Morgunblaðið - 23.10.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.10.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÖBER 1974 13 Gögn Nixons áfram í umsjón ríkisvaldsins Washington, 22. okt. Reuter. ALRlKISDÓMARI f Washing- ton hefur kveðið upp þann úr- skurð, að segulbandsspólur og skjöl Richards Nixons fyrrum forseta varðandi embætti hans I Hvfta húsinu, skuli áfram vera f höndum rfkisins. Nixon getur hins vegar fengið aðgang að þessum plöggum og afrit af þeim að vild. (Jrskurður þessi, kveðinn upp af Charles Richey dóm- ara, er sagður talsvert áfall fyrir lögfræðinga Nixons, sem reyndu að halda til streitu gildi samkomulags, sem Nixon hafði gert við stjórn Fords 7. september sl. um, að hann fengi þessi gögn f hendur. I dag var haldið áfram yfir- heyrslum yfir John Dean og var þá leikin segulbandsspóla með upptöku af einum síðasta fundi hans og Nixons, 16. apríl 1973, en þar sagðist Nixon m.a. hafa verið að gera að gamni sínu, þegar hann talaði um að ná í eina milljón dollara til aðstoðar þeim mönnum, sem stóðu að innbrotinu í aðal- stöðvar demókrataflokksins í Watergate 17. júní 1972. Sak- sóknari reyndi að fá því frest- að, að segulbandsspólan yrði leikin, en John Sirica dómari úrskurðaði, að hún skyldi leik- in f dag. Vasiukov er efstur - Larsen 1 þriðja sæti Manilla, Filippseyjum 22. okt. AP. EVGENY Vasiukov, stórmeist- ari frá Sovétrfkjunum, hefur tekið forystuna f stórmeistara- mótinu á Filippseyjum, en hann vann biðskák við Ljubojevic frá Júgóslavfu f næst sfðustu umferð mótsins. Hefur hann nú 10 vinninga. Petrosjan frá Sovétrfkjunum er í 2. sæti með 9 vinninga og Bent Larsen frá Danmörku er þriðji með 8V4 vinning. Larsen hafði lengi framan af forystu á mótinu. I fjórða sæti eru Gheorghiu frá Rúmenfu og Gligoric frá Júgóslavfu með átta vinninga hvor. Sfðasta umferðin verður tefld á morg- un, miðvikudag. Fyrstu verð- laun eru fimm þúsund dollar- ar. Gamli Heath gamnar sér við stelpurnar WILLIAM Heath, 86 ára gam- all faðir Edwards Heaths, leið- toga thaldsflokksins, skýrði blaðamönnum svo frá á dögun- um, að „einn af stærstu kost- unum við það að vera jafn gamall og ég, er sá, að þá get ég gert allt mögulegt, sem ella yrði til, að karlmenn myndu gefa mér duglega á hann. Til dæmis get ég kysst stúlkur í samkvæmum að vild og eigin- menn þeirra kæra sig kollótta — þeir halda ég sé of gamall til að hafa nokkuð gaman af því... En það er einmitt mesti misskilningur. Ég hef hrein- ustu unun af því að stíga f vænginn við stelpurnar. Og það eina, sem ég hef á móti þessu frjálslynda samfélagi, er, að það er fjörutíu árum of seint á ferðinni...“ Helgar- ferðir fjöl- skyld- unnar FLUGFÉLAG tslands hefur nú Friðrik Sophusson, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins, og Brynjólfur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Stjórnunarfræðslunnar. Skipulagsbreytingar á stjóm- ___ r ¥ • ar Rætt við Brynjólf unarnamskeiöum iektor A NÆSTUNNI hefjast stjórn- unarnámskeið Stjórnunarfélags Íslands og Stjórnunarfræðsl- unnar, en þessir aðilar hafa nú ákveðið að skipuleggja f samein- ingu námskeiðahald á vetri kom- anda. Gerðar hafa verið ákveðnar skipulagsbreytingar á stjórnunar- námskeiðunum, þar sem hvert námskeið verður sjálfstæð eining og gert er ráð fyrir, að námskeið- um megi raða saman á margvfs- legan hátt. Þá verður nú boðið upp á átta ný námskeið til viðbót- ar þeim fjórtán, sem áður voru. Framkvæmdastjóri Stjórnunar- fræðslunnar er Brynjólfur Sigurðsson og framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags tslands er Frið- rik Sophusson. Brynjólfur Sigurðsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að helstmbreytingar, sem nú ættu sér stað varðandi stjórnunarnám- skeiðin, væru skipulagsbreyt- ingarnar og fjölgun námskeiða. Nú yrði tekin upp námskeið í bókfærslu, rekstrarbókhaldi, tengslun, birgðastýringu, gæða- stýringu, framhaldsnámskeið í stjórnun, stefnumótun fyrirtækja og útflutningsverzlun. Aðspurður sagði Brynjólfur, að Stjórnunarfélag Islands væri áhugamannafélag, sem stofnað hefði verið 1961, og það hefði haldið námskeið um einstaka þætti stjörnunarmála. Hins vegar hefði það komið á daginn, þegar NÍUNDA þingi Sjómannasam- bands Islands lauk 13. október s.l. og var Jón Sigurðsson endurkjör- inn formaður sambandsins. 1 frétt frá þinginu segir, að menn hafi verið sammála um það, að s.l. ár hafi verið fslenzkum fiski- mönnum frekar hagstætt. Þó telji þingið, að þeir menn sem voru á bátum, sem Iftið öfluðu og báru aðeins úr býtum kauptryggingu, hafi ekki verið ofsælir af sfnum tekjum, þar sem telja verði að kauptrygging sé alltof lág, en hún er samkv. samningum sem undir- ritaðir voru s.l. vor aðeins 58 þús. kr. með vfsitölu og fatapeningum fyrir 12—18 klst. skylduvinnu á sólarhring. Þá segir, að þingið treysti því, að í næstu bátakjarasamniiigum verði stefnt að þvi, að hækka kauptryggingu verulega frá því sem nú er, þrátt fyrir þá láglauna- uppbót, sem þegar hafi verið ákveðin á kauptryggingu báta- manna, svo og að hækkuð verði hlutakjör verulega frá því sem nú er. íslendingar gengu í Fríversiunar- bandalagið, EFTA, að gera þyrfti stærra átak í þessum efnum, en Stjórnunarfélagið gat risið undir. Talið hafi verið nauðsynlegt í því sambandi að koma á samfelldum kynningarnámskeiðum um stjórn- unarmálefni. Stjórnunarfélagið hafi átt sinn þátt í því, en til þess að koma þessum námskeiðum á laggirnar hefði Stjórnunarfræðsl- an verið stofnuð, en hún starfaði á vegum iðnaðarráðuneytisins. I þessu sambandi hefði verið höfð í huga vandamál iðnaðarins eftir inngönguna í Fríverslunarbanda- lagið. Brynjólfur sagði ennfremur, að námskeið Stjórnunarfræðslunnar Jón Sigurðsson Ennfremur segir, að þingið telji, að ef ekki fáist einhver lag- færing á kaupi og kjörum togara- manna, verði ekki hjá því komizt að beita róttækum aðgerðum . og það fyrr en seinna. Einnig mót- mælir þingið þeim bráðabirgða- lögum, sem sett voru 20. sept. s.l., þar sem ráðin voru tekin af Verð- lagsráði sjávarútvegsins með því að ákveða, að fiskverð mætti ekki hækka meir vegna þess gengis- sigs, er átt hafði sér stað, svo og gengisfellingar sfðar. Jafnframt mótmælir þingið harðlega þeim skerðingum á hlut fiskimanna, er gerð var með bráðabirgðalögun- um, þar sem hækkuð var gjald- taka f Stofnfjársjóð fiskiskipa og að auki tekið nýtt gjald f svo- nefndan Olíusjóð, en hækkunin á gjaldinu f stofnfjársjóð og hið nýja olíugjald nemur um 9—11,5% tekjurýrnun. Eins og fyrr segir þá var Jón Sigurðsson endurkjörin formaður Sjómannasambandsins, en aðrir í stjórn eru Kristján Jónsson, hefðu fyrst og fremst verið kynn- ingarnámskeið um undirstöðuat- riði varðandi stjórnun fyrirtækja. Þau hefðu spannað yfir öll megin- svið fyrirtækjarekstrar, fram- leiðslu, sölu, fjármagn, stjórnun og skrifstofuvinnu. Hver þátttak- andi hefði þurft að taka öll nám- skeiðin. En nú hef ði verið gerð sú breyting á, að þetta samfellda námskeið hefði verið leyst upp í svið, sem hver og einn gæti valið úr. 1 framhaldi af þessari breyt- ingu hefðu námskeið Stjórnunar- félagsins verið samræmd starf- semi Stjórnunarfræðslunnar og þau væru nú einskonar fram- haldsnámskeið fyrir hvert svið fyrir sig. Til viðbótar mætti svo nefna Utflutningsmiðstöð iðnað- arins, sem skipulegði námskeið um útflutningsverslun. öll þessi starfsemi myndaði nú eina heild. Að sögn Brynjólf Sigurðssonar eiga menn, eftir þessa breytingu, að geta valið sér raðir námskeiða. I fyrsta lagi gætu menn valið röð, er spannaði öll svið fyrirtækja- stjórnunar. Þar væri um að ræða námskeið Stjórnunarfræðslunn- ar. I öðru Iagi gætu menn valið raðir námskeið innan hvers ein- staks sviðs og þar kæmu fram- haldsnámskeið Stjórnunarfélags- ins til sögunnar. Þá gat hann þess, að námskeiðin væru skipulögð mjög þétt I þeim tilgangi, að fólk Framhald á 23 Hafnarfirði, Pétur Sigurðsson, Reykjavík, Arsæll Pálsson, Hafnarfirði, Tryggvi Helgason, Akureyri, Hilmar Jónsson, Kefla- vík, Sigfinnur Karlsson, Neskaup- stað, Árni Ingvarsson, Akranesi, Bjarni G. Gestsson, Isafirði, Guðmundur Guðmundsson, Grundarfirði, Högni Magnússon, Vestmannaeyjum, Guðlaugur Þórðarson, Keflavík og Sverrir Jóhannsson, Grindavík. SAMTÖK skattstofufólks heitir félag sem stofnað var s.l. laugar- dag og er sérfélag innan starfs- manna félags rfkisstofnana. Einar Ölafsson, formaður Starfsmannafélags rfkisstofn- ana, setti stofnfundinn, en því næst flutti Haraldur Stein- þórsson, framkvæmdastjóri B.S.R.B. ávarp um nýjustu við- horfin í launamálum. Miklar umræður spunnust um röðun skattstofufólks í launa- tekið upp sérstakar helgarferðir fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Er þetta gert í samvinnu við hótel I Reykjavfk, á Akureyri, Húsavfk, Egilsstöðum, Hornafirði og f Vestmannaeyjum. Veita bæði flugfélagið og hótelin verulegan afslátt frá gjaldskrám sfnum. Ferðir þessar, sem eru ætlaðar til hvfldar og skemmtunar, verða seldar þannig, að greitt er f einu lagi fyrir flugfar, hótelgistingu og morgunverð. Hér verður ein- ungis um helgarferðir að ræða, sem standa frá föstudegi eða laugardegi til mánudags. Þær verða þvf ýmist þrfr dagar og tvær nætur eða fjórir dagar og þrjár nætur. Með þessum ferðum opnast möguleikar til góðra hvfld- ar- og skemmtiferða bæði frá Reykjavfk og til Reykjavíkur. Þeim sem koma til Reykjavíkur í þessum ferðum stendur til boða að gista á þremur hótelum, Hótel Sögu, Hótel Esju og Hótel Holti. Meðan á dvölinni í Reykjavík stendur gefst þátttakendum kost- ur á að kynnast því, sem efst er á baugi hverju sinni í félags- og menningarmálum, fara i leikhús, á hljómleika o.fl. jafnframt því að njóta hvfldar og þæginda, sem slfk ferð og dvöl á góðu hóteli býður upp á. Samskonar ferðir, þar sem flug- far, gisting og morgunverður er innifalinn, verða farnar frá Reykjavík til fyrrnefndra staða. Með helgarferðum til þessara staða gefst gestum kostur á ómetanlegri kynningu og fróðleik um þá staði sem heimsóttir eru. Vfða eru samkomur, leiksýningar og dansleikir haldnir um helgar. Þá hefur uppbygging atvinnu- vega verið ör viða um land á undanförnum árum og margt merkilegt að sjá i þeim efnum. Fyrst um sinn munu þessar ferðir vera í gildi til 15. desember n.k., en hefjast sfðan aftur 10. janúar og gilda fram f miðjan marz. Sem dæmi um verð má nefna, að frá isafirði kostar þriggja daga ferð með gistingu og morgunverði á Hótel Esju kr. 6.050, á Hótel Holti kr. 6.350 og á Hótel Sögu kr. 7.050. Sé um fjögurra daga ferð að ræða, kostar ferðin með gistingu á Hótel Esju kr. 7.100, á Hótel Holti kr. 7.700 og Hótel Sögu kr. 8.600. Frá Akureyri kostar þriggja daga ferð (tvær nætur) með gist- ingu á Hótel Esju kr. 6.250, á Hótel Holti kr. 6.600 og á Hótei Sögu kr. 7.300. Ferð frá Reykjavík til Akureyri með gistingu á Hótel KEA kostar í þrjá daga kr. 6.250. 1 fjóra daga kr. 7.400. 1 þessu verði er 19% söluskattur innifalinn. Börn innan 12 ára greiða helming verðs. Skrifstofur og umboðsmenn Flugfélagsins um allt land munu veita aðstoð við útvegun hótel- rýmis, aðgöngumiða o.s.frv., ef óskað er, og veita aðra fyrir- greiðslu. flokka og um framtíðarverkefni samtakanna. Einnig var rætt um skattamál. Kjörin var stjórn Samtaka skattstofufólks, og er hún þannig skipuð: Formaður Rögnvaldur Finnbogason, Reykjavík, aðrir f stjórn: Jón Áskelsson, Hafnar- firði, Valur Haraldsson, Hellu, Ólafur Þórðarson, Akranesi og Bjarghildur Sigurðardóttir, Egils- stöðum. Jón Sigurðsson endurkjörinn formaður Sjómannasambandsins - Samtök skattstofufólks stofnuð -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.