Morgunblaðið - 27.10.1974, Page 10

Morgunblaðið - 27.10.1974, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 fólk — fólk — fólk — fólk J Rætt við r Asgrím Halldórsson kaupfélags- stjóra á Höfn Nýja frystihúsið á Höfn. Ljösm. Mbl. Þórleifur Ölafsson „Talið sjálfsagt að bera mikið í frystihúsin eftir 2—3 ár” Á NÆSTA ári verður tekið f notk- un á Höfn f Hornafirði eitt fuil- komnasta frystihús Iandsins, en húsið sem er á tveimur hæðum að hiuta er rösklega 600 fermetrar að stærð. Nú þegar er búið að taka hiuta þess f notkun, það er mötu- neyti starfsfóiks, frystigeymslur ogfrystitæki, sem notuðhafa ver- ið til að frysta loðnu. Ekki er enn nákvæmlega vitað hve mikið þessi bygging muni kosta, en gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 350 miilj. kr. ef miðað er við að framkvæmdum ljúki á næsta ári. Framkvæmdastjóri frysti- hússins er Ásgrfmur Halldórsson, kaupfélagsstjóri á Höfn, en hann hefur gert kaupfélagið þar að stórveldi á þeim árum, sem hann hefur stjórnað þvf. Ákvörðun tekin 1969 „Ákvörðun um byggingu þessa frystihúss var tekin um áramótin 1969—1970,“ sagði Ásgrímur þeg- ar við ræddum við hann og bætti við, „það var um tvennt að velja, annað hvort að endurbyggja gamla húsið eða byggja nýtt. Niðurstaðan varð sú, að ekki kæmi til greina að endurbyggja gamla húsið, þar sem mikið óhag- ræði hefði skapast af því. Gamla frystihúsið, verður þó notað áfram. Því verður breytt f hús fyrir landbúnaðarvörur, en þar ÖIl snyrtiherbergi eru fifsalögð f hólf og gólf verður frystigeymsla og sláturhús í framtíðinni." „Hvenær hófust áætlanagerðir um nýju bygginguna?“ „I júlí 1970 var fyrsta áætlunin gerð og þá átti húsið að kosta 75 millj. kr. í júlf 1972 var gerð endanleg áætlun, en þó höfðu ver- ið gerðar verulegar breytingar á húsinu, aðallega varðandi alla þjdnustu við starfsfólk. Upphaf- leg stærð hússins var 4040 fer- metrar, en eftir breytinguna varð það 6665 fermetrar. Sú áætlun, sem kom þá, hljóðaði upp á 150 millj. kr. auk véla sem við eigum sjálfir, að upphæð 22.7 millj. kr. í febrúarmánuði sJ. vorum við búnir að leggja í húsið 153 millj. kr., en þá hljóðaði byggingaráæti- unin upp á 284 millj. kr., en ef við gerum ráð fyrir að byggingunni ljúki á næsta ári ætti kostnaður ekki að fara yfir 350 millj. kr.“ „Þið leggið mikið upp úr öllum aðbúnaði starfsfólksins. Borgar það sig?“ Góð aðstaða starfsfólks „Það er rétt, að f þessari bygg- ingu verður mikið lagt upp úr allri aðstöðu fyrir fólkið. Ég tel að þótt þessi aðstaða hafi mikinn kostnað f för með sér, þá muni hann skila sér. Sfðastliðinn vetur tókum við mötuneyti frystihúss- ins f notkun og þar boröar allt aðkomufólk, sem vinnúr í frysti- húsi KASK og eins og þeir að- komumenn, sem eru á bátunum hérna. Þetta fólk allt ber það mikla virðingu fyrir þessum stað, að umgengni er öll til fyrirmynd- ar. Það má kannski segja, að í fljótu bragði virðist kannski óeðli- lega mikið vera lagt í húsið, en ég tel að eftir 2—3 ár verði talið sjálfsagt að frystihús verði svona úr garði gerð. Öll áherzla hefur verið lögð á, að stór og rúmgóð snyritherbergi, þar sem eru með- al annars margir sturtuklefar, þvóttahús til að þvo hlífðarföt, eins og t.d.sloppastarfsfólsins. Þá verður einnigí húsinu þjálfunar- salur, þar sem hægt verður að kenna fólki, hvernig á að með- höndla fisk í vinnslu og ennfrem- ur kennsla f hreinlæti. Ennfrem- (Jr frystigeymslu frystihússins Borðsaiur mötuneytisins er bjartur og rúmgóður ur verður rannsóknarstofa f tengslum við fiskvinnsluna." Fyrsti áfanginn 1972 „Hvaða áfangi var fyrst tekinn í notkun?“ „Fyrsti áfanginn var tekinn í notkun 1972, en það er 1000 lesta frystigeymsla. Á þessu ári var mötuneytið tekið í notkun og sömuleiðis var hafist handa við að frysta loðnu í vinnslusalnum f vetur, en þessa dagana er fryst síld þar.“ „Hvernig verður aðstaðan í vinnslusalnum?" „1 sjálfum vinnslusalnum verða tvær vinnslulínur, er svo má segja. Önnur verður fyrir almenna fisk- vinnslu, hin fyrir loðnufreystingu að vetrarlagi, en humarvinnslu að sumarlagi. Um þessar mundir er verið að byrja á fiskmóttöku, en hugmyndin er að taka móttökuna og kæligeymslu fyrir fiskinn í notkun á komandi vetrarvertíð. í vor er svo hugmyndin að humar- vinnslan verði flutt í húsið og það fullgert fyrir lok ársins 1975, ef fjármagn fæst. Sjálf fiskmóttakan á að geta tekið 160 lestir af fiski, en síðan er kæld geymsla sem á að taka 240 lestir. Frystigeymslan tekur svo eins og áður er getið 900—1000 lestir. Reiknað er með að afkasta- geta hússins miðað við 10 tfma vinnu á sólarhring verði801est- ir af slægðum fiski með haus. Þar að auki mun söltunarstöðin geta saltað 100 lestir á dag, þegar með þarf.“ „Eru engar nýjungar f hús- inu?“ 100 tonn fryst á sólarhring „Þær eru vafalaust margar, en nefna má skrúfupressuna svo- nefndu, sem notuðervið frysting- una. Þetta eru mjög afkastamikil tæki og við getum með þeim fryst 4—5 tonn á klukkutíma eða 100 lestir á sólarhring ef með þarf.“ „En þurfið þið ekki, þegar frystihúsið verður fullbúið, að eignast afkastameiri veiðiskip?" Skuttogarakaup á döfínni „Jú, og hugmyndin er að kaupa hingað skuttogara. Nú þegar er búið að stofna hlutafélag til þess og einnig er búið að fá tilskilin leyfi. Aðaleigendur hins nýstofn- aða hlutafélags eru: Fiskvinnslu- stöðin h.f., Fiskimjölsverksmiðj- an h.f. og Borgey h.f. En þótt búið sé að fá tilskilin leyfi til skut- togarakaupa, hefur af mörgum ástæðum ekki verið hægt að hrinda málinu í framkvæmd. „Hvernig veröur löndurnarað- stöðu háttað?" „Landað verður úr bátunum hér fyrir framan frystihúsið og verður landað beint upp á færi- bönd, sem síðan flytja fiskinn þessa 15 metra leið frá byggju- hausnum I húsið, en það sparar bæði tíma og penina." 140 manns við vinnu „En hvað munu margir vinna í húsinu, þegar starfsemin verður komin 1 fullan gang?“ „Við reiknum með að þar vinni 100—140 manns, en í gamla hús- inu hafa unnið 60—70 manns. Gamla frystihúsiö var byggt á ár- unum 1946—1948, og þá eingöngu til vinnslu á landbúnaðarvörum. Á árunum 1951—1962 var það stækkað mikið með það fyrir aug- um' að betra yrði að vinna sjávar- afla í því. Og það má geta þess, að í fyrsta skipti, sem fiskur var flakaður og saltaður á vetrar- vertíð á Hornafirði var árið 1952, fram til þess tíma hafði fiskurinn eingöngu verið saltaður." — Þ.Ö. f fólk — fólk — fólk — fólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.