Morgunblaðið - 23.10.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.10.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKT0BER 1974 11 Jón Guðmundsson frá Þingeyri — sextugur JÓN Guómundsson er fæddur á ísafirði 23. október 1914, sonur hjónanna Guðlaugar Runólfs- dóttur og Guðmundar Jónssonar vélstjóra. Jón byrjaði sjómennsku 14 ára gamall eins og fleiri Vest- firðingar, þá á línuveiðum með hinum kunna skipstjóra Páli Jónssyni, en hann var föðurbróðir Jóns. Jón hefur verið traustur og duglegur sjómaður og gat þvf valið um skiprúm, enda var hann alltaf með landskunnum afla- mönnum svo sem Þorsteini Eyfirðingi, Guðmundi Júnf og Barða Barðasyni. Með þessum skipstjórum var Jón bæði á línu- veiðum og síldveiðum. Jón átti lengi heima á Þingeyri við Dýrafjörð, en 1947 fluttisr hann til Patreksfjarðar og réðíst þar á botnvörpunginn Vörð o^var á honum þar til hann sökk 29. janúar 1950. Þá fíuttist hánn til Hafnarfjarðar og hefur síðan Sigurður Snorrason bóndi á Gilsbakka er áttræður í dag. Sigurður er fæddur á Laxfossi í Stafholtstungum 23. okt. 1894. Voru foreldrar hans Snorri Þor- steinsson bóndi á Laxfossi og kona hansGuðrún Sigurðardóttir. Snorri faðir Sigurðar var frá Húsafelli, bróðir Kristleifs fræði- manns á Stóra-Kroppi, en Guðrún móðir hans var frá Efstabæ, systir Ásgeirs á Reykjum föður Magnús- ar skálds, Leifs prófessors og þeirra bræðra. Ungur fluttist Sigurður að Húsafelli og átti þar sín æsku- og uppvaxtarár. Hinn 23. júní 1923 kvæntist hann Guð- rúnu Magnúsdóttur prófasts á Gilsbakka Andréssonar. Hófu þau hjón þá búskap á Gilsbakka. Hef- ur Sigurður nú búið þar í fimmtíu og eitt ár. Síðustu áratugina hefur verið togarasjómaður en alltaf verið heppinn með pláss. Jón var nýbúinn að vera á annan áratug hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, lengstaf með hinum vinæla skip- stjóra Sigrjóni Stefánssyni. Jón hefur marga hildi háð. Svo stærstu atvik séu nefnd. bá lenti hann f „Fróðaslysinu" 11. marz 1941, þegar félagar hans voru skotnir niður báðum megin við hann. Þá „Varðarslysinu" sem enginn gleymir, 29. janúar 1950, og svo þegar togarinn Júlí fórst, f því illræmda veðri á Nýfundna- landsmiðum, 8. febrúar 1959. Þá var Jón með hinum valinkunna skipstjóra Benedikt ögmundssyni á Júní, sem þá var mjög hætt kominn, en aldrei hefur Jón gefist upp, — alltaf haldið á sjóinn aftur. Kona Jóns er Guðmunda Þor- valdsdóttir, þau eiga nú heima á Laufásvegi 10 í Reykjavík og á 60 ára afmælisdaginn ætlar hann að Magnús sonur hans einnig verið bóndi á Gilsbakka. Þau Sigurður og frú Guðrún eignuðust 3 börn, sem öll lifa. Þau eru: Magnús bóndi á Gilsbakka, kvæntur Ragnheiði Kristófers- dóttur frá Kalmanstungu, og Sig- ríður og Guðrún, sem búsettar eru í Reykjavík. Hinn 9. september 1943 missti Sigurður Guðrúnu konu sína. Var þá mikill harmur kveðinn að Sig- urði og fjölskyldu hans er sú mikla ágætiskona var horfin af heimi. En Sigurður og fjölskylda hans voru samhent og sterk og hélt öllu í horfi. Árið 1946 kvænt- ist Sigurður öðru sinni önnu Brynjólfsdóttur frá Hlöðutúni, mikilli ágætiskonu. Hefur heimili þeirra staðið með miklum blóma nú f tæp 30 ár. vera við sfn störf um borð f Ingólfi Arnarsyni. Þangað veit ég að margir munu hugsa hlýtt til hans og senda heillaóskir, þvf svo er Jón gerður að hann má ekkert aumt sjá án þess að vilja hjálpa. Guð gefi honum starfsþrek til að endast hálfa öld á hafi úti, þar vantar lftið á. Með bestu kveðju frá mér og minni konu. Ottó Þorvaldsson frá Svalvogum. Sigurður á Gilsbakka er gáfað- ur maður eins og hann á kyn til. Menntun hans er mikil og djúp- stæð þeirrar gerðar, sem bezt er og styrkust. Tveggja vetra nám í Hvftárbakkaskóla var vissulega gott vegarnesti til styrktar heima- arfi. En Sigurður hefur aldrei lát- ið staðar numið í leit að þekkingu og mennt. Hann er bóndi af lífi og sál, mikill þar að þekkingu og athöfn allri svo sem hverjum er ljöst, er sækir hann heim. Bók- menntir og þekking öll er honum hugstæð, og íslenzk tunga er fög- ur frá hans hendi, hvort heldur er í riti eða ræðu. Heimilið á Gilsbakka er mikið að allri rausn og gerð. En það er meira. Margir, bæði yngri og eldri, hafa átt þar skjóls að leita og notið þar umhyggju og hlýju. Fyrir þetta og ótalmargt fleira vil ég þakka nú á merkisdegi. Og síðast en ekki sízt vil ég þakka fyrir mig og mína alla, ég þakka fyrir órofa vináttu og góðvild — fyrir allt svo gott á 42 ára sam- fylgd. Einar Guðnason. Sigurður Snorrason Gilsbakka - áttræður Félag ísl. gullsmiða 50 ára 19. október s.l. voru liðin 50 ár frá stofnun Félags fslenzkra gull- smiða. Stofnendur félagsins voru 29, en nú eru félagar um 60 talsins. Af stofnendum eru fimm á lífi, og hafa þeir verið gerðir að heiðursfélögum f tilefni hálfrar aldar afmælisins. Þeir eru Guð- jón Bernharðsson, Guðmundur Þorsteinsson, Kjartan Ásmunds- son, Leifur Kaldal og Öskar Gfsla- son. Tveir gullsmiðir aðrir höfðu verið gerðir að heiðursfélögum árið 1951, en það voru þeir Jóna- tan Jónsson og Jón B. Eyjólfsson, sem báðir áttu sæti f fyrstu stjórn félagsins. 1 tilefni af 50 ára afmælinu hefur Félag íslenzkra gullsmiða gefið 50 þúsund krónur til kaupa á verkfærum, sem nota á við verk- lega kennslu f faginu f Iðnskól- anum. Nú vinnur Þór Magnússon þjóð- minjavörður að samantekt gull- smiðatals, og munu þar taldir allir þeir gullsmiðir, sem vitað er til, að hafi lagt stund á þessa iðn hérlendis. Af annarri starfsemi félagsins er það að segja, að safnað hefur verið saman gömlum verkfærum, sem ætlunin er að verði vfsir að iðnminjasafni. Þá hafa verið stofnuð útflutn- ingssamtök gullsmiða. Samtökin hafa starf að í samráði við ÍJtflutn- ingsmiðstöð iðnaðir, og hafa sam- tökin tekið þátt f sýningum og kaupstefnum á erlendum vett- vangi. Stjórn Félags fslenzkra gull- smiða skipa nú: Dóra Jónsdóttir, formaður, Jens Guðjónsson, ritari og Guðmundur Björnsson, gjald- keri. Þessi mynd var tekin f afmælishófi félagsins s.l. laugardag af fimm nýjum heiðursfélögum ásamt konum þeirra, talið frá vinstri: Öskar Gfslason og frú, Guðmundur Þorsteinsson og frú, Guðjón Bernharðsson, Kjartan Asmundsson og Leifur Kaldal og frú. Bóndi kynntist Bakkusi í kaupstaðarferðinni ÞAÐ ERU engin ný sannindi að áfengisneyzla f óhófi slævi dóm- greind manna, og það sannreyndi Ifka bóndi einn, sem fékk sér fullmikið neðan f þvf f kaup- staðarferð um helgina. Bóndinn hafði drukkið stfft, en þegar leið á nóttu fór hann að finna til svengdar. 1 þann mund var hann staddur inn við Nesti við Elliðaár og gerði hann sér Iftið fyrir, braut rúðu f veitingasölunni og skreið inn. Þar nældi hann sér f harðfisk og fleira lostæti og hafði á brott með sér. Þegar lögreglan fékk hins vegar tilkynningu um innbrotið, var bóndinn reyndar þegar kom- inn í hennar vörzlu. Hafði leið hans legið upp í Breiðholt, þar sem fyrir varð mannlaus íbúð, og lagðist hann til svefns á gólfinu. Var lögreglan beðin um að fjar- lægja manninn og nestismat hans um nóttina og þegar tilkynningin kom um innbrotið, vfsaði malur- inn óðar á bóndann. Annars var mikið um innbrot um helgina, og var sagt frá all- mörgum þeirra í sunnudagsblað- inu. En auk þess má nefna, að brotizt var inn f Matstofu Austur- bæjar og stolið skiptimynt, svo og inn f fyrirtækið Stafn hf. og tré- smiðaverkstæði þess f Brautar- holti 2, án þess að nokkurs væri þar saknað og sömu sögu er að segja um Híbýlaprýði, þar var farið inn en engu stolið að þvf að 5éð verður. Einnig var brotizt inn í gróðrarstöðina Akur við Suður- landsbraut og stolið einhverju af tóbaki úr Vöruflutningamiðstöð- inni við Borgartún. S^júkraflug frá Fornahvammi Þyrla L'andhelgisgæzlunnar var kvödd í sjúkraflug að Forna- hvammi í fyrradag, en þar hafði gestkomandi maður veikzt skyndilega og var hann fluttur á Borgarspftalann. athugun staðfestir að séu allir kostnaðar- liðir við bílrekstur athugaðir (kaupverð, endur- söluverð, viðhald, bensíneyðsla o. s. frv.) reynist hver ekinn km ódýrastur á Toyota eftir 100.000 km akstur, S kr. 0.22/km. TOYOTA TOYOTA AÐALUMBOÐ HÖFÐATUNI 2 REYKJAVlK SlMAR 25111 &22716. UMBOÐIÐ Á AKUREYRI BLÁFELL SlMI 21090 BAHCO VERKFÆRIN SEM ENDAST Fást hjá okkur í miklu úrvali Verzlun ValdPoulsen hf. Suðurlandsbraut 1 0. Símar38520 31142

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.