Morgunblaðið - 23.10.1974, Blaðsíða 24
nucivsincDR
<&4-w22480
np Ai/T Merkjasala
^O.UrX I. til styrktar
laugardagur geósjúkum
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1974
6000 lestir fluttar
út af brotajárni
Nýlega fór Grundarfoss með 100
tonn af brotajárni til útlanda og
var þetta allt endurvinnslujárn
frá Sindra h.f. f Reykjavfk, en
áður en járnið er sent úr landi
sundurgreinir Sindri allt járnið.
Ásgeir Einarsson hjá Sindra
Hús í Banka-
stræti á 20 millj.
UM þessar mundir er verið að
selja húsið Þingholtsstræti 1, en
það stendur á mótum Banka-
strætis og Þingholtsstrætis. í hús-
inu, sem er ekki mjög stórt um
sig, eru nokkrar verzlanir. Már
Gunnarsson, lögfræðingur, sem
hefur húsið til sölu, sagði f sam-
tali við Mbl. f gær, að óskað væri
eftir tilboðum f það, og gert væri
ráð fyrir, að það yrði selt á um 20
millj. kr., en það væri verð, sem
eigendur hússins mundu geta
sætt sig við, en það stendur á
eignarlóð.
Varnarsamn-
ingurinn
undirritaður
sagði f samtali við Morgunblaðið í
gær, að á þessu ári væri áætlað að
vinna 6000 tonn af brotajárni til
útflutnings. „Það sem okkur
vantar helzt til að geta flutt út
meira af brotajárni eru afkasta-
meiri tæki,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði, að járnið væri allt
sundurgreint um leið og það
kæmi inn og færi það þvf sundur-
greint um borð í skipin og er því
tilbúið í bræðsluofnana þegar út
kemur. Miklu ódýrara er að fram-
leiða stál úr brotajárni en málm-
grýti, t.d. þarf aðeins eina orku-
einingu til að framleiða jafnmikið
stál úr brotajárni og hægt er með
þremur orkueiningum þegar stál
erframleitt úr málmgrýti.
Þá sagði Ásgeir að fólk á Islandi
væri nú fyrst farið að kunna að
halda brotajárni saman, en ein-
staka héidi þessu ekki saman. Þá
sagði hann að Sindri væru nú með
sérstaka bíla, sem færu um og
sæktu brotajárn, og væri þetta
ekki síður hreinsunaratriði.
Myndin er tekin þegar
verið var að skipa brota-
járninu um borð í
Grundarfoss. Ljósm.
Mbl.: Ól.K.M.
SAMKOMULAG, er gerir ráð
fyrir áframhaldandi rekstri
stöðvar Atlantshafsbandalagsins,
var undirritað f Reykjavfk f gær
af hálfu tslands og Bandarfkj-
anna.
Þetta samkomulag er til komið
eftir viðræður þeirra Einars
Agústssonar utanrfkisráðherra og
Joseph Siscos aðstoðarutanrfkis-
ráðherra Bandarfkjanna, en þeim
lauk 26. sept. s.l. og fóru fram f
Washington.
Af Islands hálfu undirritaði
Einar Ágústsson utanrfkisráð-
herra áðurnefnt samkomulag, en
Frederick Irving ambassador af
hálfu Bandarfkjanna.
Lokaviðræður við Union
Carbite í næstu viku
Iðnaðarráðherra ræddi við forráðamenn fyrirtækisins
William Heinesen
IÐNAÐARRAÐHERRA, Gunnar
Thoroddsen, kom f gær frá
Bandarfkjunum þar sem hann
var f nokkra daga og ræddi við
forráðamenn Union Carbite fyrir-
tækisins. 1 næstu viku koma svo
fulltrúar Union Carbite til
fundar við stóriðjunefnd á Is-
landi og munu halda áfram við-
ræðum um málmblendiverk-
smiðjuna f Hvalfirði.
Gunnar Thoroddsen sagði f við-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi,
að hann hefði dvalizt í 4 daga í
Bandaríkjunum ásamt Jóni Stein-
grímssyni verkfræðingi. Þar
hefðu þeir rætt við fulltrúa Union
Carbite um fyrirhugaða málm-
blendiverksmiðju og ennfremur
skoðað verksmiðjur og rann-
sóknastofur fyrirtækisins.
Iðnaðarráðherra sagði síðan, er
hann var spurður hve langt á veg
viðræðurnar væru komnar, að
áframhaldandi - viðræður yrðu í
Reykjavík í næstu viku, en þá
kæmu fulltrúar Union Carbite til
landsins. Að þeim viðræðum lokn-
um yrði málið að Ifkindum komið
á lokastig, þannig að endanleg
ákvörðun um hvort gengið yrði að
samningum við bandarfska fyrir-
tækið yrði tekin af ríkisstjórn og
alþingi á næstunni.
Málblendiverksmiðjan fyrir-
hugaða mun að lfkindum rísa á
Grundartanga í Skilamanna-
hreppi f Hvalfirði, en það er um
15 km innan við Akranes. Sam-
kvæmt áætlunum á hún að fram-
leiða 50 þús. lestir af járnblendi
eða ferrocilicone á ári.
Stórfelldur vörustuldur í Hagkaup:
Fyrrum lagerstjóri játar
þjófnað fyrir hundruð þús.
KOMIZT hefur upp um stórfclld-
an vöruþjófnað fyrrverandi lagar-
stjóra Hagkaups. Lagerstjórinn,
sem er kona, hefur játað að hafa á
nfu ára tfmabili stolið ýmiss kon-
ar varningi fyrir rúmlega 440
þúsund krónur af lager fyrir-
tækisins. Mest af þessum vörum
hefur hún haft á brott með sér á
þessu ári og hinu sfðasta, en jafn-
framt hefur konan játað á sig
stuld á saumavél árið 1965.
Málið var kært til rannsóknar-
5 bækur eftir Heine-
lögreglunnar hinn 19. september
sl. af forráðamönnum fyrirtækis-
ins, sem töldu sig þá hafa rök-
studdan grun um að konan stund-
aði þjófnað hjá fyrirtækinu I stór-
um stíl. Konan var úrskurðuð í
gæzluvarðhald, en neitaði öllum
sakargiftum í fyrstu. Eftir fjóra
daga breytti konan hins vegar
framburði sfnum og játaði á sig
umtalsverðan þjófnað hjá fyrir-
taekinu.
Að fenginni þessari játningu
var konan látin vísa á geymslu-
stað þýfisins og reyndust þeir
tveir — heima hjá henni og syni
hennar. Fyllti þýfið einn og
hálfan sendiferðabíl, mátti þar
finna vefnaðarvöru ýmiss konar,
handklæði, viskustykki, jóla-
löbera, kjóla og peysur, 2 poka af
súkkulaði, kerti, Krupskaffivél,
borðbúnað úr stáli, tjaldhimin,
viðleguútbúnað, myndavél, hræri-
vél, og krullujárn, svo að eitthvað
sé nefnt. Hins vegar neitar konan
að hafa stolið matvöru frá fyrir-
tækinu.
Verðmæti þýfisins reyndist sem
fyrr segir samtals um kr. 440
Framhald á bls. 23
Skyldusparnaðarmálið:
sen unnar á Islandi
UM ÞESSAR mundir er verió
að setja skáldsögu Williams
Heinesens „Vindsamur morg-
unn“ á vegum Odda h.f., en
vegna mikillar vinnu þar um
þessar mundir er starfið unnið
f Prentsmiðju Guðmundar
Benediktssonar. Af þessu til-
efni hafði Mbl. sfmasamband
við William Henesen á heimili
hans f Þórshöfn og innti hann
eftir frekari málavöxtum.
Henesen sagði:
— Þessi bók kom út á dönsku
árið 1934 og hefur ekki fyrr
komið í færeyskri þýðingu, því
að ég sem verk mín á dönsku.
Prófessor Christian Matras hef-
ur þýtt hana á færeysku og
kemur hún út á vegum fær-
eysks forlags sem heitir Bóka-
garður. Það forlag hefur einnig
samið um að fjórar bækur til
viðbótar eftir mig verði þýddar
á færeysku og síðan unnar á
Islandi til útgáfu hér í Færeyj-
um. Ástæðan er sú, að það er
bæði hagkvæmara peningalega
séð fyrir forlagið og sömuleiðis
Framhald á bls. 23
Utreikning lýkur
1 næsta mánuði
1 BYRJUN næsta mánaðar mun
Veðdeild Landsbanka tslands
Ijúka við að reikna út hve mikið
fé rfkið, eða réttara sagt bygg-
ingasjóður rfkisins, hefur
haft af fólki á skyldusparnaðar-
aldri á undanförnum árum. 1
sumar kom f ljós, að þetta fólk
hafði aldrei fengið vfsitölubætur
á fé sitt, sem mun vera skylda
samkvæmt lögum. Þá á það einn-
ig að fá vexti á vfsitöluféð. Ekki
er vitað með vissu um hve mikla
Framhald á bls. 23