Morgunblaðið - 04.10.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKT0BER 1974
19
— Samgöngumál
Djúpmanna
Framhald af bls. 11
öðru dagsverki í verkalaun svo einn
hinna mestu mjólkurbænda hér um
slóðir komist hjá þvi að hella niður
nokkur hundruð mjólkurpottum, svona
rétt í þann mund, er kýrnar eru að fara
úr fjósunum. Þar áttu guð og sólin að
þurrka landið og bóndinn að bíða í
þögulli undirgefni þess, er verða vildi.
Það skal heldur ekki í efa dregið, að
þeim sé þröngur stakkur skorinn fjár-
hagslega, en oft veltur þó á nokkru,
hve góður vilji áorkar r þessum málum
sem öðrum og skilningurinn á þeim
skilyrðum, sem lökust má telja Hinu er
ekki að leyna, að stórfé mun þurfa til
að koma vegunum hér í sæmilegt horf.
Búum við langleiðina ennþá við vega-
troðninga, sem í vordaga þeirra fram-
kvæmda voru af fáum krónum teygðir
sem lengst og eru margir hér nú verr
settir ! aðdráttum sínum og mjólkur-
flutningum frá heimilunum en meðan
hesturinn og klakkurinn voru styrkustu
burðarásarnir í þeirri gerð. Enda sýna
verkin merki ! þeirri reynd, að mólkur
framleiðslan er að leggjast niður, þar
sem öryggið er ekkert til að koma
henni á markað og flestir trénast upp á
Vélapakkningar
Dodge '46—'58, 6
strokka
Dodge Dart '60—'70,
6—8 strokka.
Fiat, allar gerðir
Bedford, 4—6 strokka,
dísilhreyfill
Buick, 6 — 8 strokka
Chevrol. ' 48—'70,
6—8 str.
Corvair
Ford Cortir.a '63—'71
Ford Trader, 4—6
strokka
Ford D800 '65—'70
Ford K300 '65— '70
Ford, 6—8 strokka,
'52—'70
Singer - Hillman - Rambler
Renault, flestar gerðir
Rover,
bensín- og dísilhreyflar
Skoda, allar gerðir
Simca
Taunus 12M, 17M og
20M
Volga
Moskvich 407—408
Vauxhall, 4—6 strokka
Willys '46 —'70
Toyota, flestar gerðir
Opel, allar gerðir.
Þ. Jónsson & Co
Símar: 8451 5-
Skeifan 1 7.
84516.
þv! að standa úti í gaddi og byl við
snjómokstur með lítilli handskóflu til
að komast á milli bæja, en hella mjólk-
inni að öðrum kosti niður I ræsið hjá
sér langtimunum" saman. Þetta er sú
blákalda og nöturlega staðreynd, sem
við blasir og á ekkert skylt við það, þar
sem mjólkin er sótt heim að fjósdyrun-
um á hverjum einasta degi ársins,
bóndanum svo að segja að fyrirhafnar-
lausu. Þetta m.a.a gerir það að verkum
að flyija verður hingað í sjávarþorpin á
annað hundrað þúsund lltra af nýmjólk
og rjóma, sem ekki er þó nema um
helmingur þess, sem þyrfti, þvi að oft
er litlamjólkað fá, og auk þess skyr og
smjör í stórum stil. Flutningskostnaður
þessa mjólkurmagns skiptir hundruð-
um þúsunda króna, svo að ekki er of i
lagt, að á aðra milljón króna kosti bara
flutningur þess mjólkurmagns, sem á
vantar, að mjólkurþörfinni séfullnægt.
Svona er nú sagan af búskaparað-
stöðunni við Djúpið okkar hérnaá því
herrans ári — ellefu alda byggðar ári
okkar ástkæru þjóðar og er það þá
nokkuð mikið upp ! sig að taka hjá
Dalakonunni, henni Rögnu á Lauga-
bóli, þótt henni finnist, að meðan
búskaparaðstaðan er ekki betri en raun
er á, megi leggja aðrar áætlanir á
hilluna, þar til betur úr rætist.
Ég vil hins vegar segja það, að hér
þarf traustra manna tak til að snúa
vörn I sókn, svo sterka sókn, að ekkert
undan láti. Við eigum á þvi heimtingu
og rétt, að til okkar sé litið. Við erum
hér borin og barnfædd og hér viljum
við vera. Við erum samgróin þeirri
sveit, sem alið hefur okkur síðan við
vorum börn og lékum okkur I varpan-
um. Harðbýli höfum við þolað um
árabil I rikara mæli en flestir aðrir. ísar,
kal og klakar hafa kollvarpað afkomu
okkar og framtíðarvonum. Við eigum
eftir að borga skuldirnar, sem við söfn-
uðum á sex ára samfelldu grasleysis-
timabili við að kaupa hey ofan I skepn-
urnar okkar til þess að byggðin þurrk-
aðist ekki út og yrði eins og eyðimörk.
Og gegnum. allar þær raunir hefur
samfélagið ekki séð nokkra minnstu
ástæðu til að sýna bændum þessarar
byggðar hinn minnsta vott um aðstoð,
eða svo lítinn, aðengandrótil fram-
dráttar úr því sem komið var Eitt
minnsta sveitarfélagið, sem vitanlega
eru bændurnir einir, stendur undir
svipuðum skuldaþunga vegna þessa
áminnzta árferðis, sem að tiltölu væri
nú á Reykvíkingum um fjórir milljarðar
króna, og er þá ekki einn fjórði tjónsins
< talinn með og ekki heldur hið gifurlega
tjón, sem hvergi er talið, en er vægt
áætlað ekki minna en annað eins.
Hitt vil ég að komi fram og af alhug
þakka, að það voru bændurnir um allt
landið, sem skildu aðstæður okkar og
seldu okkur hey ofan á hey, án nokk-
urrar tryggingar um greiðslu. Ég er að
vona, að flestir hafi fengið þar fyrir sitt.
Ég á margt eftir í pokahorninu, sem
ég gæti minnzt á, en þetta er þegar
orðið lengra en vera átti i upphafi
þessara orða. En það er mér Ijóst, að
margur má gá til sólar áður en svo yfir
jafnast í búskaparlegri aðstöðu hér við
Djúp, að ekki verði hætta á ennþá meiri
grisjun byggðar en þegar er, og þykir
þó flestum nóg.
Vélsmidja
ORMS & VÍGLUNDARsf.
LAGMÚLA 9 SÍMI 86199 REYKJAVIK
óska að ráða járnsmiði, vélvirkja, plötusmiði,
rafsuðumenn. Sími 861 99.
Kodak I Kodak ■ Kodak I Kodak HjKodak
KODAK
Litmgndir
á^dögum
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82S9Q
Alliance Francaise
Frönskunámskeið
Kennt er i mörgum flokkum fyrir byrjendur og lengra komna.
Kennarar eru franski sendikennarinn, Jacpues Raymond, og Marcelle
Raymond.
Innritun i Bókaverslun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4 og 9, simar 14281
og 1 1936.
Væntanlegir nemendur komi til viðtals i Háskólann (10. stofu) mánu-
daginn 7. október.
Minjagripir
frá Landsmóti
Vindheimamelum.
Til sölu: Veggplattar, könnur, umslög, hesta-
póstur, dómar ofl.
Landssamband hestamannafélaga Hverfisgötu
76. S: 10646.
Úrbeinum
kjötiö
Nautaskrokka
Kálfaskrokka
Svínaskrokka
Folaldaskrokka
Tilbúið beint í f rystikistuna
Laugalæk 2. REYKJAVIK. Simi 3 5o2o
I
Afrræiishátíð
Starfsstúlknafélagið Sókn heldur afmælishátíð í
tilefni af 40 ára afmæli félagsins að Hótel Borg
í kvöld föstudaginn 4. október kl. 21 .
Dagskrá hátíðarinnar verður:
1. Formaður, Guðmunda Helgadótt-
ir setur hátíðina og kynnir fyrsta
formann félagsins, Aðalheiði Hólm.
2. Margrét Auðunsdóttir flytur
ræðu.
3. Guðrún Á Símonar, óperusöng-
kona syngur einsöng.
4. Karl Einarsson flytur skemmti-
þátt.
5. Dans.
Aðgöngumiðar fyrir félagskonur og
gesti þeirra fást á skrifstofu félagsins
trúnaðarmönnum á vinnustöð-
um félagsins. Aðgangur er ókeypis. _ ,
Stjormn.
Caterpiller jaröýtur til sölu
Til sölu Catepillar jarðýtur D 7, með og án riftannar og Catepillar jarðýta
D 6 án riftannar.
Upplýsingar veittar hjá Jarðýtunni s.f., Ármúla 40.
Skip frá Japan
Nálægt 10. október koma hingað til lands umboðsmenn all margra japanskra
skipasmíðastöðva, skipaverkfræðingur og viðskiptastjóri. Þessir aðilar hafa hug á,
að ræða við islenzka útgerðarmenn um ýmsar tegundir fiskiskipa, og aðhæfa
framleiðslu sína að íslenzkum aðstæðum. Þeir, sem hafa hug á að ræða um þessi
málefni við hina japönsku fulltrua, vinsamlegast sendið nafn og heimilisfang til
Magnúsar Viglundssonar, Pósthólf 80, Austurstræti 17, Reykjavík.
Það skal tekið fram, að afgreiðslutimi skipanna er yfirieitt stuttur.
Magnús Vfglundsson hf.,
Austurstræti 17. Pósthólf 80.
Símar 13057, 21557. Heimasimi 41 523.