Morgunblaðið - 27.10.1974, Side 18

Morgunblaðið - 27.10.1974, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÖBER 1974 Farvegur Jökulsár á Brú, sem er ein af stóru jökulánum þremur, sem hugmyndir eru um að tengja saman f eina mikia Austf jarðavirkjun. Jarð- fræðirannsóknir hafa farið fram á öllum svæðinu og skýrslur f vinnslu. V atnsafls- rannsóknir víðsvegar um landið ÞEGAR rætt er um okkar miklu ónýttu orku f fallvötnum og jarð- varma, og hugmyndir eða áætlan- ir um vinnslu hennar, viil oft gleymast hve stórt verkefnið er og umfangsmikið. Um leið og farið er að ræða möguleikana á virkjun á einhverjum stað, hættir okkur leikmönnum til að halda, að nú megi bara fara að virkja og byrja á framkvæmdum. Við ger- um okkur af eðlilegum ástæðum litla grein fyrir þvf, hve lltið er I rauninni vitað um þetta land, vötn þess, jarðlög og eðli og hve tfmafrekar — og dýrar — rann- sóknir á þvf eru, sem hægt er að byggja á. M.a. með þetta f huga ræddum við í samtali við orku- máiastjóra, Jakob Björnsson, um rannsóknir orkustofnunarmanna á ýmsum hugsanlegum vatnsafls- virkjunarstöðum, f framhaldi af fyrra viðtali um samkeppnisað- stöðu okkar við aðrar þjóðir um orkuvinnslu og virkjun jarðvarma. Til hægðarauka tók- um við hringferð um iandið og byrjuðum á Vestf jörðum. — I sumar höfum við unnið á Glámuhálendinu að jarðfræði- og vatnafræðirannsóknum, með það fyrir augum að gera þar áætlanirj um vírkjanir, sagði Jakob. Ætlun- in er að gera heildarúttekt á möguleikum til vatnsaflsvirkjun- ar á Vestfjörðum. Jú, samanborið við aðra staði á landinu eru virkjunarmöguleikar á Vestfjörð- um ekki miklir, en miðað við þarf- , ir Vestfjarða eru þeir samt tals- | verðír. Ef til vill er sú orka, sem | þar fæst, nokkru dýrari en víða annars staðar. I sumar höfum við semsagt lokið við mælingar á Glámusvæðinu. Kort hafa þegar verið gerð af þeim hluta Glámu- svæðisins, þaðan sem vötnum hallar í Borgarvog og Dynjandis- vog í Arnarfirði. I vetur er ætlun- in að teikna kort af þeim hlutum svæðisins, sem eftir eru. Þá höf- um við aðallega í hug tvær virkjanir. Annars vegar einhvers staðar í Djúpinu og hins vegar á Barðaströndinni, við Suður-Fossá, vegna hugsanlegrar virkjunar þar, sem gæti fyrst og fremst haft gildí sem varastöð fyrir þennan hluta Vestfjarða. En hún er of lítil, til að verulega muni um hana til orkuvinnslu. 0 Blönduvirkjun með lóni á heiðinni — Á Norðurlandi höfum við fyrst og fremst unnið við Blöndu, sagði orkumálastjóri, er talið barst að þeim landshluta. Við erum búnir að mæla svæðið og þetta ár hefur verið unnið að þvl að teikna yfirlitskort, sem við er- um að fá. Auk þess var byrjað á borunum þarna i sumar. Þessi virkjun er þannig hugsuð, að stífl- að verði frammi á Auðkúluheiði og vatnið mest leitt I skurðum út eftir hálendinu vestan Blöndu og síðan virkjað með neðanjarðar- stöð niður í Blöndudalinn vestan- megin frá, nokkru neðan en Guðlaugsstaðir. Þetta yrði um 130 mw rafstöð. — Hvað um lónið? Hafið þið gert einhverjar vistfræðirann- sóknir þar? — Frammi á heiðinni yrði nokkuð stórt lón. Og segja má, að þar þurfi vistfræðirannsóknir að koma til. Að vfsu ekki á sama hátt og I Þjórsárverum. Þarna er það ekki fuglavarp, heldur beit, sem við munum athuga. Við hyggjumst kortleggja hvaða beiti- land mundi fara undir vatn við mismunandi virkjunartilhögun og fá sérfræðing til að meta beitargildi þess lands. Þar mun- um við byggja á gróðurrannsókn- um og gróðurkortagerð Ingva Þorsteinssonar. — Saman við hvaða aðra staði yrði þessi virkjun borin. beear valið verður um virkjanir? — Til dæmis má bera þessa virkjunarmöguleika saman við staði hér á Suðurlandi, þar sem við vitum nokkurn veginn hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Og ef við tökum Norðurland, þá yrði samanburðurinn til dæmis við Dettifoss og Kröflu. Annars erum við með í athugun tvær tiltölulega litlar virkjanir í Skagafirðinum — um 30 mw hvor — við Jökulsárnar, eða nánara tiltekið við Merkigil og Villinga- nes. Af þessum tveimur virkjunarstöðum held ég að óhætt sé að segja, að okkur lítist betur á virkjun við Villinganes, sakir betri aðstæðna þar. Utlit er fyrir, að orkukostnaður frá þessum virkjunum verði verulega hærri en frá Dettifossi, Kröflu eða Blöndu. Þarna yrði tiltölulega litið mannvirki, aðeins stifla I gljúfrinu og stöð hjá. Á þessum stað eru fyrst og fremst eftir ein- hverjar boranir. Þær voru á áætlun okkar fyrir næsta ár, en ekki er alveg ljóst ennþá hve mikið fé fæst til þeirra. Fáist það ekki næsta ár, þá gerum við þær á árinu 1976. 0 Dettifoss- ' virkjun efnileg t — Og þið eruð langt komnir 'með rannsóknir á Jökulsá á Fjöllum? Eru nokkrir vankantar á virkjun þar? — Já, þar höfum við verið við boranir nokkur undanfarin ár. Við erum að búa okkur undir að gera I vetur einskonar yfirlits- skýrslu um virkjunarmöguleika við Dettifoss á grundvelli allra þessara rannsókna. Við eigum von á, að sú skýrsla muni sýna að þarna sé um hagkvæma virkjun að ræða, með fullkomlega sam- bærilegu verði við það, sem gerist hér sunnanlands. Þetta yrði 160—170 mw virkjun, sem gerð yrði I einu lagi. Rannsóknir eru komnar það langt á veg, að ekkert er því til fyrirstöðu að taka megi ákvörðun um hvort þarna skuli virkja eða ekki. Ekkert hefur komið fram, sem útilokar mann- virki þarna. En að vlsu þarf ýmis- legs að gæta. Við höfum gert mælingar á hugsanlegum hreyf- ingum jarðlaga og hreyfingar hafa raunar komið I ljós. En til- gangur þessara mælinga er fyrst og fremst sá, að gera það fært að velja mannvirkinu stað þannig að sllkar jarðlagahreyfingar valdi ekki skemmdum á þessu, eða sem allra minnstum. — Þar skammt frá er svo Krafla, þar sem unnið er að virkjunarundirbúningi og langt komið með að bora tvær rann- sóknaholur. Allar likur benda til þess, að vonir um hitastig þar muni standast. Ef þessi borun ber þann árangur, sem við vonumst til, þá geri ég ráð fyrir, að næsta sumar megi hefja vinnsluboranir. Verði virkjuð 55 mw, þarf að bora 15 holur, sem tekur væntanlega 2—3 ár, en það fer mjög eftir því hve lengi er hægt að vinna að borun á hverju ári vegna tíðar- fars. Þess er ekki vænzt, að öflun gufu munu tefja það, að Kröflu- virkjun komist I gagnið. Enda þótt 15 holur þurfi fyrir 55 mw afl, getur stöðin unnið með lægri afköstum þótt ekki sé búið að bora þær allar. Rætt hefur verið um, að Kröfluvirkjun gæti náð fullum afköstum 1978 eða þar um bil. — En ef svo færi, að tilrauna- boranir sýndu, að ekki væri hag- kvæmt að virkja við Kröflu, hvað þá? — Éf boranirnar gefa neikvæða niðurstöðu, þá heimila lögin að stöðin sé staðsett við austánvert Námafjall og þar er reiknað fneð, að borun gefi góðan árangur. Búið er að bora svo mikið á Náma- f jallssvæðinu, að óhætt er talið að reikna með þessu. — En þar koma til erfiðari umhverfisvandamál, er það ekki? — Ég veit ekki hvort þau eru til muna örðugri I sjálfu sér. Við höfum kannað þetta talsvert, m.a. frárennslisvatnið, sem er svipað hvort heldur er frá Kröflu eða Námaskarði. Frá báðum stöðum er gert ráð fyrir að sleppa vatninu út I hraun, sem þarna liggur fyrir austan, Búrfellshraun. Þar sígur það niður I grunnvatnið. Það tek- ur grunnvatnið nokkurn tíma að ná fram á yfirborðið, hvort heldur er I Mývatni eða annars staðar. Á leiðinni kólnar vatnið og fellir út efni, sem I þvi eru. Við eigum ekki von á, að þetta hafi skaðleg umhverfisáhrif. Sérstaklega hefur því verið gefinn gaumur hvort Mývatni væri hætta búin, en við getum ekki séð, að svo geti orðið, frá hvorum staðnum sem vatnið kemur. Þar styðjumst við m.a. við þá vinnslu, sem nú á sér stað I Bjarnarflagi, sem er miklu nær Mývatni en sá staður I Búr- fellshrauni, þar sem vatninu yrði sleppt niður. Fylgzt hefur verið með vatni, t.d. I Grjótagjá, og ekki orðið vart ,við neinar breytingar eftir að vinnsla hófst við Bjarnar- flag. Ef stöðin yrði sett við aust- anvert Námafjall, mundu væntan- lea hverfa hverirnir, sem þar eru nú, og er ferðamönnum hugsan- lega eftirsjón að þeim. En þeir gætu þá fengið Kröflu I staðinn, ef hún dugar ekki til jarðvarma- vinnslu, sem við búumst raunar við að hún geri. — Ef Kröfluvirkjun getur ekki komizt I fullt gagn fyrr en 1978, verður þá ekki of langt bil á milli virkjana? Verður nokkur afgang- ur af rafmagni hér að sunnan? — Menn hafa verið að gera sér vonir um að hluti þeirrar línu, sem er verið að leggja norður, verði tilbúinn I lok ársins 1975, þannig að létta megi Norðurlandi vestra af Laxársvæðinu. Til þess þarf að ljúka við kaflann úr Borgarfirði að Blönduósi a.m.k. Gert er ráð fyrir, að rafmagn verði tiltækt sunnanlands inn á þá línu mestan hluta ársins. Og þó að geti komið þau tilvik sem hér um ræðir, yrði það rafmagn, sem flytja mætti I lok 1975, fyrst I stað einkum notað á Norðurlandi vestra og þannig létt á Laxár- svæðinu, en þaðan er ekki um að Orka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.