Morgunblaðið - 23.10.1974, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 23.10.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÖBER 1974 7 Endurheimtur 1 árs seiða fjórfalt meiri en 1973 Stórglæsilegur árangur í Kollafirði Bráðabirgðaniðurstöður rann- sókna á endurheimtum I Kolla- fjarðarstöðinni líggja nú fyrir í skýrslu eftir Árna (saksson. Þar kem- ur fram að endurheimturnar í ár eru einhverjar þær beztu frá því að stöð- in tók til starfa. Alls var sleppt 23300 seiðum, eins og tveggja ára, vorið 1973 og af þvi skiluðu sér 3065 laxar eða að meðaltali 12,2%, sem er feiknagóður árang- ur. Af þessu magni voru 11100 seiði merkt, annaðhvort með Carlinmerkj- um eða merkjum frá Neil og Sons i Bretlandi, auk þess, sem þar af voru 2300 uggaklipptir. Samtals skiluðu sér 1 186 merktir laxar, sem gerir skilaprósentuna 10,7 fyrir merktan fisk. 11800 ómerktum seiðum var sleppt og af því skiluðu sér 1660, sem þýðir um 14% endurheimtur, sem er algert met. Tekið var eftir því í þessu sambandi, að heimtur ómerktra fiska og fiska, sem voru uggaklipptir, voru mjög svipaðar, enda er það svo, að sú uggaklipp- ing, sem hér var framkvæmd, háir fiskinum minnst I lífsbaráttu hans í sjónum 328 klaklaxar voru nerktir, eftir að þeir höfðu verið kreistir og þeim sleppt í desember. Daginn eftir að þeim var sleppt, hófst mikið kuldakast, sem stóð í nokkra daga og lagði Kollafjörð þá. Sýnt þótti þá, að þessum löxum myndi ekki vegna vel og voru endurheimturnar aðeins 1,2%, samborið við 30% árið áður. Merktu seiðunum var sleppt árið 1973 í 12 flokkum. í sex flokkum voru tveggja ára seiði, 1 árs seiði I 5 flokkum, auk þess, sem 430 eins og tveggja ára seiðum var sleppt úr flotbúri úr sjávartjörn um miðjan október Það, sem vekur hvað mesta at- hygli, eru endurheimtur 1 árs seið- anna, sem voru frá 6,6% upp ! 10,6%. Þessi seiði höfðu öll verið alin ! 35 vikur við náttúrlega birtu, gegnum plastþak á eldisstöðinni. Hitastigið var haft tiltölulega hátt, nema ! janúar og febrúar, er náttúru- hitinn var látinn halda sér til að ná fram eðlilegum vetrarskilyrðum. Þessar birtutilraunir hófust 1971 og Merktur hoplax f Kollafirði kom þegar ! Ijós, að eðlileg birtuskil- yrði juku mjög endurheimtur 1 árs seiðanna. Voru þetta mjög mikil- vægar niðurstöður, því að menn voru fremur farnir að hallast að þvi, að rækta yrði seiðin ! 2 ár til að ná sæmilegri endurheimtu. Ýmsar til- raunir voru gerðar á flokkunum 5 og m.a. var einn flokkurinn alinn á feitmetisfóðri, og annar á fitulausu fóðri. Kom ! Ijós, að mikill munur var á endurheimtum úr þessum flokkum. Aðeins 6,6% af seiðunum, sem alin voru á feita fóðrinu, skiluðu sér, en 10,6% af þeim, sem alin voru á fitulausu fóðri Báðar þessar fóðurtegundir voru frá fyrirtækinu Fiskfóður i H/F og bjó dr. Jónas Bjarnason til formúlurnar. Meðal- heimtur 1 árs seiðanna voru 8,5%, sem er fjórum sinnum betri árangur en náðist 1973 og var þá bezti árangurinn frá opnun stöðvarinnar. Eru þessar endurheimtur stórglæsi- legur sigur fyrir Kollafjarðarstöðina og þá menn, sem að henni standa, og miklar fréttir fyrir fiskeldis- og fiskræktarmenn á íslandi Endurheimtur tveggja ára seið- anna voru einnig betri en áður og námu frá 9,3% — 1 1,6% og var meðaltalið þar 9,7%. Eins og fyrr segir voru meðalendurheimturnar 12,2% og er vafasamt, að betri árangur hafi nokkru sinni náðst hjá svipaðri eldisstöð þótt vtða væri leit- að enda hafa endurheimturnar vakið verðskuldaða athygli erlendra vís- indamanna og er ástæða til að óska Kollafjarðarmönnum til hamingju með sumarið. Nú standa yfir umfangsmiklar til- raunir i Killafirði, sem kostaðar eru af Sameinuðu þjóðunum og munu fyrstu niðurstöður af nýrri merkinga- tilraun væntanlegar næsta sumar. Eins árs seiði ! eldiskeri. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grísaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Til sölu Benz '66 og Bedford '70 vöru- bifreiðar. Eru í góðu ásigkomulagi. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020. Upplýsingar i síma 92-1559 á skrifstofutima. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. k9- Kjötmiðstöðin, sími 35020. Grindavik Til sölu 3ja herb. ibúð á neðri hæð. Sérinngangur. Laus strax. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavik simar 1 263 og 2890. Njarðvik Til sölu nýtt einbýlishús i Ytri- Njarðvik ásamt stórum bílskúr. Söluverð 6,2 millj. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Atvinna Stúlka óskast til aðstoðar i af- greiðslu okkar. Bifreiðastöð Steindórs s.f., Hafnarstræti 2. Atvinna óskast 25 ára námsmaður í öldungadeild M.H. óskar eftir vinnu. Allt kemur til greina. Hef bílpróf. Uppl. i sima 73563. Kynditæki óska eftir að kaupa 3 V2—4 fm miðstöðvarhetil með öllu tilheyr- andi. Upplýsingar í síma 93-721 1. Til sölu Moschwith '66 Upplýsingar í síma 19713, eftir kl. 7 á kvöldin. Keflavík Til sölu litið einbýlishús í góðu standi i óinnréttuðum kjallara. Geta verið 3 herb. eða litið ibúð. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90 simi 3222. Innréttingasmíði Smíðum eldhúsinnréttingar, klæðaskápa ofl. Tilboð eða tíma- vinna. Fljót og góð afgreiðsla. Uppl. i smiðastofunni Hringbraut 41 á daginn og i síma 16517 á kvöfdin. Til sölu Datsun diesel módel '71 Upplýsingar í síma 99-1555, Selfossi. Óska eftir2ja—3ja herb. ibúð á Húsavik. Upplýsingar i sima 18728 eftir kl. 8 á kvöldin. Bronco '66 Til sölu er Ford Bronco '66. Upplýsingar í sima 83263, Tunguvegi 12 Reykjavák. Hestamenn Til sölu nokkur folöld af Hindis- víkurkyni. Upplýsingar i sima 83363 á kvöldin. Keflavík Til sölu gott 2ja hæða ibúðarhús við Austurgötu, ásamt stórum bil- skúr. Má seljast i tvennu lagi. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik simi 1420 Prjónakonur takið eftir Kaupum lopapeysur. Hækkað verð. Einnig vettlinga og sjón- varpssokka. Seljum þriþættan lopa. Móttaka 1—3. Unex, Aðalstræti 9. Mussur, dömuskyrtu- blússur, herraskyrtur seldar beint af lager til verzlana. Þekktur framl. Tilb. merkt: „3577", sendist Herming Annonce, Reklame Bureau, Bred- gade 1 5, DK 7400 Hern g, Dan- mark. Til sölu á Patreksfirði góð íbúð, 3 herb. og eldhús ásamt herb. í kjallara. Uppl. I síma 94-1293 milli kl. 7 og 8 á kvöldin. ÞEIR DUKR UIÐSKIPTin SEHl nucLvsni Gengisfellingar koma og gengisfellingar líða hja, en Toyota bílarnir hafa sýnt að fjárfest- ing í þeim stendur ávallt fyrir sínu. Toyota bíll er trygg fjárfesting. TOYOTA TOYOTA AÐALUMBOÐ HÖFÐATÚNI 2 REYKJAVlK SlMAR 251118,22716 . UMBOÐIÐ A AKUREYRI BLÁFELL SÍMI 21090 Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.