginn 5. okt. frá kl.
1— 7 eh.
Kópavogur
Félagsheimilinu (efri sal) föstudaginn 4. okt. frá kl. 3 — 7
eh.
Hafnarfjörður
Hringjum i nemendur.
Seltjarnarnes
Félagsheimilinu laugardaginn 5. okt. frá kl. 5—7 e.h.
Keflavík
Tjarnarlundi laugardaginn 5. okt. frá kl. 2—7 e.h.
Upplýsingasímar
20345 og 25224