Morgunblaðið - 04.10.1974, Side 17

Morgunblaðið - 04.10.1974, Side 17
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1974 17 — folk — fólk I norðan- garra w ölfus- rétt Það má ekki milli sjá, hvort fleira er af fé eða fðlki f almenningnum. I baksýn sést, hvernig byggðin f Hveragerði þrengir að réttinni. Ljósm. Mbl. Br. H. AÐ VENJU var réttað f Ölfusrétt fimmtudaginn í 23. viku sumars, sem að þessu sinni bar upp á 26. september. Réttin er léleg orðin, enda komin til ára sinna, var hlaðin úr hraungrjóti fyrir rúmri öld. Þá þótti hún mikið mannvirki, en sfðan hefur tfmans tönn á henni unnið, auk þess sem byggðin f Hvera- gerði þrengir að henni úr öllum áttum. Því er lík- legt, að dagar hennar verði brátt taldir. Morgunblaðsmenn skruppu í Ölfusrétt að morgni fimmtudagsins. Það var norðanstrekking- ur þennan dag og mjög kalt í veðri. Fjölmenni var í réttinni, og á stund- um virtist vera fleira fólk í almenningnum en fé. Vegna kuldans voru flestir klæddir í úlpur eða annan vetrarfatnað. Eins og vænta mátti voru börn og unglingar í meirihluta. t þeirra aug- um er alltaf sami ævin- týrablærinn yfir réttun- um. Réttarforingi í Ölfus- rétt hefur síðustu 18 árin verið Sigurður Auðuns- son. Hann er Skaftfell- ingur að ætt og uppruna, en hefur verið í Ölfusinu síðustu 30 ár. Hann sagði, að gangnamenn hefðu fengið þokkaleg veður. Færra fé var nú á fjalli en venjulega, því eitt- hvað af fé hafði skilað sér sjálft heim vegna kuld- anna. Þá sagði Sigurður að lokum, að sér virtist féð ekki nema í meðallagi vænt, og ekki eins vænt af fjalli og í fyrra. Markið skoðað frá öllum sjónarhornum. Þeir eldri létu sitt ekki eftir liggja. Af réttarveggnum var gott útsýni, bæði fyrir menn og hunda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.