Morgunblaðið - 04.10.1974, Síða 18

Morgunblaðið - 04.10.1974, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÖBER 1974 — Hjartabíilinn Framhald af bls. 32 inga. Beint slmasamband verði milli deildanna. 1 öðru lagi er gert ráð fyrir endurskipulagningu innlagna f sjúkrahúsið, þ.e. að sjúkrahús- in tvö taki á möti sjúklingum annan hvorn sólarhring og bif- reiðin aki sjúklingi beint á við- komandi sjúkrahús. I þriðja lagi er lögð á það áherzla, að læknismenntaður maður eða læknastúdent fari alltaf með bifreiðinni f útköll vegna hjartasjúklinga á Reykjavfkur- svæðinu. Ef um erfið tilfelli væri að ræða, gæti starfsfólk bifreiðarinnar kallað til aðstoð- ar lækni þjálfaðan f endurlffg- un. Þegar bifreiðin fer langa leið, t.d. til Suðurnesja eða til Selfoss vegna hjartasjúklinga, fer þjálfaður læknir með bif- reiðinni. í fjórða lagi er bent á að bæta þurfi tækjabúnað bifreiðarinn- ar frá þvf sem nú er með hjartarafsjá, talsstöðvarsam- bandi við annað hvort sjúkra- húsið og betri útbúnað til öndunaraðstoðar. 1 fimmta lagi segir að leggja verði áherzlu á að mennta sjúkraflutninga- menn sem bezt f endurlffgun og meðferð hjartatruflana. Lögregla, skátar, hjálparsveitir og jafnvel almenningur eigi að læra hjartahnoð og munnblást- ur. Almenningi verði a.m.k. kynnt einkenni bráðrar krans- æðastfflu og hvað skuli til bragðs taka, ef grunur leikur á sjúkdómnum. Árni Kristinsson læknir sagði, að Blaðamannafélagið hefði í upphafi rætt um bif- reiðakaupin við sérfræðinga sjúkrahúsanna f hjartasjúk- dómum, en sfðan ekki söguna meir. Vissu þeir ekki, hvernig málið þróaðist, fyrr en þeir lásu f blöðum f vetur, að ákveð- ið hefði verið að kaupa bflinn. Arni sagði, að ekki hefði verið haft samband við sérfræðinga Landspftalans og hann hefði grennslazt fyrir um það á Borgarspftaianum og þaðan væri sömu sögu að segja. Hjartasjúkdómafélagið hef- ur um mörg undanfarin ár haft mikinn áhuga á kaupum á slfk- um bfl og hefur mikið athugað, á hvern hátt ætti að reka bif- reiðina. Sagði Árni, að hugsa þyrfti upp nýtt kerfi, sem starf- rækja þyrfti bflinn eftir. Fyrst og fremst á bfllinn að vera við Landspftalann eða Borgarspft- alann, eftir þvf á hvorum stað vakt er. Sagði Árni, að alltof svifaseint væri, að fyrst þyrfti fólk að hringja í neyðarlækni, hann að koma og hringja sfðan á bflinn. Sagði Arni, að gera þyrfti mjög miklar breytingar til þess að unnt yrði að reka bflinn, svo að tilætlað gagn yrði af honum. Rekstur hans yrði dýr og nauðsynlegt væri að læknir, læknakandidat eða gjörgæzluhjúkrunarkona væri með f bílnum. Enn hefur sérfræðingum f hjartasjúkdómum ekki verið sýndur bfllinn og má það furðu- legt teljast. og má það furðu- legt teljast. Þó sagði Árni, að hann hefði skoðað bflinn af eig- in frumkvæði og gert sér ferð til slökkviliðsins gagngert til þess. Nauðsynlegt væri og að endurbæta tækjakost bflsins. Þar á meðal þarf að koma fyrir f honum talstöð, sem læknirinn f bflnum getur notað til þess að hafa samband við sérfræðing f sjúkrahúsinu. Á hjartadeildum sjúkrahúsanna kvað hann ávallt vera bakvakt og þvf væri hér ekki um mikið vandamál að ræða. Núverandi vaktakerfi lækna er of seintvirkt fyrir þennan bfl og hann kallar á endurbætur f þessum efnum. Bfllinn getur gert mikið gagn, ef hann er rétt notaður — og á þann hátt, sem upphaflega var ráð fyrir gert. I áðurnefndu viðtali f Tíman- um segir Rúnar Bjarnason, að hann voni, að tækin verði aldrei notuð f bflnum, þar sem ógjörningur væri að gera það. Hins vegar gætu þau komið að góðum notum f heimahúsum eða á götum úti — ef Iæknir er t.d. staddur heima hjá sjúkl- ingi. Um þessa staðhæfingu Rúnars sagði Árni Kristinsson: „Ef tæki, sem keypt eru f bfl- inn, eiga ekki að notast, hafa þau ekkert þar að gera og þar með er tilgangur bflsins úr sög- unni. Þá má allt eins kaupa ódýran flutningabfl til þess að flytja tækin á milli staða.“ Auk þess sagðist Árni efast um, að almennir heimilislæknar hefðu þá tækjaþekkingu, sem krafizt er til þess að nota tækin. Kvað Árni hér vera um algjört und- anhald frá upphaflegri hug- mynd um notkun bflsins að ræða og að alrangt væri að ekki væri unnt að vinna með tækj- unum f bflnum. Áðeins þyrfti að gera á honum svolitlar end- urbætur. Tfminn spurði Rúnar Bjarna- son, hvort hjartabfll væri ekki rangnefni á bflinn. Hann svar- aði: „Já, það sem eru raunveru- legir hjartabflar eru nokkurs konar skurðstofur á hjólum. Þeir bflar eru svona á stærð við minni gerðina af strætisvögn- um. Þar eru alla jafna við störf læknir, hjúkrunarkona og einn eða tveir hjálparmenn. Það er skemmst frá þvf að segja, að þessi bfll er ekkert f Ifkingu við það“. Um þetta sagði Árni Kristinsson læknir: „Ég hef séð hjartabfla í Bandarfkjunum, Englandi og f Danmörku og á öllum þessum stöðum eru not- aðar minni gerðir af sendif erða bflum. Heilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna, WHO, hefur og gefið út staðal fyrir sjúkrabfla og þar er mælt með tveimur stærðum, litlum bflum eins og hér eru og heldur stærri bflum sem hjartabflum. Okkar hjartabfll er að vfsu ekki af þessari stærð, en þar raunar ekki miklu á stærð. Þegar sjúklingur er kominn f hjarta- bfl, á allur tæknilegur búnaður að vera þannig, að það er eins og sjúklingurinn sé kominn f sjúkrahúsið. Eftir að sjúkling- urinn er kominn f bflinn, skipt- ir ekki máli, hve hratt er ekið.“ Árni kvað það hins, vegar rétt vera, að það væri dýrt að reka bfl sem þennan. Tilgangurinn er, að læknir geti fylgzt með sjúklingnum á leið til sjúkra- hússins og til þess þarf mikið skipulag. Arni Kristinsson sagði, að sér fyndist, að ekki ætti aðeins að nota hjartabflinn til aðstoðar hjartasjúklingum, heldur fyrir mikið veikt eða slasað fólk yfir- leitt. Það er einnig unnt að senda lækni með bflnum. Bfll- inn ætti að vera stórslysabfll, enda væri bráð kransæðastffla eða skyndidauði stórslys. Ekki væri ljóst, hve yfirvöld vildu leggja mikið fé til reksturs bflsins og þvf hefðu læknarnir stungið upp á, að heilbrigðis ráðuneytið skipaði nefnd til þess að fjalla um rekstur bflsins. Hann kvað lækna Land- spftalans og Borgarspftalans mikið hafa rætt um bflinn og rekstur hans og eru þeir sam- mála um þær kerfisbreytingar, sem gera þarf, til þess að hann komi að þvf gagni, sem upphaf- lega var ætlazt til. Morgunblaðið hafði f gær samband við Eið Guðnason, for- mann Blaðamannafélags Is- lands, sem sagði, að ekki væri við Blaðamannafélagið að sakast, þótt ekki hafi tekizt enn sem komið er að reka þennan bfl sem fullkominn hjartabfl. „Aðrir aðilar þjóðfélagsins verða að leysa fram úr þvf máli“, sagði Eiður, „og eins fjárhagsvandamálum, er skap ast við rekstur bflsins sem hjartabfls". Um kaup bflsins sagði Eíður: „Félagið beitti sér fyrir kaupum á þessum bfl, og hann er búinn tækjum f sam- ráði við lækna. Ef hins vegar svo gleðilega tekst til, að unnt verður að reka bflinn með lækni, þá verða áreiðanlega engin vandakvæði á þvf að afla þess búnaðar sem þarf til þess að bfllinn verði fullkominn hjartabíll". SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Kirkjan okkar virðist ekki stefna að öðru en eignasöfnun. Við erum sffellt með fjársafnanir til nýrra bygginga, nýrra tækja og nýrra bflastæða. Vel veit ég, að þetta er nauðsynlegt, en mér er spurn: Er þetta helzta hlutverk okkar? Ég verð oft sár og leiður, þegar ég sé alvöruleysi sumra safnaðarmanna f trúarefnum, og á ég þar einnig við starfsmenn safnaðarins. John Bunyan hafði næman, andlegan skilning. Hann sagði einu sinni: „Kirkjan verður ekki metin eftir fegurð hennar, byggingarstíl né eignum, held- ur eftir því fólki, sem lifir trúfastlega því markmiði, sem kirkjan keppir að.“ Margir þeir, sem vilja, að kirkjur séu dýrar og tignarlegar, líta að sjálfsögðu svo á, að aðeins hið bezta og vandaðasta hæfi Guði. Það er sannleiks korn í þessu. Samt megum við ekki gleyma þeirri staðreynd, að meginmarkmið safnaðarins er, að ljós Krists skíni fyrir tilstilli safnaðarmanna. Jesús sagði: „Þér eruð ljós heimsins," og þá átti hann að sjálfsögðu við „hið innra ljós“, ekki dýra kerta- stjaka, steinda glugga og glæsta gripi. í einni borginni hér er hópur manna, sem hefur ..veggjalausa kirkju“. Þeir hittast í loftstofu til bæna og til að biðja um handleiðslu Guðs, og síðan fara þeir út á breiðstrætin, í fátækrahverfin og á aðra staði, þar sem fólk er, og boða fagnaðarerindið um Krist. Það getur verið, að þetta sé sannari söfnuður en sá, sem er til húsa í veglegustu byggingu landsins. Yfir 500 seiði Unnur Skúladóttir fiskifræö- ingur sagði í viðtali við Mbl. í gærkvöldi, að það væri ekki rétt, að Dröfn hefði verið búin að vera við rannsóknir í Djúpinu áður en fundurinn var haldinn með skip- stjórnarmönnum á Isafirði. Þegar sá fundur var haldinn, hefði báturinn verið að koma frá rann- sóknum á Breiðafirði og Arnar- firði, en í rannsóknarleiðangur- inn hefði hann farið 21. sept. s.l. Seiðamagnið hefði ekki komið í ljós, fyrr en eftir þann fund og væri það hreint ekki lítið. Togað var á 40 stöðum í Djúp- inu, sagði Unnur, og á 19 stöðum af þessum 40 reyndust seiði vera fleiri en 500 á togtíma, en 500 ýsu- eða þorskseiði teljum við hámark þess, að hægt sé að leyfa veiði. Ég hef reiknað út, hvað seiða- magnið var í raun mikið á togtfma á 16 stöðum af 19 og kom í ljós, að seiðin reyndust að meðaltali rösk- lega 1000. 59 bátar eru nú búnir að sækja um rækjuveiðileyfi og sjá allir, hvað gæti gerzt, ef þeim 'væri leyft að veiða nú. Hinsvegar vitum við vel, að skipstjórar í Djúpinu reyna ávallt að forðast seiðin, en aldrei er hægt að treysta því, að illa geti ekki farið, sagði Unnur. Heraðstoð USA enn takmörkuð Washington 2. október — AP. ÖLDUNGADEILD Bandankja- þings samþykkti enn í dag að stöðva alla hernaðaraðstoð við sérhvert land, sem notaði vopn frá Bandaríkjunum til árásarað- gerða. Var þetta breytingartillaga við frumvarp um 2,5 milljarða dollara aðstoð við erlend ríki, og féllu atkvæði 48—34. — íþróttir Framhald af bls. 31 Anderlecht PAUL van Himst, leikmaður belgíska landsliðsins, sem lék með þvl hér á dögunum, átti mjög góð- an leik, er lið hans Anderlecht mætti fékkneska liðinu Slovan Bratislava I seinni leik liðanna I Evrópubikarkeppni meistaraliða, en leikið var I Brussel I fyrrakvöld. Skoraði van Himst eitt mark sjálf- ur og lagði annað upp. Sigraði Anderlecht I leiknum 3:1, eftir 2:0 I hálfleik. Auk Himst skoruðu þeir Coeck og Thissen mörk Anderlecht en Masny skoraði mark Tékkanna. Fyrri leik liðanna lauk með sigri Bratislava 4:2, og var því samanlögð markatala eftir leikina tvo 5:5, en Anderlecht kemst I aðra umferð, þar sem liðið skoraði fleiri mörk á útivelli. Áhorfendur að leiknum I Brussel voru 32.000. Dynamo Moskva REGLAN um mörk á heimavelli og útivelli kom sovézka liðinu Dynamo Moskva I aðra umferð UEFA-bikarkeppninnar I knatt- spyrnu, en Moskvubúarnir sigruðu Öster frá Sviþjóð I leik I Sovétrlkj- unum ! fyrrakvöld, 2:1, eftir 1:0 fyrir þá ! hálfleik. Svlarnir unnu hins vegar fyrri leikinn 3:2. Mörk- in ! leiknum ! fyrrakvöld skoruðu fyrir Dynamo þeir Yevruzhikhin og Petrushin, en Svensson skoraði mark Öster. — Bílasala Framhald af bls. 2 160 þúsund. Þrátt fyrir að salan hefði verið mjög róleg undanfarið sagði Sigfús, að jafnan seldust einn til tveir bílar á dag af Mini eða Landrover-dísel, enda hinn fyrrnefndi sérlega neyzlugrannur á bensín og hinn síðarnefndi morgfoldar markoð vðar notaði alls ekki bensín, en hinar öru bensínhækkanir undanfarið hefðu auðvitað einnig áhrif á bíla- söluna. , Hjá Fiatumboðinu fékk Morgun- blaðið þær upplýsingar, að þar hefði salan dregizt geysilega saraan frá því að hún var sem mest I sumar, en þó væri að meðaltali seldir um tveir bflar á dag. Söluhæstu Fiatbflarnir hafa hækkað milli 80—100 þúsund vegna gengisfellingarinnar og söluskattshækkunarinnar. „Engu að sfður er töluverð eftirspurn enn þá, mikið hringt hingað og spurt, en fólk virðist hrökkva töluvert við, þegar það heyrir verðið," sagði forsvarsmaður Fiatumboðsins. — Kilimanjaró Framhald af bls. 32 af allrl fyrirgreiðslu, en f stuttu samtali við Morgunblað- ið f gær sögðu þeir, að ferðin hefði verið hin ævintýraleg- asta, bæði fróðleg og skemmti- leg. Þeir félagar höfðu 20 inn- fædda burðarmenn með sér f leiðangrinum, en þeir fóru þó ekki upp á efstu tindana. Vitað er um einn Islending, sem áður hefur gengið á Urutind, en það er Agnar Kofoed-Hansen flug- málastjóri; hann taldi þá ferð mjög erfiða vegna hins þunna lofts. Loftveiki hrjáði einnig þá þrjá, sem gengu á hæsta tind- inn, og m.a. sofnuðu tveir þeirra þarum stund hrelnlega duttu út af. Áður en þeir fóru niður aftur, reistu þeir fslenzka fánann á þessum hæsta tindi Afrfku. Nánar verður sagt frá ferðalagi Eyjapeyjanna hér f blaðinu sfðar. — Nóbels Framhald af bls. 1 gegn kommúnisma og nasisma á árunum eftir 1930. Verðlaunin nema 550.000 sænskum krónum, og er þeir fé- lagar voru að þvf spurðir, í hvað þeir myndu eyða peningunum, sagðist Johnson ekki vita það, en Martinson sagði, að sinn helm- ingur færi í að borga skuldir og skatta og nægði þó ekki til. Vangaveltur eru uppi um það, að ástæðan fyrir því, að Johnson og Martinson fengu verðlaunin í ár, hafi verið sú, að akademían hafi ekki viljað draga athyglina frá Alexander Solzhenitsyn, er hann kemur á Nóbelshátíðina til að taka við verðlaununum, sem honum voru veitt 1970. — Engin bilbugur Framhald af bls. 30. sér — það er enginn mulnings- vélarbragur á henni um þessar mundir, heldur þvert á móti var hún stundum næsta svifasein og bauð Framleikmönnunum upp á ýmislegt, sem á að vera unnt að komast hjá. Stefán Gunnarsson kom einna bezt út af Valsmönnum í þessum leik, svo og Jón Karlsson, sem átti ágæta spretti á köflum. Guðjón Magnússon olli hins vegar von- brigðum, en hann var eitthvað miður sfn og óheppinn með skot sín. Hið sama má reyndar segja um Gunnstein, sem hvað eftir annað fór inn úr hægra horninu, en lét jafnan verja hjá sér. Mörk Fram: Stefán Þórðarson 6, Pálmi Pálmason 5, Björgvin Björgvinsson 2, Hannes Leifsson 1, Kjartan Gfslason 1, Pétur Jó- hannsson 1. Mörk Vals: Ólafur H. Jónsson 4, Jón Karlsson 3, Stefán Gunnars- son 2, Jón Pétur Jónsson 1, Gunn- steinn Skúlason 2, Jóhannes Stefánsson 1, Bjarni Guðmunds- son 1; Dómarar: Björn Kristjánsson og Kristján örn Ingibergsson. Hið sama má segja um þá og suma leikmennina, þeir byrjuðu mjög vel, en þegar á leikinn leið fór að gæta svolftils ósamræmis hjá þeim. Ekki verður þó. annað sagt en að þeir hafi komizt ágætlega frá leiknum, þegar á heildina er litið. —stjl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.