Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974
_____JÓN ÚR VÖR:
BANAKRINGLUV ERKURINN
Stundum er sagt við mig: Þú
sem ert að skrifa í blöðin, hvers-
vegna hreyfirðu ekki þessu og
þessu sem fólk tiltekur. Ég hlýt
að svara: Skrifa mjög sjaldan í
blöð og næstum eingöngu um
sama efnið: Kjaramál rithöfunda.
Þetta er grátlega satt.
Það er líkt á komið fyrir mér og
sumum pistlahöfundum sértrúar-
safnaðanna. Við spyrjum: Að
hvaða gagni kemur þetta sífellda
nudd? Og huggun okkar er þessi:
Þó að við heyjum vonlitla baráttu
og komum litlu til leiðar, getur þó
skeð að eitthvert þeirra sannleiks-
korna, sem okkur auðnast að sá,
spíri einhverntima i hugskoti
annars manns, sem betri hefur
aðstöðu og sambönd. Hann getur
þá með góðri samvisku trúað því
að honum hafi sjálfum dottið það
í hug, og tekið málið upp á sína
arma.
En hversvegna skrifarðu ekki
um annað og vinsælla efni, kynni
einhver að spyrja. Enn hlýt ég að
svara sannleikanum samkvæmt.
Ég er rithöfundur, stéttvís rithöf-
undur. Ég skrifa um það, sem ég
er beðinn að skrifa um, og tek
fyrir það borgun. Rithöfundur,
sem býður blöðum, timaritum eða
öðrum fjölmiðlum að skrifa fyrir
lítið eða aðeins fyrir ánægjuna af
því að sjá nafn sitt og skrif á
prenti, er eins og vinnufús kaup-
maður, sem af einskærri hugsjón
og hollustu við atvinnurekendur
býðst til að vinna kauplaust við
höfnina í frítíma sínum.
Nú veit ég, að þeir menn eru til,
sem finnst það bara fallegt og
eftirbreytnisvert að vinna fyrir
lítið. En þetta er einmitt ein af
þeim dyggðum, sem er dálftið
vafasöm, þegar betur er að gáð.
Hún getur komið sér illa fyrir
aðra, enda geta þeir einir leyft sér
að vinna fyrir lítið eða ekkert,
sem hafa tryggt eigin efnahagsaf-
komu á öðrum vettvangi. Hvað
myndu þeir hafnarverkamenn
segja, sem yrðu gerðir afturreka
af vinnustað vegna þess ódýra
vinnuafls, sem ég tek hér til
dæmis? Hvernig ætli verkalýðn-
um hefði gengið í kaupgjalds- og
mannréttindabaráttu sinni, ef
svona gustukamenn við atvinnu-
vegina hefðu verið látnir vaða
uppi síðustu áratugi?
En hversvegna er hann Jón nú
að tala um þetta? Er þetta ekki
óþekkt fyrirbrigði?
Ónei. Þetta er nú einmitt það
sem enn er að gerast. Enn hefur
okkur rithöfundum, lfklega einu
mönnunum á landi hér, ekki
tekist að koma félagsmálum
okkar í það horf, að við sjálfir —
hvað þá aðrir — taki mark á
okkur. Nýlega var gerður samn-
ingur um heildarsamtök rithöf-
unda, ný útgáfa á eldra formi. En
glundroðinn er furðu lffsseigur.
„Ekki batnar Birni enn bana-
kringluverkurinn," segir i göml-
um húsgangi.
Eins og margoft hefur verið frá
sagt í fréttum var á síðastliðnu
vori stofnað nýtt Rithöfundasam-
band. Það á að hafa alla forystu í
kjarabaráttu rithöfunda. Stjórn
þess skipa fimm menn, en auk
þess var á rithöfundaþingi kosið
12 manna rithöfundaráð. 1 samn-
ingum við gömlu félögin tvö, var
ákveðið, að þau yrðu, ef þau vildu
lifa áfram, valdalausir klúbbar,
sem ekki var ætlast til að töluðu
opinberlega fyrir hönd stéttar-
innar. En auðvitað getur hver rit-
höfundur sem einstaklingur sagt
sitt álit á hverju sem er milli
himins og jarðar — og eru þar
ekki undanskilin kjaramál rithöf-
unda.
Margir sáu það fyrir, að ef
gömlu félögin ætluðu að lifa
áfram, yrði að breyta nöfnum
þeirra. Nöfn þeirra voru á sfnum
tíma miðuð við það að hvort félag-
ið fyrir sig vildi láta stjórnarvöld
líta sig sem aðalmálsvara stéttar-
innar. Reynsla síðustu daga sýnir
að hér dugar ekkert hálfkák. For-
maður Hagalínsfélagsins virðist
hafa misskilið þann samning, sem
gerður var með stofnun Rithöf-
undasambandsins — og hefur nú
ruglað flest dagblöðin, útvarp og
sjónvarp einu sinni enn í riminu
— og þar með þjóðina alla.
En kannski er þó annað enn
alvarlegra: Fréttin af fyrsta fundi
hins nýja Rithöfundaráðs. Rithöf-
undaráð, hvað er nú það, spyrja
menn. Þar er nú annar misskiln-
ingurinn frá. Eftir mfnum skiln-
ingi og margra fleiri átti sá 12
manna hópur, sem kosinn var á
rithöfundaþinginu, að vera stjórn
Rithöfundasambandsins til ráðu-
neytis, vera nokkurskonar undir-
deild. En nú hefur það gert sjálft
sig að „sérstofnun" og kosið sér
stjórn. Þetta held ég að tólfmenn-
ingarnir hafi haft mjög vafasama
heimild til. Og sannfærður er ég
um það, að þessi skipan mála
verður ekki til blessunar.
Eins og nú er lítur yfirbygging
rithöfundasamtakanna svona út:
Rithöfundafélag íslands (vinstri
menn) form. Vilborg Dagbjarts-
dóttir, Félag ísl. rithöfunda (með
Hagalínsstefnu) formaður Jónas
Guðmundsson, Rithöfundasam-
band íslands (allsherjarstéttar-
félag) formaður Sigurður A.
Magnússon, loks Rithöfundaráð
(„sérstök stofnun") formaður
Indriði G. Þorsteinsson. Er hér
ekki enn að gerast það, sem við
héldum að við hefðum fengið nóg
af, tugir toppmanna I stjórnum,
sem keppast við að koma á fram-
færi við fjölmiðla nýjum og nýj-
um samþykktum með myndabirt-
ingu og miklum bægslagangi. —
Og síðan rfkir algjör þögn? Við
sitjum áfram f sama farinu.
Það gæti orðið all flókið
reikningsdæmi fyrir embættis-
menn ráðuneytanna að meta verð-
leikahlutabréf þessa fríða for-
ingjahóps með tilliti til boða í
ráðherraveislur.
Verkefni Rithöfundasambands-
ins eru mörg og má varla dragast
lengur að stjórn þess taki til
höndum. Nýlega voru samþykkt á
Alþingi ný höfundalög. Væri ekki
rétt að fara að taka þau til alvar-
legrar athugunar, byggja starf
okkar á þeim, sjá hvernig þau
reynast? Ég þarf ekki að minna á
samningsleysi rithöfunda við
Ríkisútvarpið, það ófremdar-
ástand hefur ríkt í mörg ár. Ný-
lega var sagt frá því í blaðaviðtali
við einn af ráðamönnum útvarps-
ins, að tilteknar dagskrár, — sem
ekki þykja víst afburða uppbyggi-
legar —, væru fluttar meðal
annars vegna þess að efni þeirra
þyrfti ekki að greiða eða að það
fengist fyrir lítið gjald. Hvað væri
sagt ef ráðamenn háskóla eða
menntaskóla tækju við aðsendum
fyrirlesurum á þeim forsendum,
að þeir fengjust fyrir lítið og væri
því hægt að spara kennaralaun.
Ég hef heyrt opinbera ráða-
menn telja það aðalsmerki út-
varpsins hér að mikill hluti hins
talaða orðs sé frá svokölluðu al-
þýðufólki, hér sé lítill greinar-
munur gerður á hinum lærðu og
ólærðu. Það er að vísu satt, að
margt af þvf besta í útvarpi og
sjónvarpi er frá „almenningi"
komið. En samt er það mjög var-
hugaverð stefna að láta þessa al-
þýðudýrkun — mér liggur við að
segja alþýðusnobb — ráða ríkjum
endalaust og athugasemdalaust.
Allir menn og allar stéttir þjóð-
félagsins eiga rétt á því að koma
fram í fjölmiðlum, en ekki vegna
þess að þeir geri minni kröfur en
aðrir um gjald fyrir þjónustu
sina. Á meðan ekki er sóst eftir
sérhæfileikafólki, verður örðugt
fyrir þessar menningarstofnanir
að koma sér upp góðum hópi út-
varps- og sjónvarpsmanna. Þarna
er sérstaklega þrengt að rithöf-
undum, sem í rauninni ættu að
eiga öðrum greiðari aðgang að
þessum stofnunum. Reyndin er
sú, að þeir komast þar sjaldnar að
en eðlilegt mætti teljast, einmitt
vegna framboðs þeirra, sem ekki
þurfa að gera miklar kaupkröfur.
Hvað yrði sagt, ef ráðamenn út-
varps og sjónvarps réðu til verk-
legra framkvæmda ófaglært fólk?
Ef slíkt væri gert myndu margir
hrópa: Hér er verið að brjóta
landslög!
Eins og ég hef áður tekið fram
er ég ekki að amast við góðu efni
frá fólki, sem ekki er félagsbund-
ið í samtökum rithöfunda, rithöf-
undar eiga engan einkarétt á við-
skiptum við útvarp, sjónvarp eða
bókaútgefendur. En Rithöfunda-
samband Islands er viðurkennt af
ríkinu sem samningsaðili rithöf-
unda — og þess vegna eiga rithöf-
undar ekki að þola það, fremur en
hafnarverkamenn, að ófélags-
bundnir aðilar bjóði þjónustu
sína ókeypis eða með undirboð-
um. Það er líka til skaða að
margir aðilar eða einstaklingar
geri mismunandi kröfur fyrir
hönd stéttarinnar og f hennar
nafni, nema að það sé þá skýrt
fram tekið að hver einstaklingur
geri það á sína ábyrgð — og það
vil ég taka fram, að ég geri í öllum
mínum skrifum. — En lagalegan
rétt til samninga eða verkfalls-
hótana hefur aðeins einn aðili:
Rithöfundasamband tslands og
það verður að búa svo um hnút-
ana, að fjölmiðlar og allur al-
menningur viti hvar hið eiginlega
stéttarfélag rithöfunda er að
finna.
sös Hjúkrunarkona.
Starf hjúkrunarkonu við Heilsuverndarstöð
Hafnarfjarðar er laust til umsóknar. Umsóknir
sendist undirrituðum fyrir 3. nóvember n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
HVAR SEM A ER LITIO •••
ALLIR VEGIR FÆRIR Á
YOKOHAMA
YOKOHAMA SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ EÐA ÁN NAGLA
Ú7SÖLUSTAÐIR
UM LANDALLT
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA • VÉLADEILD
Jón úr Vör.